Þjóðviljinn - 28.09.1960, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 28.09.1960, Blaðsíða 12
Hrossastóð í Þverórrétt Um miðja síðustu viku var vígð Þverárrétt i landi Högtiastaða í Þverárhlíð, Mýrasýslu. Er þeílta hið myndarlegasta mannvirki, steinsteypt, dilkarnir 33 tals- ins og stór almenningur. Sauðfé var fyrst rekið í hina nýju Þverárrétt, en nokkrum dögum eftir réttar- vígsluna síðastliðinn sunnu- dag, var þar enn margt um manninn og margar skepnurn- ar. í það skipti voru hross bænda úr Borgarfjarðar- og Mýrasýslum rekin tii réttar. Gizkað er á að þarna hafi verið milli 1200 og 1500 hross saman komin og munu þó oft hafa verið mun fleiri í gömlu Þverárrétt eða allt að 3 til 4 þúsund. Réttarstjórinn var Magnús Kristjánsson bóndi í Norð- tungu. Ljósmyndari Þjóðviljans kom við1 í Þverárrétt á sunnudaginn og tók þá mynd- irnar, sem fylgja þessum lín- um hér á síðunni. „Ulsýn" - vikublað Alþýðubandalagsins Ákvörðun tekin um írambúðar útgáíu þess, < Bjarni írá Hoíteigi ráðinn ritstjóri Á morgun, fimmtudag, hefur Útsýn, vikublað Alþýóu- bandalagsins, göngu sína að nýju. Mun blaðið koma út vikulega framvegis, 8 síður í hvert skipti. Œtitstjóri tjtsýnar hefur ver- ið ráðinn Bjarni Benediktsson frá Hofteigi, en framkvæmda- stóri Örn Erlendsson. Rit- stjórn og afgreiðsla 'blaðsins verður til húsa að Þórsgötu 1. 1 Málgagn Alþýðubandalagsins 'Þegar Alþýðubandalagið, kosningasamtök vinstri manna, var stofnað á árinu 1956 var hafin útgáfa á málgagni þess, ítsýn. Kom blaðið út vikulega fram að alþingiskosningunum og var ábyrgðarmaður þess iFinnbogi R. Valdemarsson. lEkki reyndist unnt að gera Útsýn að föstu vikublaði og ollu því einkum fjárhagsörðug- leikar. Útgáfa blaðsins lá því niðri fram á vor 1959, er hún hófst að nýju. Var blaðið þá gefið út vikulega fram að fyrri alþingiskosningunum og var ábyrgðarmaður Haraldur Stein- þórsson. Blaðið var eíðan aft- ur gefið út fyrir síðari kosn- ingarnar 1959 undir ritstjórn Bjarna Benediktssonar frá Hofteigi. Hann hefur nú á ný verið ráðinn ritstjóri blaðsins, sem ætlunin er að komi fram- vegis út vikulega, eins og áður var sagt. Blaðnefnd Útsýnar skipa: Pinnbogi Rútur Valdi- marsson, Hannibal Va'dimars- son og Lúðvík Jósepsson. Neðri myndin t.h. þarfnast ekki sérstakra skýringa hún er af mæðgum sem komu til Þverárréttar, hryssu og fol- aldi hennar. Stóra myndin ofar á síð- unni var tekin er verið var að reka einn hrossahópinn í réttina, en myndin hér til vinstri er af Ásmundi Ey- steinssyni frá Ilögnastöðum í Þverárhlíð. Ásmundur er sagður þekkja öll mörk á Vesturlandi og reyndar þó víðar væri leitað. í Þverár- rétt á sunnudaginn þekkti hann hvert einasta hross sem rekið var til réttarinnar, og þuríti ekki einu sinni að l’ta á mörkin. Einnig gat hann án hiks sagt frá því undan hvaða hryssum folöldin voru. Gekk Ásmundur um meðal hross- anna í almenningnum með staf í hendi. benti á hvern einstakan grip og sagði í hvaða dilk hann skyldi dreg- inn .Þurfti hann aidrei að grípa til markaskrárinnar. einstætt minni á mörk og skepnur og glöggskyggni brást aldrei. (Ljósm. Ari Kárason) ASI: að sam* ræma 9 O Siglufirði Prá fréttaritara Þjóðviljans. Siglfirzkir verkamenn hafa lýst yfir megnasta van- trausli á efnahagsaðgerðir núverandi ríkisstjórnar. Telja þeir jafnfrapit, að brýnasta verkefni næsta Alþýðusam- bandsþings sé að samræma kröfur verkalýðsfélEganna og skipuleggja þá kjarabaráttu, sem óhjákvæmilega er íramundan. Ályktun þessa efnis var sam- þykkt með samhljóða atkvæð- um á fundi, sem haldinn var fyrir helgina í Verkamannafé- laginu Þrótti á Siglufirði. Ályktunin er í helld á þessa ! leið: „Fundur í Verkamannafé- laginu Þró'tti á Siglufirði, S háldinn 22. september 1960,1 lýsir yfir megnasta van- trausti á efnahagsaðgerðir núverandi ríkisstjórnar og telur það lágmarkskröfu, sem gera verði til hverrar ríkisstjórnar, er að völdum situr, að hún tryggi þegn- um sírnun viðunandi lífskjör fyrir laun 8 stunda vinnu- dags. Fundurinn telur það brýnustu verkefni næst kjomandi Alþýðusambands- þings að sainræma kröfur verkalýðsfélaganna og skipuleggja þá kjarabaráttu, sem óhjákvæmilega er fram- undan. í be'mu framhaldi af því feiur fundurinn væntan- legum fulltrúum félagsins á Aljýðusambandsþingi að vini'a eítir megni að sam- j stöðu allra launþega og fela þeim einum forystu í stjórn Alþýðusambandsins, sem fyllilega má treysta í þeim átökum, sem framund- an eru.“ Pulltrúar Verkamannafélags- ins Þróttar á 27. þing Alþýðu- sambands íslands verða kjörn- ir að viðhafðri allherjarat- kvæðagreiðslu, eins og áður hef- ur verið skýrt frá hér í blað- inu. Undansláttur værí heríitegustu svik Á fundi sem haldin var ný- lega í Verkamannafélaginu Frótti á Siglufirðj var eftir- farandi tillaga í landhelgis- málinu samþykkt einróma: „Fundur í Verkamannaíé- laginu Þróttur á Sigiufirði, haldinn 22, september 1960, skorar á ríkisstjórn Islands að standa fast á rétti Islands í landlielgismálinu og telur að frávik frá 12 mílna fisk- veiðilögsögu umhverfis landið komi ekki til greina, enda væri allur undansláttur gagn- vart Bretum be:n árás á lí.fs- hagsmuni íslenzku þjóðarinn- ar, sem ekki er liægt að þola. Fundui'inn vill alveg sérstak- lega mótmæla ö'.lum íillögum, sem frani kunna að koma um, að Bretuni ec.i öðrum verði veitt fríðlndi innan fiskveiði- landhelginnar fyrir Norðui- og Austurlandi og telur að slíkur imdans'.áitur væri liin . lierfilegustu svik og bein árás á lífshagsmuni þess fólks, þlÓÐVIU INN [ Miðvikudagur 28. september 1960 — 25. árgangur —*• 217, tbl.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.