Þjóðviljinn - 12.12.1964, Side 1
Laugardagur 12. desember 1964 — 29. árgangur — 274. tölublað.
LEGUFÆRIN - grein eftir Krístin
£ Andrésson um nýju Hvulfjurðar-
samningana — Sjá sjöundu síðu
BANDARISKT |
RETTARFAR
MERIDIAN 11/12 — Undirréttur í Meridian í Mississippi
komst í dag að þeirri niðurstöðu, að ekki væru nægar sann-
anir fyrir hendi til þess að sakfella 19 menn, sem ákærðir
eru vegna morðsins á þrem ungum forsvarsmönnum blökku-
manna í sumar sem leið. Ríkislögreglan, FBI, hafði að vísu
skriflega játningu eins hinna ákærðu, cn dómstóllinn taldi
sig ekki geta tekið þá játningu gilda. Alls eru þeir 21, sem
ákæröir eru í sambandi við þetta mál. Mál tveggja á að taka
fyrir í dag og þá í öðrum bæ, mál hins þriðja verður tekið
fyrir síðar.
Alrikisyfirvöldin hafa tilkynnt það, að þau muni stefna
málinu fyrir alríkisrétt. FBI hefur skýrt svo frá, að flestir
hinna ákærðu séu mcðlimir í hermdarverkasamtökunum
Ku KIux Klan. ^
Hollenzkt skip
strandar nyrira
RAUFARHÖFN í gærkvöld — Hollenzka vöruflutninga-
skipið Susanna Reith strandaði í dag, föstudag, á svo-
nefndri Kotflúð, er það yar á leið inn í höfnina. Nokkur
leki var kominn að skipinu í kvöld, en varðskip var vænt-
anlegt frá Akureyri og átti að reyna að draga Hollend-
inginn á flot í nótt.
BSRB krefst 23 % hækkunar
á launum ríkisstarfsmanna
□ Á fundi stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem haldinn var 9. þ.m. var samþykkt
einróma ályktun þess efnis að krefjast launahækkunar fyrir ríkisstarfsmenn. Gerir Bandalagið
kröfur um 23% launahækkun, þar af 15% hækkun frá og með 1. janúar 1964 að telja og þar á
ofan 7% hækkun til samræmis við hækkun til samræmis við hækkanir þær sem urðu á almennu
kaupgjaldi með samkomulaginu milli ríkisstjórnarinnar, ASÍ og vinnuveitenda er gert var 5. júní
síðastliðinn, og komi sú hækkun á laun ríkisstarfsmanna frá og með 1. október 1964 að telja.
Hollenzka skipið er allstórt,
hátt á annað þúsund lestir að
stærð og átti að lesta 1100 tonn
af síldarmjöli á Raufarhöfn.
Hingað kom það um fjögurleyt-
ið í dag, föstudag, og ætlaði
skipstjórinn að sigla inn í höfn-
ina án hafnsögumanns. Mun
hann á einhvern hátt hafa siglt
af réttri leið og lenti á Kotflúð-
inni sem fyrr var sagt.
Hálffallið var er Hollending-
urinn strandaði, en með kvöld-
inu hefur sjór verið vaxandi og
í nótt er spáð austlægri átt sem
oft er slæm á þessum slóðum.
Þó að gengi á með hríðar-
hraglanda í dag var skyggni
ekki aflcl.t er skipið strandaði
og má um strandið fyrst og
fremst kenna ókunnugleika og
óvarkárni skipstjómarmanna.
Eins og fyrr var sagt var ætl-
unin að varðskipið Þór kæmi
hingað frá Akurey.ri í nótt og
gerði tilraun til að draga skipið
Ályktun stjórnar B.S.R.B. er svohljóðandi:
„Með hliðsjón af þeim launahækkunum, sem orðið hafa á
þessu ári hjá öðrum stéttum en opinberum starfsmönnum
samþykkir stjórn B.S.R.B. að krefjast launahækkunar fyrir
ríkisstarfsmenn með tilvísun til 7. gr. laga nr. 55/1962 um
kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Hinn 5. júní sl. var gert samkomulag milli ríkisstjórnarinn-
ar, Alþýðusambands íslands og Vinnuveitendasambands ls-
Iands um ýmis mál, þ.á.m. hækkun dagvinnukaups.
