Þjóðviljinn - 05.10.1965, Blaðsíða 12
Kvikmyndasýning
fyrir blaðburðar-
börn Þjóðviljans
★ Þessi mynd er tekin sl.
föstudag í MlR-salnum í
Þingholtsstræti en þá
bauð Þjóðviljinn blað-
burðarfólki sínu á kvik-
myndasýningu þar.
★ Eins og þið sjáið á
myndinni eru það mest
börn sem að útburði
blaðsins starfa og er
þetta fallegur hópur og
mannvænlegur þótt mörg
þeirra séu ekki há í loft-
inu.
★ Nú eru skólarnir byrjað-
ir og erfitt að fá börn
til blaðburðar og þyrfti
Þjóðviljinn að fá fleiri
rösk böm til starfa
næstu daga.
Hvar er unnið að lausn deilunnar um sjúkratryggingar?
Er deilan týnd í skrifstofu-
Þriðjudagur 5. október 1965 — 30. árgangur — 224. tölublað.
Dómsrannsókn húfín
á starfsemi Þyts
í ágúst sl. var skipuð þriggja
manna nefn,d til þess að rann-
saka orsakir hinna tiðu flugslysa
sem orðið hafa hér á landi í
sumar, en eins og kunnugt er
fórust á þrem mánuðum fjórar
flugvélar sem Flugfélagið Þytur
átti. Skilaði nefndin áliti fyrir
skömmu og eftir að hafa kynnt
sér niðurstöður hennar óskaði
flugmálastjóri, Agnar Kofoed-
Hansen, eftir því við saksóknara
ríkisins að fram yrði látin fara
ðómsrannsókn á starfsemi Þyts.
Flugmálastjóri sagði í viðtali
við Þjóðviljann. í gær að hann
hefði óskað eftir dómsrannsókn
til þess, að unnt yrði, að finna
orsakir þessara óeðlilega tíðu
flugslysa. Sagði hann að rann-
sóknin hefði hafizt í gær.
1 nefndinni sem framkvæmdi
frumrannsóknina áttu sæti Skúli
Sigurðsson fulltrúi hjá loftferða-
eftirlitinu, Sigurjón Einarsson,
flugumferðarstjóri og Marinó Jó-
hannsson flugumsjónarmaður.
bákni ríkisvaldsins?
[~| Það er nú koniið á daginn,
að landslög um sjúkratrygg-
ingar hafa brostið í fram-
kvæmd. Hefur fjöldi fólks
þurft á undanförnum vikum
að greiða úr eigin vasa hluta
af heildarkostnaði eftir vist
á einkasjúkrahúsum.
n Þetta ástand er sprottið af
deilu milli Tryggingastofn-
unar ríkisins og Læknafélags
Reykjavíkur um greiðslu á
læknisverkum á einkasjúkra-
húsum, — þá hafa einka-
sjúkrahús talið sig þurfa að
hækka daggjöld í allt að
fimm hundruð krónur fyrir
sjúkling.
[[] Allar líkur benda til þess,
að deilan hafi týnzt I skrif-
stofubákni ríkisvaldsins, —
við hringdum í ótal áttir í
gærdag til þess að uppgötva
hvar væri un.nið að Iausn
deilunnar — en sá staður er
ófundinn ennþá.
H Þannig cr engin Iausn á
þessu máli á næsta leiti og
haldið verður áfram að mis-
Umendasamband Mennta-
skólans á Laugarvatni
Stofnað hefur verið Nemenda- j
samband Menntaskólans að
Laugarvatni. Ákvörðun um það
var tekin á fjölmennum fundi
nýstúdenta og eldri nemenda
skólans á Hótel Sögu hin 16.
júní s.l. Sambandinu va,r kosin
þriggja manna stjórn og skipa
hana þeir Jóhann Gunnarsson, I
vélfræðingur. Þórir Ólafsson (
menntaskólakennari og Eiríkur
Guðnason. nýstúdent.
