Þjóðviljinn - 11.02.1962, Side 1
Hafnarfjörður!
Aðalfundur Alþýðubanda-
lagsins í Hafnarfirði verð-
ur haldinn í dag, sunnudag,
kl. 2 í Góðtemplarahúsinu
uppi. Dagskrá: Venjuleg að-
alfundarstörf og önnur mál.
Félagar fjölmennið.
Stjórnin.
26 mönnum bjargað af Elliða
Tvo hrakti burt I gúmmíbút
Sldpverjar í fjóra tíma í togaranum fullum
hliðinni í haugasjó -- Voru dregnir yfir í
af sjó liggjandi á
Júpíter í gúmmíbát
Siglufjarðartogarinn Elliði sökk í gærkvöld í
Jökuldjúpi eftir að hafa legið á hliðinni í hálfan
fimmta tíma fullur af sjó. Af 28 manna áhöfn
bjargaði togarinn Júpíter 26 en tveir voru í
gúmmíbát sem sleit frá Elliða skömmu eftir að
hann lagðist á hliðina. Fjöldi skipa leitaði
gúmmíbátsins um miðnætti í nótt, þegar blaðið
fór í pressu.
Elliði var staddur í Jökul-
djúpi 25 mílur undan Jökli i
vestanroki og stórsjó um klukk-
an sex síðdegis í gær. Kom þá
skyndilega leki að skipinu svo
lestarnar fylltust af sjó.
Bátar ónýtir eða fuku
Skipið tók að hallast ört og
klukkan hálfsjö var hallinn orð-
inn 70 gráður. Var þá tekið að
setja út gúmmíbátana en þeir
reyndust ýmist ónýt'r eða veð-
ur og sjór sleit þá frá skipinu.
Tveir menn voru komnir í einn
bátinn þegar hann slitnaði frá.
Elliði hafði stöðugt loftskeyta-
samband við land, og strax og
vitað var um mennina tvo á reki
í gúmmíbátnum bað Slysavarna-
félagið báta í Ólafsvík, á Sandi
og í Grafarnesi að hefja leit.
Henry Hálfdánarson, skrifstofu-
stjóri félagsjns, tjáði Þjóðviljan-
um í gærkvöld að 12 bátar
væru að leita.
Tveir á fleka í tvo tíma
Rétt fyrir klukkan sjö slitnaði
korkfleki með tveim mönnum á
frá Elliða. Liðu svo tveir klukku-
tímar að skipverjarnir 24 sem
eftir voru um borð vissu tvo
félaga sína á reki í gúmmíbát
og tvo aðra á fleka í hafróti og
náttmyrkri.
En um níuleytið vildi svo
gæfulega til að togarann rak
beint á fiekann, og komust
mennirnir tveir um borð aftur.
Síðasti báturinn bregzt
Togarinn Júpíter undir stjóm
hins gamalreynda skipstjóra
Bjarna Ingimarssonar var það
skip sem næst var Elliða og hélt
strax á vettvang þegar neyðar-
kallið barst. Ferð.n tók nærri
fjóra tíma vegna veðurs og öldu-
rót's ’"þótt tiltölulega stutt væri
milli skipanna.
Elliði hallaðist alltaf meira og
meira og seig jafnt og þétt í
sjó. Skipverjar höfðu geymt einn
gúmmíbátinn, og á tiunda tíman-
um þegar sýnt var að skipið
myndi sökkva ætluðu þeir að
grípa til hans, eri hann reyndist
þá ónýtur.
Mátti ekki tæpara
standa
Um klukkan tíu kom Júpíter
á vettvang. Var línu strax skot-
ið yfir í Elliða og tókst það
vel. Drógu síðan Elliðamenn
einn af gúmmíbátum Júpíters til
sín. Hafði hann verið styrktur
sérstaklega, því að bátar þessir
þola ekki drátt eins og þeir
koma fyrjr.
Voru allir sem á Elliða voru
síðan dregnir yfir í Júpíter í
einni ferð um klukkan hálf ell-
efu. Mátti það ekki seinna vera,
því tæplega ellefu var togarinn
sokkinn.
B.jörgunin gekk í alla staði
vel. Enginn mannanna var
meiddur. Aðstaða til björgunar
var afar erfið.
Júpíter fer til leitar
Veður var heldur að batna
þegar mönnum af Elliða var
bjargað og skygni að lagast. Á-
kvað Bjarni skipstjórj á Júpíter
að hefja þátttöku í leitinni að
mönnunum tveim á gúmmíbátn-
um. Voru þá bátar frá Snæfells-
neshöfnum búnir að raða sér
upp til leitar með jöfnu milli-
bili.
