Þjóðviljinn - 27.05.1961, Side 11
Laugardagur 27. ma'í 1961
ÞJÓÐVILJINN — (11
Útvarpið
1 dagr er lausardagnr 27.. maí.
Luciauus. Tungl í liásuðri kl.
22.34. Ardegisháflæði kl. 3.13
Síödegisliáriæði ld. 15.34.
Na'turvarzla vikuna
mr* iy§g§ii»te
Blysavarðstolan er opln aílaD 661-
nrhringinn. — Læknavörður L.R
6r á eama stað kl. 18 tll 8. sim'
l-BO-30
Eókasaín Dagsbrúnar Freyjugötu
27 er opið föstudaga kl. 8—10 e.h.
og laugardaga og sunnudaga kl.
4—7 e.h.
trTVARPEE)
1
DAG:
12.55 Óskalög sjúklinga. 14.30
Laugardagslögin. 16.00 Fréttir og
tilkynningar. — Framhald laug-
ardagslaganna. 18.30 Tómstunda-
þáttur barna og unglinga. 18.55
Reykjafoss fór frá Hamborg í
gær til Nörresundby. Selfoss fói'
frá isáfirði í gær til Akureyrar,
Siglufjarðar og iKeflav. Tröllafoss
kom til Rvikur 25. þm. frá N. Y.
T.ungufos|,jft5i riú, VpsímEiiiJUíeyj-
"m 25 Þní tu
.bóngar.' Rostock, (Jdynia, ^fantyl-
•rmt'ö cSg Kotka. ‘‘
Tilkynningar, 19.20 Veðurfregnir.
20.00 L'éikrit’í Eihkálíf . mömmu,
gamaiileikur eftir Victol- Ruiz
Iriarte. Þýðandi: Sonjaí Diego. —
LeikstjórL: Baldvin Halldórsson.
22.10 Danslög. 24.00 Dagskrár’.ok.
Brúarfoss fer frá
Rotterdam í dag til
Hamborgar og Rvík-
UA- Dettifoss fór frá
N. Y. í gær til Rvík-
ur. Fjallfoss fór frá Gdynia 21.
þm. væntanlegur til Rvíkur í nótt.
Goðafoss kom til Rv.íkur 22. þ.m.
frá Dalvík. Gullfoss fer frá Rvík
kl. 20 í kvöld til Leith og K-
hafnar. Lagarfoss er d Hafnarf.
fer þaðan til Keflavíkur, Vest-
mannaeyja og þaðan til Hull,
Grimsby, Hamborgar og Noregs.
Hvassafell . er í On-
ega, Arnarfell er í
Archangelsk. Jökul-
fell er á Hull. Disar-
fell er í Mantyluoto.
Litlafel]1 er í o'íufl. í Faxaflóa.
Helgafell er á Siglufirði. Hamra-
fell er í Hamborg.
Cloudmáster leigu-
flugvél Flugfélags Is-
lands fer til Oslóar,
K-hafnar og Ham-
borgar klukkan 10 í dag. Væntan-
leg aftur til Rvíkur kl. 18.00 á
morgun. Gullfaxi fer til Glasgow
og K-hafnar kl. 8 í fyrramálið. —
Innanlandsflug: I dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar 2 ferðir,
Egilsstaða, Húsavikur, Isafjarðar.
Sauðárkróks, Skógasands og
Vestmannaeyja 2 ferðir. — Á
morgun er áætlað :að fljúga til
Akureyrar 2 ferðir, Fagurhólsmýr-
ar, Hornafj. og Ve'stmannaeyja.
Snorri Sturluson er
væntanl. frá Ham-
borg, Kaupmanna-
höfn og Gautaborg
klukkan 22.00. Fer til N. Y. kl.
23.30.
Laxá lestar á Akureyri.
Kvcnnadeild Slysavarnafélagsins
: Reykjavík heldur fund í Slysa-
varnafélagshúsinu við Grandagarð
n.k. mánudag 29. maí klukkan
20.30. Fundarefni: Sumarstarfið,
kvikmyndasýning.
