Þjóðviljinn - 05.04.1964, Page 10
JO SlÐA
ÞIÚÐVILIINN
Sunnudagur 5. april 1964
RAYMOND POSTGATE:
leikari níu ára gamall. þegar
góðglaður frændi hafði farið
með hann í leikhús að sjá Owen
Nares. Hann sá ennþá sviðið fyr-
ir sér: Herra Nares lék á móti
velþekktri leikkonu, sem nú var
gleymd. Hooey? Iris Hooey? Hann
velti því fyrir sér andartak,
flögraði síðan frá því aftur. Það
skir4i ekki máli. Owen Nares
hafði hrópað til hennar og verið
svo fallegur. Hann mundi hvem-
ig hún brosti um. leið og hún
sneri sér við til að fara.
— Vertu aftur ruddalegur við
mig, elskan, hafði hún sagt og
svo slokknuðu ljósin skyndilega.
Nú orðið var hann ekki viss um
að þetta hefði verið sérlega vel
uppfært. Þegar hann rifjaði
þetta upp, var hann hreint ekki
viss um að Owen Nares hefði
leikið yfirleitt. Hann hafði stað-
ið á sviðinu og litið glæsilega út;
hreint ekki meir. Og árum sam-
an eftir hina miklu ákvörðun
hafði herra Drake vanleikið.
Hann hafði staðið á sviðinu og
litið eins glæsilega út og hann
gat með nokkru móti.
I Leikskólanum i Oxford hafði
hann stælt Gerald du Mourier,
þangað til jafnvel áköfustu dýrk-
endumir mótmæltu. Hann gat
fitlað við sígarettu og umlað ná-
kvæmlega eins og átrúnaðargoð
þeirra; hann gat sungið létt lög
á líkan hátt og herra Coward.
en meira gat hann ekki. Þegar
hann kom til London. dró hann
fram lífið á framlaginu frá
föður sfnum, og fáein litil hlut-
verk fékk hann út á það að þessi
manngerð var í tízku.
En hann tók lífsstarf sitt al-
varlega og hann var enginn
kiáni. Du Maurier var dáinn og
heillandi þokki hans eyðilagði
ekki lengur heila kynslóð ungra
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu oe
sn.vrtistofa STEINH og DODf)
Laneavegl 18 ITI h ílyfta)
SflWT 24616.
P P R M A Garðsenda 21
SfMI 33968. Hárgreiðslu- oe
snyrtistofa.
Dðmurl Hárgreiðsla ”10
allra hæfi.
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 10. Vonarstrætis-
megin. — SfMl 14662.
HARGREIÐSLDSTOFA
ACSTtJRBÆJAR
fMaria Guðmundsdóttir)
Laugavegi 1.3 — SfMI 14656.
— Nuddstofa á sama stað. —
leikara. Drake vaknaði allt í
einu. Ef til vill of skyndilega:
nú oflék hann. Hann sagði vin-
um sínum að leiklistin væri vís-
indi. ekki list, þótt ‘ekki væri
alveg ljóst við hvað hann átti
með því. Hann var tímunum
saman fyrir framan spegilinn að
grandskoða andlit sitt, setja
upp annarleg svipbrigði og
hreyfa alla hugsanlega andlits-
vöðva. Hann skrifaði athuga-
semdir og færði inn tölur, bók-
færði stöðu hvers einasta hreyf-
anlegs hluta andlitsins — augna-
brúnir, augu, varir — á land-
fræðilegt kort með lengd og
breidd merktri á sama hátt og
14
á landakorti. Linan gegnum nef-
ið var merkt með O. og hægra
eyrað var W og hið vinstra E.
Þannig hafði hann komið sér
upp talsverðri spjaldskrá, þar
sem inn voru merkt beztu hugs-
anleg svipbrigði fyrir tilteknar
geðshræringar, í stigum frá ein-
um og uppí tíu. Þetta var ein
dýrmætasta- eign hans: hann
hafði sýnt örfáum vinum þessa
spjaldskrá, en þeir höfðu hlegið
sig máttlausa. Nú læsti hann
hana niðri í skrifborði, en hann
æfði sig samvizkulega sam-
kvæmt henni fyrir hverja leik-
sýningu.
— Gilbert Parham Groves.
Þessir tveir kviðdómendur
voru undarlega áþekkir: jafnvel
réttarritarinn lét eftir sér að
skotra til þeirra augunum í ann-
að sinn. Fötin virtust alveg eins
— vel sniðin. einhneppt, dökk-
grá. Þeir litu út fyrir að vera
á sama aldri og voru það; beir
voru jafnháir og báðir höfðu
hinar sömu liðlegu hreyfingar,
sem hver klæðskeri setur í sam-
band við vel búinn og vel upp
alinn ungan mann. Báðir voru
rjóðir í andliti. bláevgðir. sæmi-
lega reglulegt andlitsfall og
voru skegglausir.
