Þjóðviljinn - 07.01.1962, Side 9
VIÐ ÁRAMÓT
Ahugamennska og at-
ur-
vinnumennska í íbróttum
Á síðari árum hefur því
skotið mjög upp kollinum hér
á landi að íþróttahreyfingin
ætti að greiða þeim íþrótta-
mönnum laun, sem fara í keppni
ferðir til annarra landa, og er
þá sérstaklega átt við lands-
lið. Ennfremur að greiða fyrir
safingar sem sérstaklega er
stofnað til vegna kappmóts eða
leiks. Enn sem komið er varð-
ar þetta heizt knattspyrnuna.
Hér er á ferðinni mál sem all-
ir þurfa að taka afstöðu til,
sem sinna íþróttum af áhuga og
vilja, til þess að þær nái til
sem flestra æskumanna í land-
inu. Vafalaust eru skoðanir
þessar byggðar meira og minna
á því sem er algengt erlendis,
og má segia að þeim sé vork-
'unarmál að gera þennan sam-
anburð, sem Mtið hugsa útí að-
stæður hér. Fyrir hina ætti
þetta að liggja ljóst fyrir.
Fleira mun líka koma til
þegar þessi -skoðun kemur fram,
og má þar nefna hinn langa
yinnutíma sem hér virðist hafa
numið iand, og margir komast
ekki undan til þess að geta séð
sér og sínum farboða. Þetta
hefur líka Vu óhrif að menn
almennt fara að líta á alla
• SKAUTAR
1 fyrradag var haldið skauta-
mót í Östersund í Svíþjóð og
þar jafnaði Hans Wilhelms-
son sænska metið í 500 m
hlaupi á 42,1. Göran Slott
vann 5000 m á 8.16,1 og Helge.
Haase A-Þýzkalandi vann 500
m hlaup kvenna og 1500 á 48,0
og 2.35,4. f öðru sæti var Jean-
ette Ashworth USA á 48,7 og
2.39,2.
hluti með ,,krónugleraugum“,
og er sama hvort þeir þurfa
þess eða ekki. Þetia er að
verða tiðarandi, sem mjög
sennilega étur upp þann áhuga
sem áður kynti undir svo
mörgum hugsjónamálum.
En ,þá vaknar spurningin
hvort hér sé að þróast heppi-
leg stefna í íþróttaáhugamálun-
um. Ymsir munu svara því til,
að hér verði að fylgjast með
tímanum og öðrum þjóðum í
þessu efni, við verðum að dansa
með, nauðugir viljugir, eins og
þeir.
Hver á að borga?
Þegar rætt er um það að
greiða íþróttamönnum fyrir
vinnutap, og vissár æfingar,
verða menn að gera sér grein
fyrir því, hvernig eigi að
standa undir þeim kostnaði sem
af því leiðir. Hvernig eigi að
afla teknanna, hvort það eigi
að skattleggja félögin, hvort
það eigi að skattleggja leikmót,
eða hvort það eigi að krefjast
þess af ríki og bæjum að borga
þessar upphæðir, eða hvort sér-
samböndin sjálf eigi að afla
þessara tekna, svona útaf fyr-
ir sig, án þess að það á nokk-
urn hátt skerði tekjuöflunar-
möguieika félaganna.
Ef við athugum þetta nokk-
uð nánar munum við fljótlega
komast að raun um að sjóðir
félaganna munu ekki það gild-
ir að þejr séu aflögufærir til
að greiða mönnum laun, sem
leika í iandsliðum, og ef til
þess kæmi, er ekki að vita
hvenær leikmenn fara að krefj-
ast þess að félagið greiði þeim
kaup, ef félagið fer sjálft í
ferðalag.
Hvað mundu félögin segja
við því að leikmót þeirra væru
skattlögð til þess að greiða
þeim vinnulaun sem fara í
landsleiksferðalag í eina eða
tvær vikur á ári? Sennilega
munu þau ekki telja tekjur af
mótum það miklar að þau geti
miklu miðlað.
Þá er það krafan á ríkis— og
bæjasjóði, sem svo margir að-
hyllast í vaxandi mæli. Það er
sjónarmið útaf fyrir sig, að ríki
og bæir taki þessi mál í sínar
hendur, og leysi af hólmi á-
hugamennina, að einhverju eða
öllu leyti. Um það verður þó
ekki rætt hér að þessu sinni.