Hekla fer frá Kristi-
* ansand í kvöld til
Færeyja og Reykja-
víkur. Esja er á
i^usffjörðum á norðurleið. Herj-
jólf\ir fer frá Hornafirði í dag til,
Vestpiannaeyja og Reykjavíkur.
Þyrill er I Reykjavík. Skjaldbreið
er á Breiðafirði á vesturleið.
Herðubreið fer frá Reykjavík síð-
degis í dag vestur um land í
hringferð.
Langjöku’,1 er í
Keflavík. Vatnajökull
lestar á Austurlands-
höfnum.
Barnaheimilið Vorboðinn:
Tekið verður á móti umsóknum
um dvöl fyrir börn á barrtaheim-
ilinu Rauðhólum í dag
frá kl. 2—6 e.h. í skrifstofu
verkakvennafélagsins Framsókn-
ar, Hverfisgötu 8-10. Tekin verða
börn á aldrinum 4, 5 og 6 ára.
Lárétt:
1 hætta 6 ekla 8 torfa 9 frumefni
10 á lit 11 plokka 13 skóli 14
aðgætin 17 áhaldið.
Lóðrctt:
1 á fætur 2 sk.st. 3 klúmsa 4
eins 5 fær 6 háa 7 tæki 12 ota 13
hlut 15 upphr. 16 sk.st.
Opinber erindi.
N. k. sunnudagskvöld klukkan 9
e.h. flytur Gretar Fells fyrirlest-
ur í Guðspekifélagshúsinu Ing-
ólfsstræti 22 ,og . nqfnist hann: —
.,(E.í gui5 til“? Tj-.-ítljópÍíft.,^ ujid-
an og, eftir. ,A.Uir volkomnir.
Laugarneskirkja: ■. j ■
Messa klukkan 2. Aðalsafnaðar-
fundur að guðsþjónustu lokinni.
Séra Garðar Svavarsson.
Dömkirkjan:
Messa klukkan 11. Séra Öskar J.
Þorláksson.
Hallgríniskirkja:
Messa klukkan 11. Séra Jakob
Jónsson.
Háteigsprestakall:
Messa i Hátíðasal Sjómannaskól-
ans klukkan 2. Séra Jón Þor-
varðsson.
Fclag Eskfirðinga
og Reyðfirðinga
fer í lönd félagsins á Heiðmörk
í dag klukkan 14.
Þeir sem vilja lána bíla og aðrir
þátttakendur láti vita í síma
17734, 11735, 10872. — Stjómln.
Gengisskráning Sölugengi
1 sterlingspund 108.42
1 Bandaríkjadollar 38.10
1 Kanadadollar 38.58
100 danskar krónur 551.00
100 norskar krónur 532.30
100 sænskar kr. 737.60
100 finnsk mörk 11.88
100 N. fr. franki 776.60
100 belgískir frankar 76.25
100 svissneskir frankar 881.30
100 Gyllini 1.060.35
100 tékkneskar kr. 528.45
100 vestur-þýzk mörk 959.70
1000 Lírur 61.39
100 austurríslcir sch. 146.35
100 pesetar 63.50
\Ii—úngarsp.jöld Kvenfélags Há-
teigssóknar eru afgreidd hjá eft-
irtöldum konum: Ágústu Jó-
hannsdóttur, Flókagötu 35, sími
11813. Áslaugu Sveinsdóttur,
Barmáhlíð 28 (12177). Gróu Guð-
jónsd'óttiii^'Staii'garhoÍti 8; (16139).
tíuðbjöfgu 'Eirkis,"1 Bárniahlíð 45
(Í4382), GuðrúnU Karlsdóttur,
Stigahlíð 4 (32249), Sigríði Benó-
nýsdóttur, Barmahlíð 7 (17659).
Kar!manmD
stndalcr
með innleggssóla.
