Þjóðviljinn - 05.08.1965, Side 1
Þá var
honumlagt \
i
j
1 síðustu viku kom einn af |
togurum Bæjarútgerðar Rvík- j
ur, Pétur Halldórsson, úr j
sinni síðustu veiðiför — i i
þágu lslen.dinga að minnsta j
kosti — og var lokið við að j
landa úr honum nær 300 lest- j
um af ágætum fiski fyrir
helgina, eins og áður hefur j
verið getið hér í blaðinu. Tog- j
aranum er sem sagt lagt nú,
þegar hann er farinn að fiska j
vel aftur eftir dauflegt tíma-
bil — og er þar haldið áfram
uppteknum hætti í þeirri við-
leitni borgarstjórnarihalds'ns
,að draga sem mest saman
rekstur bæjarútgerðarinnar,
því að á liðnum vetri voru
einmitt tveir bæjartogaranna
seldir úr landi þcgar seldist
hvað bezt erlendis.
GóB afíabrögð togaranna í
sumar, 27 eru nú gerðir út
■ Að undanförnu hefur afli togaranna verið betri en áður á undanförn-
um árum og mikil vinna verið í frystihúsunum við vinnslu aflans. Nú
eru gerðir út 27 togarar á íslandi, langflestir frá Reykjavík eða 19 talsins,
4 frá Akureyri, 3 frá Hafnarfirði og 1 frá Akranesi. Verður hér sagt hið
helzta af löndun úr togurum á þessum stöðum nú síðustu vikur.
Reykjavík
1 þessari viku hafa tveir tog-
arar landað í Reykjavík, og tveir
eru væntanlegir síðar í vikunni.
Aflinn er að mestu karfi af
heimamiðum.
Fy.lkir landaði í fyrradag 250
f GÖMLU LAUGUNUM
tonnum og í gær var verið að
landa úr Aski 120 tonnum. Fyrir
helgi kom Egill Skallagrímsson
með 150 tonn og Pétur Hall-
dórsson með 280 tonn.
Geir er væntanlegur í dag og
Hvalfell undir helgi. Flestir tog-
ararnir eru á veiðum á heima-
miðum og landa hér heima en
nokkrir veiða fyrir erlendan
markað.
Akureyri
Góður afli hefur verið hjá
hinum fjórum togurum sem
gerðir eru út frá Akureyri. Mest
eru þeir að veiðum úti fyrir
Norðurlandi frá Horni og aust-
ur að Sléttugrunni. Aflanum er
öllum landað á Akureyri og hef-
ur hann verið að jafnaði 140—
160 tonn eftir um 8 daga veiði-
ferð. Harðbakur landaði 122
tonnum á mánudag en í fyrri
viku kom Sléttbakur með 209
tonn og Svalbakur 174 tonn,
Kaldbakur var með 184 tonn í
síðustu veiðiferð.
Hafnarfjörður
Togarinn Víkingur frá Akra-
nesi kom til Hafnarfjarðar í
fyrradag með 400—450 tonn af
karfa sem veiddur er við Vest-
ur-Grænland. Mest af aflanum
Þessí mynd er tekin inn I íaugunum við Sundlaugaveg í gærmorgun. Krakkarnir voru ekkert a fer vjnnsju ; fry^tihúsi Bæj-
móti því að láta taka af sér myndir og er þá heldur vægt að orði kveðið. Það var hópur af arútgerðar Reykjavíkur og er
fólki í laugunum og mest krakkar um og undir tíu ára aldri. — (Ljósm Þjóðv. svg) ' fiskurinn fluttur á bílum sunn-
Bæjarstjórn Hafnarfjariar ákveður
að taka okurlán m eð 40% vöxtum!
Á síðasta fundi bæjarstjórnar í Hafnarfirði samþykkti
meirihluti bæjarstjórnar að gera samning við Kaupfélag
Hafnfirðinga um kaup á húsi félagsins, Vesturgötu 2,
með einum fufðulegustu lánakjörum er um getur.
Húseign þessi er keypt af bæj-
arsjóði, vegna vegaframkvæmda,
á kr. 2.156.000 án lóðar (fyrir
þrem árum var bæjarsjóði boð-
in þessi sama eign fyrir kr.
1.000.000 með lóð) og eru lána-
kjörin þessi:
Kaupfélagið lánar bæjarsjóði
kr. 1.431.000 til 7 ára með 8%
vöxtum, en því til viðbótar skal
bæjarsjóður leigja kaupfélaginu,
húsið endurgjaldslaust í 7 ár.
Stytta á húsið um 4 metra vegna
tengingar á Reykjavíkurvegi og
Fjarðabraut og skal bæjarsjóð-
ur bera allan kostnað af þvi
verki. í samningnum er skýrt
tekið fram, að bæjarsjóður má
ekki segja Kaupfélaginu upp
leigunni, nema því aðeins að
borga upp lánið, og þá með eins
árs fyrirvara.
Fer því ekki á milli mála‘
að leigan á húsnæðinu er bund-
in lánakjörunum en ekki kaup-
verðinu og það að hún sé end-
urgjaldslaus eru einungis dul-
Islenzkt handrit til
sölu í Kaupmannahöfn
Sjá 0 síðu
búnir vextir í formi leigu. Hvað
er þá hægt að áætla þá upp-
hæð, sem þannig á að greiða
fyrir lánið? — Bæjarsjóður á
að greiða á þriðju miljón að-
eins fyrir húsið og þegar breyt-
ingum á húsinu er lokið mun
bæjarsjóður hafa fjárfest í eign-
inni um 3 miljónir. Ef áætluð
er eðlileg leiga af fjárfesting-
unni, þá yrði ársleiga 300 þús-
und krónur eða í sjö ár um
það bil 2.100.000. Lánið kr.
