Þjóðviljinn - 30.11.1965, Síða 12
Tékkneskt handknattleikslið kemur
i
. í dag kom hingað til lands
ei'tt fremsta handknattleikslið
Tékka og nefnist það fullu nafni
T. J. Banik 1. maí Karviná, en
hefur hlotið munntamara heiti
hér á iandi og er kallað blátt á-
fram Karviná-liðið.
Þetta harðsnúna lið keppir
hér á næstu dögum við íslenzk
úrvalslið, — verður fyrsti leikur
þess að Hálogalandi næsta
fimmtudag&kvöld og keppir þá
við Reykjavíkurmeistarana síðan
í fyrra, — KR og hefst leikur-
inn kl. 8,15.
Næsti leikur verður næsta
laugardag og verður fyrsti kapp-
leikurinn í hinni nýju íþrótta-
höll í Laugardalnum og hefst sá
leikur klukkan 16 um daginn.
Þeir keppa þá við úrvalslið
frá HKRR og má búast við, að
þessi vígsluleikur í nýja íþrótta-
húsinu verði hörkuspennandi.
Þriðji leikurinn verður ásama
stað daginn eftir, sunnudag, og
hef&t kl. 16 og verður þá keppt
við íslandsmeistarana FH.
Þá verður fjórði leikurinn á
þriðjudaginn 7. desember og
hefst hann kl. 8,15 um kvöldið
og keppa þá Tékkamir við úrval
landsliðsnefndar.
Síðasti leikurinn verður svo
9. desember um kvöldið og kepp-
■
Hér á myndinni eru tékknesku handknattleikske ppendurnir í vinnuklæðum sínum, en þeir eru
allir námumenn og tæknifræðingar í námumann abænum Karviná. Fremri röð talið frá vinstri.
Konrád, Pospech, Kudlák, Ciner, Sepánski, Kahn og Janik. Efri röð frá vintsri. Hadrava, Kanik,
Novák, Brúna, Bielecký, Klnmoík, Kon,ecný og Spácil.
ir þá liðið við Fram, — en þeir I Tíu manna móttökunefnd hef-1 Þ. Sigurðsson. Tékkarnir munu
bjóða tékkneska liðinu hingað til ur verið skipuð á vegum Fram búa á Hótel Sögu á meðan þeir
lands. 1 og er formaður hennar Hannes , dveljast hér á landi.
um nusnæoismaiin
Félagsmálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson mælti fyrir frum-
varpi, um Húsnæðismálastofn-
unina, en síðan tók Einar Ol-
geirsson til máls. I upphafi ræðu
sinnar benti hann á að hér hefði
óvenjumörgum verið fært að
eignast íbúð vegna verðbólgunn-
ar og vinnuþrældómsins. Fólk
hefði lagt upp í íbúðabyggingar
með tvær hendur tómar, slegið
fyrir fyrstu útborgun, en síðan
treyst á sláttumöguleikana. Víxl-
arnir lækkuðu síðan vegna
verðbólgunnar, en kaupið hækk-
aði í krónutölu. — En það er
ekki hægt að setja vísitölukvöð
á þessi lán ein, samtímis verða
að koma hliðarráðstafanir til
dæmis lækkun vaxtanna og
lenging lánstímans. Og það væri
rangt að verzlunarauðvaldið
losnaði yið vísitölukvöðina um
leið og hinn almenni húsbyggj-
andi yrði að standa undir henni.
Vék ræðumaður síðan að þeim
fúlgum, sem bankarnir hafa
Hægrá handar
Frumvarpið um hægri handar
umferð var til 1. umræðu í
neðri deild í gær og mælti dóms-
málaráðherra fyrir því. Hann
kvað veigamestu ástæðuna fýrir
flutningi frumvarpsins þá, að
samskipti fslendinga við aðrar
þjóðir færu vaxandi, og það
færi í vöxt að íslendingar leigðu
sér bíla og ækju erlendis þar
sem hægri handar akstur er. Þá
kvað hann ætlunina að leggja
sérstakan skatt á bifreiðaeigend-
ur vegna kostnaðar við breyt-
inguna, sem áætlaður væri um
50 miljónir króna, þar af kostn-
aður við breytingar á almenn-
ingsbifreiðum 36 miljónir króna.
