Þjóðviljinn - 20.02.1966, Side 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 20. febrúar 1966
Dtgefandi:
Ritstjórar:
Sameiningarflokirur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. —
Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurðux V. Friðþjófsson.
Auglýsingastjóri: Þorvaldur Jóhannesson,
Ritstjórn. afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 llnur). Askriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Reimleikar i Aiþýðubiaðinu
Qetur ríkisstjórn íslands tekið sjálfstæða afstöðu
í utanríkismálum? Eða á íslenzka lýðveldið að
láta reka á reiðanum fyrir hvérjum gusti frá ref-
skák stórveldanna úti í heimi, láta segja sér fyrir
verkum, láta Bandaríkin, Bretland eða Vestur-
Þýzkaland ákveða stefnuna fyrir sig í reyndinni,
taka örlagaríkustu ákvarðanir fyrir íslendinga? Eða
á ríkisstjórn íslands að freista þess að leggja sjálf-
stætt mat á gang alþjóðamála, hugsa og ákveða
stöðu íslands þannig, að sem bezt sé í haginn búið
fyrir komandi kynslóðir íslendinga, fyrir frjálst og
fullvalda ísland?
|>etta virðist vefjast fyrir núverandi ríkisstjórn og
stjórnarflokkunum, Alþýðuflokknum og Sjálf-
stæðisflokknum. Alkunnugt er hve langt þeir hafa
gengið í undirgefni við Bandaríkin,og enn hefur
ekki verið afmáður svikasamningur þeirra um land-
helgina, þar sem þeir gáfu Bretlandi og Vestur-
Þýzkalandi heimild til að láta erlendan dómstól
skera úr um lögmæti allrar frekari útfærslu ís-
lenzkrar landhelgi. En tilefni þessara spurninga í
dag er draugagangur í blaði utanríkisráðherrans.
í forystugrein Alþýðublaðsins „Mál kemur aftur"
af vakinn upp draugur sem lét allmikið að sér
kveða fyrir nokkrum árum, er stjórnarflokkarnir
hugðust þvinga fram inngöngu íslands í Efnahags-
bandalag Evrópu. Nú segir málgagn utanríkisráð-
herrans að vel gæti það orðið að Bretar gengju í
bandalagið á þessu ári. Svo kæmi röðin að smáríkj-
unum, skilst manni. „Og þá verður Island ekki
undanskilið”, segir blaðið.
gjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hugð-
ust keyra Island inn í Efnahagsbandalagið um
árið jafnskjótt og Bretland hefði gerzt aðili að því.
Engin tilraun var gerð af stjórnarflokkanna hálfu
að skýra fyrir þjóðinni hve örlagarík þátttaka ís-
lands í bandalaginu væri sjálfstæði íslands, frá
þessum flokkum fengu landsmenn ekkert nema hrá-
an áróður og útmálun á þeim skelfingum sem ís-
lendinga biðu ef þeir yrðu „utan við". Þar urðu aðr-
ir að koma til og skýra fyrir þjóðinni hver hætta
var á ferðum, að Island hefði orðið eins og valda-
laus hreppur í þessari ríkjasamsteypu, að land-
helgin og auðlindir íslands hefðu verið ofurseldar
fiskiflotum og iðnaði hinna stóru ríkja Vestur-Evr-
ópu, að íplenzk stjórnarvöld hefðu að verulegu leyti
misst valdið yfir íslenzkum málum úr höndum sér.
Þegar hindrað var að Bretland kæmist í bandalagið
kipptu íslenzku bandalaasmennirnir að sér hend-
inni og höfðu jafnvel við orð að þeim hefði ekki
verið alvara.
l\ú gengur draugurinn aftur í Alþýðublaðinu. Hug-
myndin um inngöngu Breta er sjálfsagt enn
mjög óljós og óviss. En Alþýðublaðið lýsir strax
yfir vilja sínum oa þá sennilega ríkisstjórnarinnar
til að elta Breta. Sjálfsagt upphefst bráðum gam-
alkunnur áróður um hætturnar ef ísland lendi „ut-
an við”, þá sé nær að farga efnahagslegu sjálfstæði
^andsins. Menn og flokkar sem eru þetta viðkvæmir
fyrir gusti erlendis frá, ættu sízí að stjórna lanai
~a þjóð. Og afturgangan um inngöngu íslands í
"'nahagsbandalagið verður máttlaus slæðingur. - s.
„Kosmos“ 109 fór
á braut í gær
MOSKVU 19/2 — Gervitungl
af gerðinni „Kosmos“, það 109.
í röðinni, var sent á braut frá
Sovétríkjunum í dag. „Kosmos“-
tunglunum hefur verið skotið á
loft með svo til viku millibili
síðustu tvö árin og munu flest
þeirra hafa verið tekin niður
til jarðar aftur.