En líkingin var aðeins á yfir-
borðinu. Herra Drake var það
sem hann lék, herra Groves vildi
aðeins vera það. Peningar og
Oxford höfðu gefið herra Drake
limaburðinn: herra Groves hafði
lært hann af þvf að horfa á fyr-
irmyndir. Því að herra Groves
tilheyrði hálfgerðri vandræða-
stétt: hann var umferðasali af
heldra taginu. Hann hafði slopp-
ið við ryksugur. satt er það, en
að öðru leyti er öll þessi sölu-
mennska svipuð. Menn ganga
fyrir hvers manns dyr, hæla
vamingi sínum á hvert reipi,
vitandi það að þeir ýkja. Þeir
vita nokkum veginn að vlðskipa-
vinimir hafa ekki efni á að
kaupa vaminginn og þurfa ekki
á honum að halda. Þeir verða
að líta rikmannlega út og koma
vel fyrir og vera samt sem áð-
ur við því búnir að láta hella
yfir sig skömmunum og kasta
sér á dyr. Ef þeir ætla ekki að
dragnast hægt og ömurlega nið-
ur i svaðið. verða þeir að rækta
með sér þá eiginleika sem yf-
irmaður þeirra sýnir bezt af öll-
um. Þeir verða að vera gljá-
fægðir á ytra borðinu. Þeir
verða að vera samvizkulausir,
daufheyrast við öllum áköllum
smekkvísinnar, sýna mddaskap
eftir þörfum, vera óþreytarvii
og umfram allt mega þeir aldr-
ei þagna þegar þeir hafa hank-
að hlustanda. Þeir verða í stutfcu
máli sagt að hafa alla eiginleika
einræðisherra, nema hvað það er
heppilegast að þeir viti ekkert
um stjómmál.
Herra Groves hafði flesta eig-
inleika og þá sem hann hafði
ekki, var hann tilneyddur að á-
vinna sér. Eins og flestir starfs-
bræður hans var hann úr lægri
millistétt og komst að raun um
að iðnfyrirtækið sem séð hafði
sómasamlega fyrir föður hans,
hafði enga stöðu handa honum
né tugþúsundum hans líka. For-
eldrar hans höfðu sent hann í
einkaskóla í stað ríkisskóla. Þeir
litu svo á að ríkisskólamir væru
fyrir múginn; í St. Desmond-
skólanum var andrúmsloftið svo
viðkunnanlegt. Skólastjórinn var
líka svo viðkunnanlegur, og það
var visst öryggi að vita að hann
var prestlærður. Skólahúian,
skólabindið og skólapeysan —
allt var þetta samkvæmt upp-
skriftum bezfcu menntaskóla;
Farham Groves hjónin spurðust
a!drei fyrir um hæfni kennara-
liðsins sem séra Bowindow hafði
viðað að sér, og því síður um
kennslutæki og annan útbúnað.
Skólinn virtist eins góður og
betri en skólar þeir sem þau
höfðu kynnzt í æsku og miklu
fínni. Vesalings Gilbert útskrif-
aðist því mun verr menntaður
en ,,ríkisskólastrákamir“ og með
enga von um atvinnu né hæfni
til eins eða neins.
Parham Groves eldri notfæ-ði
sér kunningsskap sinn og útveg-
aði honum eina, fasta starfið
sem hann fékk á ævinni. Það
var sem skrifari hjá fasteigna-
sölum, sem höfðu lítið umleikis
en ástunduðu heiðarleika í starfi.
Þar var hann rétt liðlega árið;
fyrirtækið stóð ekki af sér hina
erfiðu tíma eftir 1930. Síðan hafði
hann bjargazt eins og bezt lét
og foreldrar hans höfðu oft burft
að hlaupa undir bagga. Hann lék
tennis sæmilega vel; hann leit
aldrei í bók; hann kunni að vél-
rita og var liðtækur skrifstofu-
maður; hann var ekki mjög
greindur, en hann var laus við
illgirni og fús til að vinna, ef
hann hefði fengið réttar leið-
beiningar. Það var ekki honum
að kenna að hann var smám
saman að fúna.
Nú var hann að selja Alfræði-
bók Campbells, tólf bindi með
afborgunarskilmálum. Hún var
tíu ámm á eftir tímanum, þótt
ritið væri í sjálfu sér ekki slæmt.
