Þjóðviljinn - 26.10.1960, Side 4
rA) ■— ÞJÓÐVILJINN -— Miðvikudagur 26. október 1960
Teikning af framhlið fyrirhugaðrar hjónabandshallar í Moskvu. Arkitektinn heitir Solopof.
Októberhréí írá Moskvu
Dagur
heimsins
Fyrir tuttugu og fimm ár-
nm síðan var að frumkvæði
Gorkis gefin út mikil bók, sem
ibar nafnið „Dagur heimsins".
í þessa bók voru skráðir þeir
atburðir sem gerðust 27'.
september 1935, og var mik-
ið starf unnið til að þessar
upplýsingar yrðu sem fjöl-
breyttastar en mest af efninu
var tínt til úr blöðum heims-
ins. í ár var ákveðið að end-
urtaka iþessa skemmtilegu til-
raun til að bregða upp mynd
af heimi okkar með stuttum
iýsingum á stórum og smá-
um viðburðum eins dags 'í lífi
þjóðanna.
(Blöðin. og þá einkum Izv-
estia, hafa undanfarna daga
tilgreint sitthvað af því sem
fyrir bar 27. september.
Fréttamaður Izvestía í New
Yor|: talaði við Krústjoff
þenrtan dag. Forsætisráðherr-
annslét vel af starfi allsherj-
a rþingsins: gagnmerk mál
hafi verið tekin fyrir, afvopn-
un, nýlendur, skipulag Sam-
einuðu þjóðanna; einnig hafi
samtö'kunum borizt góður
b'ðsstyrkur ungra Afríkurikja.
Þá minntist Krústjoff Moskvu
f.yrir 25 árum og kváðst mikið
glaður ýfir því, live hún og
aðrar sovézkar boraif ' hefðu
vaxjð- að mannvirkjum og
meWuiBgu síðan þá.
Haldinn var borgarstjórnar-
fundur í Moskvu. Fundarefni:
húsnæðLsmál, verndun fornra
byeginga, þróun garða og
gróðurs. Frá Akmolínsk í
Kazakstan hafa þau merku
tíðindi borizt, að Sjúlgín á
kornvin^sluvél St-6 hafi farið
yfir 318 hektara lands og
malað þar 580 tonn af korni.
Ungir menn frá Suður-Amer-
íku fljúga yfir Atlanzhafið á
leið í Vináttuháskólann 'i
Moskvu brennandi í andanum,
Saroyan. amer'ískur rithöfund-
ur armenskrar ættar, kom
þennan dag til Odessu; hann
mun heimsækja 'hið forna og
fagra ættland sitt, Armeníu
í Sevpstonopl er verið^að rífa
niður beitiskip; skal það brætt
unp til gagnlegra hluta.
Ojstrakh býr sig undir tón-
leika í tónlistarháskólanum.
í Róm er verkfall byggingar-
verkamanna. 'Pablo Neruda
segir frá kunningjum sínum
í París. Hann skrifar nú langt
ljóð sem nefnist „Jarð-
skjálfti“, og skal ágóða af
þeirri bók varið til að byggja
yfir það fólk, sem týndi al-
eigu sinni í jarðskjálftunum
miklu í Chile; Picasso. Dali,
Miro og fleiri hafa lofað að
myndskreyta verkið.
I ákóla 118 í Leningrad fékk
Anna Sjúbnaja úr sjöunda
B fjóra og fimm í dagseink-
un, en hefur undanfarið orð-
ið að láta sér nægja þrjá.
Og í sjötta bekk slógust tveir
strákar sem annars hafa ver-
ið mestu mátar. Það var af
þVÍ að annar þeirra móðgaði
hana Lenu litlu úr sama bekk,
Moskva
á haustin
Moskva er fallegust á haust-
in. þá eru trén rauð og gul
og laufin detta bliðlega ofan
á vegfarandann. Á morgnana
koma kerlingar með svuntur
og scpa laufunum saman.
