Þjóðviljinn - 29.11.1959, Page 5
Sunnudagnr 29. nóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Stjornin vill fresta þingina
Framhald af 1. síðu.
samþykkta þingfrestun í næstu
viku.
Þegar einnig var spurt um
vanefndir Ólafs Thórs í neðri
deild kom Bjarni Benediktsson
upp í ræðustól og sagði fáein
orð, og það eitt um Ólaf Thórs
að hann væri lasinn. Mætti Ól-
afur ekki á þingfundum í gær.
Harðorð mótmæli gegn
frestuninni
f báðum deildum urðu miklar
umræður utan dagskrár um
þingfrestunina, og var henni
harðlega mótmælt. Var klukkan
nærri þrjú er umræðum utan
dagskrár lauk í efri deild. Var
þá leitað afbrigða fyrir fyrsta
tekjuöflunarmálinu, en minni-
hluta fjárhagsnefndar hafði ver-
ið neitað um frest þar til í
gær að ganga frá nefndaráliti.
Voru afbrigðin samþykkt með 11
atkvæðum gegn 8 en einfaldur
meirihluti nægir til að sam-
þykkja afbrigði um stjórnar-
frumvarp. Var fundinum haldið
áfram eftir kaffihlé.
Bráðabirgðalögin ekki
lögð fyrir?
í neðri deild stóðu umræður
utan dagskrár fram yfir kaffi-
hlé kl. 4. Mæltust þingmenn
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknarflokksins eindregið til að
þessu óeðlilega fundahaldi yrði
hætt og ekki reynt að keyra
málin í gegn með afbrigðum,
sem hlyti að vera gert til þess
eins að losna við þingið sem
fyrst.
Varð lítið um varnir af rík-
isstjórnarinnar hálfu. Ingólf-
ur Jónsson og Bjarni Bene-
diktsson sögðu nokkur orð, en
neituðu með öllu að svara
fyrirspurnum stjórnarand-
stæðinga. Þannig neitaði Ing-
ólfur með öllu að svara hvort
bráðabirgalögin um búvöru-
verðið yrðu lögð fyrir þingið.
:i= v
Vegna þess hve blaðið fór
snemma í pressuna í gær voru
ekki tök á að rekja frekar það
sem gerðist á þingfundunum, en
skýrt mun frá niðurstöðum í
næsta blaði.
Vélbátur strand-
ar við Grindavík
I fyrrakvöld strandaði v.b.
Þorkatla GK 97 skammt frá
Grindavík. Áhöfnin, 8 menn,
bjargaðist í land heil á húfi.
Báturinn var smíðaður árið
'1946, 67 brúttólestir að stærð,
‘og bar eitt sinn nafnið Þorgeir
goði. Eigandi var Hraðfrysti-
hús Þórkötlustaða h.f. Grinda-
vík.
Við þessi andlit kannast
vafalaust margir. Þau eru
bandarísku leikararnir Sus-
an Hayward og Jeff Chandl-
er.
Hondifökur
í Tokíó
Lögreglan í Tokio í Japan
hefur handtekið þrjá forystu-
menn Sambands vinstrisinnaðra
stúdenta í .borginni. Einnig hef
ur lögreglan boðað handtökur
allmargra foringja verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Stúdentar o g verkamenn
stóðu fyfir fjölmennum mót-
mælafundi og mótmælagöngu
fyrir framan þinghúsið í Tokio,
tii þess að mótmæla endurnýj-
un ihermálasamnings Japans og
Bandaríkjanna og áf'limhald-
andi hersetu Bandarikjamanna
í Japan.
Allar tegundir trygginga.
Höfum hús og íbúðir til
sölu víðsvegar um bæinn.
Höfum kaupendur að
íbúðum.
Austurstræti 10, 5. hæð.
Sími 13428.
Eftir kl. 7, sími 33983.
Drengjabuxor
ur
ensku
sevjoti
VALBORG
Austurstræti 12
Matrósa-
i föt
L
úr ensku sevjoti
Stærðir 4 til 7 ára
Verð írá kr. 420,00
VALBORG
Austurstræti 12
Verkainamiafélagið Dagsbrún
verður haldinn í Iðnó, mánudaginn 30. þ.m.
klukkan 8.30 s.d.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Kosið í uppstillingarnefnd og kjörstjórn
3. Samningamálin
Fjölmennið og sýnið skírteini við inn-
ganginn.
STJÖRNIN.
1000 tíma ramagnsperur fyrirliggjandi
15_25—40—60—82—109 Watt.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Mars Trading Company hJ.,
Klapparstíg 20 — Sími 1-73-73.
