Þjóðviljinn - 15.09.1961, Blaðsíða 12
• Svona lítur hann út, sá fyrsti
af fjórum Volkswagenbílum
sem um verður dregið í af-
mælishappdrætti Þjóðviljans.
• Þetta er nýjasta módelið af
hinum vinsæla þýzku fjöl-
skyldubíl, árgerð 1962, — og
er happdrættisbíllinn einn af
fyrstu bílunum af þessari gerð
sem kemur hingað til Islands.
• Bílnúmerið er svo sem sjá má
R-12580. Litur: grár.
Um bílinn verður dregið 31.
október n. k., á 25 ára aí-
mæli Þjóðviljans.
tudagur 15. september 1961 — 26. árgangur — 210. tölublað.
í fyrrinótt handtók Iögregl-
an mann, sem liefur játað á
sig innbrotið í Lídó aðafara-
nótt sl. miðvikudags.
Handtökuna bar að með
þeim hætti, að um kl. 5 um
nóttina var lögreglunni til-
kynnt, að maður væri að stela
bifreið á horni Bústaðavegar
og Ásgarðs. Brá lögreglan þeg-
ar við og náði manninum þar
á staðnum. Hefur hann játað
á sig að hafa stolið jeppabif-
reiðinni R-9876 fyrr um nótt-
ina og auk þess gert tilraun
til þess að stela tveim öðrum
bifreiðum.
Maðurinn var nokkuð ölvað-
ur, er hann var handtekinn,
og í fórum hans fannst óupp-
tekin koníaksflaska, er ekki
var merkt ríkinu. Lék í fyrstu
grunur á um það, að um
smyglað vín væri að ræða, en
við yfirheyrslu hjá rannsókn-
arlögreglunni í gær játaði
maðurinn, áð' flöskuna hefði
hann tekið í Lídó, er hann
l'ramdi innbrotið þar. Sagðist
manninum svo frá, að hann
hafi fundið, er hann var kom-
inn með flöskukassana fjóra
að útidyrunum, að hann var
að gera það, sem hann átti
ekki að gera og hætti hann
því við að stela öllu víninu.
Honum fannst hin-s vegar ó-
fært annaö en fá eitthvað fyr-
ir alla fyrirhöfnina Og Ségist
því hafa stungið á sig fjórum
flöskum um leið og hann fór.
Var það síðasta flaskan af
þessum fjórum, sem fannst
hjá honum. Starfsmenn í Lídó
telja þó, að þjófurinn muni
hafa tekið eitthvað meira en
fjórar flöskur.
Maður þessi er 23 ára gam-
all og er gamall kunningi lög-
reglunnar.
Hermaöur trylíist, er hann
var myndaður við Þórscafé
í gær birtust hér í blaðinu
myndir af íslenzkum stúlkum
og bandarískum hernámsliðum,
er teknar voru fyrir utan Þórs-
café sl miðvikudagskvöld. Hafa
þær myndir vakið athygli margra
og beint hugum manna að því
alvarlega vandamáli, sem sam-
skipti hermannanna bandarísku
og íslenzkrar æsku eru orðin,
en upp á síðkastið haía þau far-
ið sívaxandi og er nú svo komið,
að dagsdaglega má sjá hópa af
íslenzkum unglingsstúlkum, vart
af barnsaldri, í slagtogi við
þessa erlendu hermenn, bæði á
götum úti og á veitinga- og
skemmtistöðum. Er vissulega mál
til komið, að reynt sé að opna
augu manna fyrir þeirri geig-
vænlegu hættu, sem æskulýð
landsins er búin af þessum ó-
eðlilegu samskiptum og þeirri
spillingu er í kjölfar þeirra fylg-
í fyrrakvold lagði ungur mað-
ur leið sína fram hjá Þórscaíé
um það leyti, er dansleik var
þar að ljúka. Var þar enn sömu
t Sogú áb segja og áður, að þaðan
streymdu út bandarískir her-
námsliðar og í fylgd með þeim
voru kornungar íslenzkar stúlk-
ur. Voru þau öll meira og minna
undir áhrifum áféhgis. Maður-
inn var í bíl og tók hann nokkr-
ar myndir út um bílgluggann af
því, sem þarna fór fram. Vind-
ur sér þá bandarískur hermaður
að bílnum og slær til ljósmynd-
arans inn um opinn gluggann.
Ekki varð meira úr þessu að því
sinni og ók maðurinn burt.
Um klukkan hálf þrjú um
nóttina var maðurinn, sem
myndirnar tók á leið heim til
sín og sprakk þá hjá honum
hjólbarði á gatnamótum Stakka-
hlíðar og Skaftahlíðar. Fór hann
út til þess að gera við hjólbarð-
ann. Allt í einu rennir leigubíll
upp að hliðinni á honum og út
úr honum snarast bandarískur
hermaður í einkennisbúningi. Var
þar kominn sami hermaðurinn
og slegið hafði til hans fyrr um
kvöldið. Réðist hermaðurinn um-
svifalaust aftan að honum og
ætlaði að berja hann. Urðu
Síálbáturinn Katrín frá
Reyðarfirði sem seldur var
til Akraness Haraldi Böðvars-
syni & Co. verður skírður
upp og fær nafnið Skírnir
AK 12. Skírnir er 12 skipið
í eigu Haraldar Böðvarsson-
ar.
nokkrar sviptingar á rnilli þeirra
en um síðir kom bifreiðastjórinn
út og skakkaði leikinn og fékk
hermanninn til þess að fara aft-
ur inn í bifreiðina. Var hann
einn í bifreiðinni. ók bifreiðar-
stjcrinn síðan á burt.
