Þjóðviljinn - 10.01.1962, Síða 6
iHÚÐVILJINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýSu — Bósiallstaflofckurinn. — Ritstióran
Magnús Kiartansson (áb.), Magnús Torfl Olafsson, SigurSur GuSmundsson. —
Préttaritstiórar: fvar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjórl: GuSgelr
Magnússon. - Ritstjórn, afgrelSsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19.
Bíml 17-500 (5 línur). ÁskriftarverS kr. 50.00 á mán. — LausasöluverS kr. 3.00.
Prentsmlðja Þjóðviljans h.f.
Sjálfhelda
jpramleiðsla íslendinga og verðmæti hennar skera úr
um lífskjör og framkvæmdir í landinu. Þetta á
ekki sízt við um útflutningsframleiðsluna, svo mjög
sem landsmenn eru háður vöruskiptum við aðrar
þjóðir. Þess vegna ber hverri ríkisstjórn, sem vill sinna
verkefnum sínum af alvöru, að tryggja sem mesta
framleiðslu, sem öruggasta markaði og sem hæst verð.
Þetta þarf að vera fyrsta boðorð hverrar ríkisstjórn-
ar og ætti naumast að vera umtalsvert. En stjórn sú
sem nú fer með völd hefur allt annan hátt á. í aug-
um hennar er útflutningur landsmanna ekki frumat-
riði, 'heldur innfiutningurinn. Hún hefur gefið heild-
sölum frelsi til þess að haga innflutningi samkvæmt
einkahagsmunum sínum og geðþótta án tillits til þess
hvað útflutningsframleiðslunni hentar. Ríkisstjórnin
hegðar sér eins og fjölskylda sem þykist tryggja af-
komu sína með því að kaupa sem mest af neyzluvör-
um án tillits til þess hverra tekna hún getur aflað sér.
)
ITeildsalarnir hafa notað frelsi öitt til þess að ein-
skorða vörukaup sín að verulegu leyti við auð-
valdsríkin, einnig þegar um er að ræða vörur sem
hægt er að fá jafngóðar eða betri og á hagkvæmara
verði í vöruskiptalöndum. Ástæðan er sú að í auð-
valdsríkjum hafa heildsalarnir tök á að falsa faktúr-
ur og reikninga og hirða umboðslaun í gjaldeyri án
þess að íslenzk yfirvöld fái um það nokkrar skýrsl-
ur. Afleiðingin hefur orðið sú að viðskipti okkar við
sósíalistísku ríkin í Austur-Evrópu hafa dregizt stór-
lega saman, en þar hefur verið öruggur markaður fyr-
ir ýmsar mikilvægustu útflutningsvörur okkar. Hefur
þetta valdið miklum og vaxandi erfiðleikum fyrir sjáv-
arútveginn og aftur og aftur leitt til þess að fram-
leiðslan hefur verið takmörkuð vitandi vits.
A ð undanfömu hefur síldarafli verið óvenjulega mik-
ill. Ef allt hefði verið með felldu hefðu stjórnar-
völdin átt að kappkosta að þessi afli yrði hagnýttur
sem bezt í þágu þjóðarheildarinnar. En sú hefur ekki
orðið raunin; þvert á móti lýstu bankarnir yfir því
um áramót að þeir myndu ekki lána meira fé út á
frysta síld. Það á þannig að stöðva framleiðsluna, og
ástæðan er sú að stjórnarvöldin segjast ekki geta selt
síldina. í frétt sem Morgunblaðið birti í gær frá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna er nánar skýrt hvernig á
því stendur: ..Rúmenar hafa látið í ljós áhuga á að
kaupa 1.000 tonn af frystri síld fái þeir að greiða and-
virði hennar í rúmenskum vörum. Er nú verið að at-
huga möguleika á að flytja inn vörur frá Rúmeníu,
sem andvirði síldarinnar nemur. Einnig hafa Tékkar
og A.-Þjóðverjar látið í Ijós áhuga sinn á iað kaupa ótil-
tekiö magn aj frystri síld. Hið keypta magn jer ejt-
ir greiðslumöguleikum þeirra, en þar sem skuld þeirra
á vöruskiptareikningum á íslandi er í hámarki, eru
litlar sem engar líkur jyrir að unnt verði að selja
jrekara magn nú á næstunni.“ Það er þannig nægur
markaður fyrir síldina í Austur-Evrópulöndunum; þau
vilja kaupa af okkur eins mikið magn og okkur hent-
ar, ef við viljum aðeins kaupa af þeim hliðstætt magn
í staðinn. Vandinn er því ekki sá að við getum ekki
selt síldina, heldur hinn að við neitum að taka greiðslu
fyrir hana!
