Þjóðviljinn - 06.12.1962, Síða 6

Þjóðviljinn - 06.12.1962, Síða 6
6 SIÐA ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. desember 1962 Eíríkur 14. var myrtur á arseniki veikur og vann ýms óhæfuverk. Bræður hans, Jóhann og Karl, tóku hann til fanga og lokuðu hann inni árið 1569 og fangi var hann til dauðadags, átta árum síðar. Þá þegar kom upp grunur um að honum hefði verið byrlað eitur og sá grun- ur hefur sem sagt nú verið staðfestur. flður ókunn Ijóð eftir Pasternak birt í Moskvu Sovézka ríkisforlagið hefur gefið út ljóðasafn þar sem m.a. eru birt mörg áður ókunn ljóð eftir Boris Pasternak. 1 ljóða- safninu eru einnig tvö kvæði eftir aðra höfunda sem nú eru látnir, Sabolotskí og Lúgovskoj, og fjalla þau bæði um harð- stjórn Stalíns. Flest skáldin sem kvæði eiga í bókinmi eru þó af yngri kynslóðinni. 500 eítir stríð Mafían, hið alræmda glæpa- félag á Sikiley, hefur myrt meira en 500 manns síðan 1945. Einn af þingmönnum Sikiiey- inga á ítalska þinginu skýrði frá þessu i umræðum á þingi um ráðstafanir tii að binda cndi á þennan ófögnuð. Þingmaðurinn, Matteo Gaudi- oSo í flokki sósíalista, lagði í umræðunum fram skýrslu um glæpaiðju mafíunnar á Sikiley. Hann skýrði þannig frá því að í bænum Corleone einum hefðu 135 menn fallið fyrir vopnum mafíunnar síðan stríði lauk og eru íbúar hans þó ekki nema um 16.000. Bærinn er skammt fyrir sunnan Palermo. Innanríkisráðherrann Paolo Taviani lofaði því að ríkis- stjómin myndi nú hefja víð- tæka eftirgrennslan um starf- semi glæpafélagsins, sem að hans sögn hefur aldrei gefið upp vonina um að taka völdin á eynni alveg í sínar hendur. „Mafían hefur sín eigin lög sem ekki er síður farið eftir idslögum. Leiðtogar maf' unnar starfa í skjóli þeirrar lagagreinar félagsskaparins uð hver sá sem leysir frá skjóð- unni á dauðann vísan, en slíkt getur ekki gengið til lengdar í lýðræðisríki“, sagði ráðherrann. Það er þó hins vegar stað- reynd að mafíunni hefur hald- izt uppi glæpastarfsemi sín ár- um saman í hinu ítalska lýð- ræðisríki og lítið hefur verið gert af hálfu ríkisvaldsins til að stemma stigu fyrir starf- semi hennar. Rökstuddur grun- ur leikur á að mafían hafi náið samband við forystu Kristi- legra demókrata á Sikiley og að það sé fyrir milligöngu þeirra að ekki hefur verið geng- ið skörulegar fram en reynslan sannar í að útrýma henni. Siðmenningin hefur ekkert það að bjóða íbúum fjalla- eyjunnar Tristan da Cunha sem þeir geta ekki án ver- ið. Fyrir rúmu ári neyddust þeir til að flýja heim- kynni sín eftir mikið eldgos á eynni. Þeir voru fluttir til Bretlands og þar hefur verið hlynnt að þeim eftir föngum, en nú hafa þeir í leynilegri atkvæðagreiðslu ákveðið að snúa heim aftur. Aðeins sex þeirra völdu þann kost að verða eftir í Bretlandi. Meðan eldgosið stóð yfir og hraunið vall yfir akra þieirra og beitilönd og lagði í eyði hluta af byggðinni, höfðust þeir við í bátum við ströndina sólar- hringum saman. Skip voru send þeim til hjálpar og mánuði síð- ar komu allir eyjarskeggjar, 270 talsins, til Southampton í Englandi. Eyjan sem er í miðju Atlanz- hafi sunnanverðu hafði byggzt frá Bretlandi fyrir hálfri ann- arri öld. Líf eyjarskeggja hefur tíðum verið erfitt, enda land- kostir og veður