Ef til alvarlegrar umræðu um
það mál kæmi yrðu sjálfsagt
um það skiptar skoðanir, en
við verðum að horfast í augu
við það sem er í dag.
Ef litið er með sanngirni á
afskipti þess opinbera af mál-
um íþróttamanna verður eklci
annað sagt en að þeim sé veitt-
ur góður stuðningur á margan
’hátt, þó alltaf megi segja að
það sé hvergi nóg, því mikið
þurfi til að byggja upp, til
þess að íþróttahreyfingin hafi
fullkomin vaxtarskilyrði.
Styrkirnir
í fyrsta lagi má benda á
styrki þá sem renna til íþrótta-
mannvirkja. 1 öðru lagi styrki
til íþróttakennslu. Þá má geta
þess að ríkissjóður annast að
miklu leyti fjárframlög til
Starfrækslu íþróttasambands Is-
lands, og bendir það til þes-s að
félögin séu þess ekki megnug
að sjá íþróttasambandi sínu
fyrir daglegum þörfum, og sann-
ar það svo ekki verður um
villzt að þau hafa ekki fé af-
lögu til þess að greiða lands-
liðsmönnum vinnulaun.
Að lokum má á það benda,
að á síðasta ári varði Mennta-
málaráðuneytið 200.000 króna
til utanferða íþróttamanna. Með
fjárveitingu þessari er löggjaf-
inn að sýna íþróttamönnum
skilning á því hve land vort
er afskekkt og ferðir dýrar til
og frá landinu. ísland mun ;
sennilega eina landið í hinum !
svokallaða vestræna heimi, sem ;
þannig styrkir íþróttamenn sína j
til ferðalaga til annarra landa. !
Væri það eðlilegt ng sann- ;
gjarnt að krefjast að til við- :
bótar yrðu landsliðsmönnum ;
okkar greidd vinnulaun úr rík- ■
issjóði meðan á ferðinni stend- :
ur? Ég held varla. Hér er eng- ;
an veginn verið að draga úr :
því að íþróttahreyfingin sé vel :
styrkt af opinberu fé, það er i
gott málefni, sem marga varðar, i
og sterkur þáttur í uppeldi j
þjóðarinnar, ef forvígismenn í- i
þróttamála og landsmála missa j
aldrei sjónar á því sem í- j
þróttahreyfingin byggist á, en ]
það er: hið félagslega hlutverk, j
kennslan, leiðbeinendastörfin, j
og aðstaðan. Og vafalaust er j
framkvæmdinni á þessum mál-
um bezt komið í höndum á-
hugamannanna.
Að öllu þessu athuguðu,
verður erfitt að finna þá aðila
sem með sanngirni er hægt að
krefja um þessar greiðslur.
Hvers má krefjast af
áhugamanninum?
fþróttamenn, ekki síður en
aðrir, verða að gera sér grein
fyrir því að hér er fámenni
sem verður að halda uppi sjálf-
stæðu þjóðfélagi í strjálbyggðu
landi, sem liggur langt frá
öðrum löndum. Þetta verða á-
hugamennii'nir að horfast í
augu við á hvaða sviði sem
þeir starfa. Þeir verða að taka
á sig þyngri bagga en borgarar
annarra þjóða. Þeir verða að
gera sér fulla grein fvrir því
að þeir liafa ekki efni á því
að vera annað en áhugamenn,
bá kemur til athugunar hvort
það sé óeðlilegt, að þeir, sem
valdir eru i landslið, og þátt-
töku í ferðalagi til annara
landa, leggi til sem fram-
lag áhugamannsins hluta af
sumarleyfi sínu. Hér verður
viðkomandi sérsamband að sjá
svo til, að slíkum ferðum Verði
stillt svo í hóf að ekki komi til
vandræða, hvað þetta snertir.
Ef við hinsvegar hverfum að
því að greiða þessum mðnnum
laun, hljótum við að spyrja
hvar það endi. Eru góðir nefnd-
armenn, góðir stjórnendur fé-
laga og sambanda minna virði
en landsliðsmaður, í starfi sínu
fyrir íþrótttahreyfinguna?
Um það má að sjálfsögðu
deila, en í flestum tilfellum
munu afreksmenn koma frem-
ur fyrir atbeina góðra stjórn-
enda, en góðir stjórnendur
fyrir tilstilli afreksmanna. Af
þessu er ljóst að erfitt er að
segja fyrir um það hvar ætti
að stöðva launagreiðslur fyrir
iþátttöku í íþróttahreyfingunni
u.tan vallar sem innan, ef útí
það væri farið.