Ijessi sjálfhelda er skilgetið afkvæmi af viðreisnar-
stefnunni. Sú stefna er ekki miðuð við þjóðarhag,
heldur annarlega hagsmuni einstakra forréttindamanna
og kennisetningar um að þá vegni þjóðfélaginu bezt
ef stjórnleysi sé sem algerast. Slík vinnubrögð hljóta
að enda með ósköpum. — m.
I
E
I
Gamoll sjéir.aðsir skýrir frá aðbúnaði opnu bátanna í Reyiqavékur höfe
Er þetta hægt, hafnarstjóri?
n >»5 1
I Morgunblaðinu og Þjóð-
viljanum birtust fyrir nokkru
myndir, sem gefa til kynna að
ekki' muni allt vera sem skyldi
í Reykjavíkurhöfn. Þar sem
þeir einir þekkja það ófremd-
arástand sem þar eiga verð-
mæti og athafnasvæði, þykir
mér* rétt að bregða upp dálít-
ið gleggri mynd fyrir hina
mörgu sem þar eru öllu ókunn-
ugir.
í fornsögum vorum er getið
'landnámsmanna sem hingað
komu, og öllum var það sam-
eiginlegt að koma á skipum. Sá
þeirra sem fyrstur er tainn
nema land og allir íslendingar
kannast við byggði sér bæ við
Reykjavíkurhöfn.
Margir munu nú halda að
eftir allar þessar aldir séú íbú-
ar þessarar kæru borgar ekki
í neinum vandræðum þó þeir
leiíi sér að eignast bát, ann-
aðhvort til gagns eða gamans.
Við sundin blá er létt og ljúft
að vaka, segir þar, og undir
það taka víst allir. En svo eru
sumir sem ekki þykir það nóg
að vaka við sundin. Þeir reyna
að komast út á sundin, og enn
aðrir út úr sundunum.
Af þessum ástæðum og ýms-
um öðrum er hér allstór smá-
bátafloti af ýmsum stærðum og
gerðum. Þegar Faxaflói var
friðaður fyrir botnssköfum urðu
menn bjartsýnir á framtíðina,
og sumir létu smíða sér vand-
aða fiskibáta sem því miður
hafa nú brugðizt í bili fyrir
tilkomu dragnótarinnar.
Frá fyrstu landnámsárum og
fíam á vora daga voru hér
ýmsar lendingar, sem menn
lentu í eftir búsetu og ýmsum
aðstæðum. Þessar lendingar
margar hverjar bjuggu menn
til sjálfir. Allar höfðu þær það
sameiginlegt að þar var hægt
að bjarga bátunum undan sjó,
sem kallað vai;. Þar höfðu
menn líka í næsta nágrenni
smákofa fyrir afla og veiðar-
færi eftir efnum og ástæðum.
En svo kom tæknin og ýms-
ar hafnarframkvæmdir, og ber
því sannarlega að fagna útaf
fyrir sig. Allar þessar gömlu
lendingar hurfu. Sú síðasta og
einnig þekktasta nú á seinni
tímum, Selsvör, er nú fyrir
nokkru uppfyllt. Valdamenn
bæjarins á þeim árum höfðu
fullan skilning á að eitthvað
betra ætti að koma í stað þess-
ara .lendinga. Var bátunum þá
valinn staður við gamla vei'ka-
Myndin er tekin í roki í haust við Reykjavíkur höfn. Báturinn til vinstri á myndinni slitnaði upp.
mannaskýlið, þvi það var ein-
hver öruggasti staður hafnar-
innar fyrir þá í þá daga.
En svo héldu hafnarfram-
kvæmdir áfram og Krókurinn
var fylltur upp, og enn höfðu
valdamenn bæjarins fullan
skilning á þörf bæjarfélagsins
fyrir þessa báta, svo þeim var
ætlaður framtíðarstaður í vest-
urhöfninni. Allrífleg fjárhæð
var áætluð til fyrirhu.gaðra
framkvæmda til að koma upp
fullkominni bátahöfn og upp-
sátursplássi fyrir bátana að
loknum leigutíma á svokölluð-
um Daníelsslipp.
En svo skeður það sem fáir
skilja, nema ef vera kynni
hafnarstjórinn í Reykjavík.
Leigusamningur við þetta litla
fyrirtæki er framlengdur til
margra ára og smábátarnir
reknir úr sinni fyrirhuguðu
bátahöfn. Ef til vill verður
hafnarstjórinn svo vinsamlegur
að lofa okkur að heyra hver
nauðsyn krafði að breyta þess-
ari fyrri ákvörðun, svo að við
megum nú ekki einu sinni tylla
smábát við næstu bryggju.
