Þjóðviljinn - 30.11.1965, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 30. nóvember 1965 — 30. árgangur — 272. tölublað.
' *' ' ' •• ' T
Þannig líta áliorfendapaJIar nir út í dag — Ljósm. Bj. Bj.
Tímamót í sögu íþróttamála hér á landi:
íþróttahðllin í Laugardai
tekin í notkun á laugardag
3 Nýja íþróttahúsið \ Laugardal verður tekið til notkun-
ar næsta laugardag, — verður þá hörkukeppni milli úr-
valsliðs HKRR og tékknesks handknattleiksliðs, — hef-
ur verið unnið dag og nótt við að ganga frá húsinu und-
ir þá keppni.
■ íþróttahúsið verður þó ekki fullfrágengið fyrr en
næsta haust og verða gestir að láta sér nægja stæði til að
byrja með, — þessum framkvæmdum hefur þó verið hrað-
að með tilliti til þess, að handknattleikslið frá Tékkó-
slóvakíu, Rússlandi og Noregi koma hingað til keppni
fyrir jól.
Bygginganefnd hússins boðaði
blaðamenn á sinn fund í gær-
dag og hafði Jónas B. Jónsson.
fræðslustjóri orð fyrir henni.
Þama verða ekki eingöngu í-
þróttakappleikir og íþróttaæf-
FYLKINGIN
ÆFK efnir til fullveldis- ■
fagnaðar í Glaumbæ i ■
kvöld og hefst hann kl. 9 :
og stendur til kl. 2 e.m. j
Opið verður á báðum hæð- ■
um. Ö.B. kvartett og Tríó j
Guðmundar Ingólfssonar j
leika fyrir dansf.
Aðgöngumiðar verða tekn- ■
ít frá í síma 17513 frá kl. :
5—7 í dag.
Félagar í ÆFR eru j
hvattir til þess að mæta og ■
hafa með sér gesti.
Stjórnin. í
ingar. — er húsið ehki síður
reist fyrir vörusýningar, hljóm-
leika, fyrirlestra, listsýningar,
leiksýningar og hverskonar fjöl-
mennar samkomur. Skömmu
eftir vígslu hússins næsta haust
verður haldin þarna mikil iðn-
sýning og vorið 1967 verður
haldin þarna mikil vörusýning,
— þannig er þegar farið að
skipuleggja notkun hússins fram
í tímann. Húsið er að stærð
46.500 rúmmetrar og er hvolf-
þakið með þeim stærstu í Norð-
ur-Evrópu. Aðalhúsið er 2400
fermetrar og bakhús með bað-
klefum og snyrtiherbergjum er
400 fermetrar. Gólfflötur í í-
þrótta- og sýningarsal er 1620
fermetrar og er skínandi parket-
gólf, — þarf að negla 18 þúsund
nagla í gólfflötinn. Sæti eru
ætluð fyrr tvö þúsund áhorfend-
ur, en þeim hefur ekki ennþá
verið komið fyrir.
Eftir áramót verður félögum
og skólurn gefinn kostur á aef-
ingatímum í húsinu. Smíði húss.
ins hófst fyrri hluta árs 1960 og
hefur tafist vegna fjárskorts og
skorts á vinnuafli. Síðustu vikur
hefur þ)ó fjöldj af iðnaðarmönn
um úr handknattleiksfélögum
hér í bænum hlaupið undir
Framhald
Þungfœrt orðið víðo ó Norðurlandi
VEGIR Á AUSTURLANDI
TEPPTIR VEGNA SNJÓA
Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk í gær hjá
Vegagerð ríkisins eru flestir vegir nú tepptir á Austurlandi
vegna snjóa og sömu sögu er að segja í Þingeyjarsýslum
báðum. Heiðar á Vestfjörðum eru tepptar og þungfært
orðið í Eyjafirði, víðar á Norðurlandi og í Skaftafells-
sýslum.
Suðurland
Hjörieifur Ólafsson hjá Vega-
gerðinni sagði Þjóðviljanum að
Suðurlandsvegur væri fær eft-
ir aðalleiðunum i Árnes- og
Rangárvallasýslum en þegar
kæmi austur fyrir Jökulsá á
^ójheimasandi væri hann aðeins
fær stærstu bílum. Útvegir í
Árnes- og Rangárvallasýslum
eru ekki færir nema stærri bíl-
um, t.d. vegirnir til Þorlákshafn-
ar, Stokkseyrar og Eyrarbakka,
svo og Gaulverjabæjarvegur og
V illingaholtsvegur.
fjarðarsýslum eru allar heiðar
ófærar en fært innan fjarða.
Norðurleiðin
Vegurinn norður til Akureyr-
ar er vel fær norður yfir
Framhald á 9. síðu.
Vesturland
Vegir í Borgarfjarðar- og
Mýrarsýslum og á Snæfellsnesi
eru færir öllum bílum en
Brattabrekka er orðin þungfær
og eins vegir í Svínadal í Dala-
sýslu og í Gilsfirði. Vegir í
Barðastrandasýslu eru færir
nema Þingmannaheiði en í ísa-
• Þorgeir Þorgeirsson svarar
Sigurði A. Magnússyni — 5. s.
■ ■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■ivu ■■■■■■■■■■■■■•■■■■■•■■■■(■
Vöruskiptajöfnuðurinn óhag-
stæður um 447.7 miij. kr:
] I Samkvæmt bráðabirgðayfirliti Hagstofu íslands um verðmæti
inn- og útflutnings í októbcr sl, varð vöruskiptajöfnuðurinn í
mánuðinum óhagstæður um 14.7 miljónir króna en í sama mán-
uði í fyrra var hann óhagstæður um 46.7 miljónir.
