Þjóðviljinn - 20.02.1966, Síða 5
Suxmudagur 20. febrúar 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA g
Til vinstri: tJr „Fando og Lis“ (Arnar Jón;sson og Margrét Guðmundsdóttir). Til hægri: „Atnalíu"
(Arnar Jónsson og Kristín Magnús),
GRÍMA:
Fando og Lis
eftir FERNANDO ARRABAL
Amalía
eftir ODD BJÖRNSSON
LeikstjQri: Gísli Alfreðsson
Það hefur dregizt allt of
lengi úr hömlu af ýmsum á-
staeðum að geta að einhverju
frumsýningar tilraunaleikhúss-
ins Grímu á tveimur nýtízkum
verkum, og á sú sýning þó tví-
mselalaust heiður skilinn; að
þessu sinni sem oftar þurfa
hinir ungu framsæknu leikhús-
menn engan kinnroða að bera
fyrir framlag sitt til þróunar
og þroska íslenzkrár leiklistar,
dugnag sinn og áræði. Félagið
reynist trútt ætlan sinni og
stefnu, það flytur fyrst ís-
lenzkra leikhúsa verk eftir
Fernando Arrabal, skáldið
spænska sem flýr harðstjórn
og fasisma síns marghrjáða,
sögufræga föðurlands, sezt að
í París og ritar á frönsku, og
hefur getið sér gott orð víða
um lönd þótt ungur sé að ár-
um. Og að hléi loknu fáum við
að líta stuttan einþáttung eftir
Odd Björnsson, kunnasta og
merkasta lærisvein þeirra leik-
skálda fjarstæðna og fárnleika
sem mikið hafa látið að sér
kveða á síðustu árum.
Á frumsýningu var Tjarnar-
bær þéttsetinn þakklátum á-
horfendum, leikendum og leik-
stjóra var oft fagnað og lengi.
Leikskáldin absúrdu á Signu-
bökkum eru að sjálfsögðu ólík
um margt, en eitt virðist þeim
sameigið auk leitarinnar að
nýjum formum: bölsýni, lífs-
leiði, örvænting og ótti; mað-
urinn er leiksoppur andstæðra
og myrkra afla, einmana og
framandi sjálfúm sér og öðr-
um, og 3íf hans tilgangslaust
og vonlaust, engin svíun fæst
við meini hans. Og það er ekki
fátítt í verkum hinna frægu
framúrmanna að fólk þeirra
bíði eftir einhverjum dularfull-
um ókunnum lausnara sem
aldrei birtist; við munum hin
snjöllu leikrit „Beðið eftir Go-
dot“ eftir Beckett og „Stólana“
eftir Ionesco. Arrabal fetar um
sumt í spor hinna frægu fyrir-
rennara sinna, þau Fando og
Lis eru á stöðugri ferð til ó-
kunns staðar Tar að nafni, það
er fyrirheitna landsins, en
ganga alltaf í hring og lenda
áður en varir á sama blettin-
um og lagt var frá, um kunn-
ingja þeirra gegnir sama máli.
Það er auðgert að verða dá-
lítið leiður á slíkum hlutum,
og táknmál höfundarins og
speki virðist mér ósköp hvers-
dagsleg og auðskilin, þótt að-
dáendur og harðsnúnir fylgis-
menn f jarstæðuskáldanna
standi á öndinni af hrifningu;
en vera má að þar liggi víða
fiskur undir steini.
En Arrabal hefur ekki að-
eins kynnt sér verk þeirra
Becketts og Ionesco — ætla má
að hann hafi hrifizt af kenn-
ingum þeim sem hinn fjölgáf-
aði listamaður Antonin Artaud
setti fram fyrir mörgum ára-
tugum um „leikhús grimmdar-
innar“ og haft hafa ólítil áhrif
æ síðaru Fando er ungur maður^
sem ekur ástkonu sinni Lis í
barnavagni, en hún er lömuð
fyrir neðan mitti og á engan
að nema hann. Fando reynir
stundum að sýna henni barns-
lega ástúð og blíðu, en skefja-
laus grimmd hans, síngirni og
ofboðslegur kvalaralosti ná
jafnan undirtökum, hann sví-
virðir hina umkomulausu
stúlku án afláts, hlekkjar hana
á fótum og höndum og ber loks
til óMfis í æðiskasti. Arrabal
virðist ekki gera sér hærri
hugmyndir um mannlegt eðli
en skáldbræður hans, vitfirr-
ing og hrottaskapur ráða ríkj-
um. Annars ætla ég sízt af
öllu að reyna að skýra þetta
hugtæka og nokkuð langdregna
verk, það er ekki á mínu valdi.
