Þjóðviljinn - 29.09.1964, Side 6
SÍÐA
ÞJðÐVILJINN
Þriðjudagur 29. september 1964
Kaflar út álykfunum 21. þings ÆF
og nýkjörin framkvæmdanefnd
Merkustu ályktanir 21. þings ÆF voru álykt-
anir í húsnæðismálum, æskulýðsmálum, félags-
málum og stjórnmálum. Allar þessar álykt-
anir verða birtar hér í blaðinu síðar í heild,
en hér fer á eftir lauslegur úrdráttur úr þeim:
Úr husnæðismálaályktun
í þessari ályktun segir, að byggingarkostn-
aður hafi hækkað í tíð viðreisnarstjórnarinnar
úr 400 þús. krónum 1957 í 750 þús. kr. 1964 á
meðalíbúð. Samdrátturinn í íbúðabyggingum
er sagður orsakast m.a. af seinagangi í skipu-
lagningu íbúðarhverfa, daghækkandi bygging-
arkostnaði og of litlum lánum. Þá segir að af-
leiðingin sé m.a. sú, að húsaleiga fer hækkandi
og aukið húsabrask gróðamanna.
* í ályktuninni er bent á, að ungir sósíal-
istar berjist fyrir úrbótum 1 húsnæðismálum
og þá einkum með f jölgun byggingarfélaga, op-
inberu eftirliti með sölu og leigu íbúða, heild-
arstjórn byggingarframkvæmda, hækkuðum
lánum og skattfríðindum til handa ungu fólki,
sem stendur í húsbyggingum.
Úr stjórnmálaályktun
* í stjórnmálaályktun segir m.a.: Ungir sós-
íalistar hafna því, að athafnafrelsi misviturra
braskara, sem hugsa og álykta út frá gróðasjón-
armiðum líðandi stundar, sé hreyfiafl framfara
Úfejóðfélaginu. Þvert á móti er þörf samvinnu
í stað samkeppni, þar sem tékið er tillit til
hagsmuna heildarinnar, en ekki hagsmuna út-
valinna einstaklinga.
* Viðreisnarstjórnin he'fur stjórnað landinu
í þágu íslenzkrar auðmannastéttar og hafnað
öllum tillögum um heildarskipulagningu á
þjóðarbúskapnum. Verzlunarauðvaldið er ó-
venjulega sterkt á íslandi og æ meir ber á
bruðli ríkisbankanna með almenningsfé til alls-
kyns braskaralýðs. Ofan á allt bætist svo sí-
vaxandi og geigvænleg fjármálaspilling. Aug-
ljóst er, að íslenzk réttvísi nær einkum til
þeirra, sem minnst mega sín, en sér í gegnum
fingur við stórfelld misferli gróðamanna.
Æskulýðsmálaályktun
* „21. þing ÆF vill í álitsgerð þessari vekja
athygli á málum, sem snerta æskulýð landsins.
Þinginu er ljóst, að þau málefni, sem varða
æskuna í þéttbýlinu, einkum Reykjavík og ná-
grenni, eru nokkuð önnur en þess fólks, sem
elst upp í dreifbýli. Þar er æskan hvorki í jafn
ríkum mæli leiksoppur þeirra þjóðfélagsafla og
einstaklinga, sem glatað hafa trúnni á sjálf-
stæða tilveru þjóðarinnar, né þeirrar gróða-
hyggju, sem er að verða eitt höfuðeinkenni
okkar tíma. Þar er hermannasjónvarp enn ó-
þekkt og hernámssiðgæði lítt þekkt fyrirbæri.
* Þrátt fyrir þetta á æska landsins við mörg
sameiginleg vandamál að stríða. Langur vinnu-
dagur, sem er öðrum þræði afleiðing viðreisn-
arstefnunnar, sviptir æskuna möguleikum til
heilbrigðs skemmtanalífs. íþrótta og annarra
tómstundaiðkana. Sívaxandi dýrtíð torveldar
aðstöðu ungs fólks til framhaldsnáms, jafnt
hér á landi og erlendis. Alvarlegust er sú stað-
reynd, að dýrtíðin er að gera ungu fólki ókleyft
að stofna heimili, leigja eða eignast eigið hús-
næði.
