Þjóðviljinn - 19.09.1961, Síða 12
Eins og skýrt var frá í sunnudagsblaðinu, unnu
Englendingar landslcikinn við íslendinga í Lund-
linum sl. laugardag, skoruðu eitt mark gegn engu.
■*— Myndin var tekin meðan á leiknum stóð og
sést Ellert Schram (í miðið) eiga í höggi við
Englendingana Martin vinstri bakvörð (til vinstri)
og R. Law, fyrirliða enska liðsins. — Fleiri mynd-
ir frá landsleiknum á Iþróttasíðu.
Hrakíarir Adenauers
í þfzku kosningunum
BONN 18 9 — Þingkosningar fóru
fram í Vestur-Þýzkalandi sl.
sunnudag. Flokkur Adenauers,
Kristilegi demókrataflokkurinn,
beið mikið afhroð og tapaði
Spaak kominn
iil Moskvu
MOSKVA 18/9 — Paul Henri
Spaak, utanríkisráðherra Belgíu,
kom í dag til Moskvu sem gest-
rr Krústjoffs forsætisráðherra.
Rudnev, varaforsætisráðherra,
•og ambassador Belgíu í Moskvu
tóku á móti honum á flugvell-
inum.
Spaak vildi ekki segja neitt um
fréttina af dauða Hammarskjölds.
T>egar fréttamenn spurðu hvaða
áhrif hann héldi að dauði Hamm-
arskjölds hefði á Sameinuðu
þ.jóöirnar. hristi Spaak' aðeins
höfuðið og þagði.
meirihlutanum á þingi. Sósíal-
demókrataflokkurinn og Frjálsi
demókrataflokkurinn juku báðir
fylgi sitt til muna. Úrsiitin eru
mikill ósigur fyrir hinn aftur-
haldssama flokk Adenauers og
fyrir hann sjálfan sem forsætis-
ráðherra og foringja flokksins.
Úrslit kosninganna voru ann-
ars þessi (innan sviga tölurnar
frá kosningunum 1957): Kristilegi
demókrataflokkurinn 14.239.984
atkv. (14,1 millj) 45,3% (50,3'V„)
243 þingmenn (283), Sósíaldemó-
krataf lokku r i n n 11.406.253 atkv.
(9,7 millj.) 36,3% (32%) 190 þing-
menn (169), Frjálsi demókrata-
flokkurinn 4.009.988 atkv. (2,3
millj.) 12,7%) (7,5%) 66 þingmenn
(41), Alþýzki flokkurinn (Gesamt-
deutscher Block) 871.208 atkv. (1,4
millj) 2,8% (4,4%i), Þýzka friðar-
sambandið 607.836 atkv. 1,9°
Þrír aðrir flokkar. sem buðu
fram, fengu færri atkvæði.
87,5 prósent af kosningarbæru
fólki tók þátt í kosningunum.
Ógild atkv. voru 1,3 millj. Þýzka
friðarsambandið er nýr stjórn-
málaflokkur, sem stofnaður var
á þessu ári.
Af þessum tölum sést, að
flokkur Adenauers missti þann
algjöra meirihluta, sem hann
hafði í þinginu. Víst þykir að
Kristilegir demókratar reyni að
fá Frjálsa demókrata til sam-
starfs um ríkisstjórn. Fyrir kosn-
ingarnar lét sá flokkur í ljós
vilja til samstarfs við Kristilega
demókrata, en þó alls ekki meðan
Adenauer væri kanzlari. Úrslitin
hafa þvi ýtt undir þær skoðanir
að Adenauer, sem er 86 ára, taki
sér nú loks hvíld. Sjálfur vildi
Adenauer ekkert um það segja
við blaðamenn í dag. Adenauer
lýsti yfir því að ekki kæmi til
greina að stjórna með sósíal-
demókrötum.
þlÓÐVILIINN
Þriðjudagur 19. september 1961 — 26. árgangur — 213. tölublað
Um kl. 3 á laugardagsnóttina
varð það hörmulega slys á Sel-
fossi að ung kona, Valgerður
Jdrvsdóttir, Njálsgötu 85 Rvík,
ók fólksbifreið undir vörubíls-
pall og beið nær samstundis
bana.
Samkvæmt upplýsingum iög-
regjunnar á Selfossi vaknaði
fólk í húsinu ■ Eyrarvegi 16 við
mikinn hávaða um þi’jú leytið
á laugardagsnótt og er það leit
út um gluggann sá það að á-
rekstur hafði orðið. Húsbóndinn
hljóp út og var fólksbifreiðin þá
hulin reyk og gufu o.g gekk
hreyfillinn á fullu. Er maðurinn
opnaði bílinn valt Valgerður út
í fangið á honum, og sýndist
honum að hún væri enn með
lífsmarki. Andartaki síðar kom
sjúkrab'll og lögreglan, og var
farið með Valgerði á spítalann,
en er þangað var komið var
ekkert lifsmark með henni.
Vörubifreiðin X - 351 stóð rétt
við gangstéttina og kattaraugu
á pallinum voru hrein og kynni
að vera, að Valgerður hafi
blindazt af ljósum annarrar
bifreiðar, en ekki var vitað um
að nein bifreið hafi verið þarna
á ferð. Ekkert vitni var að til-
drögum slyssins.