Þessi staður var sá eini í höfn-
inni, þar sem smábátarnir vbru
nokkur veginn öruggir í flest-
um áttum. Þar munu fá óhöpp
hafa komið fyrir bátana hjá
þeim mönnum sem um þá
hirtu. Ymsir munu að vísu hafa
vakað nótt og nótt yfir bátum
sínum, og þá jafnframt gætt
annarra, en það voru svo fáar
nætur að engum fannst ástæða
til að gera hávaða út af slíku.
Með litlum tilkostnaði hefði
mátt gera þennan stað algjör-
lega öruggan fyrir smábátana
og að fyrirmyndar bátahöfn,
Reykvíkingum til yndisauka,
okkur og komandi kynslóðum
til hagsbóta og þeim til sóma
sem það hefðu framkvæmt.
Hvað skal nú til varnar
verða vorum sóma? Þó svo
sé ástatt um suma okkar sem
þessa báta eigum, að við höf-
um eytt miklum hluta af kröft-
um okkar á stærri fiskiskip-
um, þá skal hafnarstjórinn
líka athuga að það er líka
fríður hópur ungra log uppvax-
andi manna sem eiga fulian
rétt til lífsins. Og við í sam-
einingu munum ekki öllu leng-
ur una því ástandi sem nú er.
Ef svo þröngt væri í höfninni
sem af er látið, væru varla lát-
in liggja þar skip mánuðum og
jafnvel árum saman, sem ekk- sumir teija eitt og hið sama)
ert er gert við a® fá krókinn milli Örfiris-
eyjargarðs og Faxaverksmiðj-
unnar afgirtan, svo bátarnir
væru cruggir að minnsta kosti
tíma af árinu. En því var hafn-
að vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda. Mér er ókunnugt um
hvort þær framkvæmdir eru
fleiri bátahræ og meira spýtna-
rusl en þama er nú.
Næst var svo farið fram á að
skjólþil yrði sett milli Ingólfs-
garðs og Löngulínu. Því var
einnig hafnað á þeirri" fbrsendu
að þar væri ekki hægt að
ramma niður. Trúi nú hver sem
trúa vill. Þeir munu ekki svo
'fáir Reykvíkingarnir sem muna
eftir bryggju þar, sem í daglegu
tali var nefnd Titlingur.
Þá kem ég að þeirri einu
úrlausn sem hafnarstjóri hefur
séð sér fært að leyfa, og segi
og skrifa leyfa en ekki gera.
Bátafélaginu var nefniega leyft
. að setia niður baujur á mesta
bersvæði hafnarinnar; og geta
menn séð lítið sýnishom þeirr-
ar uppskeru á áður umtöluðum
Séð yfir aðalduflasvæði trillubátanna í höfninni.
Fyrir mörgum árum stofn-
uðu nokkrir menn með sér fé-
lag sem þeir nefndu Bátafélag-
ið Björg. Tilgangur þess var að
vinna að bættum skilyrðum
fyrir félagsmenn og jafnframt
að þeir auki öryggi sitt sjálfir
með bættum útbúnaði bátanna.
Félagið hefur reynt að hafa
nána samvinnu við hafnaryfir-
völdin en árangur orðið sára-
lítill. Það hefur komið með
ýmsar uppéstungur til að auka
öryggi smábátanna í höfninni,
en þeim verið hafnað jafnharð-
an.
Skal ég minnast á tvennt, svo
menn geti séð hvern áhuga
hafnaryfirvöldin hafa á því að
bæta úr öryggisleysi bátanna
í höfninni.
Eftir að öll sund virtust lok-
uð með að fá bátahöfn þá sem
ákveðið hafði verið að útbúa
í Króknum hjá Fiskiðjuverinu,
fór félagið þess á leit við hafn-
arstjóra eða hafnarstjórn (sem
myndum. Leiga fyrir hverja
bauju er nú kr. 500.00 sem að
vísu rennur til bátafélagsins en
það er hvergi nærri nóg til að
bera kostnað við þessar bauju.r.
Við þurfti að bæta öllum fé-
lagsgjöld.um, en það dugði ekki
að heldur. Leitaði félagsstjórnin
því til bæjarstjórnar eftir láni
að upphæð 70 þúsund krónur.
Ber að þakka og virða undir-
tektir bæjarstjórnar. Auk þessa
kostnaðar verður svo hver fé-
lagsmaður að leggja sér til
blökk og band, sem láta mun
nærri að kosti 800 til 1000 kr.,
ef tryggt á að vera. Þetta heit-
ir á máli hafnarstjóra að við
borgum engin hafnargjöld.