Það er því ekki ósanngjarnt
að ætlast til þess að iandsliðs-
menn, sem valdir eru í þann
Framhald á 10. síðu.
• ÓVÆNTUR SIGUR
■
■
Á föstudaginn sigraði svig- >
maðurinn bandaríski Bud ;
Werner (24 ára) mjög óvænt !
í stórsvigskeppni í Courche- J
vel í Frakklandi. Bud sigraði ■
Frakkana Georges Maudit og j
Jean-Claude Killy. Brautin ■
var 1800 m löng með 61 hliði. j
Bud fékk tímann 1.37,02, ;
Maudit 1.38,3 og Killy 1.38.8. !
í kvennaflokki sigraði franska ;
stúlkan Christine Coutschel á !
1.13,9 og Joan Hannah USA ;
2. á 1.14,8. 1
- ■ .
■
■
j• EGYPTAR UNNU
i *
■
| Kairo 5/1 Egyptaland sigraði ;
] í dag Austurríki í knattspyrnu- j
\ kappleik í Kairó 1:0.
i ;
I • SKAUTAR
; •
| Skautameistaramót Noregs ;
i verður haldið 20. og 21. janú- ;
[ ar n.k. í Harstad. Um leið og' j
I byrjað var að selja aðgöngu- ;
■ miða varð svo mikil eftir- ! ■
; spurn hálfum mánuði áður en ;
[ mótið hefst, að búið er að j
[ panta miða fyrir 40 þúsund j
■ norskar krónur! ,
! !
i• SUND
i j
■ Á fimmtudaginn setti ástr- ;
i alska sundstjarnan Neville :
; Hayes nýtt heimsmet í 220 ;
j jarda flugsundi, hlaut tímann ;
; 2.14,9, gamla metið, sem hann j
: átti sjálfur var 2.17,3.
i !
: • KNATTSPYRNA í
■ :
: Framámenn knattspyrnumála ■
; í Englandi sátu á fundi í gær :
■ og ræddu m.a. hvað eigi að ;
[ gera til að fjölga áhorfendum ■
■ að knattspyrnuleikjum, en ;
j þeim fer sífellt fækkandi. Til-
; lögur eru um það að hafa 4
■ deildir og 20 lið í hverri fyr-
; ir sig. Einnig er rætt um að
■ fleiri lið gangi á milli deilda.
[ Þá eru ráðagerðir um það
■ að úrslitaleikur bikarkeppn-
[ innar fari fram í júníbyrjun j
; í stað maíbyrjun og að leikið ;
■ verði í miðri viku og jafnvei j
: á sunnudögum.
■ ■
i
! • HANDKNATTLEIKUR
■ ■
: :
: 1 fyrradag fór fram í Lue- ;
■ ■
j beck B-landsliðskeppni í hand- j
■ knattleik milli V-Þýzkalands :
i ■
j og Svíþjóðar og sigruðu iþyzk- ■
[ ir 21:17.
• ÓVEÐUR TRUFLAR ENN I
■
Vegna snjó og ísa hefur enn ;
verið frestað mörgum leikjum j
'í' bikarkeppninni* 1 ensku. Þeg- j
ar leikvellirnir eru í svo j
slæmu ásigkomulagi semþessa j
daga getur allt skeð og hafa i
nokkur 1. deildar lið þegar ;
orðið að lúta í lægra haldi j
fyrir liðum úr öðrum deild- |
um. Sérfræðingar telja að ■
Tottenham og Burnley verði j
[ í úrslitum bikarkeppninnar •
| — en margt getur breytt þeim j
] spádómi þegar veðrið leikur ■
i knattspyrnumennina svo grátt. !
utan úr heimi
OLYMPÍSKIR SJÓNVARPSHNETTIR
i
I Japanir hafa látið þau boð út ganga að þeir
I muni senda á Ioft 50 sjónvarpsgerfihnetti, til
1 að endurvarpa sjónvarpsefnii frá OL í Japan
1 1964. Myndin sýnir hvernig listamaður nokk-
ur hugsar sér sjónvarpshnettina á braut um-
hverfis jörðu er þeir endurvarpa sjónvarps-
efni til jarðar.
Sunnudagur 7. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN — (Q’