Birgir Finnsson tók til máls
og lýsti ánægju sinni með frum-
varpið en síðan var málinu vís-
að til nefndar og 2. umræðu.
lánað til verzlunarinnar og benti
á, að útlánaaukningin til hennar
hefði verið svipuð árið 1963 og
til iðnaðar og sjávarútvegs til
samans. Og lánin til verzlunar-
innar væru að líkíndum mest
megnis rekstrarlán, þ.e. að þau
væru til styttri tíma en svo að
fyrirhuguð lagasetning um verð-
tryggingu fjárskuldbindinga næði
til þeirra. Þannig ættu, þrátt
fyrir verðtryggingu fjárskuld-
bindinga og verðtryggingu hús-
byggingarlána, braskarar áfram
að maka krókinn á verðbólgunni.
Það væri þó sannarlega ekki
meiri ástæða til þess að auka
enn við sérréttindi þeirra.
Hér er um tvennt að ræða til
athugunar í sambandi við vísi-
tölukvöðina. Annars vegar að
afnema vísitöluálagið' á húsnæð-
islánin þannig að allir gætu
jafnt grætt á verðbólgunni og
hins vegar að setja ákvæði um
hámark vísitölugreiðslunnar,
þannig að hún fari aldrei fram
úr tveim til þrem af hundraði
á ári. En ef það væri nú ætlun-
in að stöðva verðbólguna væri
ekki ástæða til að grípa til þess-
arra ráðstafana. Þá mætti vísi-
tölutryggja þessi lán eins og
önnur, en þá yrði líka að grípa
til rótækari ráðstafana. Fyrst
af öllu yrði að afnema frjálsa
verðlagningu og í öðru lagi að
setja á sérstakan verðhækkunar-
skatt.
Þá beindi Einar því til þeirrar
nefndar, sem málið fær til at-
hugunar að athuga þetta at-
riði með vísitöluálagið, en síðan
vék hann að öðru atriðinu í
frumvarpinu, en það er afnám
ákvæðanna um hámarkshúsa-
leigu. Þarna væri ekki rétt að
málum unnið, þó að gömlu lög-
in væru úrelt. Hér ætti að setja
ný ákvæði inn í frumvarpið um
hámarkshúsaleigu. — Ef ætlun-
in er að ráða niöurlögum verð-
bólguvandans verður að hafa
eftirlit með húsaleigunni, sagði
Einar. Til dæmis með því að
stofna húsaleigumiðstöð, sem
hafi eftirlit með leigunni. En
það kæmi einnig til greina að
hið opiribera lét byggja til dæm-
is 500 leiguíbúðir, sem gæti orð-
ið til að gjörbreyta ástandinu.
Einar vék síðan að sexföldun
fasteignamatsins og sagði að
hún kæmi niður á þeim, sem
lögin ættu að aðstoða við að
eignast fasteign. En væri ekki
rétt að láta skattinn ná til þeirra
auðmanna, sem byggðu miljóna-
hallir til dæmis með því að
taka 1% af brunabótamat&verði
árlega af verzlunarhöllunum?
Loks benti þingmaður á að
frumvarpið væri knúið fram að
meginefni af verkalýðssamtök-
unum, alþingi væri aðeins af-
greiðslustofnun. Hér hefði það
brugðizt hlutverki sínu, því það
væri í verkahring þess að leiða
slík mál til lykta.
Hannibal Valdimarsson sagði
að ekki væri nægilega undirbú-
in og hugsuð sú ákvörðun að
sex-falda fasteignamatið. Væri
líklegt að &ú tekjulind væri ekki
einasta hugsuð vegna húsnæðis-
lánanna heldur einnig til að
bæta upp á bágborna afkomu
ríkissjóðsins.
Vék hann síðan að vísitölu-
kvöðinni á húsnæðismálastjórn-
arlánin og sagði, að með júní-
samkomulaginu hefði átt að
binda endi á verðbólguvöxtinn
með sameiginlegu átaki. En þeg-
ar sú forsenda brast, hefði átt
að breyta ákVæðinu um vísitölu-
trygginguna. Kvað ræðumaður
því óeðlilegt að hafa lánin með
vísitölukvöð á tímum hraðvax-
andi verðbólgu.
