Þjóðviljinn - 10.01.1962, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 10.01.1962, Blaðsíða 10
Þa,ð. var orðið npkkuð langt síðan þeir íélagar Benni byrj- andi, Lárus lengrakomni, Gulli gullíiskur og óheppni sérfræð- ingurinn höfðu tekið slag saman, enda oft mikið annríki um hátíðarnar og því minni tími til spilamennsku en skyldi. Að vísu höfðu þeir reynt gæfu sína í félagsvist og Benni hafði meira að segja sézt á bing'ókvöídi, en þeir höfðu ekki haft heppnina með sér. Þeir voru því óvenju létt- ir í skapi er þeir býrjuðu aft- ur eftir langa hvíld á spili hugsunarinnar. Þeir voru saman Lárus og sérfræðingurinn, og sá fyrr- nefndi gaf eftirfarandi spil: •5' Lárus S: D-8 H: K-10-7-3 T: K-10-9-5-4-2 L: 4 Benni S: A-G-7-3 H: D-8-2 T: 7 L: 10-8-6-3-2 S: 9-6-2 H: A-6 T: D-G-8-6-3 L: A-K-G Gulli S: K-10-5-4 H: G-9-5-4 T: A L: D-9-7 sérfræðingurinn Lárus og Gulli sögðu pass og sérfræðingurinn opnaði í þriðju hendi á einum tígii. Benni sagði pass, Lárus þrjá tígla og sérfræðingurinn sagði þrjú grönd. Nú pössuðu allir og Benni spilaði út laufsexi eftir nokkra umhugsun. Án þess að bregða svip, þegar blindur kom upp, lét sérfræðingurinn fjarkann úr borði, Gulli lét drottninguna og átti slaginn. Já, Gulli átti slaginn á drottninguna, því sérfræðingurinn hafði látið LAUFGOSANN í slaginn, ,eins og ekkert hefði í skorizt. Gulli hélt áfram með laufið og sér- fræðingurinn átti slaginn á ás- inn. Hann spilaði nú tígli og Gulli fór inn á ásinn. Sigri- hrósandi spilaði hann lauíi. Það er ekki auðvelt að lýsa svipnum á honum þegar hann sá sérfræðinginn drepa með kóngnum og taka síðan fimm slagi á tígul og tvo á hjarta. „Nú vorum við heppnir, Lár- us,“ sagði sérfraeðingurinn sakleysislega. ,,Ef þeir hefðu komið í spaðanum, þá var úti um okkur.“ „Það var gott hjá þér að spila út sexinu, Benni,“ sagði Gulli hæðnislega, „það létti mér vörnina að vita að þú átt sexlit." Reykjavikurhöfji Framhald af 7. síðu. úr þeim hnupplað og annað eyðilagt, þó þeir væru nær mannaleiðum og í nokkurri birtu. Er þetta að okkar dómi algerlega óhæft á meðan mik- ið heppilegri staðir eru notað- ir undir ónýtt drasl. I heilbrigðissamþykkt Reykja- 1 víkur er bannað að nota sjó úr höfninni til þvottar á fiskiskip- um. Maður skyldi því ætla að hafnaryfirvöldin kæmu fram af fuiri sanngirni, en það er nú eitthvað annað. Þess er krafizt að við borgum tíu krón- ur í hvert skipti sem krani er opnaður fyrir okkur, þó not- •kunin sé ekki önnur en að fá drykkjarvatn. Smálest af vatni mun nú seld til skipa á 15 kr. Allir geta séð hvað hér gætir mikillar sanngirni. En hvaða gagn er nú að þessum bátum? kann einhver að spyrja. Það er svo margþætt að því verða ekki gerð full skil hér, hvorki fjárhagshlið eða öðrum þáttum, sem ég tel þó meira virði. Ég skal aðeins benda á fáein atriði, þeim til glöggvunar sem um það vilja hugsa. Aðalneyzlufiskur borgarbúa síðari huta vetrar og frameft- ir sumri er afli þessara báta, og myndi jafnvel vera alt árið, ef að þeim væri svo búið á sjó og landi að mögulegt væri að stunda þann atvinnuveg eingöngu. Fjöldi manna sem vinna inni allt árið reyna að hressa sig andlega og líkamiega á þann hátt að róa um helgar þegar veður leyfir og jafnvel eyða sumarfríum sínum á þennan hátt, án kostnaðar og ef heppni er með þá með nokkrum hagnaði, I Margir af okkar beztu sjó- I mönnum hafa byrjað sína sjó- mennsku á litlu fleytunum og fikrað sig áfram eftir því sem þroski og þekking hafa vaxið. Hvers virði þessi fáu atriði sem ég hef nefnt eru bæjarfé- laginu ætla ég ekki að ræða að þessu sinni. En ég þori að full- yrða, að það yrði bæjarfélaginu óbætanlegt tjón ef fáum þröng- sýnismönnum tækist að hrekja smábátana héðan. Að endingu vil ég benda valdhöfum borgarinnar á að eigendur þessara litlu báta eru menn á öllum aldursskeiðum úr öllum stjómmálaflokkum. Borgarar sem eru nýtir þjóð- félagsþegnar og inna sínar skyldur af hendi við bæjarfé- lagið. Það er því réttmæt krafa okkar til valdhafa bæjarins, að þröngsýnum hafnarstjóra