Loftið er hressandi. Stundum
kemur rigning með stormi og
rúður brotna í húsum þar sem
óvarkárir menn búa. Islend-
íngar í , borginni 'ganga um í
ráðalevsi og láta sig dreyma
um nýjan blóðmör og svið.
Rússar scfna sveppum og
salta og sjóða niður til vetr-
arins. Frá Kákasus og Búlg-
aríu hefur borizt mikið af
vínberjum. Börnin róla sér í
ihúfum og frökkum. Sumar-
kaffihúsin eru búin að loka,
Erenbúrg hefur lokið við end-
urminuingar sínar,
Fclkið í bænum talar um
alþ.ióðapólitík. olympíuleika og
verð á ávöxtum, Eg hefi séð
Effir Árna
Bergmann
greinar um styttingu vinnu-
timans, en sú mannlifsbót er
nú senn fullframkvæmd. Rætt
er um það hvort betra sé að
vinna sjö stundir á dag .eða
halda fyrri vinnudegi og eiga
tvo frídaga. Greinahöfundar
segja það hafi yfirleitt tek-
izt vel að skipta yfir á stytt-
an vionut'íma; laun hafi hald-
izt óskert eða þá hækkað. Þá
er líka verið að endurökipu-
ieggja launakerfið, og stefnt
er í þá átt að launastigin
verði eitthvað jafnari. Árang-
ur þessa árs: iðnverkamönn-
um sem fá minna en 600
rúblur á mánuði hefur fækk-
að um meir en helming
Sovézkum 'hefur leiðzt það
mikið, hve hátíðlegir viðburð-
ir í mannlegu lífi fara fram á
óskáldlegan hátt í landinu.
Þeir sem vilja giftast hafa
t.d. orðið að láta pússa sig
saman á kauðalegum skrif-
stofum, en í næsta herbergi
eru skráðar bamsfæðingar eða
dauðsföll. Því riðu Leningrad-
búar á vaðið og stofnuðu til
hjónabandshallar, til að brúð-
ihjón séu hátíðleg og full virð-
ingar fyrir athöfninni og einn-
ig glöð í sálinni. Tvær slík-
ar hallir eru í bígerð í Mos'k-
vu. 'Húsameistarinn Solopof
segir svo frá s'ínum tillögum,
að útlit hallarinnar skuli sýna
það sem glögglegast að þetta
er hamingjunnar hús: hér
verða léttar línur og Ijóshaf
inn um glerveggi. Brúðhjónin
munu ganga beina og teppum
lagða slóð upp hin ýmsu stig
athafnarinnar: fyrst em
skráðar niður óhjákvæmilegar
staðreyndir, þá er gengið upp
í biðsal forkunnlegan og að
lokum ganga þau upp í Sal
Hátíðlegra Viðburða. Síðan
gai’ga menn niður um Mynda-
safn mannkynsins niður ,í
veizlusali.
Rjúblof
í ár er þess minnzt, að
liðin em sex hundruð ár frá
fæðingu Andrei Rubljofs, sem
var mestur helgimyndamálari
Rússlands og brautryðjandi
þess skóla, sem lengst var
ríkjandi í kirkjulegri list þessa
lands. Það er ekki mikið sem
hefpr varðveitzt af myndum
hans, en það sem enn er til
er stórfenglegt og lofar meist-
arann fagurlega, I tilefni þess-
arar hátíðar hefur mikið ver-
ið skrifað um Rúbljof í blöð
og tímarit, gefnar út bækur,
haldin sýning. Það er merki-
legt að heyra Rússa tala um
Rúbljof: um hið mikla sam-
ræmi í myndbyggingunni, um
hinar mjúku línur, um hinn
hnitmiðaða leik litanna.
Venjulega Skrifa sovézkir
meira um aðrar hliðar mynd-
lisfarinnar: um hið sögulega.
hið sálfræðilega, en þó fvrst
lagslege 'ærdóma. En Rúbljof
er svo ’nngt burtu frá okkur,
að sv''leiðú? tal kemur ein-
hvern veginn ekki heim við
hina hcgværu engla hans og
postula.
