Þjóðviljinn - 10.01.1962, Qupperneq 1
yiLilNN
Miðvikutlagur 10. janúar 1962 — 27. árgangur — 6. tölublað
Sósíalistar
Orðsencling frá Skemmtinefnd
Sósíalistafélags Reykjavíkur.
Jólafríum er lokið og n. k.
sunnudagskvöld hefjast spila-
kvöldin í Tjarnargötu 20 aftur
af fullum krafti.
FJÓR-
BURAR
I.itlu krilin í fósturkössun-
•Jf um cru fjórburar, sem sáu
•ft dagsins ljós á Bretlandf
skömmu cftir áramótin,
4- tveir drengir og tvær
*
•Jf stúlkur og hafa venl®
•Jf skírð: Kristófer, I.úsill,
■Jr Jana og Játvarður. Móðir-
in er 33 ára gömul, Phoebe
•Jr Meachain, faðirinn Ron-
ald 28 ára.
Eínkamá
Eimskips
umséknir
um for
stjórastarf
Sl. föstudag, 5. janitar,
rann út frcstur til þess að
sækja um starf fram-
kvæmdastjóra Eimskipafé-
lags fslands h.f.
Þjóðviljinn sneri sér í
gær til formanns hlutafé-
lagstjórnarinnar, Einars B.
Guðmundssonar hæstarétt-
arlögmanns, og spurðist
fyrir um, hverjir hefðu
sótt um starfið. Fékk blað-
ið það svar, að stjórnin
liti á þetta sem algert
einkamál. enda væri þetta
ekki opinbert fyrirtæki, og
yrðu blöðum eða öðrum
óviðkomandi aðilum engar
upplýsingar gefnar um nöfn
eða fjöida umsækjenda.
Formaðurinn sagði enn-
fremur, að enn hefði ekki
verið tekin ákvörðun um
það, hvenær starfið yrði
veitt, en blöðum yrði til-
kynnt um veitinguna, þeg
ar er hún hefði farið fram.
Þjóðviljinn hefur fregn-
að eftir öðrum leiðum að
meðal umsækjenda séu
Óttar Möller fulltrúi hjá
Eimskipafélagi íslands og
Thor Ó. Thors.
Sundrung og þrœtur innan
Etnahagsbandalags Evrópu
BRÍÍSSEL 9/1 — Ráðherranefnd
hins svonefnda Efnahagsbanda-
lags Evrópu heldur áfram fund-
um sínum í Brússel. Mikið ósam-
komulag rikir um landbúnaðar-
mál. Rifizt er af hörku og mið-
ar ckkert í átt til samkomulags.
Vestur-Þýzkaland leitast við
að þvinga sínum sjónarmiðum
upp á hin aðildarrikin. en stend-
ur eitt uppi. I gær stóð vestur-
þýzki fulltrúinn einn gegn hin-
um öllum varðandi stigbundna
jöfnun á kornverði. í dag heimt-
aði fulltrúinn að ±'á heimild til
að stanza innflutning á ávöxtum
og grænmeti til V.-Þýzkalands,
ef eríiðleikar væru á heima-
markaði, en hinir stóðu allir
gegn þeirri kröfu. En þetta er
aðeins ein hliðin á ágreiningn-
um milli Vestur-Þýzkalands og
hinna aðildarríkjanna.
Yfirráðastefna
Fréttaritarar i Brússel eru á
einu máli um að Vestur-Þýzka-
land berjist eitt og einangráð
fyrir þvi að vernda eigin land-
búnað gegn erlendum innflutn-
ingi. Hinsvegar hafa Vesturþjóð-
verjar engan áhuga á að veita
einstökum atvinnuvegum ann-
arra aðildarríkja heimild til að
verja sig erlendum innílutningi.
Kröfur V.-Þýzkalands brjóta líka
í bága við regluna um algera
fríverzlun innan Efnahagsbanda-
lagsins.
Þrætan um landbúnaðarmálin
hefur þegar vaidið því, að taf-
izt hefur um níu daga upphafið
á framkvæmd annars tollalækk-
unarstigs bandalagsins. Ráðherra-
nefndin hefur neyðzt til að gera
þá ákvörðun. að við fyrsta stig-
ið skuli sitia eitt ár í viðbót, ef
ekki náist samkomulag i vikunni.
Viðskiptastefna ríkisstjórnarinnar
lokar mörkuðum fyrir frysta síld
Síldin heldur áfram að veiðast; en
síldarfrysting er stöðvuð vegna þess
að bankarnir hafa frá áramótum
neitað að lána út á frysta síld.
