Þjóðviljinn - 20.02.1966, Page 2
1
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 20. febrúar 1966
Jéhannes Ásgeirsson, verkamaður
75 ára í dag
■
Jóhannes Ásgeirsson, verka-
maður er sjötíu og fimm ára
i dag.
Margir Reykvíkingar kannast
við þennan aldna heiðursmann,
og þrátt fyrir hrjúft yfírbragð
og hvasst orðaskak á stundum,
finna margir hlýjuna, sem und-
ir býr, og fáir menn hafa
reynzt raunbetri í viðkynningu
eftir efnum og ástæðum.
Hann átti um langt skeið
heima á Nönnugötu 10 hér í
bæ, og þá átti hann heimili á
Kárastígnum og eignaðist þar
marga granna að vinum.
- Hann heldur upp á 26 ára
starfsafmæli hjá hreinsunar-
deild borgarinnar í júní í vor
og hefur unnið þar oft á næt-
urnar, — að deginum hefur
hann verið innheimtumaður, —
fyrst lengi vel hjá Olíuverzlun
íslands hf., og frá olíunni fór
hann yfir á Þjóðviljann og
þekkir svona sitt af hverju í
viðskiptaheiminum.
Jóhannes segist nota stig-
bundna innheimfcuaðferð. I
fyrstu skiptin kemur hann á
vettvang Ijúfur eins og lamb og
fær þá vejulega borgað úrtölu-
laust.
Þetta er ekki alltaf svona
auðvelt og það vantar stund-
um peninga í kassa, — þegar
hann kemur í fjórða skipti til
sama aðilans með reikninginn,
’— þá fer að hvessa svona • til
málamynda og slæðist þá svona
ein og ein meinhæðni með og
nær hámarki í mikilli dembu,
þegar heimsóknirnar fylla tug-
inn.
Þeir sem reynsluna hafa í
þessum efnum, segjast sjaldan
hafa kynnzt annari eins orð-
gnótt og orðkyngi og eru ekki
samir menn á eftir.
Stundum beitir Jóhannes
setuverkfalli á skrifstofunum
og situr þá þungbrýnn og þög-
ull tímunum saman og bíður
eftir forstjóranum, — það er
alvarlegasta stigið í aðgerðun-
um. En guð hjálpi þeim for-
stjóra, sem fær yfir sig það
samtvinnaða safn af orðgnótt,
sem hefur hlaðizt upp í kluíku-
tíma biðum, og þar er meining-
in sögð skýrt og skorinort og
ekkert skorið við nögl.
En öllum þykir vænt um
gamla manninn og virða
kannski hreinskiptni hans og
finna aldrei falskan tón í orði
og æði þessa aldna heiðurs-
manns.
Jóhannes er upprunninn úr
Dölum vestur og er fæddur að
Saursstöðum f Hauksdal, —
hét móðir hans Magdalena Sig-
urðardóttir og faðir hans hét
Ásgeir Ámason, Ámasonar
bónda að Njörva í Hauksdal.
Hann hóf snemma að vinna
bakl brotnu og engan hefur
Jóhannes svikið með vinnu
sinni og þótti hörkuduglegur til
vinnu á yngri árum og ósér-
hlífinn.
Hann var vinnumaður á ýms-
um bæjum 1 Suður-Dölum og
flutti hingað til Reykjavíkur
árið 1922 og sagðist ekki hafa
þolað við í sveitinni vegna
heysýki.
Jóhannes er Ijóðleskur maður
og kann mikið af ljóðum og
beitir fyrir sig vísuorðum í
tíma og ótíma og kannski 'er
hann viðkvæmari öðrum mönn-
um í lund.
Slíkir menn bera oft hrjúft
yfirbragð og bregða fyrir sig
meinhæðni, — glampi augn-
anna er líka oft hlýrri í við-
móti.
