Þjóðviljinn - 05.04.1964, Blaðsíða 4
4 SIÐA
ÞJðÐVILJINN
Sunnudagur 5. aprfl. 1964
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ritstjórar: tvar H. Jónsson, Magnús Kjartansson (áb.),
Sigurður Guðmundsson
Ritstjóri Sunnudagsins: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstjóm. afgreiðsla. auglýsingar, prentsmiðja; Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur) Áskriftarverð kr. 90 á mánuði.
Fríðlýst, hlutlaust
land
jyjennírnir sem landráðin frömdu 30. marz 1949
virðast farnir að vona, að eftir fimmtán ár
sé farið að fyrnast svo yfir óþokkaverk þeirra,
að þeir geti farið að stæra sig af þeim. Stæra sig
af því að hafa með blekkingum og misbeitingu
á valdi meirihluta Alþingis flekað ísland inn í
hernaðarbandalag, vopnlausa þjóð og friðsama;
þjóð, sem með fastheldni við hlutleysi sitt héfði
getað lagt málstað friðar og öryggis í heiminum
allt það lið sem hún megnaði.
jþeir virðast halda, leppar hins bandaríska valds,
aðalleikendurnir í harmleiknum sem gerðist með
inngöngunni í Atlanzhafsbandalagið, að það sé
gleymt að þeim fjötri var smeygt á íslenzku þjóð-
ina með svardögum um að hlutdeild íslands
í Atlanzhafsbandalaginu skyldi framkvæmd þann-
ig að á íslandi yrði aldrei erlendur her á friðar-
tímum. Þeir virðast halda að það sé einnig gleymt,
að tveimur árum síðar framdi íslenzk ríkisstjórn
það stjómarskrárbrot, að kveðja hingað erlend-
an her og afhenda honum herstöðvar á íslenzku
landi, án þess að Alþingi væri kvatt til. Þeir halda
að gleymt sé hve lágf þeir lutu, þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðu-
flokksins, vordagana 1951, þegar þeir létu hóa sér
á klíkufund til að hlusta á foringja flokka sinna
flytja bandaríska lygasögu sem fékk þá til að
samþykkja að rétt væri að fremja stjórnarskrár-
brotið, kalla hinn erlenda her inn í landið. Þeir
halda sjálfsagt að enginn muni lengur að dátasjón-
varpið og útvarpið á Keflavíkurflugvelli var leyft
í því skyni einu, að skemmta bandaríska her-
mannadótinu þar syðra, algerlega án þess að ver-
ið væri að taka fillit til andlegra þarfa sýslu-
mannsins í Borgarnesi og álíka manna.
gn ekkert af þessu gleymist. Hinn smánarlegi og
vesalmannlegi þáttur manna eins og Bjarna
Benediktssonar, Eysteins Jónssonar og Emils
Jónssonar í undanlátsseminni við ásælni Banda-
ríkjanna gleymist ekki, og mun ætíð metinn svo
sem verðugt er í sögu þjóðarinnar. Það léttir ekki
dóminn yfir þessum mönnum að þeir eru nú í
seinni tíð teknir að stæra sig af óheillaverkum
sínum, monta af því að hafa smeygt fjöfri hern-
aðarbandalagsins á íslenzku þjóðina, minna sjálf-
ir á að það voru þeir sem kölluðu til íslands er-
lendan her á friðartímum. með þeim líka þokka-
legu aðferðum sem það var gert.
þeir virðast halda það, bandarísku lepparnir í
forystu þriggja stjórnmálaflokka á íslandi,
að f jötrar hernaðarbandalagsins á íslandi séu orðn-
ir nægilega traustir til að endast aldur og ævi.
Svo mun þó ekki verða. Fyrr en varir munu ís-
lendingar úr öllum flokkum rísa gegn hinni auð-
mýkjandi hernámsstefnu. vísa hinum erlenda her
úr landi no i-pfia Tsland á ný til vegs sem hlut-
laust, friðlýst land. — s.
Laug Kristmann
fyrir rétti?