1.431.000 krónur skal greiðast
með jöfnum afborgunum á sjö
árum og ber 8°/( ársvexti, sem
munu verða í heild ca 450 þús-
und krónur Þar við bætist að
vextir í formi endurgjaldslausr-
ar leigu í þessi sjö ár munu
nema ca. 2.100.000 og því vext-
ir alls í sjö ár 2.550.000 krónur.
Meðaltalsvextir eru því yfir
40°/f, og hér um hrein okurkjör
að ræða,
Hafnfirðingar munu því ef-
laust skilja eina af orsökum fyr-
ir hækkun útsvara þeirra er þeir
fá útsvarsseðla sína að viku
liðinni.
an úr Hafnarfirði. Togaraaf-
greiðslan í Reykjavík gat ekki
annað löndun úr togaranum.
Maí landaði í Hafnarfirði í
fyrri viku 180 tonnum eftir 10—
11 daga veiðiferð, og var aflinn
karfi af miðunum við Austur-
Grænland. Hinir tveir togarawiir
í Hafnarfirði, Röðull og Surprise
hafa verið á veiðum fyrir er-
lendan markað, og var verið að
ísa Röðul í gær.
Stöðug vinna hefur verið í
frystihúsi Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar í allt sumar, bæði við
afla úr togurum og af bátum
sem gerðir eru út á humar. Um
15 bátar eru á humarveiðum.
B/V SIGURÐUR er einn af
þremur nýjustu og stærstu tog-
urum lslendinga og hefur hann
verið aflahæstur sl. tvö ár.
Hann er nú á veiðum við Aust-
ur-Grænland og er væntanleg-
ur heim eftir aðra helgi. Hann
landaði í Bretlandi 20. júlí sL
og seldi fyrir 14.500 pund.
í JÚNlMANUÐI landaði hann
tvívegis hér heima, 297 tonnum
í Hafnarfirði og 317 tonnum á
Siglufirði.
| SKIPSTJÖRI á Sigurði er Auð-
un Auðunsson, en í haust mun
Guðbjörn Jensson, skipstjóri á
Hvalfelli, taka við skipstjórn.
árangurslaus
leit í Hvítá
Leitinni að líki Gunnars heit-
ins Leóssonar, sem drukknaði í
Hvítá, er haldið áfram. Hefur
leitin enn engan árangur borið,
en þess mun freistað að fá þyrlu
til aðstoðar við leitina á ný.
Sáttasemjari á
löngum fundi í
Vestmannaeyjum
Klukkan hálf ellefu í gær-
morgun hófst fundur í kjaradeilu
atvinnurekenda og verkalýðsfér
lagsins í Vestmannaeyjum. Ríkis-
sátasemjari Torfi Hjartarson sat
fundinn, sem haldinn var f
skrifstofu Vinnslustöðvarinnar.
Samningafundur hefur ekki
verið haldinn i deilu Vestmanna-
eyinga síðan fundurinn var haid-
inn í alþingishúsinu í Reykja-
vik.
Er blaðið hafði samband yið
Engilbert Jónasson, formarra
Verkalýðsfélagsins í Eyjum laust
fyrir miðnætti í nótt stóð sátta-
fundurinn enn.
Ósvífin hækkun á
vinnuvélatöxtum
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá sl. sunnudag hafa sam-
tök vinnuvélaeigenda nýlega tilkynnt 10—20% hækkun
gjaldskrár fyrir vinnuvélar.
Þessi hækkun er furðuleg fyrir margra hluta sakir:
OFyrrnefnd gjaldskrá tekur aðeins til leigugjalds fyrir
vinnuvélamar —— Iaun mannanna sem á vélunum vinna
em reiknuð sérstaklega þar fyrir utan, og þessvegna geta vinnu-
vélaeigendur ekki einu sinni varið hækkunina nú með þeirri
röksemd að vinnulaun hafi hækkað með nýgerðum samningum
verkalýðsfélaganna og atvinnurekenda.
©Umtalsverðar hækkanir hafa ekki orðið á kostnaðarlið-
um í sambandi við rekstur vinnuvélanna síðan Félag
vinnuvélaeigenda gerðj síðast breytingar á gjaldskrá sinni ár-
ið 1963.
©Með breytingunum á gjaldskránni 1963 urðu gífurlegar
hækkanir á vinnuvélatöxtunum — og þær hækkanir voru
gerðar í skjóli þess að verðlagseftirlitið hafði veriú afnumið í
samræmi við stefnu núverandi stjómarvalda íhalds og krata.
OFélag vinnuvélaeigenda er aðili að Vinnuveitendasam-
bandi íslands.
BSRB óskar endurskoð-
unar á kjarasamningum
Þjóðviljanum barst í gær svofelld frétt frá Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja:
„Stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja samþykkti
einróma á fundi sínum 3. ágúst að óska endurskoðunar á
gildandi samningum um kjör ríkisstarfsmanna.
Samþykkti stjómin að fara fram á breytingu á kjörum
ríkisstarfsmanna, sem gildi frá 1. júlí til ársloka þessa árs,
en frá þeim tíma tekur gildi nýr heildarsamningur. Kraf-
izt er kjarabóta til samræmis við samninga stéttarfélaga,
sem gcrðir hafa verið að undanförnu. Málsmeðferð þessi er
í samræmi við heimild í 7. grein Iaga um kjarasamninga
opinherra starfsmanna'*.