Þjóðviljinn - 19.09.1962, Blaðsíða 1
Ræða Sverris á
samkomunni í
Kópavagi. — SJA
OPNU.
Gerðardómur Emils að verki
að greiða sjómönnum
gildandi samningum
Landssamband íslenzkra útvegsmanna hefur nú
fyrirskipað meðlimum sínum að gera upp við
síldveiðisjómenn samkvæmt úrskurði gerðardóms
Emils Jónssonar, — einnig á þeim stöðum þar
sem gömlu síldveiðisamningarnir eru enn í gildi.
Þessi „dagskipan“ LÍÚ-valdsins brýtur þvert í
bág við úrskurð Félagsdóms í sumar um gildi
gömlu samninganna, þar sem þeim var ekki
sagt upp.
Gcrðardómsráðherrann
Handfeknir
' BRUSSEL 18/9 — Lög-
reglan í Brussel handtók í
í dag aðalverktaka og
tæknilegan ráðgjafa fyrir-
tækisins er sá um bygg-
ingu stórhýsisins í Brussel
er hrundi í gær.
Björgunarstarfinu í rúst-
unum er haldið áfram og
er enn ekki vitað hve marg-
ir hafa látið lifið.
Hinir fiandteknu eru
fimmtugir að aldri. Þeir
eru sakaðir um að hafa
valdið dauða með gáieysi
sínu.
Sildveiðibátar eru nú sem óð-
ast að halda til heimahafna og
sjómenn teknir að gera upp
vertiðina. Eins og kunnugt er
gilda gömlu sildveiðisamning-
arnir á um það bil þriðju'ngi
flotans, — þ.e. á Sandgerðis-
bátum og á flestum bátum
norðan- og austanlands.
Aðrar skipshafnir munu hins
vegar fá uppgert samkvæmt
gerðardómslögum Emils Jóns-
sonar og hirða útgerðarmenn
þúsundir króna af kaupi hvers
háseta.
Ósvífið samn-
ingsbrot
Síðustu dagana hefur hins
vegar komið í Ijós, að valda-
klíka LÍÚ hyggst rey^a að nota
gerðardómslögin sem skálka-
skjól til ósvífnustu samnings-
brota og enn frekari árása á
sjómenn. Hefur LÍÚ fyrirskip-
að öllum meðlimum sínum að
gera eingöngu upp við sjómenn
samkvæmt úrskurði gerðar-
dómsins, einnig þar sem gömlu
samningarnir eru í fullu gildi
samkvæmt úrskurði Félagsdóms
frá því j sumar.
Að sjálfsögðu munu verka-
lýðsfélögin standa fast á rétti
meðlima sinna í þessu máli og
stefna þeim útgerðarmönnum
fyrir samningsbrot, sem á ein-
hvern hátt reyna að hlýðnast
hinum dól^slegu fyrirmælum
LÍÚ.
Skreið inn í dóminn
— eftir eigin mótmæli
Gerðardómslög Emils Jóns-
so.nar, sjávarútvegsmálaráðherra
og formanns Alþýðuflokksins,
eru einhver lúalegasta árás, sem
gerð hefur verið á verkalýðs-
samtökin. Meira að segja Jón
Sigurðsson, forseti Sjómanna-
sambandsins og flokksbróðir ráð-
herrans, lét hafa eftir sér um-
mæli í þá átt.
Alþýðusamband íslands og
Farmanna- og fiskimannasam-
band ísiands mótmæltu lögun-
Forsefi ASÍ
Gerðardómurinn gild
ir ekki um allt landið
Þjóðviljinn sneri sér í gær til
Hannibals Valdimarssonar, for-
seta ASÍ og spurðist fyrir um
það, hvort einstök félög hefðu
leitað aðstoðar sambandsins
vegna uppgjörs á síldarbátum.
Hannibal kvað tvö félög, á Dal-
vík og Húsavík, hafa snúið sér
til Alþýðusambandsins í gær
vegna þessa máls.
