Þjóðviljinn - 26.10.1965, Síða 4
4 SlÐA — WÓÐVILJINN — Þriðjudagur 28. ofctöber 1965
Otgeíandi: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokfc-
urinn. —
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.
Ritstjóri Sunnudags: Jón Bjamason.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja. Skólavörðust 10.
Simi 17-500 (5 línur). Askriftarverð kr. 90.00 á mánuöi.
Dómur um viðreisninu
A* undanförnu hefur mikið verið um það rætt af
kaupsýslumönnum og stjórnarvöldum að tor-
velda þurfi íslendingum utanlandsferðir. Heild-
salar og smásalar hafa lýst yfir því að þeir séu
stöðugt að missa viðskipti, því æ fleira fólk kaupi
varning handa sér og fjölskyldu sinni erlendis.
Hefur Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaráðherra
tekið undir þetta sjónarmið og talið það mikið á-
hyggjuefni að smásalan sé að verulegu íeyti að
flytjas'f út úr landinu. Hefur verið lagt til að
tollaeftirlit verði hert til mikilla muna, og ef það
sannist við athugun að ferðalangur komi í nýrri
spjör til landsins skuli honum gert að greiða af
henni toll og söluskatt og gott ef ekki álagningu
íslenzkra smásala og heildsala. Reglugerð um
þet't'a efni hefur ekki enn séð dagsins ljós; hins
vegar var það boðað í fjárlagafrumvarpinu að
nú yrðu mönnum torveldaðar utanlandsferðir með
sérstöku farmiðagjaldi. Rökstuddi fjármálaráð-
herrann þá ráðstöfun í framsöguræðu sinni með
því að ferðalangar högnuðust stórlega á því að
kaupa sér nauðsynjar erlendis í samanburði við
þá sem neyddust til að skipta við íslenzka kaup-:
sýslumenn. í þessum umræðum hafa orðið úti hin
fornu kjörorð kaupsýslumanna og stjórnarvalda*
um hverskyns frelsi, ferðafrelsi, viðskiptafrelsi og
frjálsa samkeppni, og bíða menn þess nú með ó-
þreyju að stjómarblöðin taki að birta lofgreinar
um Berlínarmúrinn. J
gn hvað sem blessuðu frelsinu líður og því kynlega
sjónarmiði að utanlandsferðir séu tóm kaup-
sýsla eru þessar umræður hinn þyngsti áfellisdóm-
ur um áhrif viðreisnarinnar. Ekki eru ýkjamörg
ár síðan stjórnarblöðin hældust um yfir því að ís-
land væri að verða eitthvert ódýrasta land í Evr-
ópu, og gætu erlendir ferðamenn þyrpzt hingað
til að gera góð kaup. Gerði Gylfi Þ. Gíslason þetta
atriði að uppistöðu í framboðsræðu fyrir síðustu
kosningar, er hann birtist kjósendum í húsmóður-
gervi, og Alþýðublaðið gerði það þá að miklu á-
róðursmáli að svokallaðir kaldir búðingar væru
ódýrari í Reykjavík en í Kaupmannahöfn! En á ör-
fáum árum hefur viðreisninni tekizt að breyta ís-
landi í eitthvert dýrasta land í Evrópu, ef ekki
það allra dýrasta, svo að útlendingar hrökkva frá
þegar þeir kynnast verðlaginu. Tollheimtan er svo
gegndarlaus og verzlunarokrið svo ófyrirleitið, að
sjálfir áróðursmenn stjórnarflokkanna telja það
svara kostnaði í beinhörðum peningum að fara
yfir sjálft Atlanzhafið í kaupstaðarferð í leit að
heimilisnauðsynjum, Það hefði einhverntíma þótt
ótrúleg saga að setja yrði sérstök höft og viðskipta-
f jötra -til þess að vernda íslenzka einokunarverzl-
un fyrir frjálsri samkeppni við danska kaupmenn,
en viðreisninni er fátt ómáttugt. Vonandi kemur
þó ekki til þess að settar verði reglur um húð-
strýkingu og nýjan Brimarhólm. — m.
Erlagagildi
skatthækkunar
vafasamt?