Þá er eftir að gefa ofurlitla
hugmynd um hvernig er að
komast í bátana ef eitthvað er
að veðri. Það er í mörgum til-
fellum ómögulegt nema með
mannafla, því þessi bönd sem
bátamir eru festir með eru
svo útötuð í olíu og tvistdrusl-
um að slíkur óþrifnaður mun
vart fyrirfinnast í nbkkurri
annarri höfn í heiminum, og
væri starfsmönnum hafnar-
stjórans sem eftirlit hafa á
brvggjum nær að-líta eftir að
slíkum óþrifum sé ekki fleygt
í höfnina. en að vera að ónot-
ast við okkur smábátamenn ef
við þurfu.m að bregða okkur frá
bát okkar við bryggju.
Þess skal getið sem gert er.
Hafnarstjóri hefur látið setja
allgóða stiga án kostnaðar fyr-
ir bátafélagið eða einstaka
menn, en þessir stigar eru oft
illkleifir vegna óþrifa í höfn-
inni, og hver sú flík sem við
þá eða böndin kemur er varla
nothæf framar.
Þá er nú eftir að minoast á
uppsátursplássið. Það er í fæst-
um orðum sagt ekki skorið við
nögl hjá blessu.ðum hafnar-
stjóranum. öll flatneskjan úti á
örfirisey er okkur velkomin.
Hann er víst að hugsa um út-
sýnið fyrir okkur blessaður,
varla skjólið eða bi.rtuna. All-
mikið hefur borið á því að
undanförnum árum að bátarn-
ir hafa verið brot.nir imp og
Framhald á 10. síðu.
Samband við íbúa annarra hnatta
r talið bjargráð á örlagastund
Þýzkur sfiörnufrcsðingur setur fram hugmyndir
nauðalíkar kenningum dr. Helga Pjeturss
Dr. Helgi Pjeturss.
Fyrir fjórum áratugum setti
íslenzki jarðfræðingurinn dr.
Helgi Pjéturss fram þá kenn-
ingu að okkar jarðarbúum væri
brýn nauðsyn að ná sambandi
við lífverur á öðrum hnöttum
sem náð hefðu hærra þroska-
stigi en við mennirnir. Nú
nýskeð hefur þýzkur stjörnu-
fræðingur, Sebastian von
Hörner, varpað sömu hugmynd
fram í grein í Science, einu
víðlesnasta vísindariti hins
enskumælandi heims.'
Samkvæmt frásögn af skrif-
um von Hömers í Time eru
hugmyndir hins þýzka vísinda-
manns svo líkar þeim sem dr.
Helgi hélt fram í hverri bók-
inni af annarri að furðu gegn-
ir. Heimsstyrjöldin fyrri sann-
færði dr. Helga um að mann-
kyninu væri glötun búin e£
áfram væri haldið á sömu
braut skefjalausrar valdabar-
áttu háðrar með fullkomnustu
drápstækjum sem ört vaxandi
vísindaleg þekking getur feng-
ið mönnum í hendur. Kallaði
dr. Helgi Pjeturs þessa þró-
un helstefnu og taldi mesta
von um að menn sæju að sér
og hyrfu frá henni ef samband
næðist við vitibornar verur á
öðrum hnöttum sem lengra
væru komnar á þróunarbraut-
inni en mennirnir og hefðu
lagt að baki slíka villimennsku
sem styrjaldir.
Síðan dr. Helgi tók að flytja
Islendingum hugmyndir sínar
hefur ný stórstyrjöld verið
háð, enn ægilegri hinni fyrri,
og í lok hennar var beitt
kjarnorkuvopnum, vopni sem
eflaust getur lagt í rúst sið-
menningu á jörðinni og jafn-
vel afmáð mannkynið, ef ekki
allt líf á jörðinni. Hættan á
kjarnorkustyrjöld hefur beint
hugsun þýzka stjÖrnufræðings-
ins inná þaér brautirósem ís-
lenzki jarðfræðingurinn hafði
áður troðið.
Dr. Helgi Pjeturss bjó ekki
hugmyndir sínar í búning
strangrar vísindarannsóknar,
heldur líkjast rit hans skáld-
sýnum með heimspekilegu í-
vafi. Hann taldi til dæmis
drauma geta verið boðskap frá
íbúum annarra hnatta til
mannlegrar vitundar. Sebosti-
an von Hömer fer öðruvísi að.