Á stofnfundinum var gerð eft-
irfarandi ályktun:
„Stofnfundur Nemendasam-
band^ Mennt.askólans að Laug-
arvatni vekur athygli á því mik-
ilsverða hjutverki, sem Mennta-1
skólinn að Laugarvatni hefur
gegnt frá . bvf að hann ar
stofnaður Skólann hafa sótt;
fjölmargír nemendur. sem ella'
hefðu ekki haft efnj eðs ást.æð-
ur til að stunda framhaldsnám
Stofnfundurinn lýsir ánægju
sinn; með þá áætlun sem gerð \
hefur verið um stækkun skól-;
ans og bendir á nauðsyn þess.
að honum verði hið allra fyrsta |
komið i þá stærð. sem teljast
verður lágmark um slíka
menntastqfnun Jafnframt bend-
ir fundurinn á, að brýn þörf
er á að sjá skólanum fyrir
kennslutækjum, svo að nemend-
um séu eigi búin lakari skilvrði
til námsiðkana þar en í öðrum
hliðstæðum skólum.
Nemendasambandið lætur í
l.iós þá skoðun sína. afi mennta-
skóli sé vel í sveit settur á
skólasetrinu að Laugarvatni og
minnir í þvj sambandj á það
hlutverk. sem skólanum var í
upphafj ætlað Nemendur hafa
verið úr öllum landshlutum, og
hafa nær allir haft þörf fyrir
heimavist.
Fundurinn lýsir yfir þeirrj
fullvissu, að Menntaskólinn að
Laugarvatni muni um langa
framtíð skipa veigamikinn sess
i fræðslukerfj þjóðarinnar, og
heitir á forráðamenn mennta-
mála og fjárveitingavald að
veita skólanum brautargengi
Til nemenda skólans fyrr og
nú beinir fundurinn þeirri á-
skorun afs þeir leitist í hvívetna
við að gera veg skólans sem
mestan“.'
muna þegnunum í fram-
kvæmd sjúkrahjálpar.
Það er helber tiiviljun, hverj-
ir lenda í þessum hópi vegna
nkjandi skorts á sjúkrarúmum
á bæjar- eða ríkisspítölum, —
er til dæmis slysavöktum skipt
hér á milli sjúkrahúsa í borg-
inni og á Landakotsspítali þar
hlut að máli eins og Landspítal-
inn eða Hvítabandið.
Hvað verður um fólk úr
Kópavogi, Seltjarnarnesi eða
Mosfellssveit, sem lendir í bif-
reiðaslysi og slysavakt er á
Landakoti þá vikuna?
Við skulum segja, að fólk það-
an lendi í bílslysi og hljóti til
dæmis fótbrot, handleggsbrot
eða brotna hnéskel eins og al-
gengt mun vera í bílslysum.
Fróðlegt er að rekja kostnað-
arhliðina á slíkum aðgerðum á
Landakoti.
Þannig kostar til dæmis að-
gerð á brotinni hnéskel og stund-
un læknis kr. 2.915,00 og sex
daga lega kr. 2160,00, — sam-
tals kr. 5.075,00. Þar af borg-
ar sjúkrasamlagið kr. 2.808,00,
en sjúklingurinn þarf að greiða
úr eigin vasa kr. 2.267,00.
Þá kostar skurðaðgerð vegna
brots á löngum beinum kr.
4.445,00 á Landakoti og lega í
fjórtán daga kr. 5.040,00 —
samtals kr. 9.485,00. Þar af
borgar sjúkrasamiagið krónur
6.552,00 en sjúklingurinn þarf
í þessu tilfelli að greiða úr eig-
in vasa kr. 2.933,00.
Nú skulum við hinsvegar
rek]a dæmin, hvernig farið
hefði fyrir þessu fólki, ef slysa-
vakt hefði verið á Landspítalan-
um eða Hvítabandinu.
Maðurinn með brotnu hnéskel-
ina hefði fengið sömu meðferð
á Landspítalanum og þá hefði
aðgerð og lega kostað 6x360,00
eða samtals kr. 2160,00 og hefði
viðkomandi sjúkrasamlag borgað
þann reikning þegjandi og
hljóðalaust.