Það er að sjálfsögðu ærið
torvelt ungu fólki að túlka til
hlítar það sambland hrotta-
skapar, hryllings og barnslegr-
ar viðkvæmni sem í leiknum
er falið, en ef á allar aðstséð-
ur er litið kemst Gríma furðu-
vel úr þeirri raun. Leikstjóri
er Gísli Alfreðsson og hefur
ekki sofið á verðinum, sýning-
in er snurðulítil, vel og vand-
lega unnin; Bryndís Schram
hefur þýtt leikinn á góða ís-
lenzku.
Arnar Jónsson er Fándo og
Margrét Guðmundsdóttir Lis,
þannig eru aðalhlutverkin bæði
í góðum höndum. Arnar leikur
af ósviknum þrótti og sýni-
legri leikgleði, röddin er sveigj-
anleg og hljómmikil, og stökk-
fimur er hann og mjúkur í
hreyfingum. Miklar vonir eru
bundnar við hinn kornunga,
efnilega leikara, en hann á
ýmislegt eftir að læra sem að
líkum lætur, skortir að von-
um fyllingu og reynslu og
sanna innlifun til þess að gera
eins margslungnu og stórbrotnu
hlutverki og Fando fullkomin
skil, en átti engu að síður auð-
sæja hylli áhorfenda. Margrét
Guðmundsdóttir hefur oftlega
lýst hrjáðum, umkomulausum
stúlkum með sönnum ágætum,
en sjaldan eða aldrei betur en
í þetta sinn. Örvænting Lis og
dauðastríð varð mjög átakan-
legt og áhrifamikið í meðför-
um hennar, og hinn þögli leik-
ur yfirleitt til fyrirmyndar; hin
látlausa og geðþekka leikkona
hefur vaxið af þessu hlutverki.
„Mennirnir 3 með regnhlífina"
minna að sumu leyti á flæk-
ingana í „Beðið eftir Godot“;
og um þá msétti rita langt mál
þótt hér verði' ekki gert. Flosi
Ólafsson, Karl Guðmundsson,
og Sigurður Karlsson eru sam-
valdir og samtaka og flytja
kyndugar orðræður sínar
skipulega og skilmerkilega; en
auðvitað mætti gera meira úr
þessum kostulega efniviði.
i
+1
„Amalía“ Odds Bjömssonar
er örstuttur þáttur, hann var
áður sýndur á síðustu Lista-
ma:mahátíð og hafði Erlingur
Gíslason af veg og vanda og
hlaut lof fyrir, en ekki sá ée
þá sýningu. Sumir telja „Ama-
líu" bezta verk Odds fram til
þessa, en þeirri skoðun get ég
Stretch-buxur
röndóttar og einlitar. — Stærð 20 — 26.
Verð írá kr. 137,00 — 174,00.
R. Ó. búðin
Skaftahlíð 28 — Sími 34925.
RITARI
Ritari óskast að Berklavarnadeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur, til starfa við afgreiðslu,
spjaldskrá og fleira.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist i skrifstofu Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur Barónsstíg 47.
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR.
ekki orðið sammála — mér
virðist þátturinn fjarstæðu-
kenndur um skör fram og
ruglingslegri en góðu hófi
gegnir, en hver getur annars
dæmt um það, sem hann skil-
ur ekki? Sjálf umgerðin eða
uppistaðan er forvitnileg og
smíðuð af sýnilegri hugkvæmni,
en hitt álitamál hvort skáldinu
tekst að marki að vinna úr
efni sínu. Roskin kona situr
fyrir framan þrískiptan spegil,
og í honum birtast þrjár mann-
verur, það eru ýmsar myndir
hennar sjálfrar — raunveru-
leiki, draumar, ímyndanir hvat-
ir, fýsnir, hver veit? Helzt virð-
ist um baráttu veruleika og
óskhyggju að ræða, eða eru
skuggaleg djúp undirvitund-
arinnar skáldinu efst í huga?
