Þjóðviljinn - 27.04.1961, Page 3
(3
----- Fimmtudagur 27. apríl 1961 — ÞJÖÐVILJINN —
KEFLAVÍKURGANGAN
KI. 6 að morgiíi sunnudagsins 7. maá aka bif-
reiðir um bælim cg taka félk fiao sem keíur skráð
sig í Keflavíkuígönffima. Klukkan át*a leugur kóp-
unnn af sSaS hk Kella^skuzflugvallaihliðimi í 50
km. göngu tií Hevkiavíkur. Þann dag em liðin 10
ár frá því að bandaiiski herinn kom hingað ti!
Iands í annað si'nn.
í fyrradan vcru nær 200 manns búnir a3 til-
kynna þátttöku og þas: sem enn ezn 11 dagar til
steínu má bvast við a3 gangan vcrði miklu f;’öl-
mcnnari en í fyrra.
í fyrradag hélt hópur fó!V;s
úr samtökum hernámsandslæl-
inga íund að viðátöddum frétta-
mönnum þeirra blaða er
styðja málstað samtakanna.
13 klst. nanga — úti-
fundur í lok sögunnar
Kjartan Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka her-
námsandstæðinga. ræddi um
gönguna og undirbúning' henn-
ar. Hann sagði að gangan
myndi hef.iast við hlið Kefla-
víkurfiugvallar og verða með
sama sniði og i fvrra. Búist
er við að gangan taki um 13
k'.ukkustundir og verður íarið
liægt yfir með góðum hvíldum.
Á miðri leið, við Kúagerði,
verður komið upp tjöldum og
þar verður á boðstólum létt
næring. drykkir og súpur, en
göngumenn verða s.iálfir að
hafa með sér kjarnmeira nesti.
Við viJjum eindreeið hvetja
fólk til að vera vel útbúið. með
góð hlífðarföt, vel útbúið til
fótanna Qg með nægilegt nesti,
sagði Kjartan.
Reiknað er með að göngu-
íólkið komi í bæinn urn kl.
9 um kvöldið og verður hald-
inn útiíundur í lok göngunn-
ar. Nánar verður skýrt frá
útifundinum síðar.
Veg og vanda af undirbún-
ingi göngunnar hefur sérstök
nefnd. sem er skipuð þessu
íólki: Biörn Þorsteinsson. sagn-
l'ræðingur, Þorvarður Örnólís-
son kennari. Vigdís Finhboga-
dóttir frú. Drífa Viðar frú,
Siauríón Finarsson kfnnari og
ungírú Jóhanna Eiríksdóttir.
Géingan blési kappi
í kinn
Björn Þorsteinsson tók næst-
ur til mrls og sagði að nú
væru friðarsöngur á rróti her-
væðingu og hersetu v'ða farn-
ar, m.a. i Fnglandi, Þýzkalandi
og Danmörku. Þær göngur eru
með öðru sniði. Páskagangan í
Bretlandi tekur þrjá daga. en
Hér á myndinni er fjölskylda sem ætlar að fara í Keflavíkurgönguna, talið frá vinstri:
Pétur Hraunfjörð og börn lian,s Pétur, Björg og Birkir, og kona Péturs, Helga Tryggvadótt-
ir. A myndina vantar son þeirra Kristján, sem einnig ætlar að taka þátt í göngunni.
á hverjum degi er gengin mun
styttri vegalengd en við göng-
um á einum degi. í göngunni í
f.vrra voru unglingar um ferm-
ingaraldur og fólk komið á
áttræðisaldur og engum varð
meint af — þvert á móti batn-
aúi mömmm, andlegir og likam,-
leg'r kvillar hurfu með öllu og
menn öðluðust aukið sjálfs-
traust. Gangan blés mönnum
kappi í kinn, gangan var upp-
liaf þeirrar fjtjidahreyfingar,
sem útbreiddust og ijflugust
liefur orðið liér á íslandi.
6 ©
e *
Fréttamaðurinn snéri sér
fvrst til Sigurðar Guðnason-
ar, fyrrverandi formanpis
verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar. .
— Varst þú ekki elzti þátt-
takandinn í fyrra?
— Ja, ég veit ekki hvað ég
má segja, sagði Sigurður og
leit brosandi til Sigríðar Sæ-
land, ljósmóður. Það er a.m.k.
óhætt að segja að við Sigríð-
ur vorum elztu þátttakendurn-
ir.
— Þú æt’ar að fara aftur?
.— Ég ákveð það nú ekki
íyrr en á síðustu stundu. Ég
er nú á engan hátt ver-r und-
ir það búinn. Það er eins og
fólk sé hætt að nota fæturna
— þetta er ekki nokkur hlut-
ur að lalla þetta. Áður fyrr
var þetta aldrei talin nein
þrekraun. Þá fór maður gang-
andi til að leita sér vinnu. nú
til þess að fá fram málefni
sem manni er eklti sama um.