Frumsýning í Lindarbæ á fimmtudag:
Ef maðurinn með brotnu hné-
skelina hefði verið lagður inn
á Hvítabandið og hefði fengið
þar sömu aðbúð og meðferð, þá
hefði reikningurinn hljóðað upp
á 6x468,00 eða samtals kr.
2.808,00 og hefðu engin vandræði
hlotizt af þeim reikningi hjá
viðkomandi sjúkrasamlagi.
Þannig er þegnum þjóðfélags-
ins mismunað í sjúkratrygging-
um og er furðulegur seinagang-
ur á lausn þessara mála hjá
rikisvaldinu.
Einna verst eru þó Hafnfirð-
ingar settir í þessum málum, en
þeir eiga ekki í önnur hús að
venda en St. Jósepsspítalann í
Hafnarfirði. Hafa þeir þó átt
til skamms tíma tvo ráðherra í
ríkisstjórninni en líkur benda lil
þess að mesta brotalömin við
lausn þessara mála hafi einmitt í
Framhald á 2. síðu.
Fá íslenzkan
dómara
í ÞESSARI VIKU lieldur Hann-
es Þ. Sigurðsson utan til þess
aá dæma í knattspymuleik
milli skozka liðsins ,,Celtic“
og hollenzka liðsins „Go
ahcad'* á heimavelli Celtic í
Glasgow.
VERÐUR LEIKURINN næst-
komandi fimmtudagskvöld og
er liður í keppni bikarmeist-
ara Evrópu 1965 til 1966.
CELTIC KEPPTI við Go ahead
í fyrri viku á heimavelli hol-
lcnzka liðsins og unnu Skotar
þá með 6:0 í spennandi leik.
ÞETTA ER í fyrsta skipti, sem
íslenzkur dómari dæmir í
leikjum bikarmeistara Evrópu.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá hér í blaðinu þá
hyggst ÆskuJýðsfylkingin í
Reykjavík gangast fyrir
tónlistarkynningum í vet-
ur. N.k. miðvikudagskvöld
kl. 8,30 kynnir Friðrik Þor-
leifsson sígilda tónlist og
mun að þessu sinni fjalla
um hinn gamla og góða
meistara Mozart. S.l. viku
kynnti Vernharður Linnet
jazz á vegum ÆFR og er
innan skamms fyrirhuguð
önnur jazzkynning. — Sem
fyrr segir kynnir Friðrik
Þorleifsson Mozart n.k.
miðvikudagskvöld í félags-
heimili ÆFR, Tjarnargötu
20 og eru félagar hvattir
til að koma stundvíslega
og taka með sér gesti.
----—
Mikii mannfall Saigonhers
I orustu um Phu Cu-skari
Þriðja sinn á hálfum mánuði sem barizt er við Phu Cu,
hörð orusta einnig háð í gær á óshólmum Mekongfljóts
SAIGON 4/10 — í dag stóð yfir hörð orusta í fjöllunum
í nágrenni við skarðið Phu Cu í norðurhluta Suður-Viet-
nams og er viðurkennt að mikið mannfall hafi orðið í liði
Saigonstjórnarinnar. Einnig í suðurhluta landsins, á ós-
hólmum Mekongfljóts, stóð í dag harður bardagi milli
skæruliða Þjóðfrelsisfylkingarinnar og Saigonhersins.
Því er haldið fram í Saigon
að herdeild úr her Norður-Víet-
nams berjist við hlið skæruliða
í orustunni um Phu Cu.
Fjallaskarðið við Phu Ou er
mikilvægt þar sem þjóðvegur-
inn sem tengir saman norður-
og suðurhluta landsins liggur
um það. Orustan í dag hófst
þegar skæi*uliðar gerðu áhlaup á
Phu Cu-brúna í grennd við
skarðið. Um 500 hermenn úr
Saigonhernum voru þar fyrirtil
varnar, og voru þeir að vinna
að viðgerð á brúnni sem skæru-
liðar höfðu sprengt í síðustu
viku þegar einnig var barizt um
yfirráðin yfir fjallaskarðinu.
Þetta er í þriðja sinn á hálf-
um mánuði sem barizt er á
þessum slóðum, en samtals hafa
fimrn orustur verið háðar um
Phu Cu-skarðið og hefur mann-
fall verið mikið í l'iði beggja.