Um sögu Amalíu fáum við fótt
að vita, og helzt það hún hafi
trúlofazt ung að aldri, en kær-
astinn horfið út í buskann og
hún beðið hans árangurslaust í'
hálfa öld; síðast er hún alger-
lega einmana, sárfátæk og sljó
og dauðinn á næsta leiti. Ein
spegilmyndanna er fullorðinn,
nöldursamur og lasburða karl-
maður, og virðist Amalía þó
ekki kynvillt á nokkum hátt,
heldur þvert á móti. Þó virðist
mér furðulegíist af öllu að kona
sú sem situr fyrir framan speg-
ilinn og er einskonar samnefn-
ari allra hinna er ekki annað
en karlmaður klæddur kven-
fötum og búinn afkáralegu
gervi; hann reytir reyndar af
sér spjarimar áður en lýkur,
hárkollu, kjól, gervibrjóst og
lendapúða og stendur að end-
ingu uppi allsnakinn. Leiknum
lýkur á skelfilegu og skyndi-
legu angistarópi — léttkeyptur
og ólistrænn endir að mínu
viti. Það er eins og Oddur
Bjömsson stefni að því að
skapa enn fáránlegri verk en
meistarar hans, en vona má
að hið unga og efnilega leik-
skáld semji betrí verk áður en
á löngu líður.
Gísli Alfreðsson er leikstjóri
og gengur rösklega að verki;
ætla má að skilningur hans og
skáldsins á eðli leiksins sé
hinn sami og þeir hafi unnið
saman. Leikmyndin er gott
verk Þorgríms Einarssonar,
húsgögnin „í neo-rokokostíl“
segir i hinni prentuðu frum-
gerð leiksins.
Arnar Jónsson leikur Ama-
liu fyrstu, þá sem situr við
snyrtiborðið, og er tæpast öf-
undsverður af þvi hlutskipti;
að túlkun hans kann ég ekkert
af finna miðað við allar að-
stæður. Bríet Héðinsdóttir dreg-
ur upp látlausa, átakanlega og
hnitmiðaða mynd gamallar
konu, snurðulaus og mjög geð-
felldur leikur; Kristín Magnús
er aðsópsmikil í ágætu gervi
skartbúinnar, glæsilegrar ' en
nókkuð grófgerðrar. daðurdrós-
ar; Kristín hefur áður sýnt góð
tilþrif á sviðinu. Karl Guð-
mundsson er öruggur og traust-
ur sem karlmaðurinn í speglin-
um; loks birtist Stefania Svein-
bjarnardóttir snöggvast sem
Amalía á ungum aldri, ástfang-
in og búin þokka æskunnar.
Stefanía er komung og lagleg,
en lítt þroskuð og óráðin leik-
kona. 1 raun og veru <ætti Ama-
lía hin yngsta að vera ein
myndin í speglinum og láta
meira . til sín taka, hún er
hálfvegis utangama í leiknum.
— Grímu óska ég allra heilla
og þakka lofsvert framtak og
góða skemmtun. A. Hj.
.Stórt farangursrvmi. Á
Loftræsting
með Iokaðar rúður.
SVEINN EGILSSON H.F.
JAABOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMf 22466
CORTINA .66’
Ford Cortina á íslenzkum vegum!
CORTINA „66“ er rúmgóður fjölskyldubíll með: Stórt farangursrými.
Diskhemla á framhjólum. Loftræstingu með lokaðar rúður.
Þess vegna er CORTINA kjörinn FERÐABILL.
CORTINA ER METSÖLUBÍLL, sem unnið hefur yfir 200 slgra í
alþjóðjegum aksturskeppnum.