Frestur
til að sækja um byggingarlóðir í Elliðavogi, Ár-
bæjarhverfi og Kleppsholti, rennur út að kvöldi
5. apríl.
Á sama tíma rennur út frestur til að endurnýja
þær umsóknir á svæði þessi, sem sendar voru fyrir
Fyrir Bæjarþingi Reykjavik-
ur 'sl. mónudag var Kristmann
Guðmundsson að því spurður,
hversvegna hann stefndi Thor
Vilhjálmssyni en ekki Bjarna
Benediktssyni frá Hofteigi, sem
1 tveim greinum í Þjóðviljan-
um kallaði Kristmann ritþjóf.
Skáldið svaraði því til, að það
hefði aðeins aðra greinina séð,
en hvoruga lesið. 1 ísold hinni
gullnu, bls. 158, standa hins
vegar þessi orð: „Þá kom út
fyrra bindi Heimsbókmennta-
Sögunnar og fékk ágætar við-
tökur 1 öllum biöðum nema
,.Þjóðviljanum“. Þar birtist
gríðarstór grein, sem raunar
var ekki ritdómur, heldur geð-
veikiskast. Og nú tók
„menntamannadeildin" heldur
en ekki fjörkipp: I fyrsta lagi
var þetta alls engin bók-
menntasaga; í öðru lagi var
bókin aðeins þýðing á frægri
bókmenntasögu, norskri; í
þriðja lagi var þetta tómt bull
og kjaftæði, höfundurinn
þekkingarlaus og ólesinn með
öllu og hafði stoiið hverju ein-
asta atriði úr öðrum bók-
menntasögum og alfræðibók-
um.“
Sósía/istar
Kópavogi
Sósíalistafélag Kópa-
vogs heldur fund
fimmtudagskvöld, 9.
apríl kl. 8.30, í Þinghól.
Rætt verður stjórnmála-
viðhorfið. Nánar auglýst
síðar.
hressir
mkœfír
SaztyœZtsgíeriM |> a ■ »
Eins og fram kemqr hér
kallar Kristmann aðra grein
Bjama „geðveikiskast“. Slíkan
dóm er ekki unnt að kveða
upp nema Kristmann hafi lesið
umrædda grein, hér dugar
engin endursögn, enda ber í-
vitnuð klausa skáldsins þess
glögg merki, að hann hafi þó
að minnsta kosti á hundavaði
farið yfir lesmálið. Kristmann
hefur því eftir öllum sólar-
merkjum að dæma sniðgengið
sannleikann fyrir rétti, en við
því mun liggja allt að fjögurra
ára fangelsi! Er yfirvöldunum
hér með bent á þetta þeim til
glöggvunar!
3. marz s.l.
Umsóknirnar skulu lagðar í póstkassa Skúlatúns 2.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Hef opnað lækningastofu
að Klapparstíg 25, 3. hæð, sími 11228. — Viðtals-
tími mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga kl. 4.30
til 5.30; fimmtudaga, föstudaga frá kl. 1.30 til 2.30,
laugardag 10 til 11 f.h..
Björn Önundarson, læknir.
KRÓM húsgögn
í eldhúsið, í veitingahúsið, í félagsheimilið.
Fjölbreytt úrval.
KRÓM húsgögn
HVERFISGÖTU 82 — SÍMI 21175
(í sama húsi og Skóhúsið).
Til
fermingargjafa
Skíðaútbúnaður
Tjöld
Svcfnpokar frá kr. 590,00
Pottasctt
Mataráhöld í tösku
frá kr 630,00
Ferðagasprímusar
Ljósmyndavélar
frá kr. 273,00
Ljósmyndavélagjafasett
Veiðistcngur
Veiðistangasett og m. fl.
Póstsendum.
Munið úrvalið
til fermingargjafa er í
BLÓMASÝNING
Alaska Miklatorgi, opnar nú um helgina blómasýningu þá 3.
í röðinni og jafnframt þá stærstu.
Á sýningunni eru þúsundir pottablóma. — Sýningin stend-
ur vfír næsta hálfa mánuð. Sýningin er opin til kl. 10 á
kvöldin.