Þjóðviljinn - 05.04.1964, Qupperneq 12
Sæluvika
SkagfirBinga
Hesturinn var lengi þarfasti þjónninn og skipar sérstakan sess
í hugum Skaglirðinga, og þótt tæknin hafi breytt samgöngu-
málunum, má ennþá sjá fólk koma á sæluvukuna á hestum,
og að sjálfsögðu er vasapeli með í förinni. Hér á myndinni
sjáum við Þarvald Þorvaldsson, kaupmann á gæðingi sínum
Faxa. (Ljósmynd Stefán Pedersen).
Alþýðuhúsið e» annar af tveim dansstöðum Sæluvikugesta
og verða þar einnig seldar veitingar að deginum til. Hér má
sjá breytingar á innréttingu hússins. (Ljósm. Stefán Pedersen).
um og Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps sýnir leikritið
Ævintýri á gönguför.
Á föstudag syngur Karla-
kórinn Heimir, kórinn hefur
æft af krafti í vetur cg mun
s.ialdan hafa verið betri.
Sauðárkróksbíó sýnir úr-
vals kvikmyndir á hverjum
degi, en b''óið hefur fengið
nýjar sýningarvélar fyrir
breðtjald. Gömlu vélamar
voru orðnar nokkuð úreltar
og gekk illa að fá góðar
myndir til sýningar.
Dansleikir verða öll kvöld
nema miðvikudagskvöld,
verður dansað í tveimur hús-
um Bifröst og Alþýðuhúsinu.
Hinn vinsæli salur í Bifröst
verður opinn. en bar eru
Skagfirðingar og aðrir Sælu-
v kugestir vanir að taka lagið
kröftuglega.
Miklar endurbætur hafa
farið fram f Félagsheimilinu
Bifröst að undanfömu. Hús-
ið hefur allt verið málað að
innan, leiksvið endurbætt,
lýsingu breytt, ný teppi hafa
verið sett á forstofu og stiga.
Ný hljómsveitarstúka hefur
verið sett upp ásamt full-
komnu hátalarakerfi í allt
húeið. Súlur í húsinu hafa
verið klæddar harðviði og
senuopið hefur verið endur-
smíðað. Er húsið nú hið vist-
legasta.
Mikil veðurblíða hefur ver-
ið undanfarið og allir vegir
færir eins og um sumardag
væri. Nú stendur til að moka
S:glufjarðarskarð, og má því
búast við miklu fjölmenni á
Sæluvikuna og jafnvel meiru
en áður hefur verið. Ferða-
skrifstofan Lönd og leiðir á
Akureyri skipuleggur hóp-
ferðir á vikuna og vitað er
að fjöldi fólks kemur 1 smá-
bílum allt frá Reykjavfk til
Þingeyjarsýslna.
Fólki skal þó bent á, að
heppilegast er að koma fyrri
hluta vikunnar. því búast má
við miklum þrengslum sein-
ustu dagana. sérstaklega á
laugardaginn.
Sæluvika Skagfirðinga hefst
sunnudaginn 5. april n.k. Að
vanda verða þar margskonar
skemmtanir og reynt að hafa
eitthvað fyrir alla. Leikfélag
Sauðárkróks sýnir gaman-
Cr Fjalla Eyvlndl.
leikinn „Fædd í gær“ eftir
Carson Kanin. Leikstjóri er
Kári Jónsson, en aðalhlut-
verk í höndum Helgu Hann-
esdóttur, Hauks Þorsteinsson-
ar og Kristjáns Skarphéðins-
sonar Leiktjöld hefur Jónas
Þór Pálsson gert af mikilli
smekkvísi. Frumsýning verð-
ur sunnudaginn 5. apríl, síð-
an verður leikritið sýnt á
hverju kvöldi alla vikuna
nema mánudag, en þá er
bamasýning kl. 15 um dag-
inn. Mánudagurinn verður
eingöngu helgaður yngri kyn-
slóðinni enda hefur svo ver-
ið undanfamar Sæluvikur.
Þá sýnir Sauðárkróksbíó
kvikm.vndir við barna hæfi,
Ungmennafélagið Tindastóll
sýnir kabarett, Leikfélagið
barnasýningu eins og áður
var getið. og að lokum verð-
ur svo bamadansleikur um
kvöldið.