Hér er róttækra breytinga þörf. Æsku-
lýður landsins þarf að samstilla krafta sína og
beita eigin samtökum til þess að knýja fram
nauðsynlegar breytingar. Æskulýðsfylkingin
er reiðubúin til samvinnu við öll félagssam-
tök, sem vilja vinna að brýnustu hagsmuna-
málum unga fólksins.
Framkvæmdanefnd
í hinni nýkjörnu framkvæmdanefnd ÆF
eiga sæti: Logi Kristjánsson, stud. polyt., for-
seti, Hrafn Magnússon, verzlunarmaður, vara-
forseti, Leifur Jóelsson, nemandi, ritari, Ragn-
ar Ragnarsson, verkamaður, gjaldkeri og með-
stjórnendur: Rögnvaldur Hannesson, stud. jur.,
Guðmundur Jósefsson, rennismiður og Svavar
Gestsson, blaðamaður.
Neistí
NEISTI, málgagn Æskulýðsfylkingarinnar, 3.
tbl. 2. árg. kom út á þinginu. Meðal efnis er:
* Grein eftir Gunnar Guttormsson um iðn-
fræðsluna.
* Kvæði eftir Þorstein frá Hamri.
Kynning á verkum nokkurra ungra lista-
manna.
* Um námslaun eftir Ólaf Einarsson, og
margt fleira.
Stofnar íhaldið á Sauðár-
króki bæjarmáiaskóia?
í sunnudagsblaði Timans
birtist frétt á baksíðu þar
sem frá því er sagt að bæjar-
yfirvöldin í Hafnarfirði hafi
gripið til þess ráðs að leita
á náðir Bjargráðasjóðs um
lántöku fyrir bæinn og segir
að Hafnfirðingar séu allugg-
andi um fjárreiður bæjarins.
Þ>á segir í Timafréttinni að
minnihlutinn í bæjarstjórn
hafi enga aðstöðu til þess að
fylgjast með fjárreiðum bæj-
arins þar sem hann fái ekki
að eiga fulltrúa við endur-
skoðun reikninga bæjarins.
Síðan segir orðrétt: „Er
Hafnarfjörður liklega eina
bæjarfélagið á landinu þar
sem minnihlutinn fær ekki
tækifæri til að endurskoða
reikninga bæjarins, en það er
gamalgróin hefð að kjósa
jafnan annan endurskoðanda
úr hópi minnihluta í bæjar-
stjóm.“
Fréttaritari Þjóðviljans a
Sauðárkróki hringdi til blaðs-
ins í gær vegna þessarar frétt-
ar og sagði að Sauðkrækling-
um hefði þótt þessi frétt Tím-
ans um gerræði bæjarstjórn-
armeiiihlutans í Hafnarfirði
lítil tíðindi því að meirihlut-
inn í bæjarstjórn Sauðár-
króks hefði ekki leyft minni-
hlutanum þar að eiga endur-
skoðanda bæjarreikninga í 6
ár! Munu fjárreiður Sauðár-
krókskaupstaðar þó sízt betri
en Hafnarfjarðar og hefur
bærinn m.a. orðið að leita
styrks hjá Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga til að bjarga sér
út úr fjárhagsöngþveitinu.
Bæjarstiórnarmeirihlutinn ]
Hafnarfirði á sýnilega enn
margt ólært af bæjarstjðm-
armeirihlutanum á Sauðár-
króki í þessum efnum en það
ættu að vera hæg heimatökin
fyrir íhaldið i Hafnarfirði að
fá tilsögn hjá íhaldinu °
Sauðárkróki í stjórn bæjar
mála svo að þetta getur lae-
azt. Hvernie vær; nnnars að
íhaldið á Sauðárkróki kæmi á
fót bæ.iarmálaskóla til þesr
að kenna flokksbræðrum sín
um annars stað? r á landinr
hvernig á að reka bæjar-
félög?
rRússneskur tog
arafloti notaiur
til innrásar"
Eins og menn vita, heíur und-
anfarið átt sér stað mikil flota-
æfing Atlanzhafsbandalagsins, og
allir keppzt um að verja lýðræðið
á sjónum. Og hernaðarbrjálæðið
lætur ekki þar við sitja. Folke
nokkur H. Johannessen, sem er
varaaðmíráll að nafnbót og þann-
ig ein helzta stríðshetja Norð-
manna, hefur lýst því yfir, að
svo kunni að fara, að rússneskur
togarafloti verði notaður til inn-
rásar í Noreg!