Kvaðst Hannibal vilja taka
það fram, að Ajþýðusambandið
’iti svo á. að gömlu síldveiði-
samningarnir væru í fullu gitdi
alls staðar þar sem þeim hefði
ekki verið sagt upp á löglegan
hátt, enda hefði Félagsdómur
kveðið upp úrskurð í þessu máli
í sumar vegna Verkalýðsfélagsins
á Norðfirði. Þessum skilningi
veraka!ýðsfé'.aganna heíur hvergi
verið mótmælt opinberlega til
iþessa.
Telji útgerðarmenn á þeim
stöðum þar sem gömlu samn-
ingunum var ekki sagt upp sig
ekki bundna a.f þeim. er það
þeirra að reka mál fyrir Félags-
dómi.
En félögin munu að sjálfsögðu
sækja útvegsmenn til saka fyrir
samningsbrot, þar sem þeir gera
ekki upp við sjómenn samkvæmt
gildandi samningum.
Að lok’um kvaðst Hannibal
vilja taka bað sérstaklega fram.
að gömlu síldarsamningarnir
hefðu fvrir úrskurð gerðardóms-
ins gilt á öllum stöðum, þar
sem um síldarútgerð er að ræða,
nsma verka’ýðsfé’.ög á staðniim
hefðu sérsamninga.
Mótmæli sjómanna gegn geröardómslögunum dundu látlaust a
Emil Jónssyni í sumar. Þessi mynd er tekin, þegar sjómeun
eru aö undirrita mótmælin, meöan einn síldarbáturinn var aö
landa á iíaufarhiifn.
um eindregið og neituðu að til-
neína mann í gerðardóminn. En
sjálfur formaður Sjómannasam-
bandsins skreið inn í dóminn,
eftir að hafa útnefnt sjálfan sig
sem fulltrúa sjómannasamtak-
anna, þrátt fyrir fyrri mótmæli
sin gegn gerðardómslögunum.
Sýnir það bezt heilindi hans í
þessu máli. Að sjálfsögðu lét
íhaldsliðið í forystu sjómanna-
samtakanna undir stjórn Péturs
Sigurðssonar sér þessi vinnu-
brögð vel líka.
Þóttust óánægðir
Til þess að reyna að breiða
litillega yfir bið ömurlega hlut-
Framh. á 10 siðu
Khan forseti
þings SÞ
NEW YORK 18/9 — í dag hélt
sautjánda allsherjarþing Sam-
eii’uöu þjóðanna sinn íyrsta
fund. Fyrsta máliö á dagskrá
var kosning forseta og var Zaf-
rullah Klian frá Pakistan kjör-
inn.
ZafruFah Khan h’aut 72 at-
kvæði en keppiraulur han.s.
Gunpaía Malaisekera frá Cúylon,
fékk 27. Kosningin var leynlleg.
Sovézkir
sjómenn slas-
ast eystra
Seyðisfirði 18/9 — í gær
lagðist hér að bryggju rúss-
neskt síldveiðimóðurskip
með tvo slasaða sjómenn.
Skipið heitir Bratsk. en sjó-
mennirnir höfðu slasast um
borð í síldveiðiskipum sem
því fylgja. Veður var mjög
vont hér eystra um helg-
ina, hávaða norðanrok og
snjóaði í fjöll. Á miðunum
var veðrið miklu verra og
munu mennirnir hafa kast-
ast til í sjóganginum með
iþeim afleiðingum að þeir
eru mjög illa og víða
brotnir.
Héraðslæknirinn lét flytja
þá í sjúkrahúsið, en að
iokin.ni rannsókn var á-
kveðið að senda þá til
Reykjavíkur og fóru þeir
i dag með flugvél.
Ekkert tjón varð hér í
veðri þessu. en Fjarðar-
heiði var eitthvað erfið
f.vrst á eftir.