Þjóðviljinn - 29.09.1964, Blaðsíða 2
2 SlÐA
MÓÐVILJINN
Þriðjudagur 29. september 19G4
FISKIMÁL - Eftir iöhann J. E. Kuld
TVO VANDAMAL
Algeng sjón við höfnina á hverju vori. Það er verið að búa bátana til síldveiða fyrir Norður- og
Austt rlandi.
Er hagkvæmt að stefna öllum vélháta-
flotanum á síldveiðar fyrir norðan?
Nú þégar líða tekur að lok-
um sumarsíldveiðanna fyrir
Austurlandi á þessu háusti, þá
koma fram í hugann ýmsar
spumíngar sem þörf væri á
að kryfja til mergjar, og ein
þeirra spuminga ef þessi: Er
hagkvæmt að stefna öllum vél-
bátaflotanum ár hvert á síld-
véiðar án alls tillits til þeirr-
ar reynslu, sem fengizt hefur
á undangengnum aflaárhm?
Þegar lesin er aflaskýrsla
síldveiðiflotans síðustu ár þá
hlýtur maður að efast um rétt-
ihæti þeirrar ákvörðunar frá
þjóðhagslegu sjónarmiði. og
eihnig út frá hagsmunum
þeirra manna sem gera út hin
lélegu aflaskip, oft ár eftir ár,
á síldveiðar með snurpunót.
Nú þegar sumarsíldveiðarnar
hafa breytzt þannig að sækja
verður aflann tugi og hundr-
uð mílna á opið haf, þá er
augljóst að minni skipin í flot-
anum hafa bví minni mögu-
leika við þessar veiðar sem
þær færast fjær landi.
En þá vaknar sú spuming, á
hvaða veiðar ætti heldur að
géra þessi skip út?
Það er áreiðanlega þörf á
því að þetta mál verði rann-
sakað, og reynt verðí að finna
þeim vélbátum sem ekki henta
til síldveiða með snurpunót við
núvérandi aðstæður, annað,
véTkefni yfir sumaríð. Ég álit
að þetta mál sé þannig vaxið,
að lánastofnanir sjávarútvegs-
ins ættu að hafa á því áhuga,
því að taprekstur á síldveið-
um ár eftir ár hjá ákveðnum
hluta af vélbátaflotanum getur
aldrei verið neitt keppikefli,
hvorki fyrir eigendur skipanna
Hé lánastofnanir þær sem
leggja fram lánsfé til útgerðar-
innar. Og ekki gæti það held-
ur talizt neitt óeðlilegt frá
mínu sjónarmiði að þessar
sömu lánastofnanir, sem hafa
blómgazt fyrir atbeina sjáVar-
útvegsins. létu eitthvert fé af
hendi rakna til rannsókna á
þessu máli, sem áreiðanlega er
þess vert, að því sé gaumur
gefinn, og ætti að vera sam-
eiginlegt áhugamál bankanna
og útgerðarinnar.
Nú er haustið og veturiun
framundan, og á þeim tíma
þyrfti slik athugun að fhra
fram sem bent er á hér að
framan.
Að síðustu vil ég aðeins
leyfa mér að benda á þá stað-
reynd, að ýmsar aðrar fisk-
veiðiþjóðir stunda sumar eftir
sumar margskonar veiðar i
námunda við ísland með góð-
um áfangri. Þær hafá fyrir
löngu lært að hafa fiskveiðar
sínar miklu fjölbreyttari en
við, og það hefur orðið þeirra
styrkur í framsókninni á haf-
inu. Máske mætti eitthvað
læra af þeirra reynslu, ef eftir
væri leitað.
og fyrirfram vitað að þannig
hlýtur að fara.
En þetta er áreiðanlega
hættul. þróun sem gjalda verð-
ur varhuga við. Þá er fyrst
til að taka, að þorskurinn sem
veiddur er á línu er bezti og
dýrasti fiskurinn sem hér kem-
ur á land á vetrarvertíð, og
hér er sumstaðar völ á beztu
línumiðum sem hægt er að
finna, eins og t.d. út af Sand-
gerði. Væru þessi mið frið-
uð fyrir netaveiði, svo hægt
væri að koma línunni í sjó, þá
er varla vafi á, að báðar gætu
fengið þama jafnmikinn afla
á línu sem net, en sá afli væri
bara miklu verðmætari. Á síð-
ustu árum hafa netabátamir
girt beztu línumiðin þvert og
langs með trossum sínum, svo
að veiðunum með línu hefur
verið sjálfhætt þegar komið
hefur fram á vertíðina. Og nú
hefur þorsknótin haldið innreið
sína á miðin, án þess að nokkr-
ar hömlur hafi verið lagðar á
þá veiði, eða reglur settar fyr-
ir henni. En það fer að verða
títil hugsun í þeirri fiskveiði-
löggjöf og samræmið virðist
alveg vanta, ef banna á drag-
nót og togveiðar á grunnmið-
um á vetrarvertíð, en leyfa eða
láta afskiptalaust veiðar með
þorskanót sem notuð er til
botnkasta á sléttum botni, þar
sem blýteinn nótarinnar skef-
ur botninn þegar snurpað er.
Og ef sú yrði þróunin, sem
margt bendir til, ef ekki verða
settar reglur um veiðisvæði
eftir veiðarfærum, að megin-
hluti vertíðarflotans tæki að
stunda þorskveiðar með nót,
þá gæti svo farið vegna margra
orsaka að þessi veiði brigðist
alveg einn góðan veðurdag. Þó
hægt hefði verið að fá góðan
afla á önnur veiðarfæri.
Því ber allt að sama brunni
þegar þessi mál eru hugleidd
af einhverri alvöru, og niður-
staðan getur aldrei orðið önn-
ur en þessi: Það er ekki for-
svaranlegt að láta þessi mál
reka algjörlega stjórnlaus á
reiðanum sem hingað til, því
að slíkt getur orðið alltof dýrt
fyrir þjóðina; við verðum að
hafa það hugfast að fiskimið
landgrunnsins eru okkar dýr-
mætasta eign, og þessa eign
eigum við að hagnýta okkur
á þann hátt að hún skili okk-
ur sem beztum arði á öllum
tímum. En slíkt verður ekki
gert með algjöru stjórnléysi,
Skipting miðanna / veiði-
svæði er orðin aðkallandi
Skipting grunnmiðanna á
vetrarvértíð í veiðisvæði eft-
ir veiðarfærum er fyrir löngu
orðin aðkallandi nauðsyn hér
við Suðvesturlandið. Þessi van-
ræksla hefur ráðið þróun ver-
tíðarveiðanna hér síðásta ára-
tuginn Hún hefur beinlínis
orðið þess valdandi að veiðar
með þorskalínu hafa að mestu
lagzt niður síðustu árin, en
þorskanet tekið við fyrst og
nú að síðustu þorskanót. Þetta
er eðlileg þróun þar sem eng-
in stjóm er á þessum málum,
Áœflun
ms. Dronning Alexandrine
1964 — marz 1965.
13/10. 30/10. 18/11. 7/12.
5/1. 25/1. 11/2. 1/3. 18/3.
5/10. 22/10. 9/11. 28/11. 17/12,
13/1. 1/2 18/2. 8/3. 25/3. /
Frá Reykjavík:
Skipið kemur við í Færeyjum f báðum leiðum.
SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN.
en einungis með góðri stjórn
á veiðinni, eftir að skynsam-
legar reglur hafa verið settar
um skiptingu fiskimiðanna í
veiðisvæði eftir veiðarfærum,
að beztu manna ýfirsýn. Þeg-
ar þess er gætt, að þetta mun
ekki ennþá orðið aðkallandi
nema á grunnmiðunum hér við
Suðvesturlandið, þar sem vél-
bátaflotinn er langstærstur, á
vetrarvertíð, þá ætti verkefnið
ekki að vera ofvaxið þeim yf-
irvöldum sem þessi mál heyra
undir í dag. Skipting miða í
veiðisvæði er engin ný kenn-
ing, því að þá leið hafa þær
fiskveiðiþjóðir farið, þar sem
líkt hefur staðið á og hér hjá
okkur. Þessa leið urðu Norð-
menn að fara á Lofotenmiðun-
um fyrir löngu og þeir efast
ekkert um að það hafi verið
rétt stefna sem tekin var með
skiptingunni þá í veiðisvæði.
Mér er kunnugt um, að hug-
myndin um skiptingu miðanna
hér við Suðvesturlandið, þar
sem þrengslin eru orðin mest
á beztu miðunum, nýtur stuðn-
ings ýmsra þeirra manna sem
útgerð stunda sem atvinnu-
veg. .
Hér er verkefni sem leysa
þarf í samvinnu við sjómenn
og útvegsmenn, því að þeir
eiga mestra hagsmuna þama að
gæta. en ónéitanl. er eðlilegast
að sjávarútvees^álaráðuneytið
hafi forustu um framkvæmdir
í slíku máli sem þessu.
Listdansskóli
Guðnýjar Pétursdóttar
Reykjavík og Kópavogi.
Kennsla hefst 5. okt.
n.k. Innritun og upp-
lýsingar frá kl. 1—7
daglega, í síma 40486
— 40486.
Listdansskóli Guðnýjar Pétursdóttur.
Húsgagna verzlun
Suðurlands
AUSTUR.VEGI 58 — SELFOSSI — sími 60.
Opnum í dag húsgagnaverzlun á Selfossi.
Leggjum áherzlu á að hafa ávallt á boð-
stólum mikið úrval af vöndu^um hús-
gögnum.
Húsgagna verzlun
AUSTURVEGI 58 — SELFOSSI — sími 60.
Verkumannafélagið
fflíf, Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um
kjör fulltrúa á 29. þing Alþýðusambands íslands
liggja frammi í skrifstofu Vm.f. Hlífar, Vestur-
götu 10 frá og með 28. september 1964.
Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu Hlífar
fyrir kl. 7 e.h. föstudaginn 2. október 1964, og er þá
framboðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórnin.
«