Þessi ummæli viðhafði vara-
aðmírállinn við hóp af frétta-
mönnum af ýmsu þjóðemi,
sem samankomnir voru á ör-
land-flugstöðinni eftir að hafa
fylgzt með flotaæfingunni, Jo-
hannessen kvað sovézka tog-
araflotann vera hættulegan
öryggi Noregs, enda gæti hann
flutt tiltölulega mikið liö!
GamaT! draugur.
Ekki hafa þessi ummæli þó
fallið nema í takmarkað góð-
an jarðveg með Norðmönnum,
og Dagbladet í Osló segir
þannig, að aðmírállinn sé með
þessu að vekja upp gamlan
draug. Blaðið bætir því við í
forystugrein, að það -sé gott
og blessað að sýna gestrisni
erlendum fréttamönnum, en
pólitikusa við slík tækifæri,
það sé bæði hættulegt og
hlægilegt
Haldí sig á heimavelli.
Og blaðið heldur áfram: Ef
varaaðmírállinn vill endilega
og utan vinnu koma á fram-
færi sérstökum sjónarmiðum
sínum um stefnu Noregs og
Danmerkur innan Nató, og bá
um leið hættuna af sovét-
rússneska togaraflotanum. get-
ur hann að minnsta kost.i
haldið sig á heimavelli. Enn-
fremur telur blaðið vamar-
málaráðherranum skylt að
benda herra Johannessen á
það, að hegðun hans sé ekki í
hag Noregi, og að honum sé
skylt að virða þá vamar- og
utanríkisstefnu, sem Stórþing
og ríkisstjóm hafi markað.
„Pólitískt sjórán”.
Að lokum mæltist svo blað-
ið til þess, að Norðmönnum sé
hlíft framvegis við pólitisku
sjóráni aðmírála Að minnsta
kosti meðan þeir eigi að heita
við vinnu.
BIBLÍUFRÓDIR
KEPPA í ÍSRAEL
Dm þessar mundir fer fram
í ísrael alþjóðleg keppni, og
mætast þar biblíufræðingar og
spreyta sig á að svara flóknum
spurningum um innihald þess-
arar fornu bókar.
Slík kappmót í biblíuvizku
fara fram í landinu þriðja
hvert ár. Siðast báru ísraels-
menn sjálfir sigur af hólmi,
og ekki er talið ólíklegt að
svo fari einnig í þetta sinn
en þó er vitað að keppinaut-
ar þeirra eru sýnu erfiðari
viðureignar nú en oft áður.
Meða! þátttakenda eru að
sjálfsögðu allmargir prestar.
En auk þeirra má finna kan-
adískan leikara, hænsnarækt-
armann frá Nýja Sjálandi, liðs-
foringja i belgiska hemum og
margt ótrúlegt fólk annað.
Þátttakendur hafa verið valdir
úr allstórum hópum í for-
kenpni heimafyrir.
• Þess er og getið, að að þessu
sinni verða þeir biblíufróðu ein-
ungis spurðir, út úr spámönn-
um Gamla testamentisins.
LR fær Tjarnarbæ
tíi afnota / vetur
Á fundi borgarráðs á föstu-
dag var samþykkt að heimila
samninga við Leikfélag Reykja-
víkur um afnot af Tjamarbæ
í vetur en eins og kunnugt er
hefur Æskulýðsráð haft húsið
undanfarna vetur en er nú bú-
að að flytja starfsemi sína á
Fríkirkjuveg 11.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
Svein Einarsson leikhússtjóra
Leikfélagsins og innti hann eft-
ii- þvi hvernig Leikfélagið hygð-
ist nota Tjarnarbæ. Sagði hann
að LR ætlaði að koma þar upp
barnasýningu og einnig myndi
það verða notað fyrir leiklist-
arskólann og til æfinga á leik-
ritum. Ennfremur fengi Leik-
félagið Gríma húsið til afnota
i félagi við LR. Leikhússtjórinn
sagði að það væri mikill á-
vinningur fyrir Leikfélagið að
fá Tjamarbæ ti! afnota þar sem
húsrými í Iðnó væri alltof lít-
ið fyrir starfsemi félagsins.
v
«
á