í bílnum hjá Valgerði var
karlmaður. Hann hljóp í burtu
er slysið varð, þar sem mikið
fát greip hann. Hans var leitað
af skátum um nóttina, þar sem
óttazt var að hann væri slas-
aður. Hann gaf sig fram um há-
degi á sunnudag; hafði hann
farið í hús á Selfossi, en heim-
iiisfólkið þar hafði ekki athug-
að að tilkynna lögreglunni um
hann. Maðurinn slapp furðu vel
frá árekstrinum; hann var stirð-
ur í göngu og skrámaður.
Valgerður var í Moskvitsjbif-
reiðinni R - 5583. smíðaár 1958.
Hún hafði komið til Selfoss að
heimsækja vinstúlku sína og um
kvöldið hafði hún farið á
dansleik á Selfossi. . Valgerður
var liðlega 24 ára gömul, og
lætur eftir sig 7 ára gamalt
barn.
aflient í gær
HOLMEDAL 189 — 'stytta sú af
fyrsta íslenzka landnámsmann-
inum, Ingólfi Arnarsyni, sem ís-
lendingar hafa. gefið. Norðmönn- :
um var afhjúpuðf;.% .Rivedal í
dag. Við athöínina ,í. óag,töiuð.u
N. Schei fylkisipa&mí.jii BJarr)!.
Benediktsson forsætisráðherra,
sem afhenti stý^Urwl Ajcsíi Hov-.
land, Auður Aúðuns, forsrni bæj-;
arstjórnar Reykjavíkur og Olav
Sörbö kennaru
dómsmálaráðherrá' 'Nore&í' ‘Vtfftti.
gjöfinni viðtöku af hálfu norsku'
ríkisstjórnarinhá
Munið
skifadcginn
á morgun
Skrifslofan Þórsgötu 1 erV
opin til klukkan tíu i kvöldV
og frá níu árdegis til tíu A
síðdegis á morgun.
>oooooooooooooo<$
Eins og frá var sagt hér í
blaðinu á sunnudag fórst bát-
urinn Helgi SF 50 frá Horna-
firði á Færeyjabanka sl. föstu-
dag og með honum 7 menn en
tveir björguðust. Hafa nú bor-
izt nánari fregnir af tildrög-
um slyssins heldur en komn-
ar voru, er blaðið fór í prent-
un síðdegis á laugardag.
Samkvæmt frásögn þeirra
tveggja manna er af 'komust,
Helga Símonarso.nar og Gunn-
ars Ásgeirssónar, varð slysið
um kl. 12.30 á föstudag. Voru
þá þrír skipverjar í lúkár, Ól-
afur Runólfsson, Bragi Gunn-
arsson og Helgi. en hinir sex
voru í stjórnklefa eða aftur í
skipinu. Allt í einu reið brot-
sjór yfir skipið og kastaði því
á hliðina áður en þeim, sem
við stýrið var, tækist að snúa
því upp í ölduna. Reisti skipið
sig ekki aftur og hvolfdi á
stuttri stund. Vannst enginn
tími til þess . að senda út
neyðarskeyti.
Skipverjum tókst öllum að
komast upp og gátu tveir
þeirra losaö gúmmíbátinn en
vannst ekki tími til þess að
kippa í snúruna, sem tekið er
í til þess að blása upp bát-
inn, áður en þeir urðu að
sleppa honum í sjóinn. Fjórir
skipverja flutu í sjónum hjá
gúmmíbátnum, þeir Ólafur,
Helgi, Bragi og Trausti. Áttu
þeir mjög örðugt með að finna
snúruna til þess að blása upp
bátinn en þó tókst Helga það
um síðir. Voru hinir þrír
mennirnir þá horfnir. Fimm
af áhöfninni höfðu komizt á
kjöl og kastaði einn þeirra,
Gunnar Ásgeirsson, sér í sjó-
inn og tókst að komast upp í
gúmmíbátinn ásamt Helga.
Rak bátinn þegar frá skipinu
áður hinum tækist að komast
út í hann. Sökk skipið eftir
örfáar mínútur og • sáu þeir
Helgi og Gunnar ekki meira
til félaga sinna.
I gúmmíbátnum var bæði
matur og vatn geymt en hvoru
tveggja skolaði út, er þeir fé-
lagar voru að komast í hann.
Urðu þeir I-Ielgi og Gunnar
að hafast við í gúmmíbátnum
vistalausir í 22 stundir áður
en þeim var bjargað. Hvolfdi
Ilelgi Símonarson
bátnum fjórum sinnum undir
þeim og fyllti af sjó en rétti
þó alltaf við aftur. Voru þeir
orðnir mjög þrekaðir, er
skozki togarinn Verbena frá
Kirchaldy fann þá laust fyr-
ir kl. 10 á laugardagsmorgun-
inn. Þeir hresstust þó brátt,
er þeir komu um borð í Ver-
bena. Sigldi togarinn með þá
til Tvöroyri á Færeyjum og
kom þangað á laugardags-
Gunnar Ásgéirssön
kvöld. Munu þeir félagar bíða
£ Færeyjum eftir Heklu, er
hún kemur úr Noregsferðinni.
Á hún að koma þangað n.lc.
laugardag og ,mun;, y.æptanl
hingað til Ríý'^jay-í.ku
mánudag, 25. þ.rrk
Helgi og Gunnar eru báðir
frá Höfn í Hornafirði. Helgi
er kvæntur maður og á eitt
barn en Gunnar er 16 eða 17
ára unglingur.
.1