Hentugir sumarskór
— úti og inni
Verð kr. 325.00
SVABTIR
KAKLMANNASKÓE
— margar gerðir.
Verð frá kr. 326.30.
'1K
■ ’ilííí
ÍRO
skódeilcl,
Skólavörðustíg 12.
Sími 12723.
Trúlofanir Giftingár Afmœli
Margery Allingham:
Voía fellur frá=
36. DAGUR
hafði skotrað augunum á
myndina til að aðgæta, hvort
hún hefði nokkuð skemmzt,
hallaði hann sér áfram.
,,Ertu nokkuð lasin, Claire?
Þú hefur verið taugaóstyrk og
eitthvað miður þín síðan mál-
verkasýningin var'*.
Honum til undrunar sneri
hún sér að honum með tals-
verðum þjósti.
„Það er ekki satt. Mér líður
ágætlega. Að minnnsta kosti
stendur það ekki í neinu sam-
handi við málverkasýninguna.
FJýttu þér. Þú verður' að ná í
hálfellefu lestina í Liverpool
stræti.
„Jæja þá“. Ilerra Potter var
orðinn jafnþungþúinn og dap-
Ur og áður. „Mér þykir leitt
að þurfa endilega að fara í
dag“, sagði hann. „Mér hefði
þótt gaman að geta gert nokk-
ur þrykk í viðbót. Frú Lafcadio
þætti vænt um að fá eitt, það
er ég Viss um. Það er annars
ljótanið að þurfa að standa í
þessari kennslu", hélt hann
áfram. „Það er nógu slæmt að
kenna fóiki sem hefur áhuga
á að læra, en þessir drengir
hafa hreint engan áhuga. Það
gerir manni mjög erfitt fyrir“.
Frú Potter svaraði engu
heldur dreypti á kaffinu úr
kaffiglösunum sem þau höfðu
haft með sér frá Belgíu og hún
virtist alls ekki vera að hugsa
um hann.
Iíerra Potter skotraði augun-
um .aftur á litógrafíuna sína.
..Hún færi mjög vel þarna
á veggnum“, sagði hann. „Birt-
an er góð1 og hún fengi að njóta
sín. Ég er að hugsa um að
ramma hana inn og hengja
hana upp, ef þér er sama, g'óða
mín“.
„Ég vil ekki sjá hana þar.
William. Ég er búin að hafa
mikið fyrir þessu herbergi.
Hér tek ég á móti nemendum
mínum og það skiptir mig
miklu máli að herbergið sé
einmitt svona“.
Frú Potter fann að henni
létti við að vera svona einörð.
Auk þess var útlit stofunnar
gamijlt deilumál þeirra á milli
og hún hafði alltaf hrósað sér
af því að hafa ekki látið per-
sónuleika eiginmannsins
skyggja á eigin persónuleika.
Henni datt aldrei í hug að það
væri ekki af rpiklu að státa.
Yfirleitt lét Potter undan
baráttulaust, en í dag hafði
sigurgleðin gert hann óvenju
djarfan.
„En góða mín,‘‘ sagði hann
mildum rómi. ,,Það er til fólk
sem hefur gaman af myndun-
um mínum. Það er hugsanlegt
að einhver kæmi auga á mynd-
ina og' vildi kaupa afþrykk.
Hertoginn af Caith keypti einu
sinni mynd. manstu það ékki.
Ilonum þótti hún falleg“,
„William, hættu þessu. Ég
þoli þetta ekki“.
Það var móðursýkihreimur í
rödd frú Potter og það var svo
ólíkt henni að maður hennar
steinþagnaði og starði á hana
opnum munni.
Þau snæddu það sem eftir
var þegjandi og síðaii rölti
Potter aftur inn í skúrinn
sinn með hina dýrmætu mynd
sína, jafnniðurdreginn og dap-
ur í bragði og hann átti að
sér.
