Þjóðviljinn - 30.11.1965, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 30. nóvember 1965
Herhvöt tíl
æskunnar
,Helmin.gur mannkyns býr
vig matvaelaskort. Afleiðingin
af því er sú, að árlega deyja
margar miljónir ungmenna
með jafn afdráttarlausum
hætti og væru þær strádrepn-
ar af harðstjóra. Enn fleiri
bera mark hungursins á lík-
ama og sál ævinlangt. Við full-
vissum yður um, að þessar
þjáningar er hægt að stöðva
og það verður að gera. Þegar
við öll. hvort sem við búum
við þessar óhugnanlegu að-
stæður eða í fjarlægum vel-
megandi ríkjum afráðum að
binda endi á þetta hungur, þá
erum við þess megnug“.
Þannig er komizt að orði í
yfirlýsingu sem nýlega var
samin af hópi æskulýðsleið-
toga, sem komu saman í
Rómarborg í boði B. R. Sens,
forstjóra matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna (FAO) í sambandi
við hina alþjóðlegu herferð
gegn hungri. 1 yfirlýsingunni
er æskulýður heimsins hvattur
til að taka upp baráttuna gegn
hungri og næringarskorti og
stuðla þannig að eflingu friðar
í heiminum.
' „Veröldinni er fyrst og fremst
stjómað af mönnum. sem ekki
eru í neinum tengslum við
heim æskulýðsíns“ segir enn-
fremur j yfiriýsingunni. „Menn
vita, að miljónir jarðarbúa
svelta og láta lífið. En það er
talið mikilvægara að framleiða
hergögn, sprengjur, herskip,
heldur en að leggja fram sáð-
kom, vatn, skóla og sjúkrahús,
svo að við gætum mettag og
þjónað hver öðrum“.
„Við skulum öll gera ráða-
mönnum heimsins það fullkom-
lega ljóst. að skipting í ríka
og fátæka verður að hverfa
úr sögunni, og að okkur er
ljóst að til þess að stuðla að
! þróun heimsins útheimtist
'framlag sem svarar til þeirra
mörgu miljarða dollara sem nú
• er sóað í herbúnað. Við skul-
um einnig gera þeim ljóst, að
séu það póiitísk eða efnahags-
leg kerfi. sem hindra réttláta
skiptingu fæðu og velmegun-
ar í heiminum, þá verða þessi
kerfi að hverfa og önnur betri
að koma í stað þeirra“.
Tíu daga hafnar-
verkfall í Japan
TÓKIÓ 24/11 — Hafnar-
verkamannasambandið jap-
anska hefur nú boðað tíu daga
verkfall í 52 höfnum — frá
laugardegi að telja. Að því
er segir í fregnum frá Tókíó,
munu eitthvað um 1-500 skip
frá 269 útgerðarfélögum stöðv-
ast um hríð, vegna þessa
verkfalls. Hafnarverkamanna-
sambandið krefst hærri launa
fyrir meðlimi sína, 134.000 að
tölu Krafan er rökstudd með
því. að lífsnauðsynjar allar
hafj hækkað.
Sagt og
skrifað
„Stjórnmál er sá list að hafa
atkvæði út úr fátækum og fé
til kosningasjóðanna út úr
þeim ríku — og heita hvorum
aðilanum um sig vernd fyrir
hinum“.
(Ónefndur Bandarikjamað-
ur. Það er sjálfur Pandid
Nehru, sem frá þessum um-
mælum segir í endurminn-
ingum sínum).
500 BÖRN
FÁ VERÐLAUN
UMFERÐAÞRAUT BARNANNA
LE KREGLUR
Á teikninguTini að ofan eru merkt 25 atvik í umferð við
fjölfarin gatnamót í Reykjavík. Þrautin er aðeins sú að skrifa
niður öll 25 atvikin og útskýra, hver þeirra eru samkvæmt
réttum umferðarreglum, hver eru brot á umferðarreglunum
og hvers vegna.
1 i
Lœrið umferðareglurnar
Skrifið svörin á blað, nafn ykkar, aldur og heimilisfang
undir og sendið í lokuðu umslagi, merkt: Jólasveinn Sam-
vinnutrygginga, Ármúla 3, Reykjavík. Lausnirnar verður að
póstleggja sem allra fyrst og ekki síðar en 12. desember og
verða þá jólagjafir sendar til 500 þeirra, sem réttar lausnir
senda.
Öll böm, sem búse’tt eru á Íslandi, 15 ára og yngri, mega
taka þátt í keppninni.
og takið þátt í keppninni
SAMVINNUTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK
I
t