Árekstrar á Álafossi
Framhald af 1. síðu
hins vegar, að Pétur, bróðir
Asbjarn~r, sem er deildarstjóri
í verksmiðjunni, sækir Júgó-
slavann aftur til vinnu. Var
Júgóslavinn vefari og bar Pét-
ur því við, að hann mætti ekki
missa hann frá því starfi. Hins
vegar var Ásbjörn búinn að fá
annan mann í starfið.
Starfsfólkið í verksmiðjunni
mótmælti þegar þessu gerræði
Péturs. M.a. skrifuðu milli 30
og 40 manns sig á lista og hót-
uðu að hætta vinnu í verk-
smiðjunni, ef Júgóslavinn yrði
ekki þegar í stað látinn fara.
Pétur gekk nú á fólkið, sem
hafði skrifað á iistann, með
skömmum og svívirðingum og
reyndi jafnframt að koma fram
hefndaraðgerðum gegn sumu af
því. Þannig tók hann t.d. lykla
af einum verkstjóranum og ætl-
aði að banna honum að ganga
um verksmiðjuna. Einni stúlk-
unni hótaði hann að setja hana
á vakt frá kl. 6 á morgnanna
til kl. 5 á kvöldin en treysti
sér þó ekki til þess að koma
því í framkvæmd og tók í
þess stað af henni alla auka-
vinnu, en hún var ráðin tilj
verksmiðjunnar upp á þau kjör.
að mega vinna aukavinnu eins
og hún kærði sig um.
Nú fyrir helgina lét Ásbjörn
Júgóslavann fara úr vinnu öðru
sinni og í dag ætluðu eigendur
verksmiðjuríhar að halda ráð-
stefnu með sér um þetta mál.
Vildi ekki
verða séní
Orson Wells, hinn kunn/
bandaríski kvikmyndasnilling-
ur, hefur tjáð blaðamönnum í
New York, að fyrir þrem árum
hafi bandaríska sjónvarpið
boðið sér starf sem spurnipga-
snillingi við það fyrirtæki.
Wells hafnaði tilboðinu, en
Cliarles van Doren gleypti við
þessu, og allir vita hvernig fór.
AV A I P
frá Sálarrannsóknarfélagi Islands
Sálarrannsóknarfélag Islands hefur ákveðið að stofna
til bókaútgáfu, með það fyrir augum að gefa út merk-
ar bækur um sálarrannsóknir, dulræn efni og andleg
mál, ýmist frumsamdar eða þýddar, fyrst um sinn
eina bók á ári, en síðar fleiri, ef útgáfan fær góðar
viðtökur almennings.
Fyrsta bókin, sem Bókafélag S.R.F.l. (en svo nefnist
útgáfan) gefur út, verður úrval af erindum og rit-
gerðum eftir Einar H. Kvaran um sálræn efni, og
heitir bókin:
„EITT VEIT ÉG“
Þessi bók er gefin út í tilefni af aldarafmæli skálds-
ins hinn 6. desember næstkomandi. I bókinni, sem
verður um 400 bls. í sama broti og „Morgunn“, tlma-
rit Sálarrannsóknarfélagsins, verða prentaðar um 20
meiri háttar ritgerðir og fyrirlestrar, sem birzt hafa.
á víð og dreif í tímaritum á árunum 1905—1938, eða
verið gefnar út sérprentaðar, og flestar löngu ófáan-
legar. Auk þess nokkurt efni, sem aldrei hefur verið
prentað.
Bækur þær, sem Bókafélag S.R.F.Í. gefur út, verða
seldar skráðum félagsmönnum þess allmiklu ódýrar,
en hægt verður að selja bækurnar á almennum hóka-
markaði. Verð á þessari fyrstu bók félagsins verðnr
þannig aðeins 80 kr. heft, en 115 kr. innb., send
burðargjaldsfrítt gegn póstkröfu beint til félags-
manna (en á almennum bókamarkaði verður bókin
seld á 150 kr. heft, en 195 kr. innb.).
Þeir, sem óska . að verða félagsmenn í Bókafélagi
S.R.F.Í., og þannig verða aðnjótandi þeirra sérstöku
kjara, sem hér er um að ræða, og jafnframt stuðla að
útgáfu bóka um þessi efni, eru beðnir að rita nafn
sitt og heimilisfahg á meðfylgjandi seðil, klippa hann
út, og senda seðilinn ófrímerktan og án þess að iáta
hann í umslag, j póst til Bókafélags S.R.F.Í., Pósthölf
433, Reykjavík.
Til BékaSélags S.R.F.Í.,
PcsElnólI 433, Reykjavík
Undirrit....... óskar að gerast félagi í Bókafélági
S.R.F.Í. Óska ég að fé félagsbók þessa árs serjda
burðargjaldsfrítt gegn póstkröfu — hefta á 80 kr.
innb. á 115 kr. — (strikið út það sem ekki á við)
Nafn: .......................................:. :. .
Heimilisfang ...............................ý.'...
Má leggja
ófrímerkt
í póst