Á grundvelli þessa samkomulags hafa síðan orðið almenn-
ar Iaunahækkanir.
Forsenda fyrir synjun Kjaradóms um 15% launahækkun i
dómi 31. marz 1964 var að með synjuninni væri reynt að koma
í veg fyrir áframhaldandi kauphækkanir hjá öðrum.
Þar sem slíkar almennar kauphækkanir hafa nú átt sér stað,
telur stjórn B.S.R.B., að þessi forsenda sé ekki lengur fyrir
hendi og ákveöur því að gera kröfu um 23% hækkun tii
ríkisstarfsmanna, þ.e. 15%, sem gerð var krafa um 31. des.
1963, og þar á ofan 7% til samræmis við þær hækkanir sem
orðið hafa eftir samkomulagið frá 5. júní 1964.
15% launahækkunin gildi frá 1. janúar 1964 og 7% hækkun-
in frá 1. október 1964.
Tii frekari rökstuðnings vili bandalagsstjórnin vekja athygli
á því, að síðan 1. júlí 1963 hefur vísitala framfærslukostnað-
ar hækkað um 23,5%”.
<♦>-
Nýr hæstráðandi á
Kef lavíkurvelli
■ Þann 16. janúar næstkomandi verða yfirmannaskipti
hjá vamarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þá mun Paul D.
Buie, flotaforingi, sem verið hefur yfirmaður varnarliðs-
ins, kveðja, en Ralph Weymouth, flotaforingi, mun taka
við yfirstjórninni.
Svo segir í fréttatilkynningu
frá Upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjanna, sem gerði þessa grein
fyrir manninum:
„Weymouth flotaforingi, sem
er ættaður frá Seattle í Was-
hington, hefur gegnt störfum I
tæknideild hernaðaraðgerða-
deildar sjóhersins í Washington,
SKÓLANEMENDUR VALDA STÓRTJÓNI
Þjóðviljinn átti í gær viðtal
við starfsmann áhaldahúss
Strætisvagna Kópavogs vegna
orðróms um slæma hegðun
gagnfræðaskólanemenda í skóla-
bílum staðarins.
Þar spurðist m.a., að Stræt-
isvagnar Kópavogs hafa um all-
langan tíma flutt nemendur
gagnfræðaskólans í skólann.
Hefur oft gengið mikið á i
vögnunum svo ekki sé fastar að
orði kveðið, stólar brotnir og
rúður, svo að viðgerðarverk-
stæði SVK verður iðulega að
láta vinna yfirvinnu við að dytta
að vögnunum eftir nemenda-
flutningana.
Þó keyrði um þverbak nýlega,
er óvenjumiklar róstur voru t
vagninum og þótti bflstjóra á-
stæða til að skakka leikinn, þó
hann væri ýmsu vanur frá
hendi farþega sinna. Hugðist
hann einkum tugta strák nokk-
um en skólasystkinin vildu eigi
á slíka málsmeðferð sættast, og
gerðu aðsúg að bílstjóra öll sem
eitt. Við svo búið flúði bíl-
stjóri fram í sæti sitt og ók
óáreittur til skólans.
Starfsmaður áhaldahússins
sagði að þetta væri stórvanda-
mál, því eftir hverja ferð bíls-
ins mætti sjá á honum mikil
ummerki ólátanna. T.d. hefðu
nýverið verið brotin tvö saeti í
bílnum og hefðu eigendur bfls-
ins umsvifalaust kært til lög-
Siíitseyfcbók
Fáir atburðir hérlendis
munu hafa vakið öllu meiri
athygli erlendis en Surtseyj-
argosið en það hefur sem
kunnugt er staðið í rösklega
ár og heldur enn áfram. 1
dag kemur í bókaverzlanir
bók um Surtsey gefin út af
Almenna ' bókafélaginu en
texta hennar hefur Sigurður
Þórarinsson jarðfræðingur
samið.