Ræðumaður benti síðan á að
fram hafa komið á alþingi ár
eftir ár úrbótatillögur í húsnæð-
ismálunum, sem alþingi hefði
síðan þaggað niður. Síðan hefði
verkalýðshreyfingin knúið þessar
úrbótatillögur í gegn með samn-
ingum.
Þá innti Hannibal félagsmála-
ráðherra eftir því hvort nokkuð
hefði verið gert til að gera fólki
auðveldara að gera upp gömul
hús, og spurði hvort uppi væri
hugmynd um lán til slíkra end-
urbóta.
Ingi K. Helgason benti á að
verðbréf vísitölútryggt hefði á
6 ára tímabili tvöfaldazt að
krónutölu. Vísitöluuppbótin á 10
þúsund króna verðbréfi hefði
1961 verið 1965 kr., 1962 1388
kr., 1963 813,50 kr., 1964 2312,10
kr., 1965 2254,30 kr. og 1966 væri
áætlað að vísitöluuppbótin yrði
samtals komin upp í 10.693,60.
Eða á þessu tímabili hefði lán-
takandi greitt höfuðstólinn tvisv-
ar. En sá, sem fengið hefði ó-
verðtryggt lán hefði aðeins þurft
að greiða vextina. En þessi sam-
anburður sýndi einnig rýrnun
peninganna og mætti spyrja
hvað hefði átt sér stað, ef á
þessu sama tímabili hefði ekki
átt sér stað veruleg verðhækkun
útflutningsafurða og ennfremur
hvernig ríkisstjórnin hefði á
þessum tíma farið að því að
eyða arðinum af útflutningnum
í verðbólguhítina. Þetta dæmi
væri spegilmynd af stefnu ríkis-
stjórnarinnar í efnahagsmálum.
Félagsmálaráðherra tók að
lokum til máls og kvað ekki
unnt að veita lán til að gera
upp eldri hús. Að lokum lagði
hann áherzlu á að frumvarpið
þyrfti að fá skjóta afgreiðslu,
þar eð bað þyrfti að koma til
framkvæmda strax eftir áramót-
in.
Umræðunni varð lokið én at-
kvæðagreiðslu frestað.
Msnkur gengur
aftur á alþingi
Frumvarpið um loðdýrarækt
er nú aftur komið fram á al-
þingi, en sem kunnugt er kom
það til umræðu í fyrra í neðri
deild og var afgreitt þaðan en
hlaut ekki afgreiðslu efri deild-
ar. Er frumvarpið nú flutt með
þeim breytingartillögum, sem
neðri deild samþykkti. Flutnings-
menf nú eru Jónas G. Rafnar,
Ingvar Gíslason, Jónas Péturs-
son, Geir Gunnarsson og Pétur
Sigurðsson.
Þriðjudagur 30. nóvember 1965 — 30. árgangur — 272. tölublað.
Brutust á bílum
yfir Möðrudals-
öræfi um helgina
HALLORMSSTAÐ 29/11 — Um helgina komu tveir bíl-
ar norðan yfir Möðrudalsöræfi úr Mývatnssveit hingað
austur á Hérað og voru þeir hvor um sig með 7 tonn af
vörum. Ferðin var alltorsótt' en bifreiðarstjóramir, Hrafn
Sveinbjarnarson og Ingimar Þórðarson Egilsstöðum, eru
báðir þaulvanir og harðfengir ferðamenn.
Hrafn fór héðan úr Hallorms-
stað á þriðjudaginn í fyrri viku
norður í Reykjahlíg en þaðan
héldu þeir Ingimar aftur til
baka á fimmtudag. Hafði Hrafn
frétt til ferða Ingimars sem var
að koma að sunnan á stórum
flutningabíl og beið eftir hon-
um í Reykjahlíð, en sjálfur var
Hrafn á stórum vörubíl.
Ferðin byrjaði ekki vel því
í Námaskarði festu þeir félagar
bílana í brennisteinsleðju og
urðu að fá ýtu til þess að ná
þeim upp úr og fór mest allur
dagurinn í það Höfðu þeir far-
ið út af veginum vegna ófærð-
ar.
Frá Námaskarði var ágæt
færð í Möðrudal og sæmijeg
færð þaðan að eystri fjallgarði
Möðrudalsöræfa en úr því fór
að versna til mikilla muna.
