Þjóðviljinn - 30.11.1965, Qupperneq 3
Þriðjudagur 30. nóvember 19TO
pítOOVILJINN
SlÐA
Einhver mesti ósigur Bandaríkialeppanna til þessa:
Skæruliðar stráfella tvo
herfíokka Saigonstíórnar
SAIGON, WASHINGTON 28/11 — Þegar Robert
McNamara, varnarmálaráðherra bandarísku
stjórnarinnar, kom á sunnudagsmorgun til Saig.
on, bárust honum fréttir af því, að tveir herflokk-
ar Saigonstjórnarinnar, eitthvað um 800 manns
samtals, hafi svo gott sem verið þurrkaðir út í
mikilli viðureign daginn áður. Þessir tveir her-
flokkar voru felldir í bardögum um stærstu
gúmmíplantekru landsins, og er þetta einhver
mesti ósigur, sem her Saigonstjórnarinnar bíður
í stríðinu öllu. — Mikill mannfjöldi mótmælti í
Washington á laugardag aðgerðum Bandaríkja-
manna í Vietnam.
Plantekra sú, sem hér um
raeðir, Michelin-ekran svo-
nefnda. liggur eitthvað um 65
km suðaustur af Saigon. Harðir
bardagar hafa undanfarið verið
háðir um þessa plantekru. í
orustunum hafa svonefndir
bandarískir ,,ráðgjafar“ stutt
herlið Saigonstjórnarinnar og
beðið mikið tjón.
,,Misgáningur“ enn
Þá fylgir það þessum frétt-
um, ag fyrir ,,misgáning“ hafi
bandarískar sprengjuflugvélar
kastað þrem sprengjum á
stjómarliðið. Hafi þetta stafað
af því að barizt hafi verið í ná-
vígi og því nær útilokað að
greina vin frá óvini.
2.000 manns
f Saigon er talið, að um 2.000
skæruliðar Þjóðfrelsisfylkingar-
innar hafi ráðizt á plantekruna,
en rekstri hennar var hætt í
síðasta mánuði vegna árása
skæruliða. í fréttum sínum af
þessum bardögum segir stjórn-
arherinn í Saigon ennfremur. að
yfirmaður stjórnarhersins á
staðnum hafi verið tekinn hönd-
um og pyndaður, og hermenn
stjórnarhersins þeir er teknir
voru til fanga, hafi verið sam-
stundis skotnir.
300 skæruliðar fallnir?
Bardagarnir fjöruðu svo út á
laugardagskvöld en þá höfðu
svokallaðar úrvalshersveitir
stjórnarhersins hafið gagnsókn
og beitt þyrlum. Vígvöllurinn
milli gúmmítrjánna var þakinn
vopnum og líkum. f Saigon er
gizkað á, að skæruliðar hafi
misst eitthvað um 300 manns.
en þó hafa enn engar endanleg-
ar tölur verið birtar um það at-
riði.
Bandarísk mótmæli
í Washington var á laugardag
haldin mikil mótmælaganga
gegn hernaði Bandaríkjamanna
í Vietnam og segir í frétt NTB,
að milli 30.000 og 50..000 manns
hafi tekið þátt í henni. í göng-
unni voru borin spjöld þar sem
hvatt er til friðarsamninga í
Vietnam og að sprengjuárásun-
um á N-Vietnam verði hætt.
Mótmælagangan fór friðsamlega
fram ef frá eru skildar smá-
vægilegar ryskingár og hand-
tökur. Fundurinn sendi og bréf
Kekkonen vill að Noregur
og Finnland geri samning
til tryggingar landamærum þessara tveggja
ríkja í hugsanlegum átökum stórveldanna
til Ho Chi Minh. forseta Norð-
ur-Vietnam og segir þar, að
fundarmenn óski ekki eftir sigri
skæruliða í stríðinu í S-Viet-
nam, en óski þess, að friðar-
samningar séu upp teknir, til
þess að binda enda á stríðið,
sem ógnað geti heimsfriðnum.
