Þjóðviljinn - 20.02.1966, Blaðsíða 6
g SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 20. febrúar 1966
Fréttasyrpa Irá Neskaupstað
Ofan gefur
snjó á snjó
Loksins fengum við vetur, og
mátti víst ekki seinna vera til
að minna fólk á, hvar við er-
um staðsett á hnettinum. Haf-
ísinn í fyrra var einskonar for-
leikur, og vonandi fáum við
harm ekki sem intermesso á
þessum vetri. Önnur eins snjóa-
lög hafa ekki sézt hér síðan
veturinn 1950—51, og er það
met raunar ójafnað enn. Ein-
hver snjór hefur legið hér nær
óslitið frá því í nóvember, en
iang mest munaði um hretið
um daginn, en þá var hér bylur
með litlum upprofum í heila
viku. — Ekki varð umtalsvert
tjón hér í bæ í því illviðri,
nema á rafmagnslínum, en þær
slitnuðu mjög víða af völdum
feiknalegrar ísingar og snjó-
klessu, sem á þær hlóðst, og
urðu línumar víða um 25 cm
í þvermál.
Enn meiri mun snjórinn vera
hér fyrir norðan okkur í Mjóa-
firði, en hinsvegar er sagður
talsvert minni snjór í Reyðar-
firði.
arins innan úr Norðfjarðar-
sveit, en með dráttarvél og
sleða hefur sá vandi nú verið
leystur.
Þótt nú sé liðin meir en vika
frá því óveðrinu slotaði, hefur
enn ekki tekizt að opna flug-
völlinn, en á honum liggur yf-
ir 80 cm þykkt snjólag. Er nú
unnið að því dag og nótt að
ryðja burt þeim snjó, og standa
vonir til, að því verði lokið á
morgun.
Blöð og útvarp
Það verður farið mesta nýja-
bragðið af dagblöðunum, þeg-
ar þau loks berast, en síðast
sáum við þau 26. janúar. Ekki
er bærinn þó blaðalaus, því að
„Austurland" kemur hér út
reglulega sem fyrr á hverjum
föstudegi, og meir að segja sást
framsóknarblaðið „Austri“ hér
í byrjun mánaðarins, en útgáfa
þess er næsta brokkgeng. Af
„Austurlandi" komu út 50 tölu-
blöð á síðasta ári, en af
„Austra“ aðeins 5.
Með opnun langbylgjustöðv-
arinnar á Eiðum fyrir síðustu
jól væntum við Austfirðingar
★ Margir Norðfirðingar brugðu sér á skíði um síðuslu helgi.
Fréttaritari Þjóðviljans í Neskaupstað renndi sér upp að þessum
á „Vatnshól“ um nónbilið sl. laugardag: Þær heita Bergljót
Bjarkadóttir og Þórdís Kristinsd., báðar í 3. A í Gagnfræðask.
Samgönguerfið-
leikar
Margvíslegt óhagræði og
röskun á daglegum lífsháttum
hefur hlotizt af fannferginu.
Bærinn hefur verið samgöngu-
laus nema af sjó nú í hart nær
þrjár vikur, og miklir erfið-
leikar hafa verið á að halda
götum innanbæjar slarkfærum.
Eina jarðýtan, sem.gangfær er
í bænum, hefur haft í mörg
hom að líta, en snjóplógur
reynzt gagnslítill í viðureign
við skaflana.
Övenju mörg flutningaskip
hafa komið hingað að undan-
fömu til að sækja sjávarafurð-
ir til útflutnings, og hefurver-
ið mikið verk að ryðja snjó
vegna afgreiðslu þeirra. Þá
hefur olíu þrotið í mörgum hús-
ura, en reynt hefur verið að
bjarga því við eftir föngum.
Vatnsskortur er orðinn tilfinn-
anlegur i húsum ofantil í bæn-
um, og lítil von að úr rætist
fyrr en hlánar. Um tíma gekk
erfiðlega að koma mjólk Xil bæj-
Frá miðbænum í Neskaupstað. Til hægri: Kaup félagshúsið FRAM. Á götunni „mjólkuræð“ bæjar-
búa — Hákon Guðröðarson við stjórn.
að vera komnir í ámóta gott út-
varpssamband við Reykjavík
eins og við Noreg. En þær von-
ir hafa nú dofnað, því að Eið-
ar reyndust okkur engu betur
í hretinu en símaútvarpið, og
barst fátt annað en urg frá
Útvarp Reykjavik um margra
daga skeið. — ‘ Annars vakti
það nokkra kátínu hér eystra
dag einn í janúar, er hádegis-
fréttirnar voru endurteknar
með tilheyrandi afsökunum,
þar eð hluti Reykvíkinga hafði
heyrt þær miður vel af völdum
truflana. Yrði líklega rólegt á
dagskrárdeild stofnunarinnar,
ef svipaðar kurteisisreglur giltu
gagnvart okkur Austfirðingum.