Ennfremur hafði það gott nafn:
Fyrri útgáfur, skrifaðar og út-
gefnar af Skotum höfðu verið
undir áhrifum Darwins og fá-
einir höfðu verið lærisveinar
Huxleys, höfðu tryggt ritinu
heimilisvirðingu með rétti.
Brezku.r almenningur er fárán-
lega tryggur; hann hélt áfram
að kaupa Alfrseðibók Campells.
vegna þess að afi hafði haft
mætur á henni þegar hann var
ungur.
En markaðurinn var mettaður
og herra Parham Groves hafði
verið meðal hinna fyrstu sem
sendir vom á vettvang til að
reyna nýja aðferð. Eigendur
Campells höfðu gefið út nýtt
rit, Árbók Campells, sem inni-
hélt stuttar greinar við al-
menningshæfi um vísindi, bók-
menntir og listir yfir árið, auk
þess skrá yfir merkisviðburði og
mikið safn fréttamynda. Þetta
var verðlagt á 30 shillinga. Sal-
an gekk ekki vel.
Herra Parham Groves var af-
hentur nafnalisti og hjá hverju
nafni vom upplýsingar um starf
viðkomandi og símanúmer hans.
Þá hóf hann herferðina sam-
kvæmt fyrirmælum. Fyrsta fóm-
arlamb hans var maður að nafni
Prittwell, sem hann náði tali af
í símann:
— Get ég fengið að tala við
herra Prittwell?
— Herra Prittwell?
— Þér þekkið mig ekki — ég
heiti Groves. Parham Groves. En
ég færi yður góðar fréttir — að
minnsta kosti býst ég við að yð-
ur líki þær, ha,ha! TJtgefendur
Alfræðibókar Campells hafa á-
kveðið að færa yður eintak af
síðustu útgáfu okkar. í sérstöku
bandi.
— Nei, nei; alls ekki. Þetta
er gjafaeintak, aðeins handa fá-
um útvöldum. Má ég Hta til yðar
á morgun og útskýra þetta nán-
ar?
— Klukkan fjögur á morgun?
Þakka yður fyrir.
Herra Groves kom á nákvæm-
lega tilsettum tíma, í fasi eins
og efnamaður í þann veginn að
gera öðmm greiða. Herra Pritt-
well var miðaldra maður ' með
áhyggjusvip. Hann rak fjölritun-
arstofu.
— Herra Prittwell, sagði hann
og brosti breitt. — Við höfum
ákveðið að byrja algerlega nýja
útbreiðslustarfsemi. Allir þekkja
auðvitað Campbell, en það er
ekki nóg. Það fær ekki þá sölu
sem það á skilið nema menn í
lykilaðstöðu, sem þarfnast þess
og kunna að nota það, noti það
svo að til sjáist. Ef menn eins
og þér, hafið áhrif á aðra, slá
upp í því að staðaldri. Hvað
gagnar það okkur — eða nokkr-
um — eða hinum frægu vísinda-
mönnum sem hafa lagt sig fram
við að semja það, ef það liggur
í bókaskápum og safnar ryki?
Þess vegna höfum við ákveðið
að gefa nokkmm mönnum í lyk-
ilaðstöðu eintök. Ég viðurkenni
hreinskilnislega að tilgangurinn
er fyrst og fremst auglýsingar-
starfsemi. Þeir sem hafa orðið
fyrir valinu, em að sjálfsögðu
mjög heppnir, en auðvitað von-
um við að það komi okkur líka
að nokkm gagni. Við setjum
engin skilyrði önnur en þau að
bókin verði notuð.
Herra Prittwell gaf eitthvað
óljóst svar. Hann gekkst upp við
þetta og hann var ákafur í að
fá gjafabók, en tortryggni hans
var ekki alveg horfin.
— Ég vona að yður sé ekki á
móti skapi, þótt ég spyrji yður
í trúnaði, sagði herra Groves
ísmeygilega, um lífshætti yðar,
hvers konar fólk þér umgangizt
og þess háttar. Svona rétt til að
friða yfirboðara mína.
Nú var herra Prittwell sann-
færður um að þetta væri raun-
verulegt tilboð. Hann skýrði frá
starfi sínu. gerði það umfangs-
meira, jók viðskiptin töluvert.
Herra Parham Groves virti hann
SKOTTÆ
. . . ne, nei, cg vildi þér ekkert sérstakt. Ég varð bara að nota
þetta einstæða tækifæri til að tala við kunningjana . . . dóttir
mín þjáist aJ mjög siæmri hálsbólgu!
SVEFNSÓFAR
- SÓFASETT
HN0T1N, húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1.
Hugheilar þakkir til allra sem minntust mín á
80 ára afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Jónína Oddsdóttir, frá Ormskoti.
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN