Þjóðviljinn - 29.09.1964, Side 3
Þriðjudagur 29. september 1964
ÞIÖÐVILIINN
SÍÐA 3
Sovézkir minnast 7.
A Iþjóðasambandsins
MOSKVU 28/9 — Á hátíðafundi, sem haldinn var í minn-
ingu 100 ára afmælis fyrsta Alþjóðasambands verkalýðsins
í Moskvu í dag, skoraði einn helzti leiðtogi sovézkra komm-
únista, Boris Ponomarev, á forystumenn sósíaldemókrata-
flokka um heim allan, að vinna að nánara samstarfi við
kommúnista. Öreigarnir eiga rétt á að búast við raunhæf-
um aðgerðum af hendi þeirra, til þess að efla einingu vinn-
andi stétta, sagði hann.
Einn af helztu leiðtogum sov-
ézkra kommúnista Boris Pono-
marev sagði á hátíðafundi í
Moskvu í dag, að Kommúni&ta-
flokkur Sovétríkjanna rétti kín-
verska bróðurflokknum vinar-
hönd, og ætli sér alls ekki að
setja hann utangárðs í bróður-
legu samfélagi kommúnista.
Þrátt fyrir árásir kínverskra
leiðtoga gegn okkur og þrátt
fyrir rógsherferð þá, sem þeir
stefna gegn okkur réttum við
kínverska flokknum bróður-
hönd í sameiginlegri baráttu
okkar gegn heimsveldissinnum
12 mílur brezkar
LONDON 28/9 — Brezk yfir-
völd skýrðu opinberlega frá því
í dag, hvaða fiskveiðiréttindi
þau mundu veita fiskimönnum
frá Frakklandi, Belgíu, Hollandi,
Vestur-Þýzkalandi, Póllandi og
Noregi innan hinnar nýju fisk-
veiðilögsögu, sem tekur gildi við
Bretland á miðvikudag.
Nýja fiskveiðilögsagan verður
12 sjómílur og er tekin í sam-
ræmi við samþykkt sem 16 Ev-
rópuþjóðir gerðu á fiskveiðiráð-
stefnu f London í marz síðast-
liðnum.
Bretar hafa eftir sem áður
þriggja mílna landhelgi og
einkarétt til að fiska innan sex
mílna af fiskveiðilögsögunni
nýju, á ytri sex mílunum munu
fiskiskip annarra þjóða fá tak-
mörkuð réttindi, ef þau hafa
stundað veiðiskap á þeim mið-
um um langan aldur, og verða
gerðir sérstakir samningar við
viðkomandi lönd.
og fyrir friði, fyrir sjálfstæði
þjóða og sósíalisma, sagði hann.
Ponomarev, sem er ritari mið-
stjómar flokksins, lýsti því yf-
ir að tilgangurinn með því að
kalla saman alþjóðaráðstefnu
kommúnista væri ekki að út-
skúfa Kínverjum. Hann vísaði
einnig þeirri hugmynd á bug
að setja á stofn skipulögð al-
þjóðasamtök með miðstjórnar-
valdi í líkingu við fyrsta Al-
þjóðasamband verkalýðsins.
Ponomarev talaði á miklum
fundi í Bolsjoj-leikhúsinu í
Moskvu í tilefni af hundrað ára
afmælishátíð fyrsta Alþjóðasam-
bandsins, sem Karl Marx stofn-
aði í London.
Ponomarev undirstrikáði það,
að alþjóðahyggja og eining væru
kommúnistum lífsnauðsyn og
yrði að þróast í nýjum mynd-
um, sem svöruðu til núverandi
stöðu kommúnistahreyfingar-
innar.
Krústjoff
Ponomarev sat í forsæti á-
samt Krústjoff m.a. sem
hafði haldið ræðu fyrr á fund-
inum.
Krústjoff talaði á breiðari
grundvelli og lagði meðal ann-
ars áherzlu á það að framlag
Sovétríkjanna til okkar tíma;
uppbygging kommúnismans,
skipti sköpum.
Hann sagði að önnur alþýðu-
lýðveldi legðu fram- þá -sömu
uppbyggingu í þá baráttu sem
háð er um víða veröld fyrir
frelsi.
Krústjoff sagði að nú á tím-
um væru þeir býsna margir
sem gerðu kröfu til þess að
þeir væru arftakar fyrsta Al-
þjóðasambandsins, en kommún-
istar héldu 100 ára afmælishá-
tíðina, sem trúir fylgismenn
byltingarstefnu og venjum fyrsta
Alþjóðasambandsins.
Alþjóðahyggja öreiganna er
mikilsverðasti og dýrmætasti
ai’fur sem við höfum fengið frá
brautryðjendum og stofnendum
Alþjóðasambandsins, og við lít-
um svo á, að það sé fyrsta
skylda okkar við alþjóðahyggj-
una að byggja upp kommún-
isma, sagði Krústjoff.
Sovézki forsætisráðherrann
minntist einnig á baráttuna
gegn heimsveldisstefnu, kapítal-
isma og nýlendustefnu og sagði
að baráttan við kapitalista gengi
engan veginn í berhögg við frið-
arbaráttuna, en væri henni
samofin.
Krústjoff sagði að varðveizla
friðar og barátta fyrir sósíal-
ismanum væri hið eing sam-
tvinnaða byltingarkennda verk-
efni á timum kjarnorkuvopna.
Hann lauk máli sínu með ein-
beittum áskorunum um einingu
og samvinnu í hinni alþjóðlegu
verkalýðshreyfigu.
Á myndinni sjást sjúkraliðar flytja burt emn hinna tvö hundruð sem særðust í hverfinu, sem gas-
stöðin stóð í. Þó geysilegir skaðar hafi orðið í hverfinu er talið óþarft að rífa skaddaðar byggingar,
en margar munu þarfnast stórfelldra viðgerða.
Warren-nefndin birtir opinberlega
skýrslu sína um morðið á Kennedy
Skoðanir eru skiptar á niðurstöðum Warren-nefndarinnar
— Bertrand Russeli og fleiri telja skýrsluna yfirklór
WASHINGTON 28/9 — Lee
Harvey Oswald var einn um
morðið á Kennedy forseta og
ekkert bendir til þess að hann
og næturklúbbaeigfm'iinn Jack
Ruby, sem skaut Oswald við
lögreglustöðina í Dallas 24. nóv-
ember hafi verið þátttakendur í
nokkurs konar samsæri gegn for-
setanum. Né heldur bendir neitt
til þess, að Oswald hafi verið
ALLAR SKÓLABÆKURNAR OG ALLAR SKÓLAVÖRURNAR í BÓKABÚÐ MÁLS OG
Ókeypis áletrun
á skólapennann
jr
Okeypis stundaskrá
með verðlaunagetraun
Verðlaun í getrauninni:
1. Jarðlíkan kr. 1158.00
2. Schaffers pennasett kr. 654.00
3. Pelikan penni kr 190.00
Allir eiga leið um Laugaveginn
Allir eiga leið í
Bókabúð Niáis og menningar
Laugaveg 18.
hvtiv óo HVNHnnaravuQNS hvtiv — hvdninnhw ðo snyw Gnavsoa
leiguþý eða einhverjar erlendar
ríkisstjórnir hvatt hann til ó-
dæðisverksins.
Þetta er lokaniðurstaða 816
bls. skýrslu svonefndrar Warren-
nefndar um morðið á Kennedy
forseta, sem birt var opinberlega
á sunnudagskvöld.
Earl Warren forseti hæstarétt-
ar Bandaríkjanna var formaður
þesarar sjö manna nefndar, sem
hefur nú unnið í tæpt ár að
rannsókn málsins.
Blöð og útvarp í Bandaríkjun-
um hafa tekið skýrslunni vel og
margir kunnir stjórnmálamenn
hafa lýst ánægju sinni með
hana.
Borgarstjórinn í Dallas Erik
Jonsson sagði í dag að hann
vonaði, að skýrslan hefði kveðið
niður þá tröllasögu að fjand-
samlegt andrúmsloft í Dallas
hefði átt sinn þátt í morðinu.
