Mosfellsblaðið - 01.12.1998, Qupperneq 3
í Grundarfirði
í júní 1974 fluttu þau til Gmntlarfjarðar, er Jón vígðist
þangað sem prestur og voru þar í 16 ár, þar til Jón var
valinn sóknarprestur í Mosfellsprestakall. Sigríður
Mosfell í Mosfellsdal er staður sögu og frægðar, staður
fornkappa, staður kirkjusögu landsins, sóknarpresta og
heimili rnargra kynslóða. Egill Skallagrímsson er talinn
hafa búið þar sín síðustu æviár og er einmitt rnerki Mos-
fellsbæjar talið vera tákn úr peningi frá hans tíma. Skáld-
Hrafn er og fæddur þar á 10. öld, hans er getið í Gunn-
laugs sögu ormstungu. Ólafía Jóhannsdóttir rithöfundur
er fædd þar 1863- Einn af merkustu prestum sem Mos-
fell hafa setið er séra Magnús Grímsson (1825-1860) en
hann var fjölhæfur maður,
gott skáld og skrifaði m.a.
leikrit, sinnti fornfræðum
og náttúrufræðum, gaf út
íslensk ævintýri ásamt Jóni
Árnasyni og þýddi ýmsar
bækur.
Kirkja var fyrst reist á
Hrísbríi um árið 1000, er
kristni var lögleidd á Ís-
landi en flutt að Mosfelli á
árunum 1130 - 1160 að
talið er. Kirkjan mun hafa
lagst niður snemma á mið-
öldum, en næst er þar get-
ið prests árið 1536. Friður
ríkti yfir prestakallinu til
ársins 1888, er kirkjan að
Mosfelli var rifln niður skv.
konunglegri tilskipan og
Mosfells-og Gufunesssókn-
ir sameinaðar undir eina
kirkju að Lágafelli. Þetta
varð undirstaða Innansveit-
arkroniku Halldórs Kiljan Laxness. Margir Mosfellingar
undu þessu illa, ekki síst Stefán Þorláksson, sem gaf ríf-
legt fé að sér látnum til kirkjubyggingarsjóðs Mosfells-
kirkju.Var ný kirkja byggð og vígð 4. apríl 1965.
Eftirtaldir prestar hafa þjónað Lágafelli en setið að
Mosfelli: Sr. Jóhann Þorkelsson 1877-1890. - Sr. Ólafur
Stephensen 1890-1904,- Sr. Magnús Þorsteinsson 1904-
1922,- Sr.Friðrik Friðriksson 1922-1923.- Sr.Árni Björns-
son 1923-1924. - Sr. Hálfdán Helgason 1924-1954. - Sr.
Bjarni Sigurðsson 1954-1976.-Sr. Birgir Ásgeirsson 1976-
1990. - Sr. Jón Þorsteinsson 1990. - Sr. Birgir fór úr þáver-
andi íbúðarhúsi vegna slæms ástands hússins árið 1986
og síðar var húsið dæmt ónýtt og riflð. Eftir byggingu nýs
húss flutti sr.Jón Þorsteinsson ásamt eiginkonu sinni að
Mosfelli á þessu ári
Mosfellsblaðið heimsótti prestshjónin núna fyrir jólin
að hinu nýja heimili þeirra að Mosfelli. - Sigríður Anna
Þórðardóttir og Jón Þorsteinsson kynntust ung í
Menntaskólanum á Akureyri, en þaðan luku þau stúd-
entsprófi árið 1966. Hún er fædd og uppalin á Siglufirði,
en hann fæddur á Kaldrananesi á Ströndum og ólst upp
að hluta í Reykjavík. Þau giftu sig um tvítugt og hófu bú-
skap í Reykjavík og bjuggu þar á meðan þau stunduðu
nám við Háskólann, hún B.A. nám í íslensku, sagnfræði
og grísku og hann guðfræðinám. Þau voru 8 ár í Reykja-
vík og eignuðust þar sitt fyrsta barn, Jófríði Önnu, sem
nú er búsett í Oslo í Noregi, gift Rune Johansen og eiga
þau tvo syni.
Séð heim að Mosfelli, nýja húsiðfellur vel að landslagi og staðháttum.
Frú Sigríður Anna Þórðardóttir og Jón Þorsteinsson, sóknarprestur á heimili sínu að
Mosfelli.
kenndi öll árin við Grunnskólann í Grundarfirði. í litlu
sveitarfélagi þurfa allir að leggja lið og Sigríður var kjör-
in í sveitarstjórn 1978 og var í sveitarstjórn í 12 ár, þar af
oddviti í 6 ár. Byggðarlagið var ungt, byrjaði að byggjast
upp eítir 1940,margt ógert m.a. í gatnagerð, hafnargerð,
skóla-og heilbrigðismálum og einnig í málefnum aldr-
aðra.