Sovézkir em oft taldir
þröngsýnir 'í listum. Þegar
skoðanir manna eru bundn-
ar fvrst og fremst sögulegu,
þjóðfélagslegu mati á lista-
verkum, en skólalærdómur
Framhald á 10. síðu
■:
' Að spila góða vörn í bridge
er oft erfiðara en menn gera
sér ljóst qg skilur þar á milli
goðfiC 1meðáObi'i€éérúáhiiá.
hýóVGÍ;^ ertda 'e'lcikí %.ifæri fiemá'’
iW
í dæmi okkar í dag fékk aust-
ur tvö tækifæri til að setja
spilið niður en notfærði sér
góðra bridgemanna að setja
það niður.
Spilið var eftirfarandir
S: A-G-4-2
H: K-3
T: A-D-10-8
L: 9-6-4
S: 8-7
H: D-G-10-8-4
T: 5-3-2
L: A-3-2
N
V A
S
S: D-10-9-C
H: 7-5-2
T: K-9-6-4
S: K-5-3
H: A-9-6
T: G-7
L:
Samningurinn var þrjú
grönd spiluð af suðri. Útspil
vesturs var hjai-tadrottning,
sem fékk að halda slagnum.
Enn kom hjarta, drepið í borði
og laufi spilað. Austur lét
lágt og var það villa nr. 1.
Auðséð er, að ef hánn lætur
kónginn og spilar hjarta, þá
getur suður ekki unnið spil-
ið. Suður lét drottninguna og
D-G-l 0-8-5
vestur gerði það bezta sem
hægt var með því að gefa
hana. Enn kom lauf og austur
fór inn á kónginn og spilaði
síðasta hjartanu sínu. Suður
svínaði siðan tíglinum, austur
tók á kónginn og spilaði tígli
til baka. Áður en síðasti tíg-
ull norðurs var tekinn var
staðan eftirfarandi:
S: A-G-4-2
H: ekkcrt
T: A
L: ekkert
S: D-10-9-6
H: ekkert
T: 9
L: ekkert
S: K-5-3
H: ekkert
T: ekkert
L: 10-8
S: 8-7
H; G-10
T: ekkert
L: A
Sigurhans
Hannesson
75ára
Sigurhans Hannesson járn-
smiður, Laugavegi 93, er 75
ára í dag. Sigurhans var einn
af stofnendum Sveinafélags
járnsmiða 1920 og hefur síðan
tekið hinn bezta þátt í sam-
tökum jiánriðnaðarmanna.
Hann gerði notkun logsuðu-
tækja að sérgrein sinni og hef-
ur lagt fram sinn drjúga
skerf til hinnar öru þróunar
sem orðið hefur i járniðnaði
hérlendis. Þjóðviljinn árnar
Sigurhans allra heilla i tilefni
dagsins.
Sigurhans dvelst utan bæjar
í dag.
Vörnin hefur fengið þrjá
slagi, einn á hjarta, einn á lauf
og einn á tígul. Til þess að
setja spilið niður verður hún
að fá tvo í viðbót. Nú kpm
síðasti tígullinn. Suður lét lauf,
og vestur verður að láta hjarta
(við sjáum af hverju á eftir).
Þá kom lágsþaði, austur lét
spaðasex og var það villa nr.
2. Suður drap með kóng, spil-
aði meiri spaða, gaf yfir" til
austurs og hann varð að spila
upp í gaffalinn hjá norðri. Til
þess að 'setja spilið niður verð-
ur austur að láta spaða níu
og þá sést greirilega af hverju
V. verður að halda báðum spöð-
unum. Suður drepur á kóng og
spilar spaða aftur en er nú
varnarlaus af því að vestur á
slaginn á spaðaáttuna ef hann
g'efur, því að austur getur látið
Þessu spili mundu flestir
góðir bridgemenn bana þar eð
þeir hafa gott auga fyrir þeim
stöðum, sem koma fyrir í þessu
dæmi.
LÖGFRÆÐI-
STÖRF
endurskoðun og
fasteignasala.
Ragnar Ólafsson
hæstaréttarlögmaður og
löggiltur endurskoðandi.
Sími 2-22-93.