Kona Oswalds hefur ekkert
sagt um skýrsluna, en móðir
hans heldur því fast fram, að
hann hafi verið saklaus og seg-
ist geta gert alla skýrsluna
markleysu.
Edwin Walker, fyrrverandi yf-
irhershöfðingi, sem er kunnur
hægrisinnaður ofstækismaður
gagnrýndi skýrsluna og segir að
tilgangurinn með henni sé að
leyna einhvers konar samsæri.
Evrópa
Danska blaðið „Information“
segir að skýrslan hafi varpað
ljósi á margar óskýrar hliðar
málsins, en margt sé enn í þoku.
Blaðið segir að skýrslan muni
vera öllum þeim fullnægjandi,
sem ávalt hafi verið þeirrar
skoðunar, að kringumstæðurnar
að morði forsetans hafi frá
upphafi verið nægilega ljósar.
Brezk blöð taka skýrslunni
yfirleitt vel og telja hana taka
af allan vafa.
Þýzk blöð eru yfirleitt sama
sinnis, þó bendir óháða blaðið
„Frankfurter Allgemeine Zeit-
ung“ á það, að jafnvel Warren-
skýrslan hafi ekki getað gert
endanlega grein fyrir ástæðum
morðsins, og mörgum smáatrið-
um sambandi við það.
Tass-fréttastofan segir að
skýrslan eyði ekki efa og grun-
semdum í sambandi við morðið.
ítalska kommúnistablaðið
L’Unita segir, að skýrslan gefi
enga skýringu á glæpnum í
Dallas.
Grunsemdir
Mark Lane lögfræðingur í
New York, sem hefur haldið því
fram að Oswald hafi verið sak-
lögreglunnar í Dallas hefði tek-
izt að kveða niður rökstuddan
grun, sem hljóti að liggja á
hinni opinberu skýringu á morð-
inu í Dallas og yrði að líta svo
á skýrsluna, að hún væri fá-
tækleg tilraun til þess að breiða
yfir hið raunverulega ástand.
Thomas Buchanan, sem skrif-
aði bókina: „Hver myrti Kenne-
Myndin er tekin, þegar næturklúbbseigandinn Jack- Ruby full-
nægði þeim dómi, sem Warren-nefndin hefur nú fellt yfir Oswald.
Margir málsmetandi menn vefengja þó niðurstöður nefndarinnar.
laus af morðinu lýsti því í New
York í nótt, að Warren-skýrslan
um rannsóknir nefndarinnar
veki fleiri spurningar en hún
svari.
Hann sagðist nú efast meir
en nokkru sinni áður um það,
að Oswald hefði komið nálægt
morðinu. Hann sagði að tilgang-
ur yfirvaldanna með skýrslunni
væri að róa almenning, og hefði
nefndin skellt skollaeyrum við
fjölmörgum staðreyndum í sam-
bandi við málið.
Jafnframt lýsti Bertrand Russ-
ell því yfir í London, að skýrsl-
an væri sárlega illa unnið verk,
sem væru þeim sem að henni
stóðu aðeins til skammar.
Russeli er formaður nefndar
sem hefur sett sér það verkefni,
að komast að sannleikanum um
morðið á Kennedy.
Hann sagði í kvöld, að engri
stjórnarstofnun bandaríska lýð-
veldisins frá Hvíta húsinu og til
dy“ (og lesendur Þjóðviljans
munu minnast kafla úr henni)
heldur því fram, að Oswald hafi
verið verkfæri samsæris hægri-
sinnaðra ofstækismanna og
styrki skýrslan í stærstu drátt-
um kenningar hans um það, að
Oswald hafi hvorki verið alsend-
is saklaus né sekur.
ðtför Tómasar
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt, að óska þess við fjöl-
skyldu Tómasar Jónssonar borg-
arlögmanns, að Reykjavíkurborg
annist utför hans, sem gerð
verður frá Dómkirkjunni mið-
vikudaginn 30. sept. n.k. og hefst
kl. 14.00. Hefur fjölskyldan fall-
izt á þá tilhögun.
Skrifstofa borgarstjóra verður
lokuð eftir hádegi þann dag.
(Fréttatilkynning frá skrif-
stofu borgarstjóra).