Ungmennafélagið Tindastóll
sýnir fjölbreyttan kabarett,
er þar úrval af alls konar
skemmtiefni
Karlakóramir Feykir og
Karlakór Bólstaðarhliðar-
hrepps skemmta á þriðjudag.
Verður samsöngur hjá kórun-
Deilur kommúnista
Texaskór syngur í
Reykjavík í dag
■ í gær kom hingað til lands fjörutíu manna bland-
aður kór frá ríkisháskólanum í Norður-Texas. Kórinn hef-
ur verið á söngferðalagi um Evrópu að undanförnu og
kemur hingað frá Finnlandi og Svíþjóð. Fyrsta söng-
skemmtun kórsins hér á landi verður í Háskólabíói klukk-
an fimm í dag.
Framhald af l. síðu.
fundum í flokksdeildum um öll
Sovétríkin hafi emhugur flokks-
ins komið greinilega í ljós. All-
ir helztu forystumenn flokksins
hafi talað á þessum fundum og
eru nefndir Brésnéff forseti,
Mikojan, Kosygin, Podgorní og
margir aðrir. Allir lýstu þeir
fullu samþykki sínu við stefnu
Krústjoffs.
Alþjóðaþing?
Aðrir kommúnistaflokkar hafa
einnig síðustu daga lýst fylgi
sínu við forystu sovézka flokks-
ins í deilunum við Kínverja. Á
miðvikudaginn birti þannig
„lTJnitá", aðalmálgagn ítalskra
kommúnista, forystugrein, þar
sem Kínverjar eru víttir harð-
lega bæði fyrir stefnu sína en þó
ekki sízt fyrir það orðbragð sem
þeir hafa notað í árásum sínum
á sovézka flokkinn, en þeir hafa
kallað Sovétríkin „afturhalds-
veldi“ sem tæki þátt í „samsæri
heimsvaldasinna".
I forystugreininni er varað við
þvi að beita Kínverja sömu tök-
um og þeim þykir sæma að
beita aðra og þá sérstaklega við
þeirri hættu sem af því stafaði
að reynt yrði að setja þá utan-
garðs i hinni alþjóðlegu verk-
lýðshreyfingu. Itrekuð er sú
skoðun miðstjómar ítalska
flokksins sem birt var fyrir
nokkrum mánuðum að tilgangs-
laust sé að kalla saman ráð-
stefnu allra kommúnistaflokka
eins og nú stendur, en Súsloff
hafði lagt það til í ræðu sinni.
Þessi háskólakór er stofnaður
árið 1938 en núverandi stjóm-
andi hans, Frank McKinley,
hefur stjómað honum síðustu
sextán ár. Hefur honum tekizt
að afla kómum töluverðrar
frægðar heima fyrir og má geta
þess, að söngför sína til Evrópu
fer kórinn á vegum bandarískra
stjómarvalda og er það einn lið-
ur í menningarkynnaáætlun
Bandaríkjastjómar (Cultural
Presentation Program).
Frestun
fyrírlesturs
Af óviðráðanlegum ástæð-
um getur ekki orðið úr fyr-
irlestri Árna Bergmanns
sem halda átti í dag og
auglýstur var í blaðinu í
gær.
Auk tónleikanna
í Háskólabíói í dag klukkan
fimm mun kórinn syngja á Isa-
firði 7. apríl, 8. apríl á Akureyri
og 10. apríl á Akranesi. Á söng-
skrá er kirkjutónlist. sígild
verk, söngvar úr bandarískum
söngleikjum og þjóðlög. Helztu
tónskáld sem kórinn kynnir eru:
Charles Ives, William Billings,
Copland, Samuel Barber, Nor-
man Dello Joio, Meridith Wil-
son, Bemstein og Richard Rog-
ers.
Finnskur gagnrýnandi
segir um söng kórsins: „Söngur
kórsins er frábær, Ómar sópran-
raddanna voru fullkomnir, iafn-
vel á ótrúlega háum tónum.
Bassaraddimar voru þrungnar
ríkri, sterkri fyllingu, án þess
að yfirgnæfa. Tónamir voru
hreinir og skýrir, jafnvel í
mörgum nútíma amerískum tón-
verkum með erfiðum samhljóm-
um.“
Óseldir miðar að söngskemmt-
un kórs'ns í dag verða seldir
við innganginn í Háskólabíói.