Ivortér fyrir tíu lagði hann
af stað í skólann og þegar kon-
an hans horfði á eftir honum,
ósnyrtilegum og' álappalegum.
með myndabögglana . undir
handleggnum, vissi hún að hún
sæi hann ekki aftur fyrr en
klukkan sjö um kvðldið, Hún
veifaði honum til málamynda.
Hefði hún gert sér Ijóst að
hún myndi aldrei sjá hann
framar, er liæpið að kveðja
hennar hefði verið nokkru inni-
legri. Frá sjónarmiði eiginkonu
hans var herra Potter öldung-
is ómögujegur maður.
Boðsmiðarnir og tauþrykkin
og minniháttar húsverk höfðu
ofanaf fyrir írú Potter til kl.
eitt, en þá fór hún vfir til
Freds Rennie til að fá túpu af
"hvítu.
Neðri hluti gamla vagna-
skýlisins þar sem hinir leyni-
legu litir Lafcadios voru enn
útbúnir, minnti næstum á
vinnustofu gullgerðarmanns.
Fred Rennie var enginn efna-
fræðingur og hann vann á
kynlegan, frumstæðan hátt eins
og meistari hans hafði gért.
Inni var ólýsanlegt drasl og
líkurnar fyrir því að einhver
stæli uppgötvununum voru
hreint engar. Rennie gat einn
áttað sig á hillunum þar sem
ö’Iu ægði saman. eitri, mat og
dýrmætum, hreinum lit. Raðir
af gömlum sultukrukkum inni-
héldu dýrmætar blöndur og
þefurinn inni var mjög megn.
Fred Rennie var að vinna
og hann leit upp og brosti til
hennar. þegar hún kom inn.
Rennie var ekki um frú Pott-
er gefið. Honum fannst hún
hnýsin og smámunasöm og
hann grunaði hana um að vera
að reyna að kaupa af sér máln-
ingu undir kosnaðarverði. enda
hafði hann nokkuð fyrir sér i
því. Gamansemi hans var
býsna frumslæð og frú Potter
féll ekki. við hann, vegna þess
að hann bar . enga virðingu
fyrir henni og hætti til að með-
höndla hana sem jafningja.
Hann þurfti að flytja til
ýmsa húsmuni áður en hann
komst að stóru pressunni í
hinum enda herbergisins þar
sem hann geymdi hvítuna og
sneri bakinu að, þokaði frú
Potter sér að borðinu sem
hann hafði verið að vinna við
og horfði á það sem þar ægð
saman, ekki vegna bess að
hún hefði sérstakan áhug'a :á
þvi, heldur vegna þess að það
var ávani hjá henni að hnýs-
.ast í það sem annað fólk var
að gera. Þetta var alveg vél-
ræn hreyfing og hugur henn-
ar var víðs fjarri. niðursokk-
inn í hið óhugnanlega leynd-
armál, svo að henni varð
hverft við þegar Fred Rennie
rétti að henni stóran brúnan
pappírspoka fullan af hvítu
dufti. Hún sá í skælbrosandi
andlitið á honum bakvið hann.
„Fáðu þér í nefið,“ sagði
hann.
Henní líkaði ekki hvað hann
var kumpánlegur. svo að hún
talaði hvössum rómi.
„Ilvað er þetta?“
„Arsenik,“ sagði Fred Renn-
ie og' hló hrossahlátri. Hann
var fremur óheflaður náungi.
Hann fékk henni hvítuna,
stóð sig vel í hinu venjulega
þrefi þeirra um verðið, og
þegar hún fór burt, var hann
ánægður með að hafa veitt
henni nokkra ráðningu fyrir
hnýsnina.
Frú Potter hafði ekki mikinn
t’ma til að fá sér hádegismat.
Verzlunin í Kirkiustræti sem
seldi pennateikningarnar henn-
ar. hringdi um leið og hún
kom inn úr dyrunum og næsta
klukkutíma hafði hún nóg að
gera við að pakka inn, verð-
leggja og senda frá sér mynd-
ir.
Þegar hún kom inn aftur og
tók með sér pakkann með við-