oft hörð. En þeir hafa þó unað hag sínum Brezkt íhaldsblað fullyrðir Flugskeytastöðvar USA í Tyrklandi lagðar niður Brezka íhaldsblaðið Dai- ly Telegraph sem talið er helzta málgagn brezku stjórnarinnar fullyrðir að Bandaríkjastjórn hafi í hyggju að leggja niður flugskeytastöðvar þær sem Bandaríkin hafa í Tyrk- landi. Þetta eru þær fluffskevtastöðvar sem Bandaríkin hafa næst landamærum Sovétríkj- anna. Þegar Kúbudeilan stóð sem hæst og horfur virtust á því að hún myndi leiða til heims styrjaldar bauð Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, Kennedy Bandaríkja- forseta að flytja burt sovézk flugskeyti írá Kúbu, ef Banda- ríkin legðu niður flugskeyta- stöðvar sínar í Tyrklandi. Hann kvaðst skilja að Banda- ríkjamenn teldu sér stafa ógnun af hinum sovézku flug- skeytum, en benti forsetanum þá um leið á, að eðlilegt væri að Sovétríkin væru ugganr yfir hinum bandarísku flug skeytum í Tyrklandi. Þess tilboði sovétstjómarinnr hafnaði Kennedy forseti. e’ hún ákvað þá að flytja buri flugskeyti sín frá Kúbu. þótt ekkert kæmi í staðinn. En samkvæmt hinu brezka íhaldsblaði hefur Bandaríkja- stjóm nú ákveðið að leggja niöur flugskeytastöðvarnar í Tyrklandi. Það tekur þó íram að þetta muni ekki gert vegna tilboðs Krústjoffs, heldur að- eins af því að flugskeytin sem í Tyrklandi eru séu orðin úr- elt. Það eru millilengdar- skeyti af Júpíter-gerð, ein þau fyrstu sem Bandaríkjamenn smíðuðu. Bandaríkin eigi nú svo mikið af langdrægum flugskeytum og Polaris-skeyt- um fyrir kafbáta, að ekki sé þörf fyrir flugskeytastöðvar við landamæri Sovétríkjanna. Á það má benda að sovézku Hugskeytin á Kúbu voru einn- millilengdarskeyti og reynsl- n hefur margsannað að Sov- ríkin standa Bandaríkjunum amar í smíði langdrægra 'ugskeyta. Þau höfðu því kki meiri þörf fyrir slík skeyti á Kúbu en Bandaríkin hafa fyrir þau í Tyrklandi. vel og fáir þeirra hafa flutzt þaðan. Þeir hafa í rauninni lif- að þarna sem ein fjölskylda, enda allir meira eða minna skyldir. Undu sér ekki í Bretlandi Þeim var vel tekið þegar þeir komu til Bretlands. Þeir fengu húsnæði með öllum hús- gögnum og þægindum, karl- mönnunum voru útveguð störf við þeirra hæfi og börnunum komið fyrir í skóla. Þeir fengu að halda hópinn og allt var gert til að auðvelda þeim að samlaga sig hinum nýju að- stæðum. En samt undu þeir sér illa. þeir hafi komizt betur af sem fyrir þá var gert, en allir^ þjáðust þeir samt af þrá eftir eyjunni sinni litlu. Þeim finnst heldur ekki að þeir hafi betri kjör í Bretlandi en heima. Erfiðara líf í Bretlandi — Það er bæði hættulegra og erfiðara að búa hér en á Trist- an da Cunha, þótt eldfjallið væri þar í næstu nánd, segir þrítugur eyjarskeggi, Joseph Glass, sem kominn er í bein- an karllegg af landnámsmann- inum, enskum sjómanni sem reisti bú á eynni ásamt þel- dökkri konu sinni. — Hér er svo mikið um ofbeldisverk, af- brot ög óhæfuverk, segir hann. Maður gæti haldið að hér f jand- -köpuðust allir við alla. Á ■rristan da Cunha bjuggu allir 1 sátt og samlyndi og þar var ngin þörf fyrir lögreglu, bæt- 'r hann við, Leiðist sjónvarpið — Enginn okkar hefur keypt sér sjónvarpstæki eða þvotta- vélar, heldur Joseph Glass á- fram. Okkur leiðist sjónvarpiö, maður fær illt í