Saigonstjórnin hefur sent hinni
alþjóðlegu eftirlitsnefnd í Indó-
kína bréf þar sem þvf er haldið
fram að 325. herdeild hers N-
Víetnams taki þátt í viðureign-
inni við Phu Cu. Hún er sögð
búin fullkomnustu vopnum,
sovézkum, kínverskum, tékkn-
eskum og austur-þýzkum.
Einnig við Mekong
Barizt var einnig í súðurhluta
landsins í dag, bæði við Saigon
og enn sunnar, á óshólmum
Mekongfljóts. Bandaríkjamenn
lögðu til atlögu gegn skærulið-
um um 40 km fyrir norðaustan
Saigon, en höfðu varla komizt í
tæri við þá þegar síðast fréttist.
Um 150 km fyrir suðvestan
Saigon réðst Saigonherinn gegn
stöðvum skæruliða, "en þeir
veittu mikið viðnám. Orustan
stóð enn í kvöld, þegar sfðast
fréttist.
SíSasta
segulband Krapps og Jóðlíf
N.k. fimmtudag þann 7. þ.
m- hefjast sýningar hjá Þjóð-
leikhúsinu á litla sviðinu í
Lindarbæ og verður þá
frumsýning á einþáttungnum
„Síðasta segulband Krapps“
eftir Samuel Beckett, í þýð-
ingu Indriða G. Þorsteinsson-
ar rithöfundar. Leikstjórj er
Baldvin Halldórsson.
í þessum sérstæða og
merkilega einþáttungj er að-
eins eitt hlutverk, Krapp og
er það leikið af Áma
Tryggvasyni. Æfingar á
leiknum hófust s.l. vor. Þetta
mun vera annað leikritið eft-
ir Beckett, Sf>m sýnt er hér
á landi, en hitt var sem
kunnugt er „Beðið eftir
Godot'*. sem sýnt var hió
Leikfélagi Reykjavíkur fyrir
nokkrum árum undir leik
stjórn Baldvins Halldórsson-
ar. Ámi Tryggvason lék þar
annað aðalhlutverkig og
hlaut mikig lof fyrir ágæta
t.úlkun á hlutverki sínu.
Með „Síðasta segulbandi
Krapps“ verður sýndur "ýr
einþáttungur eftir Odd
Bjömsson er nefnist „Jóðlíf“
en þessi einþáttungur var
sýndur einu sinnj í Lindar-
bæ á s.l. vori. Leikstjóri er
Erlingur Gíslason en leikend-
ur, sem eru aðeirjs tveir. eru
Þqrsteinn Ö. Stephensen og
Baldvin Halldórsson.
☆ ☆ ☆
Leikfélagið Gríma hefur
sýnt fjóra einþáttunga eftir
Odd Bjömsson en þeir eru:
Köngulóin, Party. Framhalds-
saga og Ameiía.
Sýningar í Lindarbæ hefj-
ast kl. 8,30.
Helgi Th AuderseR «n4«rkiSrl«n
fornaður Verkalýðsfél. Grindavíkur
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Grindavíkur var haldinn fimmíu-
daginn 30. september sl. Helgi
Th. Andersen var endurkjörinn
formaður félagsins en aðrir í
stjórn eru Angantýr Jónsson rit-
axi og Magnús Magnússon gjald-
keri.
1 varastjórn voru kjörnir
Þórður Magnússon varaformað-
ur, Agnar Guðmundsson vara-
ritari og Pétur Vilbergsson vara-
gjaldkeri.
Á fundinum var samþykkt að
félagið gerðist aðili að byggingu
íélagsheimilis í Grindavík á-
samt Grindavíkurhreppi, Ung-
mennafélagi Grindavíkur og
Kvenfélagi Grindávíkur. Tekur
V erkalýðsf élagið að sér að
greiða 3,5% byggingarkostnaðar-
ins.
Þá var samþykkt á fundinum
að hækka félagsgjaldið úr kr.
200 í k- 400 fyrir karla og , úr
kr. 150 í kr. 250 fyrir konur.