— Á laugardag höfðu skærulið-
ar tilkynnt það, að þeir hafi
látið lausa tvo bandaríska her-
menn, sem þeir höfðu tekið
höndum, og er sennilegt talið,
að það hafi verið gert með til-
liti til þessa fundar í Washing-
ton.
Styðja stjórnina
Þessi mótmælaganga. sem er
hin mesta, sem farin hefur ver-
ið vestra gegn stefnu Banda-
ríkjastjórnar í Vietnam. hefur
bersýnilega vakið ráðamönnum
þar nokkurn ugg sem sést á
því, að hópur þekktra Banda-
ríkjamanna með þá Dean Ache-
son fyrrum utanrikisráðherra.
og Richard Nixon fyrrum vara-
forseta, í broddi fylkingar. hef-
ur látið frá sér fara yfirlýsingu,
sem að sögn NTB er ætlað að
vega á móti hugsanlegum á-
hrifum mótmælafundarins. í yf-
irlýsingunni er hvatt til opin-
berra aðgerða. til þess að gera
vinum jafnt og óvinum fullkom-
lega Ijósan tilganginn með að-
gerðum Bandarikjamanna í Suð-
ur-Vietnam, eins og það er orð-
að.
ANDRÉS
AUGLÝSIR
NÚ er óþarfi að kaupa fötin erlendis,
því við bjóðum:
í HERRADEILD:
Vönduð erlend karlmannaföt á kr. 1.490,00,
1.690,00 og 1.990,00.
Stakir jakkar á kr. 895,00.
Blazer-jakkar (bláir m/gylltum tölum)
drengjastærðir kr. 650,00 til 750,00.
karlmannastærðir kr. 895,00.
Terylenebuxur:
drengjastærðir kr. 495,00 til 565,00.
karlmannastærðir kr. 575,00.
Nælonskyrtur (hvítar, gráar og bláar):
drengjastærðir kr. 150,00.
karlmannastærðir 180,00.
Vetrarfrakkar kr. 1.990,00.
í DÖMUDEILD:
Nælonsloppar kr. 245,00.
Vatteraðir nælon greiðslusloppar kr. 595.00.
Vatteraðar nælon nátt-treyjur kr. 295,00,
og margt fleira.
HELSINKI 29/11 — Urho Kekkonen, Finnlandsforseti,
ítrekaði í dag áætlun sína um að gera Norðurlönd að
kjarnorkuvopnalausu svæði. Jafnframt þessu leggur Finn-
landsforseti til, að Noregur og Finnland geri með sér
samning til tryggingar friði á landamærum þessara ríkja,
ef til stórveldaátaka kunni að koma.
Það var í ræðu í Helsinki í
dag, sem Kekkonen setti þessi
sjónarmið fram. Finnlandsforseti
kvað slíkan samning og þann,
er hann stingur upp á milli Nor-
egs og Finnlands, mundu minka
spennuna á norðurlandamærum
þessara ríkja og auka mögu-
leika þeirra til að halda óskertu
sjálfstæði sínu, ef til átaka
drægi með stórveldunum.
Mikilvægt skref.
— Því vil ég, sagði Kekkonen,
enn einu sinni minnast á tillögu
mína þess efnis, að Norðurlönd
verði kjamorkulaust svæði. Slík
ákvörðun væri skref í þá átt, að
tryggja alþjóðlegt öryggi og
minnka hættuna á kjarnorku-
stríði.
Svíar undrandf.
Fréttamaður NTB í Stokk-
hólmi skýrir svo frá, að þessi
tillaga Kekkonens um samning
milli Noregs og Finnlands til
þess að tryggja landamæri þess-
arra ríkja í hugsanlegum stór-
veldaátökum — hafi komið
sænskum stjómmálamönnum
mjög á óvart. Undirbúningur sé
nú hafinn að stjórnmálaviðræð-
um utanríkisráðherra Finnlands
Iðja, félag verksmiðjufólks.
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn þriðjudaginn 30. nóvember 1965,
kl. 8,30 e.h. í Lindarbæ, Lindargötu 9, húsi Dags-
brúnar og Sjómannafélagsins.
Fundarejni:
KJARAMÁLIN.