I tilefni aE framkomnu frum-
varpi til laga um breytingar á
lögum nr. 19 frá 10. maí 1965
um Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins, þar sem lagt er til í 2.
gr. frumvarpsins að miða sfculi
eignarskatt við fasteignamat
,sexfaldað“j í stað þrefaldaðs
áður, leyfir stjóm félagsins sér
að benda á að lögboðin fyrir-
heit eru um hið gagnstæða, þvi
að í lokaákvæðum laga nr. 28
frá 29. apríl 1963. um fasteigna-
mat og fasteignaskráningu, seg-
ir svo: j,Áður en nýtt aðalmat
fasteigna samkvæmt lögum
þessum gengur í gildi, skal fara
fram endurskoðun á gildandi
ákvæðum laga, sem fasteigna-
mat hefur áhrif á, og miðast
endurskoðunin við, að skattar
á fasteignum hækki ekki al-
mennt vegna hækkunar fast-
eignamatsins“.
Verður því að telja eignar-
skattshækkun þá, sem varð á
gjaldárinu 1965 vegna þreföld-
unar fasteignamatsins harla
vafasama að lagagildi og bó
ennþá fremur tillöguna um sex-
földun matsins.
1 tílefni þessa skorar stjórn
Húseigendafélags Reykjavíkur
á flytjendur frumvarpsins að
unar og afturköllunar og leyfir
sér jafnframt að benda á. að
þróunin í nágrannalöndunum
hnígur í þá átt, að íbúðaihús-
næði til eigin afnota sé ekki
skattstofn til eignarskatts og
eignarútsvars. ,
Reykjavík 19. október 1965.
Stjórn Húseigandafélags
Reykjavíkur“
Félag háskóla-
menntaóra _
kennara
Hin ævafoma borg Samar-
kand er næststærsta borgin í
sovétlýðveldinu Uzebekistan og
teiur eitthvað um 350.000 íbúa.
Borgin getur með sanni talizt
einhver ævintýralegasta borg
heims. Innan borgarmúranna
gefur að Iíta fjölmargar bygg-
ingar frá 14. og 15. öld. Timur
Lenk,' eða Tamerlane eins og
hann er stundum nefndur á
vesturlöndum, hugðist gera
borgina að miðdepli veraldar.
. Ximur,., réði xíkjum frá 1370
til 1405 og enn gnæfa viö him-
in hallir þær, er hann reisti
yfir ættingja sína og vinL í
dag er morð fjár varið til þess
að halda við þessum höllum
öllum; þannig þurfti nýlega að
rétta af skakkan turn, ekki
óáþekkan þeim I Pisa. Turn-
inn, sem er 32 m hár, var að
falli kominn, en á nú að vera
óhætt. Annars dregur turninn
nafn sitt af Ulugbek, sem var
einn af frændum Timurs.
★
Samarkand er í dag mikil-
vægt menntasetur og iðnaðar-
borg. Þar eru smíðaðar vélar,
framleidd silkiefni og matvæli
allskonar. Háskóli er að sjálf-
sögðu í borginni og hefur hann
sjö háskóiadeildir. Svo eru
tækniskólar allskonar í borg-
inni og ýmislegar þær stofn-
anir, sem nú heyra til í nú-
tímaborg. En samt verður Sam-
arkand alltaf í hugum manna
borg þeirra ógnvaldanna Tim-
ur Links og Alexanders mikla.
— Myndín hér að ofan er frá
einu af nýtízkulegri hverfum
borgarinnar.
Hin ævaforna keisaraborg
verður nú æ nýtíikuiegri
Sigurhuns Hunnesson
eirsmiður áttræður
Einn brautryðjendanna í
jámiðn og stéttarsamtökum
jlámiA'iadarrríanna, Sigurhan*
Hannesson, er áttræður í dag,
en hann er fæddur 26. október
1885 að Önundarholti í Vill-
ingaholtshreppi.
Á slíkum tímamótum er fé-
lögum og samferðamönnum
hollt að meta og þakka áhrif
og störf þess sem í hlut á.