Krístinn tulur um DuvíBskáld
Það er í dag klukkan fjögur, sem Kristinn E. Andrésson flytur er-
indi um Davíð Stefánsson skáld í hátíðarsal Háskólans. Bókmennta-
nefnd háskólastúdenta gengst fyrir þessari kynningu og auk erind-
is Kristins verður samlestur úr verkum skáldsins, en flytjendur
ásamt stúdentunum verða leikaramir Helga Bachmann og Baldvin
Halldórsson. öllum er heimill aðgangur að samkomunni.
Saltfiskur hækkar um 36%
Saltfiskur hækkaði hvorki um meira né minna en 36% í fyrra-
dag og kostaði kílóið áður kr. 12.50 og kostar nú kr. 17.00. Þá hækk-
ar kaffið ennþá og er nú orðin mánaðarviss hækkun á því og
hækkar það nú um 19,8%. Áður kostaði kaffikílóið, brennt og mal-
að kr. 64.80 og kostar nú kr. 77.60. Kaffipakkinn (% kg.) kostaði
áður kr. 16.20 og kostar nú kr. 19.40.
Nýtt fyrirtæki í Mývatnssveit
Garði 3/4 — Hér í Mývatns-
sveit hefur verið starfrækt £ vet-
ur steihsteypuverksmiðja undir
nafninu Léttsteypan h.f. og hef-
ur skapað nokkrum mönnum hér
í sveitinni atvinnu, sem annars
hafa farið suður á vertíð und-
anfarin ár. Verksmiðjan er til
húsa í hinni fyrrverandi brenni-
steinsverksmiðju i Bjamarflagi
og hefur verið leidd þangað gufa
frá annarri nýju borholunni í
Bjamarflagi og er steinninn
þurrkaður og hertur við gufuna
og þykir hentug aðferð. Þama
eru framleiddar sléttar hellur til
þess að hlaða í skilveggi og inn-
an í hús og einnig holsteinn í
utanhúsveggi. Steypt er úr léttri
gjallmöl, en miklar námur af
þessari möl er vestan undir
Námafjalli. Á verkstæðinu hafa
unnið átta menn að jafnaði og
einnig skapazt vinna við akstur
á steininum til Akureyrar og
sementi til Verksmiðjunnar.
Framkvæmdastjóri er Snæbjöm
Pétursson í Reynihlíð og verk-
stjóri er Bóas Gunnarsson að
Stuðlum í Vogum. Binda menn
miklar vonir við þetta fyrir-
tæki. — Starri.
Hæpið fyrir norðlenzka veðráttu?
Raufarhöfn 4/4 — Frammi í
þorpinu eru nú tuttugu íbúð-
arhús í smíðum og eru margir
spenntir fyrir svokölluðum gufu-
hertum hraunsteini, sem fram-
leiddur hefur verið i vetur í
Mývatnssveit til húsbygginga.
Steinninn er meðfærilcgur og
léttur og geta húseigendur sjálf-
ir hlaðið upp veggi húsanna og
hafa menn unnið að þessu í vet-
ur mcðan stund er milli stríða
í þessum síldarbæ.
Þessir húseigendur eru þó
orðnir órólegir, og hefur flogið
fyrir, að Húsnæðismálastjóm
muni ekki veita lán á fokheld
hús úr þessu byggingarefni og
ber Húsnæðismálastjórn fyrir
sig ummæli norðlenzks húsa-
smiðs, sem telur hæpið að
byggja úr þessum hraunsteini og
það henti ckki norðlenzki veðr-
áttu. Hér fyrir sunnan veitir þó
Húsnæðismálastjóm Ián á hús
byggð úr hraunsteini, en stein-
inum er sprunguhættara fyrir
norðan vegna meiri mismunar
á hitastigi í veðráttu. Halldór
Halldórsson, arkitekt hjá Hús-
næðismálastjórn telur rétt, að
hraunsteypan í Mývatnssveit láti
fara fram athugun á þoli þessa
byggingarefnis í samræmi við
norðlenzka veðráttu.
Annars hefur aðeins eitt bygg-
ingarefni veriö á bannlista Hús-
næðismálastjórnar fram að þessu
en það er asbestklæðning á hús-
um. — L.G.