Bók þessi er með lfku
sniði og fyrri útgáfubækur
félagsins um Heklugosið og
öskjugosið. Bókin er 112
blaðsíður að stærð og í henni
eru 50 myndir valdar úr um
1000 ljósmyndum af gosinu
og eynni sem útgáfunni bár-
ust og er um helmingur
myndanna prentaðar í lit.
Við val myndanna hefur f
senn verið farið eftir feg-
urð þeirra og heimildargildi
og eiga þær að rekja þróun-
arsögu eyjarinnar frá upp-
hafi. 1 inngangsritgerð rekur
dr. Sigurður Þórarinsson sögu >•
gossins og eyjarinnar í stór-
um dráttum og hefur hann
séð um útgáfu bókarinnar í
samráði við Torfa Jónsson
teiknikennara sem ráðið hef-
ur útliti hennar og uppsetn-
ingu. Kassagerð Reykjavíkur
hefur séð um myndamótin og
annazt myndaprentunina en
til hennar er mjög vandað.
Útgefanda hafa þegar bor-
izt nokkrar fyrirspurnir um
bó!k þessa erlendis frá frá út-
gáfufyrirtækjum sem áhuga
hafa á kaupum á bókinni
Hafa þegar borizt slíkar
fyrirspumir frá Svíþjóð,
Bretlandi, ítalíu og Sviss og
raunar einnig frá Spáni og
Japan.
reglunnar f Kópavogi og voru
sökudólgamir til yfirheyrslu f
gær.
Loks bað starfsmaðurinn Þjóð-
viljann beina þeim tilmælum
til foreldra barnanna, að brýnt
væri fyrir þeim að hegða sér
betur í skólabflunum.
MAÐUR
DRUKKNAR
í ÞORLÁKS-
HÖFN
Uaust fyrir klukkan 5 síðdegis
í gærdag Ientu tveir menn út af
Suðurvararbryggju í sjóinn í
Þorlákshöfn og mun annar mað-
urinn hafa drukknað. Hinn náð-
ist dasaður eftir volkið, en Iækn-
ir frá Hveragerði kom á vett-
vang. Lögreglan á Selfossi gerði
tilraun til þess að fara á bifreið
sinni til Þorlákshafnar og varð
að hætta við ferðina sökum 6-
færðar á vcginum. Læknirinn
mun hinsvegar hafa komizt
hindrunarlaust á bil frá Ilvera-
gerði til Þorlákshafnar.
Þarna er unnið að hafnar-
framkvæmdum þcssa daga við
Suðurvararbryggju.
Dean Rusk
í dag kesmur Dean Rusfc, uten-
ríkisráðherra til landsms og
lendir flugvél hans klukkan
MJS á KeQasrakurfbjgweíliB.
Ralph Weymouth.
D.C. Hann er fæddur 26. maí
1917. Hann innritaðist í flota-
skólann 1934 og var gerður að
undirsjóliðsforingja (ensign) 2.
júní 1938. Hann stundaði flug-
nám í Pensacola og Miami f
Florida.
Frá marzmánuði það ár var
hann í njósnaflugsveit á flug-
vélamóðurskipinu USS Saratoga
þar til í janúar 1943, er hann
var gerður að flugliðsforingja
í sprengjuflugsveit. Þá var hann
sæmdur Navy Cross orðunni
fyrir framúrskarandi frarn-
göngu í viðureign við öflugustu
deildir japanska flotans f fyrstu
orustunni á Filippseyjahafi. Auk
Navy Cross var hann sæmdur
Distinguished Flying Cross
fímm sinnum og Air Medal þris-
var, svo og Presidential Unit
Citation og Navy Unit Citation.
Waymouth, flotaforingi, starf-
aði sem yfirmaður þjálfunar-
defldar sjóhersins frá 1944 til
1946 og síðar stundaði hann
nám við framhaldsskóla flotans.
Hann hélt áfram námi við
Massachusetts InstHute of
Teehnokjgy og þaðan lauk hann
metetaraprófi f flugvélaverk-
fræði f september 1949.
Arin 1949 og 1950 hafði hann
Framhald á 3. síðu.
v
4*