Sigurhans Hannesson er
reykvískum jámiðnaðarmönn-
um og öðrum er til þekkja í ís-
lenzkum jám- og málmiðnaði
að góðu kunnur. Kunnastur er
hann sem frábærlega hagur
málmsmiður. sem undirbjó og
hugsaði smíðina áður en haf-
izt var handa. og unni sér
ekkí hvíldar fyrr en hann taldi
verkinu lokið á þann veg að
ekki yrði betur gert. Þannig
hefur Sigurhans rækt sitt ævi-
starf. sigrað hið vandasamasta
með gleði smiðsins.
Sigurhans Hannesson hefur
á löngum vinnudegi alltaf
munað það að hann er ekki
einn í heiminum. Sterk stétt-
arkennd og samúð með vinnu-
félögum og samferðamönnum
er honum í blóð. borin. Þetta
einkenni hans var eflaust or-
sök þess að hann var einn af
hvatamönnum að stofnun og
stofnandi Félags jámiðnaðar-
manna 11. apríl 1920. og sat
hann í stjórn þess fyrstu ár-
in sem gjaldkeri og ritari.
Honum hefur síðan verið það
metnaðarmál að Félag jám-
iðnaðarmanna vær; sverð og
skjöldur járniðnaðarmanna í
baráttu þeirra fyrir mannsæm- 1
andi lífskjörum. Félag jámiðn-
aðarmanna hefur metið áhuga
Og starf Sigurhans mikils og I
tjáð honum þakkir með því að
gera hann að heiðursfélaga fé-
lagsins, ásamt öðrum stofnend-
um sem enn ern í félaginu.
Undirritaður vill einnig nú á
þessum timamótum þakka hon-
um fyrir hönd Félags járniðn-
aðarmanna hvatningu og vak-
andi áhuga á starfsemi og vel-
ferð félagsins.
Margir jámiðnaðarmenn og
vélstjórar hafa á námsárum
sínum kynnzt Sigurhans og
notið tilsagnar hans við nám
sitt og þá ekki sízt kynnzt ein-
örðum og einlægum verkalýðs-
sinna. Lífslogi Sigurhans Hann-
essonar hefur logað lengj og
skært og mörgum omað hin
síðari ár hefur loginn logað
hægar, en hefur áreiðanlega
yljað skyldfólki ctg þá ekki
sízt barnabömum hans.
Fyrir hönd Félags jámiðn-
aðarmanna, samherja og fyrri
Sigurlians Hannesson
vinnufélaga Sigurhans Hann-
essonar óska ég honum heilla
á áttræðisafmælinu og jafn-
framt óskum við honum og
hans mætu konu birtu og hlýju
á ævikvöldi.
Guðjón Jónsson járnsmiður.
Sigurhans tekur á móti gest-
um og kveðjum á heimili sínu
og Bolla sonar síns að Rauða-
læk 24 kl. 5—8 í dag.
Nýlega var haldinn aðalfund-
ur Félags háskólamenntaðra
kennara í 2. kennslustofu Há-
skólans. Var funduriinn fjölsótt-
ur og mikill einhugur ríkjandi.
Formaður félagsins var kjör-
inn Njörður P. Njarðvík cand.
mag. menntaskólakennari. Aðrir
i stjóm: Ingólfur A. Þorkelsson
B.A.j Gestur Magnússon cand.
mag., Guðmundur Hansen B.A.,
Lýður Bjömsson cand. mag. I
varastjóm: Gunnar Finnboga-
son cand. mag. og Flosi Sigur-
bjömsson cand. mag. Fulltrúi
félagsins í fulltrúaráð Banda-
lags háskólamanna var kjörinn
Njörður P. Njarðvík.
Fyrrverandi formaður félags-
ins, Jón Böðvarsson cand, mag.,
gaf eigi kost á sér til endur-
kjörs, og voru honum færðar
miklar þakkir félagsmanna fyr-
ir ötula félagsstjóm.
Á fundinum flutti dr. Bjarni
Guðnason prófessor erindi um
breytta tilhögun náms við helm-
spekideild Háskóla íslands.
Félag háskólamenntaðra kenn-
ara telur nú 68 meðlimi, og em
þeir allir starfandi kennarar við.
Háskóla Islands, menntaskóla,
kennaraskóla, verzlunarskóla,
tækniskóla, auk gagnfræðaskóla-
kennara.
miSAIVÍH
fimibH'VI
msœlastir skartgripir
ióhannes skólavörðustíq 7