verði ekki látið haldast uppi að þrengja svo aðstöðu okkar að við gefumst upp. Gamall sjómaður. Nýtízku húsgögft Fjölbreytt úrval. Póstsendum. Axel Eyjélfsson. Skiphðlti 7. Simi 10117. LÖ6FRÆÐI- STÖBF endurskoðun og fasteignasala. Ragnar Ólaísson hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi Sími 2-22-93 Frá Vestmanna- eyjum VESTMANNAEYJUM 9/1, frá fréttaritara. — Þrir Eyjabátar komu hingað í dag með síld, Huginn með 150 tunnur, Reynir með 165 tunnur, Gjafar með 160 tunnur. Þrær síldarbræðslunnar hér, eru nú tómar. Milli 15 o.g 20 bátar réru héð- an í gær, með línu, þeir fengu frekar slæmt veður og aflinn var tregur, yfirleitt um 2 tonn á bát. Þó fékk Stígandi 7 tonn. Mest af þessum fiski var þorsk- ur, langa og ýsa. Á árinu 1961 fæddist hér í Eyjum 131 barn, 64 sveinbörn og 67 meybörn. Á árinu fóru fram 31 hjónavígsla og 6 karlar og 9 konur létust. Akvörðumr von innrn tíu dap DJAKARTA 9/1 — Súkarnó Indónesíuforseti mun á næstu tíu dögum ákveða hvort hafnar skuli samningaviðræður við Hollendinga um framtíð vestur- hiuta Nýju-Gíneu. Subandrio ut- anríkisráðherra sagði blaðamönn- um í dag, að litlar horfur væru á samningaviðræðum. Afstaða Hollandsstjórnar væri veikburða og reikul. Haldið er áfram að draga sam- an lið á austiægari eyjum Indó- nesíu. Landgönguliðssveitir hafa verið kallaðar saman á Austur- Jövu, en þar er flotastöðin Sura- baja. Sprengja sprakk ALGEIRSBORG 9/1 — Plast- sprengja var sprengd í nótt í aðalstöðvum frönsku yfirvald- anna í Alsir. Aðalstöðvarnar eru í Rocher Noir um 50 km. fyrir utan Algeirsborg, og er þeirra gætt a.f öflugum herverði, Jean Morin, aðalerindreki og yfirmaður frönsku stjórnarinnar í Alsír fluttist í þessar nýju aðalstöðvar ásamt samstarfs- mönnum sínum ■ í fyrra, til þess að forða sér frá óróasvæðinu í Algeirsborg. Talið er öruggt að ofbeldis- menn frá fasistasamtökunum OAS hafi verið að verki, er sprengjan sprakk í nótt, Laufásvegi 41 a — Sími 1-36-73 O 1 •0 0 *. O ut f , f * • r&v. V* 4 HÁSKOLANS FYRIRGREIÐSLA UM STARFSÞJÁLFUN í USA Túnsshermenn í Kongó — ZÍTÍS.J ið liðsauka, enda veitir vist ekki af. I þetta sinn kom til Leopolil- ville flokkur hermanna Irá Túnis og sést hér einn þeirra ásamt Kongómanni á Ilugvellinum í LeopoldviIIe. Mörg undanfarin ár hefur ( íslenzk-ameríska félagið haft milligöngu um að aðstoða unga l menn og konur við að komast 1 til Bandaríkjanna til starfs- þjálfunar. Er þessi fyrir- greiðsla á vegum The Americ- an-Scandinavian Foundation í New York. Hér er um að ræða störf í ýmsum greinum, svo sem ýmiss konar landbúnað- / arstörf (á búgörðum, garð- yrkjustöðvum o. s. frv.), skrif- stofu- og afgreiðslustörf (í bönkum, skipaafgreiðslum, verzlunum, einkum bókaverzl- 1 unum, o. fl.), veitingastörf, störf á smábarnaheimilum (fyrir barnfóstrur) o. m. fl. Starfstíminn er 12—18 mánuð- ir. Fá starfsmenn greidd laun, er eiga að nægja fyrir dvalar- kostnaði, en greiða sjálfir ferðakostnað. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu íslenzk- ameríska félagsins, Hafnar- stræti 19, 2. hæð, alla þriðju- daga kl. 6,30—7.00 e. h., og þar verða afhent umsóknareyðu- blöð. Þess skal sérstaklega get- ið, að einna auðveldast mun verða að komast í ýmis land- búnaðar- og garðyrkjustörf, einkum á vori komanda, en umsóknir þurfa að berast með nægum fyrirvara. Um flest önnur störf gildir, að svipaðir möguleikar eru á öllum tím- u.m árs, en sem stendur mun greiðastur aðgangur að bóka- verzlunarstörfum og starfi á smábarnaheimilum. (Frá íslenzka-ameríska félaginu). TIL SJÓS OG LANDS ÞÓREÍUR ÞORSTEINSSON, fyrrv. hreppstjóri, cn núvcrandi garðyrkjubóndi kaus nýlega við stjórnarkjör í Sjómannafélagi Reykjavíkur. — Starfandi sjómenn, kosið er í skrifstofu S.R., Hverfisgötu 8—10. Kjósið lista starfandi sjómanna, B-listann. Kosið alla virka daga. klukkan 10—12 og 3—6. X B-listi 1 VS Eftonrt/útnufét v jJO) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 10. janúar 1962

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.