Sr. Jón kenndi með prestsstörfunum allt að hálfri
kennarastöðu, einnig var hann í skólanefndum og var
formaður Björgunarsveitarinnar, kom henni í gang á ný
en hún hafði verið í lægð, en er nú vel búin og kröftug
sveit. í Grundarfirði þekktu þau engan er þau komu, en
þarna býr fólk sem lagðist á eitt t.d. þegar kirkjan var
stækkuð. í Grundarfirði eignuðust þau tvær dætur þær
Þorgerði Sólveigu og Margréti Arnheiði.Eítir 16 ára bú-
setu þar vestra töldu þau sig verða að gera upp við sig
hvort þau yrðu alla starfsæfina þarna, eða breyttu til. - Sr.
Jón sótti um Mosfellsprestakall og fékk það. Fjölskyldan
kvaddi góða vini og stórhuga fólk á Grundarfirði að af-
lokinni kveðjumessu í júní 1990 og hélt suður á bóginn.
í Mosfeltsbœ
Þegar suðiir til Mosfellsbæjar kom, var séra Jóni tekið
hlýlega af bæjarbúum og fór strax vel á með honurn,
sóknarbörnum og sóknarnefnd. Hann sótti fast við ntðu-
ncyti kirkjumála að fá búsetu að Mosfelli en var neitað
um það. Eftir að Prestssetrasjóður var stofnaður, liðkað-
ist um málið og með myndarlegum stuðningi sóknar-
nefndar var ráðist í að byggja nýtt prestsetur að Mosfelli.
Við komuna suður settu þau upp heimili í Grafarvogi og
hafa búið þar þangað til þau fluttu 19. júní í sumar, að
ráði Jóns og var það stór stund, er þau voru loksins kom-
in heim að Mosfelli.
Sóknarnefnd hefur tekið afar myndarlega á málefnum
kirkjunnar að nvati Jóns. Lágafellskirkja hefur öll verið
endurbætt og nýtt orgel. Stórviðgerð á Mosfellskirkju og
framundan enn meiri framkvæmdir, nýr kirkjugarður er
kominn að Mosfelli.
Prestsstarfið hefur verið annasamt hjá Jóni, enda er
prestakallið stórt. Fjölgað hefur um 800 manns frá því
hann kom árið 1990 og telur söfnuðurinn nú liðlega
5-300 maims. Nú hefur verið ráðinn annar prestur, séra
Sigurður Rúnar Ragnarsson. Mikil vinna er framundan
hjá sóknarprestinum um jólamánuðinn, en þó er nýtt
ívrir honum að geta deilt álaginu og tilhlökkunarefni að
geta t.d. átt frí á 2. í jólum, en þá ætla þau hjón að hafa
ijölskylduboð á nýja heimilinu. Nú þarf séra Jón að enda
viðtalið, hann á fyrir höndum skírn í Lágafellskirkju.
Sigríður Anna kenndi við Gagnfræðaskólann hér í
Mosfellsbæ veturinn 1990-9l.Umhaustið 1990varpróf-
kjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjaneskjördæmi. Fékk
hún hvatningu til að taka þátt í því og hafði gert það upp
við sig að hún vildi halda áfram í stjórnmálum. Hún hlaut
5. sæti og var kjörin á þing. Þingmannsstarfið er anna-
samt og hún er lítið heinta, óreglulegur vinnutími og
langur vinnudagur. Starfið er þó mjög skemmtilegt og
fjölbreytt og þar er tækifæri til þátttöku í mótun samfé-
lagsins. - Sigríður segir að henni þyki afar vænt um hlut-
verk prestsfrúarinnar, enda sé hún vön því og vilji sinna
því svo vel sem kostur sé. Mjög ólíkt að vera prestskona
í fámennu samfélagi eða mannmörgu sem í Mosfellsbæ.
- Hún segist hafa farið í stuttar gönguferðir um hið fagra
nágrenni og aðeins farið til berja upp í hlíðina nú í haust,
en frekar lítið hafi verið af berjum.
Nú eru fyrstu jólin þeirra hjóna að Mosfelli að nálgast,
tvær dætur koma erlendis frá, allar verða því dæturnar
hjá þeim um jólin, ásamt tengdasyni og tveimur barna-
börnum. Sigríður kveðst afar ánægð með húsið sem er
vel byggt og hlýlegt. Að vanda verða rjúpur á aðfanga-
dagskvöld, hangikjöt á jóladag og einhver frábær steik á
2.í jólum.
Mosfellsblaðið sendir ljölskyldunni að Mosfelli bestu
jólakveðjur.
m
immjjité
m pitóceww.- £ mmmM
Langatanga 1a - Mosfellsbæ - Sími 566 8188
Mosfellsblíiðið Q