Stjómin.
og Svíþjóðar, en Svíar hafi ekk-
ert vitað um þessar áætlanir
Finnlandsforseta. Hafi þetta
enn orðið til þess að auka áhuga
manna í Stokkhólmi á heimsókn
Karjalainens, utanríkisráðherra
Finnlands, en hann er væntan-
legur til Svíþjóðar næstkomandi
þriðjudag.
Svíar hafa tekið heldur illa
í áætlanir Kekkonens um að
gera Norðurlönd kjamorkuvopna-
laust svæði, og stjórnmálafrétta-
menn í Stokkhólmi eru þeirrar
skoðunar flestir, að heldur sé ó-
sennilegt, að Finnlandsforseti
fái nokkrar undirtektir Svía eða
stuðning við hugmynd sína um
norsk-finnskan samning til trygg-
ingar landamærunum. Hins-
vegar benda opinberir embætt-
ismenn á það í Stokkhólmi, að
sögn NTB, að þetta sé mál sem
fyrst og fremst varði Finnland
og Noreg, og Svíar hafi tæpast
beinna hagsmuna að gæta í
þessu sambandi.
Bylting í
Dahomey
COTONU 29/11 — Yfirmaður
hersins í. Dahomey, Christophe
Soglo, hershöfðingi, gerði í dag
byltingu í Dahomey, rak frá
völdum forseta og forsætisráð-
herra landsins og skipaði forseta
þjóðþingsins nýjan þjóðhöfð-
ingja í landinu. Hershöfðinginn
greip með þessu fram í stjóm-
máladeilu sem sífellt hefur
harðnað síðustu dagana en á
rætur sínar að rekja til valda-
baráttu forsetans annarsvegar og
forsætisráðherrans og varafor
setans hinsvegar.
49 farast
í fléðum
BOGATA 29/11 — Að minnsta
kosti 49 menn hafa látið lifið
í Colombia síðustu tvo sólar-
hringa _af völdum skriðufalla Qg
flóða. í Caldas-héraðinu fórust
32 menn mest konur og börn,
er sjö hús hrundu. Víða hefur
verið lýst neyðarástandi j land-
A Balsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Kópavogssóknar verður hald-
inn í Kópavogskirkju eftir messu sunnudaginn 5.
desember.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Safnaðarnefndin.
8 IÐNAÐARFYRIRTÆKI TIL SÖLU
Neðangreindar verksmiðjur eru nú til sölu:
1. Nærfataefna- og prjónlesverksmiðjan hf.
2. Sokkaverksmiðjan hf.
3. Verksmiðjan Iris.
4. Verksmiðjan Herkúles hf.
5. Sjófataverksmiðjan hf.
6. Nýja skóverksmiðjan hf.
7. Verksmiðjan MINERVA.
8. Verksmiðjan Fram hf.
Fyrirliggjandi birgðir af efnivörum, að vísu mjög takmarkaðar, fylgja með í kaup-
unum. Einnig eru komnar til landsins allmiklar hráefnabirgðir tilheyrandi verk-
smiðjunum, þannig að veruleg starfræksla gæti hafizt fljótlega.
Verksmiðjurnar eru yfirleitt búnar góðum vélakosti,. enda flestar þeirra starf-
ræktar að einhverju leyti þar til fyrri hluta árs 1965. Hiá verksmiðiunum
starfaði vel þjálfað og samhæft starfslið, jafnt iðnverkafólk sem verksmiðju-
stjórnendur.
Árleg framleiðslugeta ofangreindra verksmiðja er að heildsöluverðmæti um
kr. 50.000.000,00 af samkeppnisfærum iðnaðarvörum.
Verksmiðjurnar seljast sameiginlega eða hver fyrir sig. eftir samkomulagi.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði, sem kann að berast, eða hafna þeim
Ollum. — Nánari upplýsingar gefur:
Magnús Víglunésson,
Bræðraborgarstíg 7, Reykjavík, frá kl. 9 til 12 f.h. og á öðrum tfmum eftir sam-
komulagi. Símar: 22160 og 13057.
1