Miðstjórnin á
fundi í Moskvu
MOSKVU 19/2 — Miðstjórn
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna' kom saman á fund í
Moskvu í dag. Aðalmálið á dag-
skrá er hin nýja fimm ára á-
ætlun, en einnig verður undir-
búið 23. flokksþingið sem hefj-
ast á 29. marz.
Þriðja sýningin í
Lindarbæ fyrir SR
og Dagsbrún
Fimmtuddaginn 24. febrúar kl. j
20.30, verður leiksýning í Lind- ;
arbæ fyrir meðlimi verkalýðsfé-
laga á vegum Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar og Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Sýnd-
ir verða einþáttungamir Hrólf-
ur og Á rúmsió.
Þetta er þriðja sýning á þess-
um einþáttungum á vegum fé-
lagsanna, og seldist upp á syip-
stundu á báðar fyrri sýningam-
ar. .
Aðgöngumiðar verða seldir á
skrifstofu Dagsbrúnar frá og
með morgundeginum (mánud.).
Verð aðgöngumiða er kr. 75.00. !
Verkamannafél. Dagsbrún,
Sjómannafél. Reykjavíkur.
Framhald af 1. síðu.
bréf um málið 14. þm. og til-
kynnti lokun þann 18. Var skuld
bæjarsjóðs við rafveituna þá
komin upp í 499.317,20 krónur.
Lagði rafveitustjóri bréfið fram
á fundi rafveitunefndar sama
dag, 14. febrúar, og var efnis-
legt innihald þess bókað í fund-
argerðarbók^ nefndarinnar og
orðrétt niðurlag þess um lokun-
ina. Gerði rafveitunefnd engan
fyrirvara um lokunartímanij á
þessum fundi eins og hún hafði
gert á fundinum 13. desember.
Krafðist rafveitustjóri þess í
bréfi sínu til bæjarstjóra að bæj-
arsjóður greiddi rafveitunni a.
m.k. 350 þúsund krónur upp í
skuld sína til þess að rafveitan
gæti staðið í skilum við Lands-
bankann vegna ábyrgðar í sam-
bandi við kaup á fyrrgreindum
jarðstreng.
Mál þetta sem hér hefur verið
rakið er ágætt dæmi um fjár-
málastjórn núverandi bæjar-
stjórnarmeirihluta í Hafnarfirði,
en eins og kunnugt er jukust
umsamdar skuldir bæjarsjóðs
Hafnarfjarðar á sl. ári um 50
miljónir kr. auk lausaskulda
eins og við rafveituna.
Ritvélar
Framhald af 12. síðu.
og hefur viðgerðameistari fyrir-
tækisins Hannes Arnórsson und-
anfarið dvalizt á ftalíu til að
læra viðhald og viðgerðir á hon-
um og hinum nýju vélunum, því
umboðið er skyldugt að veita
fullkomna þjónustu og ársá-
byrgð er á öllum vélunum.
Kassinn hélt Sveini!
Forstjóri Norðurlandadeildar
Olivetti, dr. Podkrajsek og Ragn-
ar Borg forstjóri umboðsins
kynntu vélarnar og til að sýna
fram á, hve sterkt væri í þeim
var m.a. plastkassinn tekinn of-
an af og blaðamönnum boðið að
stíga á með öllum sínum þunga.
Varð til þess Ijósmyndari JVIbl.,
þéttur á velli, og hélt kassinn
honum.
HEIMILISRAFSTÖÐVAR
Ptsf$
6 kw rafstöðvarnar
eru hentugasta stærðin fyrir venjuleg sveitaheimili. Verðið er
um kr. 60.000,00. — Raforkusjóðslán fyrir þessum stöðvum
er kr. 52.000,00 til tíu ára og afborgunarlaust fyrstu tvö árin,
en síðan jafnar árlegar afborganir. — Getum afgreitt þessar
stöðvar í maímánuði, ef pantað er strax.
Einnig eru fyrirliggjandi IV2, 3 V2 og 11 KW rafstöðvar, og
aðrar stærðir /útvegaðar með stuttum fyrirvara.
S. Stefánsson & Co. h/f
Garðastræti 6 — Sími 15-5-76 — Pósthólf 1006.
v Allt á sama stað
ÞAÐ MÁ ENGU SKEIKA HJÁ KAPP-
AKSTURSMANNINUM OG
\
því treystir
hann bezt
CHAMPION
kertum
jjwdiii MMi '■m—" —- *
Aflið eykst. Ræsing verður auðveldari.
10% eldsneytissparnaður. Kraftkveikjuneista-
oddar erú úr Nickel — Alloy, sem endast mun
lengur.
Egill Vilhiálmsson h/f
Laugavegi 118, sími 22240.
GEYMSLUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
, *
Geymsluhúsnæði um 360 fermetrar til leigu í Dvergshúsinu við
Grandaveg. Leigutími til 15. júlí n.k.
Bœiarútgerð Reykiavíkur
Sími 24345.
I