Jóhannes kvæntist Þorbjörgu
Friðjónsdóttur frá Þrándargili í
Laxárdal, — stofnsettu þau
heimiU hér í Reykjavík árið
1923 og eignuðust þau fjórar
dætur og einn son og eru þrjár
dætur þeirra á lífi. Fyrir þrem
árum missti Jóhannes konu
sína, — hafði sambúð þeirra
verið farsæl og raungóð.
Nú býr Jóhannes að Álfta-
mýri 9 hér í borg. — gm,
Ágúst Þorgrímur Guðmundsson
Fæddur 16. ágúst 1892 — Dáinn 6. februar 1966.
Hinn 12. febrúar sl. var Á-
gúst Þorgrímur Guðmundsson
jarðsunginn frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum.
Þorgrímur, eins og hann var
j^JJ.aður í daglegu tali, var
fæddur í Háamúla í Fljóts-
hlíð og ólst þar upp við venju-
leg sveitarstörf og sjósókn, eins
og , tíðkaðist á þeim árum,
Minnumst við þess, að hann
sagði okkur frá göngu sinni
austan frá Háamúla og alla leið
suður í Garð á Garðskaga, til
sjóróðra, aðeins fjórtán ára
að aldri, um hávetur í iilri
færð og allar ár óbrúaðar á
þeim tímum. Síðan stundaði
hann vertíðir frá Þorlákshöfn
og Vestmannaeyjum ásamt
sveitarstörfum. Einnig minn-
umst við þess, að hann sagði
okkur frá sjávarháska sem
hann lenti í tvívegis. í annað
skiptið er hann var í flutn-
ingum milli skips og Eyja, að
báturinn sem hann var á sökk.
Hann náði taki á tunnu er var
með í flutningunum. Missti hann
fljótt takið á henni, en náði í
árarbút og gat fleytt sér á hon-
um, þar til björgun barst frá
öðrum bát. í hitt skiptið var
það þegar hann tók út með
dragnótartógi, og bjargaðist
hann einnig þá, þó ósyndur
væri. Okkur kom því ekki á
óvart, þegar hann var heiðr-
aður á Sjómannadaginn í Vest-
mannaeyjum fyrir nokkrum ár-
um.
Árið 1917 kvæntist Þorgrím-
ur sinni ástkæru eiginkonu,
Guðnýju Pálínu Pálsdóttur,
sem fædd var að Hlíðarenda í
Fljótshlíð, en ólst upp í Orrrjs-
koti í sömu sveit. Þau hjónin
hófu búskap að Ormsvelli i
Hvolhreppi á lítilii og rýrri
jörð. Þau undu ekki lengi hag
sínum þar, en fluttu til Vest-
mannaeyja árið 1922 og áttu
Matráðskona
Matráðskona óskast að Farsóttahúsinu í Reykja-
vík. Upplýsingar gefur forstöðukonan í síma
14015.
SJÚKRAHÚSNEFND REYKJAVÍKUR.
TÍLKYNN/NG
frá Vörubílastöð Hafnarfjarðar
Stöðin verður framvegis opin frá kl. 7,30
til 23 alla virka daga. Sunnudaga kl. 9—12
og 13,30 — 19. Benzín og olíur afgreiddar
á sama tíma.
Ennfremur tilkynnist atvinnurekendum á
vinnusvæði félagsins að þeim er óheimilt
að taka í vinnu bifreiðar sem ekki eru
merktar með merki félagsins.
STJÓRNIN.
þar heima upp frá því. Þor-
grímur missti eiginkonu sína
19. júlí 1959 í Landsspítalan-
um. Hann beið í Reykjavík við
sjúkrabeð konu sinnar þar til
yfir lauk, og flutti jarðneskar
leifar hennar með sér heim til
Vestmannaeyj a og bjó henni
reit við hlið dóttur þeirra,
Sveinbjargar, sem dó 20. ágúst
1949, aðeins tvítug að aldri, og
var hún þeim hjónum mikill
hamdauði. Minnumst við hvað
hann, þrátt fyrir hnignandi
heilsu, lagði mikla rækt við
þennan reit og bjó hann vel út
með aðstoð sona sinna.