□ Frá áramótum til októberloka i ár hefur viðskiptajöfnuðurinn
verið óhagstæður um 447.7 miljónir króna en á sama tíma-
bili í fyrra var hann óhagstæður um 584.7 miljónir króna.
□ í októberlok nam heildarútflutningurinn frá áramótum 4204.8
milj. kr. (3785.7 í fyrra). Innflutriingurinn á sama tíma nam
4652.5 milj. kr., þar af skip og flugvélar 458.0 milj. kr. Á sama
tíma í fyrra var innflutningurinn 4370.4 milj. kr., þar af skip
og flugvélar 580.9 milj. kr.
Úrskurður Kjurudéms s dug
1 dag kl. 6 síðdegis mun Kjaradómur kveða upp úrskurð sinn í máli
BSRB fyrir hönd ríkisstarfsmanna gegn ríkissjóði og munu margir
bíða úrskurðar hans með eftirvæntingu.
B Eins og kunnugt er náðist ekki samkomulag með deiluaðilum,
hvorki um niðurröðun ríkisstarfsmanna í launaflokka né um launa-
stiga og önnur atriði er varða vinnutíma o.fl. Nær úrskurður Kjara-
dóms því til allra þessara þátta kjaramála opinberra starfsmanna.
ósanngirni er að húsbyggj-
endur beri vísitölukvöðina
- er verSbólgan heldur áfram aS magnasf ■
braskarar grœSa á verS bólgufjárfestingunni
og
■ Á fundi neðri deildar alþingis í gær kvöddu
þrír Alþýðubandalagsmenn sér hljóðs: Einar Ol-
geirsson, Hannibal Valdimarsson og Ingi R.
Helgason, en fram fór fyrsta umræða um frum-
varp til laga um Húsnæðismálastofnun ríkisins
en efri deild afgreiddi frumvarpið óbreytt. í
Bílstiéri eltist við tvo hnífamenn
Aðfaranótt sl. sunnudags lenti
vörubílstjóri hér í borg, Sigur-
geir Eiríksson að nafni, í kasti
við tvo pilta er höfðu gert sig
hcimakomna i bílnum hjá hon-
um og drógu þeir báðir upp
vasahnífa i viðureigninni við
bílstjórann. Hafði hann þó í
fullu tré við þá og upphófst
mikill cltingaleikur um götur
borgarinnar. Kom lögreglan
brátt á vettvang og náðust piit-
arnir báðir um nóttina.
Sigurgeir sem á heima við
Bárugötu ætlaði nokkru eftir
miðnætti um nóttina að skreppa
í ökuferð. Fór hann út í bílinn
og setti hann í gang, en skrapp
síðan inn aftur. Þegar hann kom
til baka sá hann að maður var
seztur inn í bílinn og farinn að
rjála eitthvað við hann. Snarað-
ist Siggeir þegar að bílnum og
lagði hinn þá á flótta en Sig-
geir náði honum og þreif til
hans f því bili kom annar
maður á vettvang og veittist að
Siggeiri með vasahníf á lofti.
Sleppti Siggeir þá fyrri mann-
inum og réðist gegn hinum síð-
ari en hann lagði á flótta út í
myrkrið. En nú hafði fyrri árás-
armaðurinn einnig tekið upp
vasahníf og bjóst til að ráðast
á Siggeir en Siggeir snérist gegn
honum og stökkti honum á
flótta.
Siggeir veitti flóttamönnunum
eftirför og brátt kom lögreglan
einnig á vettvang, en hún hafði
verið kvödd á vettvang. Lyktaði
eltingaleiknum með því að ann-
ar árásarmannanna náðist fljót-
lega og hinn nokkru síðar um
nóttina eftir ábendingu Siggeirs.
Voru piltarnir báðir settir í
gæzluvarðhald.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglunnar eru piltarnir
báðir um tvítugt, sjómenn að
atvinnu og utanbæjarmenn. Er
mál þeirra í rannsókn.
Siggeir hefur áður orðið fyrir
árás hnífstungumanna, þvf fyrir
nokkrum árum réðist svertingi á
hann í Tívolí og særði hann í
andliti með hnífi en Siggeir sló
hann niður.
sambandi við frumvarpið lagði Einar Olgeirsson
áherzlu á þrjú meginatriði. í fyrsta lagi væri
ekki sanngjarnt að ætla húsbyggjendum einum
að greiða verðtryggingu á lán, á sama tíma cg
verðbólgan héldi áfram að magnast og braskar-
ar græddu á henni. í öðru lagi kvað Einar ekki
rétt að fella úr gildi ákvæði um hámarkshúsa-
leigu, eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu,
heldur setti að setja inn í það ákvæði um há-
markshúsaleigu til samræmis við breyttar að-
stæður, en núgildandi ákvæði væru með öllu úr-
elt. í þriðja lagi benti Einar á í sambandi við
þá sex-földun fasteignamatsins, sem frumvarpið
gerir ráð fyrir, hvort ekki væri rétt að láta
hækka skattana á verzlunarhöllunum til tekju-
öflunar vegna almannaframkvæmda, til dæmis
með því að taka 1% á ári af brunabótamati verzl-
unar- og skrifstofuhallanna í sérstakan skatt.
Sjá þingsjá á bls. 12
4