Ástæðan til að svo er komið er við-
skiptastefna ríkisstjórnarinnar. Unnt
væri að selja verulegt magn af
frystri síld til Austur-Evrópu, en
skilyrði fyrir þeim viðskiptum er að
við kaupum þaðan vörur í staðinn.
I»að vill ríkisstjórnin ekki, og þess
vegna er þessi markaður fyrir síld-
ina lokaður vegna tilverknaðar ís-
lenzkra valdhafa.
Stefna ríkisstjórnarinnar er
að beina viðskiptum Islands sem
mest til vestrænna ríkja, en
hængurinn á því er að þar er
mjög erfitt og jafnvel ógerlegt
að selja ýmsar íslenzkar útflutn-
ingsvörur, eins og nú kemur á
daginn með frystu síldina.
Markaðir Iokaðir
1 jafnkeypislöndunum eru
markaðirnir okkur hins vegar
lokaðir vegna þess að ráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar í við-
skiptamálum hafa dregið stórlega
úr innflutningi þaðan. Er nú svo
komið að skuld vöruskiptareikn-
inga sumra þessara ríkja er kom-
in í hámark, og því tekið fyrir
útílutning þangað nema vöru-
kaup frá þeim séu aukin.
Frá þessu er greint á þessa
leið í fréttatilkynningu frá Sölu-
miðstöð hraði'rystihúsanna um
fund síldarframleiðenda í Reykja
vík á föstudaginn, þar sem rædd
voru vandamálin sem skapazt
hafa við lánabann bankanna.
Sölumiðstöðin segir:
„Rúmenar hafa látið í ljósi
áhuga fyrir að kaupa 1.000 tonn
af frystri síld íái þeir að greiða
andvirði hennar í rúmenskum
vörum. Er nú verið að athuga
möguleikana á að flytja inn vör-
ur frá Rúmeníu, sem andvirði
síldarinnar nemur. Einnig hafa
Tékkar og A-Þjóðverjar látið í
ljósi áhuga sinn fyrir að kaupa
tiltekið' magn af frystri síld.
Hið keypta magn fer eftir
greiðslumöguleikum þeirra, en
þar fem skuld þeirra á vöru-
skiptareikningum á Islandi er í
hámarki. eru litlar sem engar
líkur fyrir að unnt verði að
selja frekara magn nú á næst-
unni“.
Fyrr í fréttatilkynningu SH er
frá því skýrt aö búið sé að
frysta 11.140 ttonn af síld. Búið
er að selja 3250 tonn til Vestur-
Þýzkalands og 2500 tonn til Pól-
lands. Reynt var að selja 5000
tonn til Sovétríkjanna þegar
síldin lá fyrir, en þá vildu sov-
ézkir aðilar ekki kaupa. Eins og
skýrt var frá hér í blaðinu á
sunnudag höfðu Sovétríkin vilj-
að gera samning um kaup á
frystri síld ef fslendingar á-
byrgðust afhendingu á ákveðnu
magni. en það vildu íslenzkir að-
ilar ekki gera.
Niðurstaðan á. fundi síldar-
framleiðenda var samþykkt um
að gera beri frystihúsunum kleift
að frysta 5000 tonn af síld í við-
bót með því aö bankarnir láni
kr. 2.50 á hvert kíló og hrá-
efnisverð á síld sem nýtt er
verði ekki yfir kr. 1.20 á kg.
Verið er að leita fyrir sér
hvort unnt er að selja frysta
síld til Bretlands og fleiri landa
91 fórust -
79 slasaðir
/
UTRECHT 9/1 — Hersjúkrahús-
ið í Utrecht í Ilollandi tilkynntl
að 91 maður hefði farizt í jám-
brautarslysinu mikla í gær. ÖH
líkin hafa verið flutt til sjúkra-
hússins til að rannsaka af hverj-
um líkin séu. Aðeins tvö lífe
hafa enn ekki þekkzt.
Sjúkrahússtjórnin tilkynnir aft
einn hinna slösuðu hat'i látizt i
kvöld. Þrír eru lífshættulega
slasaðir. Alls slösuðust 79 manns^,
Molotoff á förum
til Vínarborgar I <
MOSKVU 9/1 — Sovézka utan-
ríkisráðuneytið tilkynnti í kvöld.
að Molotoffi fyrrv. utanríkisráð-
herr.a, væri á förum til Vínar.
Mun hann sennilega leggja at
stað n.k. föstudag eða laugar-
dag. Heldur hann þá áfran*
starfi sínu sem formaður sov-
ézku sendinefndarinnar við al«
þjóðlegu kjarnorkumálastofnun»
ina í Vínarborg.