augun af að horfa á það. Okkur kemur held- ur ekki til hugar að kaupa neitt sem við getum ekki borg- að út í hönd. Enda þótt langflestir eyjar- skeggja hafi fengið laun sem svara til meðallauna brezkra verkamanna, telja þeir þó að þeir hafi komizt betur af heima. — Við vorum fiskimenn og hver okkar átti a.m.k, eina kú, nokkrar kindur og eigið hús. Við öfluðum sjálfir fæð- unnar og þurftum ekki á miklu fé að halda. Ég bý að vísu betur hér, en ég á ekki mitt eigið hús. Ekkert verður úr peningunum og enginn er hér sjálfráður. Fara heim í tveimur hópum Þegar er tekið að undirbúa heimferðina. Fyrst mun fá- mennur hópur karla og kvenna halda til eyjarinnar ásamt ensk- um aðstoðarmönnum. Þeir munu búa í haginn fyrir hina, sem sennilega flytjast heim Mt- ur áður en ór ef liðið. Ráðherraskipti ÍUSA? WASHINGTON 4/12. — Sá orð- rómur hefur verið á kreiki að undanförnu í Washington, að ætlunin væri að setja Adlei Stevenson af, sem aðalfulltrúa Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Hefur verið fullyrt í blöðum, að Stevenson hafi sett sig upp á móti hafnbanni Bandaríkjamanna á Kúbu. Þessu hefur þó verið neitað mjög á- kveðið af opinberum aðiljum. I dag fullyrða ýmis dagblöð í Bandaríkjunum, að Stevenson verði látinn víkja úr embætti íyrir Doan Rusk, núverandi ut- anríkisráðherra, en Mac George Bundy, ráðgjafi forsetans setjist í utanríkisráðherraembættið. Sal- inger, blaðafulltrúi forsetans, neitaði þó í dag þessum stad- hæfingum. Nýrað sem grætt var í írska lækninn Ian Clark í ágúst í sumar úr starfsfélaga hans starfar ekki lengur og gervinýra er nú notað til að halda lífi í honum. Harnmer- smith-spitalinn í London hef- ur tilk^mnt þetta, en það vakti mikla athygli á sínum tíma og var þá sagt frá því hér í blaðinu, þegar nýrað var grætt í dr. Clark og svo virt- ist sem ígræðslan myndi tak- ast. Áður hafði það aðeins heppnazt þegar nýra var fært á milli eineggja tvíbura. Læknirinn sem lét starfsbróð- ur sínum eftir annað nýra sitt, David Spencer, hefur hins vegar náð sér vel eftir aðgerðina, en mun þó ekki taka aftur til starfa fyrr en um áramótin. Siðmenning er þeim lítils virði íbúar eldfjallaeyjar ætla heim aftur Á því hefur leikið grunur í fjórar aldir að Eiríkur 14. Sviakonungur hafi verið myrtur á eitri. Gröf hans var opnuð 1958 og bein hans skoðuð. Nið- urstaða þeirra skoðunar var sú að allt bénti til þess að hon- um hefði verið byrlað arsenik. Sagt er frá rannsókninni í bók sem kom út fyrir skömmu í Svíþjóð, en f hana rita 22 sérfræðingar, læknar efnafræð- ingar, sagnfræðingar og guð- fræðingar. Eiríkur konungur sem var sonur Gústafs Vasa var sinnis- í síðustu viku var haldinn geysifjölmennur útifundur á Klathmonos-torgi í Aþcnu til að mótmæla stjórn Karamanlis og krefjast þess að þegar í stað verði haldnar nýjar þing- kosningar í Iandinu, cn í síðustu kosningum bcitti flokkur Karamanlis alls konar brögöum og svikum tii að tryggja kosningu sinna manna. Talið er að á annað hundrað þús- und manns hafi sótt fundinn og er þetta mesti útifundur sem lengi hefur verið haldinn í Grikklandi. Mafsan hefur myrt Nýrnafærsla tókst ekki A annafl hundrað þús. manns heimta kosningar é ♦ i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.