Gizkað var á eftir rekstefnu
að bátinn myndi bera fyrir Önd-
verðarnes jnn á Breiðafjörð.
Sumir töldu óliklegt að komið
yrði auga á hann fyrr en birti,
en aðrir álitu vel hugsanlegt að
unnt yrði að finna hann í nótt,
því að Ijós á að vera á þessum
bátum.
28 manna áhöfn
- Sem fyrr segir var 28 manna
áhöfn á Elliða. Fara hér á eft-
ir nöfn skipverjanna:
. - --
Elliði SI 1 var smíðaður úr stáli í Bretlandi árið 1947, 654
brúttólestir að stærð með 1000 hestafla aðalvél. Eigandi Bæj-
arútgerð Siglufjarðarkupstaðar.
Kristján Riignvaldssou, skip-
stjóri, 30 ára.
Axel Schiöth, 1. stýrimaður, 32
ára.
Arngrímur Jónsson 2. stýrimað-
ur, 22 ára.
Jens Pálsson frá Reykjavík, 1.
vélstjóri, 56 ára.
Rögnvaldur Rögnvaldsson, 2. vél-
stjóri, 40 ára.
Sigurgeir Jósefsson, 3. vélstjóri,
53 ára.
Matthías Jóhannsson, kyndari,
44 ára.
Pétur Þorsteinsson, kyndari, 39
ára.
Eyjahöfn í hœttu
VESTM ANNAEY JUM 10. febr.
— Hér hefur geisað vestan
stormur í nótt og dag og vind-
hraðinn hefur komizt upp í 13
vindstig í hryðjunum. Þessum
veðurofsa fylgir geysinjikið brim
og á flóðinu í morgun gekk að
kalla stanzlaust yfir Eiðið, sem
B E Y K I S I Ð N
Þcssi mynd er af síðasta bcykinum, sem
l»á iðn stundar hér i Reykjavík, Bjarna
Jónssyni, Háalcitisvegi 40. Er hún tckin
á vcrkstæði hans og sést einn af smíðis-
griptim hans, víntunna á stokkum, við
hlið hans. Inni í biaðinu cr viðtal við
Bjarna um beykisiðn.
er brimvarnargarður að norðan-
verðu við höfnina. Óttuðust menn
um skeið að brimið kynni að
brjóta skarð í Eiðið en þá er
höfnin í stórkostlegri hættu.
Verður höfnin áfram í hættu,
ef sami veðurofsi helzt á flóðinu
í kvöld. Mikil brögð hafa verið
að því að stórar rúður hafa
sprungið inn undan veðurþung-
anum og er víða neglt fyrir
glugga af þeim sökum.
Kvöldskóli alþýðu
Guðmundur J. Guðmundsson
flytur næsta fyrirlestur í Kvöld-
skóla alþýðu um vinnustöðva-
starfið.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30,
þriðjudaginn 13. þ.m. í sal ÆFR,
Tjarnargötu 20.
Birgir Óskarsson, loftskeytamað-
ur, 22 ára.
Ilallur Ólafsson, bátsmaður, 3(T
ára.
Jón Rögnvaldsson, matsveinn,
38 ára.
Ólafur Björnsson, 2. matsveinn,
17 ára.
Friðrik Björnsson, háseti, 17 ára.
Haukur Kristjánsson, háseti, 3T
ára.
Jóhann Örn Matthíasson, háseti,
16 ára.
Hjalti Björnsson, háseji, 22 ára,
Örn Pálsson, háseti, 21 árs.
Hólmar Frímannsson háseti, 28-
ára.
Kristinn Konráðsson, háseti, 21’
árs.
Sigurður Jónsson, háseti, 15 ára,
Páli Jónsson, háseti, 17 ára.
Egill Steingrímsson, háseti, 33
ára.
Ólafur Matthíasson, háseti, 1®>
ára.
Guðmundur Ragnarsson, háseti,
19 ára.
Steingrimur Njálsson, háseti, 19.
ára.
Óskar Vilhelm Friðriksson, há<
seti, 30 ára.
Jón Vídalín Sigurðsson, háseti,
48 ára.
Sigurjón Björnsson, háseti, 7®
ára.
Bræður og feðgar
um borð
Kristján Rögnvaldsson hefur
verið skipstjóri á bv. Elliða í
rúm þrjú ár, farsæll skipstjórn-
armaður og aílasæll. Tveir
bræður hans voru með honum á
togaranum, þeir Rögnvaldur 2.
vélstjóri og Jón matsveinn,
Aðrir bræður voru einnig um
Framhald á 12.. síðií.