Sigriður Sæla-nd sat við
næsta borð með Björgvini Ól-
afssyni og Ólafi Jónssyni.
— Mér fannst þetta aískap-
lega létt verk, sagði Sigríður,
ég var svo vön að hlaupa
Strandaheiði þegar ég var
stelpa.
Ejörgvin og Ólafur gengu
báð'r í fvrra og' cru ákveðnir
í að ganga enn á ný. Þeir
sögðu að marair kunningjar
þeirra hefðu séð eftir því að
hefa ekki verið með í göng-
unni í fyrra, þegar þeir vissu
hvað þetta reyndist létt verk.
Þa'r vilia samt eindresið ráð-
legsía fólki að vera í þykkum
og góðum gönguskóm. sem búið
er pð ganga til.
Edda Guðnadóttir, Hulda
Linda Wendcl og Jóhanna Eiríksdóttir (Myndirnar tók K.).
Hulda Bjarnadóttir, skrifari
Bjarnadóttir og Margrét Þór-
oddsdóttir sátu saman við borð.
-— Þetta er ekkert þrekvirki,
sögðu Edda og Hulda. Svo var
sérstök stemmning yfir göng-
unni og skemmtilegt að vera
þar með. Við erum vissar um
að þátttakan í, göngunni verð-
ur niikiu meiri nú, þvi það
voru svo margir sem sáu eftir
því að hafa ekki farið í fyrra.
Nokkrir voru þá hræddir um
að það yrði svo, lítil þátt-
taka.
— Var margt kvenfólk í
göngunni?
— Furðu margt. Ekki minna
en þriðiungur þátttakenda.
Margrét Þóroddsdóttir hafði
lítið lagt til málanna, enda var
hún ekki í bænum er gangan
fór fram: — Annars hefði ég
farið, sagði hún, og' ég ætla
að ganga núna. Það verður
anzi spennandi að spreyta sig
á þessu.
Edda og Huida sögðu að það
hefði verið mikils virði fyrir
göngufólkið hvað margt manna
tók á móti því á götunum og
útifundinum.
Jóhanna Eiríksdóttir og
Linda Wendel sögðu frétta-
manni að þær hefðu komið í
gönguna í Kópavogi. en nú ætl-
uðu þær að ganga a!2a leið.
Jóhanna er í skóla. en Linda
vinnur á rannsóknarstofunni á
Keldum. Jóhanna bjóst við að
margir þeir sem væru að lesa
undir próf myndu ekki geta
farið í gönguna, en myndu á-
reiðanlega koma inn í göng-
una er hún kemur til bæjar-
ins. Þær voru sannfærðar um
að rnargir kunningjar þeirra,
sem ekki tóku þátt í göngunni
í fyrra, myndu koma með nú.
Helga Tryggvadóttir er
margra barna móðir. Hún gekk
alla leið í fyrra ásamt eigin-
manni sínum, Pétri Hraun-
fjörð, og tveim sonúm, 13 og
15 ára gömlúm. Nú ætla þau
að ganga aftur — í þetta skipti
með fjÖgur börn.
Helga sagði, að hvorki hún
né strákarnir hefðu orðið neitt
eftir sig eftir gönguna. Mér
fannst ótrúlega margt í gong-
unni þegar korriið var í bæ-
inn, ég trúði þvi var!a að hún
gæti stækkað svo rnikið, sagði
Helga.
Að endingu settist fréttamað-
urinn við borð hjá Magnúsi
Árnasyni. listmálara og syni
hans Vífli. Barbara, kona
Magnúsar. hafði setið þar til
skamms tíma, en var nýfarin.
Barbara og Magnús gensu í
fyrra, en VífiH kom inn í göng-
una við bæinn. Nú æt!a þau
þrjú að ganga alla leið frá
Keflavík til Reykjav'kur.
'k'k'k
í kvö'd ætlar svo þetta á-
gæta fólk að koma saman í
Lido. til að gera sér dagamun.
Þansað cr öllum hernámsand-
stæðingum boðið og er aðgárig-
ur ókevpis. Jónas Á'.'nason
rithöfundur les sögu, Svein-
björn Beintcinsson kveður rímu,
Kristín Anna Þórarinsdóttlr
flytur skemmtiþátt, botnasain-
keppni, og fluttur verður leik-
þátturinn VíxiIIinn. Skemmtun
þessi hefst kl. 9.
★ ★ ★
Og nú ættu allir þeir sem
eru búnir að ákveða að taka
þátt í göngunni að tilkynna
þátttöku, því það auðveldar
undirbúning.
Hittumst hcil í Lido og síð-
ar, í gúngunni 7. maí.
Bjúrgviui Ciafsson, prentarl
Sigríður Sæland, ljósmóðir
Ólafur Jónsson, vcrkamaður