Börn þeirra hjóna voru 14
alls. Tvö þeirra létust nýfædd.
Á lífi eru: Alfreð, vélstjóri,
búsettur í Vestmannaeyjum,
Laufey, húsfrú í Kópavogi, Sig-
urður bóndi_, að Borgarkoti á
Skeiðum, Ágústa búsett í
Reykjavík, Þuríður, húsfrú í
Reykjavík, Sigríður húsfrú í
Keflavík, Hulda, húsfrú í
Reykjavík, Valgerður, húsfrú
í Kópavogi, Einar, bifreiðar-
stjóri, búsettur í Vestmanna-
eyjum, Svanhvít, búsett í
Reykjavík og yngstur er Hall
grímur, bifreiðarstjóri í Vest-
mannaeyjum. Þrjú barnanna
ólust upp að ‘heiman. Eitt í
Ormskoti í Fljótshlíð, annað
að Háamúla í sömu sveit og
hið þriðja að Gaddstöðum á
Rangárvöllum.
Löngum, starfsömum og
gifturíkum æviferli er lokið.
Sjómannsskörungurinn aldni er
nú lagztur til hinztu hvíldar
við hlið ástvina sinna í reitinn
sem honum var svo kær.
Við getum ekki horft á eftir
honum yfir landamæri lífs og
dauða án þess að minnast hans
og þakka honum fyrir allt það,
sem hann hefur fyrir okkur
gert, börn sín og barnaböm.
Á heimili þeirra hjóna var
ávallt yfrið nóg hjartarúm. Og
gestrisnara heimili þekktist
vart á þeim ámm. í hugum
okkír vakir minning liðinna
samverustunda, sveipuð þeirri
heiðríkju sem ávallt einkenndi
allt þitt líf, kæri tengdafaðir.
Viljum við kveðja þig við
jarðnesk leiðarlok með þessum
orðum:
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Tengdasynir
Sundmót KR
2. ntarz n.k.
Sundmót sunddeildar K.R.
verður haldið í Sundhöll
Reykjavikur miðvikudaginn 2.
marz n.k.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
100 m. bringusundi karla um
Sindrabikarinrx, 100 m. skrið-
sundi kvenna, 100 m. skriðsundi
karla, 100 m. skriðsundi kvenna
um Flugfreyjubikarinn, 200 m.
bringusundi kvenna, 50 m. flug-
sundi kvenna 100 m skriðsundi
drengja, f. 1950 og síðar, 100
m. bringusund sveina, f. 1952
og síðar, 50 m. bringusund
telpna, f. 1952 og síðar, 4x50
m. skriðsund karla.
AFREKSBIKAR Í.S.Í. vinnst
fyrir bezta afrek mótsins sam-
kvæmt stigatöflu.
Tilkynningar um þátttöku
berist til Erlings Þ. Jóhanns-
sonar Sundlaug Vesturbæjar f
síðasta lagi þann 24. febrúar.
FRAMLEIÐUM
Aklæði
4 allaT tegundir bfla
OTIIR
Hringbraut 121.
Símj 10659.
BOK
VIÐ
MORGUTSrSÓL
SMÁSÖGUR
EFTIR
STEFÁN JÓNSSON
RITHÖFUND
Almenna bókafélagiÖ
Kópavogsbúar!
Sunnudaginn 20. þ.m. opnaég
brauðbúð
að Auðbrekku 51 — Sími 4 15 39.
Gunnar Jóhannesson
Rafha þvottapottur
100 lítra, og Fisherþvottavél, til sölu, með
tækifærisverði. Uppl. í síma 18736.
FRÁ ENGLANDI
Nýjar FERMINGAR-
og VORKÁPUR
teknar fram á morgun.
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði.
FRÁ HOLLANDI
Ný scnding af svörtum
VETRARKÁPUM og
KULDAHÚFUM
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði.
Auglýsið i Þjóðviljunum