Blómstrandi kaupfélagsstjóraætt
Vopnafiröi 4/4 — Hér hefur
verið ráðinn kaupfélagsstjóri að
Kaupfélagi Vopnfirðinga og heit-
ir hann Halldór Halldórsson og
er sonur fyrrverandi kaupfé-
lagsstjóra hér, Halldórs Ásgríms-
sonar, alþingismanns og banka-
stjóra. Sá sem hefur gegnt þessu
starfi hér heitir Guðjón Ólafs-
son og hefur hann verið ráðinn
kaupfélagsstjóri á Akranesi. Með
honum fer þangað Antoníus
Jónsson, sem verið hefur áhrifa-
maður í verkalýðsmálum í
Vopnafirði. Þá má geta þess. að
nýi kaupfélagsstjórinn er bróð-
ir Ásgríms Halldórssonar, kaup-
félagsstjóra í Höfn í Homafirði
og er hér í uppsiglingu kaupfé-
lagsstjóraætt. — G.V.
Skákmeistari Húsavíkur
Húsavík 3/4 — Skákþing Húsa-
víkur hófst í öndverðum febrú-
ar og er nú lokið eftir miklar
bollaleggingar keppenda. Teflt
var í þrem flokkum. Meistarar
og fyrsti flokkur vom samein-
aðir og byrjuðu þar tíu kepp-
endur og tveir urðu að hætta
vegna brottfarar úr bænum.
Sigurvecari varð Hjálmar Theo-
dórsson með níu vinninga. Ann-
ar varð Jón A. Jónsson með
átta vinninga, og i briðja til
fimmta sæti urðu Hilmir Jó-
hannesson, Haukur Logason og
Krist.ián E. lónasson mcð fimm
vinninga og tefldu þcir um
briðju verðlaun og sigraði Hilm-
ir.
I öðrum flokki, 14 til 16 ára
sigraði Hafliði Þórsson með
fimm vinninga. Annar varð
Brynjar Sigtryggsson mcð þrjá
vinninga og þriðji Tryggvi Jó-
hannesson með þrjá vinniinga.
I þriðja flokki, 13 ára og yngri
varð sigurvegari Sigurgcir Jóns-
son með sjö vinninga. Annar
Páll Þorgeirsson með fimm
vinninga og þriðji Riörn Dúa-
son með fjóra og hálfan vinn-
ing.
Mótinu var slitið annan páska-
dag með kaffisamsæti að Hótel
Husavík að viðstaddri bæjar-
stiórn. Hófinu stýrði Hiálmar
Theodórsson. formaður félagsins,
en með honum í stiórn eru Jón
A. Jónsson og Hilmir Jóhann-
esson. — K.E.J.
Nýr læknisbústaður
Vopnafirði 4/4 — Nú er að
verða fullbyggður vandaður og
glæsilegur læknisbústaður i
Vopnafiarðarkauptúni og þarf
bví enginn læknir að fælast að-
búnaðinn hér. Auk þessa lækn-
isbústaðar er lfka sjúkraskýli
með röntgentækjum. sem kven-
félagið í kauptúninu sýndi þann
stórbuc nð geta skvlinu fvrir
nokkru. Þá er apótekið vel búið
lækningatækjum og ævintýra-
legar tekjur fylgja læknisem-
bættinu hér á sumrum.
Friðrik Sveinsson. héraðslækn-
ir á Þórshöfn hefur veitt hina
ágætustu læknisþjónustu í vetur,
en langan veg þarf hann að
sækja. — G.V.
Guðsorðið þótti
Húsavík 3/4 — Páskadagur
rann hér upp bjartur og fagur
og hófst hjá mörgum með
messu í Húsavíkurkirkju klukk-
an átta um morguninn og þótti ,
sumum guðsorðið fullsnemma á
ferðinni. Kirkjan var troðful] og
þótti þetta tíöindum sæta. Lúöra-
sveit Húsavíkur lék seinna um
snemma á ferð
morguninn fyrir framan barna-
skólann og hlýddu margir borps-
búar á hana leika létt lög í sól-
skini og sunnan þey. Lúðrasveit-
in er ungur félagsskanur hér á
i Húsavík og standa mi fyrir dyr-
um fyrstu tónleikar hennar.
Stjómandi sveitarinnar heitir
Reynir Jónassrn. áður í Hljóm-
sveit Svavars Gests.