Varð kunnugleiki Ingmars á
þessum slóðrim þeim til bjargar
en þeir urðu að fara út af veg-
inum og þræða hávaða en í öll-
um lægðum urðu þeir að moka
frá bílunum. Fór Ingimar á
undan með stóra flutningabíl-
inn og renndi honum í skafl-
ana þar til hann sat fastur .en
síðan mokuðu þeir frá honum.
Þegar þeir félagar voru komn.
ir langleiðina ofan að Skjöld-
ólfsstöðum á Jökuldal brotnaði
öxullinn í bíl Ingimars. Voru
þeir þá staddir á svonefndri
Lönguhlíð Héldu þeir þá áfram
a bíl Hrafns e^ hann fór fljót-
Laus hverfi
Melar
Tjarnargata
Óðinsgata
Njálsgata
Kleppsvegur
Sogamýri
Þjóðviljinn,
sími 17500
lega út af veginum. Gengu þeir
þá niður að Gilsá og kcanu
þangað á föstudagskvöldið.
Á laugarc|ag fengu þeir bíl
hjá Vegagerðinni sér til aðstoð-
ar. Er hann með drifi á öllum
hjólum og ýtutönn framan á sér.
Bílstjóri á honum er Jón Egils-
Framhald á 9. síðu.
ÆFH
Næstkomandi fimmtudag kl. 9
e.h. flytur Bjarni Jónsson list-
málari erindi um málaralist í
Góðtemplarahúsinu.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•••
Faðir stal
borni sínu
Sl. sunnudagsnótt gerð-
ist sá atburður hér í R-
vxk, að faðir stal tveggja
ára gömlu barni sínu frá
fráskilinnj konu sinni.
Aðdragandi þessa máls
er sá að hjónin eru skilin
fyrir nokkru og hefur
móðirin börn þeirra tvö.
Maðurinn sem dvelur ut-
anþæjar kom í bæinn um
helgina og fór að skemmta
sér á laugardagskvöldið.
Hélt hann síðan í heim-
sókn til konu sinnar fyrr- ■
verandi en hún tók honum
miður vel og greip hann :
bá yngra barnið — 2ja
ára strák er bar nafn föð-
ur hans — upp úr rúminu
og hljóp út í kuldann og
frostið. Mun hann hafa
ætlað með það til systur
sinnar er býr þar skammt
frá. Móðirin hringdi hins
vegar á lögregluna er kom
skjótt á vettvang og náði
manninum, tók af honum
bamið og fékk móðiinmv'
aftur í hendur en flutti
manninn í Síðumúla.
Krístim Gunnarsson forstjóri
BæjarútgerB&r Haharfjarðar
A fundi útgerðarráðs Bæjar-
útgerðar Hafnarfjarðar í gær
lagði íhaldið til að Kristinm
Gunnarsson yrði ráðinn fram-
kvæmdastjóri, en eins og Þjóð-
viljinn hefur áður skýrt frá,
sagði Helgi G. Þórðarson fram-
kvæmdastjóri upp starfi sínu frá
og með 1. desember. Á sínum
tíma var auglýst laust starf
framkvæmdastjóra bæjarútgerð-
arinnar og óskað eftir umsókn-
um fyrir 15. nóvember s.l., en
engin umsókn barst.
Starf framkvæmdastjóra Bæj-
arútgerðar Hafnarfjarðar erekki
það fyrsta þar syðra sem erfið-
lega gengur að róða mann í. t.d.
er enn ekki búið að ráða í bæj-
arritarastarfið, þó að leitað hafi
verið að manni í það vítt og
hreitt um landið. Kristinn Gunn-
arsson mun hafa verið mjög
tregur að taka að sér starf
framkvæmdastjóra bæjarútgerð-
arinnar í Hafnarfirði, en ekki
talið annað ráðlegt en láta til
leiðast vegna samstarfs íhalds og
krata í bæjarstjórninni.
Fundur um
verkalýðsmál
Verkalýðsmálanefnd Sósi-
alistafélags Reykjavíkur 1
heldur fund með áhugs- ■
mönnum félagsins um
verkalýðsmál í kvöld kl
20,30 í Tjarnargötu 20.
<