Hann kemst að þeirri niður-
stöðu. eftir f lókna, stærðf ræði-
lega röksemdafærslu að reiki-
stjörnur byggilegar lífverum
muni vera írekar algengar í
geimnum. Því sé óhætt að
gera ráð fyrir að líf hafi verið
Sebastian von Hörner.
til eða sé til miklu víðar en
á jörðinni. En þar með er
ekki sagt að áliti híns þýzka
stjcrnufræðings, að úti í
geimnum sé fullt af samfélög-
um skyni gæddra vera á svo
háu þroskastigi að þær séu
færar um að leita eftir sam-
bandi við íbúa annarra hnatta
með útvarpsmerkjum. Reynsl-
an hér á jörðinni sýnir að
þróunin frá frumstæðum líf-
verum til skyni gæddra teg-
unda tekur milljaröa ára, en
siðað samfélag getur átt sér
mjög skamma sögu. Á nokkr-
um þús. árum hefur maðurinn
hafizt af steinaldarstigi á þá
tröppu tækninnar að honum
er orðið fært að útrýma sjélf-
um sér. von Hörner er böl-
sýnn og gerir rað fyrir að
flest slðmenntuð samfélög eigi
sér örskamman aldur miðað
við þann óratíma sem stjarn-
fræðin fjallar um. Hann telur
vel ílagt að ætla hverju sið-
menntuðu samfélagi að meðal-
tali nokkur þúsund ára til-
veru áður en það líður undir
lok sökum úrkynjunar eða
vígaferla. Sé þetta rétt er
samkvæmt útreikningi hans ó-
líklegt að uppi séu samtímis
á mörgum hnöttum lífvgrur
sem eru færar um að taka upp
fiai'skipti sín í milli um óra-
fjarlægðir geimsins.
Enn tekur Sebastian von
Hörner að reikna, og nú er 1
útkoman sú að líkindi séu fyr-
ir að siðmenntaðar verur séu
á þessari stundu uppi á tíu
hnöttum innan 1000 ljósára
fjarlægðar frá jörðinni. Þetta
er ekki mikið á slíkri óravídd,
en von Hörner er sannfærður
um að séu einhverjir geim-
búar að reyna að ná sambandi
við sína líka á framandi hnött-
um, ráðum við mennirnir yfir
tækni og vitneskju sem dugi
til að ná merkjum frá þeim
og þýða þau. Það sem til þarf
er samræmt átak stjörnufræð-
inga um allan hnöttinn, nógu
margir og öflugir útvarps-
stjörnukíkjar.
Aðrir stjörnufræðingar hafa
lagt til á undan von Hörner
að komið verði á um allan
hnöttinn stöðugri vakt við
móttökutækin. ef vera mætti
að greind yrðu í útvarpsbylgj-
unum sem stöðugt berast utan
úr geimnum merki frá sendi-
tæk.ium skyni gæddra lífvera
á öðrum hnöttum. Það sern. er
nýstárlegt að sjá í heims-
kunnu vísindariti er hað sem
sameiginlegt er y.
verjans og ritum dr. Helga
Pjeturss. hugmyndin um að
samband við lífverur á öðrum
hnöttum geti megnað að forða
mannkyninu frá tortímingu
fyrir eigin hendi. Álit. von
Hcrners er að íbúar fjölda
stjarna haff útrýmt sjálfum
sér með vísindalegum hernaði,
á öðrum stiörnum hafi ein-
ungis æðri lífverur liðið und-
ir lok í slfkum hildarleikjum
en lægri lífverur lifað áfram
og af beim getað þróazt nýjar
tegundir vitiborinna vera sem
reist hafi' ný.ia siðmenningu.
Loks er ekki óhugsandi. seg-
ir von Hörner, að á reiki-
stiörnu úti í geimnum búi
skyni gæddar verur, sem eigi
sér ævaforna siðmenningu,
vegna þess að þeim hafi tek-
izt að sigla fram hjá öllum
skerium drápstækni og úr-
kyn.iunarhættu. Sé svo ríður
nú á fyrir mannkynið að ná
sambandi við þessa hámenn-
ingu, segir hann, því bar kann
að vera að sé þau ráð að fá
sem mannk.ynið þarfnast á
þessurn tímurn, þegar maður-
inn hefur í fyrsta skipti í sögu
sinni fenaið í hendur tækni
sem gerir hann færan um að
tortfma siálfum sér.
Ekki verður séð að hinn
bvzki stiörnufræðingur hafi
huamynd um að íslenzkur
jarðfræðingur setti meginhug-
myndina í grein hans fram
fvrir okkrum áratugum og út-
Hstaði hana síðan í mörgum
bókum.
— ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 10. janúar 1962
Miðvikudagur 10. janúar 1962 — ÞJÓÐVILJINN —