Hér er vissulega um alvar-
legan atburð að ræða og sýnir
þessi fólskulega árás vel, hvern
mann þessi bandaríski hermaður
hefur að geyma og hversu hollt
muni fyrir íslenzkar unglings-
stúlkur að leggja lag sitt við
hann og hans líka, sem vissulega
eru margir í hópi þessara her-
námsliða. Jafnframt sýnir árás-
in, að hermaðurinn hefur fúndið
til sektar yfir atferli sínu og
viljað koma fram hefndum á
ljósmyndaranum fyrir að taka
myndir af honum og félögum
hans við þá þokkalegu iðju að
afvegaleiða íslenzkar unglings-
stúlkur.
Bölvun Efnahags-
bandalags Evrópu
KAUPMANNAHÖFN 14/9 —
Fimmti hluti dansks iðnaðar
verður fyrir alvarlegu áfalli
vegna erlendrar samkeppni ef
Danmörk gerist aðili að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, en hinir
fjórir fimmtuhlutarnir verða
ekki fyrir alvarlegu áfalli þótt
aðstaða þeirra versni. Á þessa
leið segir í skýrslu samtaka
danslua matvælaframleiðenda,
sem lögð var í dag fyrir utan-
ríkismálanefnd danska þingsins.
Skýrslan er annars að mestu
leyti trúnaðarmál og hún verður
ekki birt í smáatriðum fyrst um
sinn.
í þeim iðngreinum sem verða
Vesímartnaeyjum ; gser. • - Um
kl. 10 í gærkVÖ'lá urðu menn
varir við að skotið var neyð-
arblysi austúr ' áf eýiuhni.
Brugðust meriri' fljótt Við og
var Björgunarsveit V-éstrfiánná-
eyja kvödd út. Mehn voru til-
búnir að sigla út Öf slý§ tifefSi
orðið, en í l'jós kom áð tveir
drukknir mehn höfðu kómizt
yfir neyðarrakettur úr bát og
voru að skjóta þeim aústur á
eyjunni.
Hinum drukknú mönnum
var stungið í-’ svairtholið. eil
friðsömum borgurum ióí,ti stór-
um. a i/':
Skenmdir í Eyj-
um af völdum
veðurofsans
Vestmannaeyjum í gær. — í
fyrrinótt gerði hér hvassviðri
að austan oe gerði mikla fyll- •
ingu í höíninni, þar sem stór-
streymt var.
Allmargir bátar losnuðu og
nokkrir þeirr.a löskuðust lít-
ilsháttar. Menn voru að björg-
unarstörfum seinnihluta nætur
fram til 10 um morguninn. f
hvassviðrinu mun gatið. þar
sem belgíski togarinn Marie
José Rosett strandaði sl. vetur,
hafa aflagazt og stækkað, en
bæjarstjórn Vestmannaeyja
hefur mjög verið vítt fyrir það
hve viðgerðarframkvæmdir
hafa gengið seint.
m viðrœSna
kennara verði þegar bætt
Á ráðsfundi Æskulýðssam-
bands íslánds, sem haldinn var
fyrir skömmu, var gerð svo-
felld ályktun;
„Ráðsfundur Æskulýðssam-
bands í-llands, haldinn 31i
áfeúst 1961, vill vekja athygli á
þeirri hættu, sem búin er
anenntun uppeldi íslenzkrar
æsku vegna vaxandi kennara-
skorts í landinu.
Horfur eru á, að á komandi
vetri verði ekki unnt að halda
uppi lögboðinni kennslu í ýms-
um skólum, og fjöldi réttinda-
lausra kennara fer vaxandi.
Fundurinm telui\ að ekki megi
Iengur við svo búið standa,- ef
koma á í veg fyrir að íslend-
ingar dragist aftur úr öðrum
Evrópuþjóðum á ýmsum sviðum.
Því skorar fundurinn á yfir-
stjórn fræðslumálanna í land-
inu aft gangast hið fyrsta fyrir
því, að kjör og starfsskilyrði
kennarastéttarinnar verði bætt,
áður en afleiðingar þessa aivar-
lega ástands segja frekar til
sín.“
fyrir alvarlegasta áfallinu.
starfa 25.000 manns og fram-
leiða verðmæti fyrir meira en
milljarð danskra króna árlega.
Það er alkunna í Danmörku. að
þær iðngreinar sem hér um
ræðir eru þessar helzt: Járn-
steypa (framleiðsluverðmæti 130
milljónir danskra króna, 5000
starfsmenn), skóiðnaður (224
milljón kr.. 5600 starfsmenn),
trésmiði (505 millj. d. kr. 5000
starfsmenn). Gúmíiðnaður (158
millj. d. kr. 4100 starfsmenn),
kæliskápaframleiðsla (2000
starfsmenn), gleriðnaður (68
millj. d. kr. 1800 starfsmenn).
MOSKVA 14/9 — Gromyko, ut-
anríkisráðherra Sovétr'kjanna,
er reiðubúinn til viðræðna við
Rusk, utanríkisráðherra USA,
um Þýzkal.andsmálin og önnur
alþjóðleg deilumál, se'gir í til-
kynningu sovézka utanríkisráðu-
neytisins i dag.,
Gromyko. verður formaður
sendinefndar Sovétríkjanna á
allsherjarþingi SÞ sem kemur
saman í New York á næstunni.
Tassfréttastol'an segir að
þetta sé svar við tillögu Kenne-
dys í gær um að utanríkisráð-
herrarnir hittist og skiptist á
skoðunum.