Fjárhagsáætlun
1966
S.l. föstudag var fjárhagsá-
ætlun bæjarsjóðs fyrir yfir-
standandi ár lögð fram til fyrri
umræðu í bæjarstjóm. Fylgdi
bæjarstjórinn Bjami Þórðarson,
áætluninni úr hlaði, en hún er
fyrir margra hluta sakir hin
athyglisverðasta. — Eins og
landfleygt varð f fyrra, hækk-
uðu útsvör í Neskaupstað um
70%, en þrátt fyrir það var
hægt að veita 16,6% afslátt frá
gildandi útsvarsstiga, og ekk-
ert var lagt á fjölskyldubætun
Enn gerir fjárhagsáætlunin ráð
fyrir hækkun útsvara, að þessu
sinni þo aðeins um 20,8%, en
um leið lýsir bæjarstjómar-
meirihluti Alþýðubandalagsins
því yfir, að afstéttur verði ekki
lægri en í fyrra. — Niðurstöðu-
tölur frumvarpsins eru annars
21,8 .miljónir, en voru 17,6
miljónir, hækkun 23,8%. Gerir
áætlunin ráð fyrir meiri verk-
legum framkvæmdum og hærri
íramlögum til menningarmála
en nokkru sinni fyrr í sögu
bæjarins. Verður nánar greint
frá þessari áætlun í einstökum
atriðum hér í blaðinu áðuren
langt um líður.
Stund millí stríða
Síldarvertíðinni lauk í janú-
ar, er sú skepna hélt í sitt ár-
lega vetrarfrí til Noregsstranda.
Þó voru í þeim mánuði fryst
360 tonn af síld hjá Fiskvinnslu-
stöð SÚN. Óvenju miklar birgð-
ir útflutningsafurða höfðu
safnazt fyrir hér í bæ um ára-
mótin, en mikið hefur á þeim
grynnkað að undanförnu. Fjail-
foss tók hér í síðustu viku 3000
tunnur af saltsild, og nú er
verið að afgreiða 600 tonn af
freðsíld um borð í Goðafoss.
Segja má að þeir mánuðir,
sem nú fara í hönd séu stund
milli stríða í viðureigninni við
síldina, en enginn þarf þó að
kvíða atvinnuleysi, nema
kannski verður takmarkaða
vinnu að hafa fyrir verkakon-
ur. Framundan er mikil vinna
við útskipun, yfirferð á vélum
og öðrum framleiðslutækjum
og margt fleira. Er mikil vönt-
un á iðnaðarmönnum um þess-
ar mundir. Fyrir atvinnurek-
endur og bæjaryfirvöld er þetta
tími mikilla áforma og ákvarð-
Vaxandi útgerð
Kaup Útgerðar Síldarvinnsl-
unnar hf. á „tvíburunum“
Barða og Bjarti í fyrra virðast
ætla að valda straumhvörfum i
útgerðarsögu Neskaupstaðar
Þegar hafa verið ákveðin kaup
á þremur stórum fiskiskipum
til viðbótar. ÚtgerðSíldarvinnsl-
unnar og ölver Guðmundsson
útgerðarmaður hafa samið urr
smíði á sínu hvoru skipinu i
No"egi. og verða þau um 300
lestir að stærð og væntanlega
tilbúin að hausti. Þá hefur
Sveinbjörn Sveinsson útgerðar-
maður fest kaup á einu af þess-
um klassísku aflaskipum frá
A-Þýzkalandi, og fær það vænt-
anlega að ári. Hefur bæjarfé-
lagið auðveldað útgerðarmönn-
um leikinn með því að taka á
sig einnar miljón króna ábyrgð
vegna lántöku fyrir hvom um
sig. — Eflist floti Norðfirðinga
stórum að fengnum þessum skip-
um.
Síldarbræðslur
Nýlega hefur verið tekin á-
kvörðun um, að stækka veru-
lega verksmiðju Síldarvinnsl-
unnar hf., þannig að afköst
hennar verði 7000 mál á sól-
arhring. Gengið hefur verið frá
kaupum á nauðsynlegum vél-
um í þessu augnamiði, en verk-
inu verður vart lokið fyrr en
að hausti. Aðalakbrautin inn i
kaupstaðinn þrengir nú að verk-
smiðjunni og hefur þvi verið
ákveðið að færa hana í átt til
fjalls. Ný löndunartæki verða
sett upp við verksmiðjuna og
útbúnaður til að vigta síldina
við löndun. Viðgerðarverkstæði
er í uppsiglingu.
Síldarvinnslan hf., sem nú er
eigandi Fiskvinnslustöðvar SÚN
ásamt söltunarstöðinni Ás,
hyggst einnig fljótlega ráðast í
byggingu vandaðs íveruhúss
fyrir starfsfólk ásamt mötuneyti
og er það mikið nauðsynjamál.
Bygging niðurlagningarverk-
smiðju er í athugun, en engin
ákvörðun liggur fyrir um það
mál. — Af ofantöldu má sjá,
að þetta öflugasta atvinnufyr-
irtæki í bænum hefur mörg
járn í eldinum um þessar mund-
ir.
Nýjustu fréttir í bræðslumál-
um eru svo þær, að nokkrir
valinkunnir athafnamenn hafa
ákveðið að freista þess, að
koma upp sérstakri 2500 mála
síldarbræðslu, inni í Nausta-
hvammi, og ætti hún að geta
tekið til starfa með hálfum af-
köstum næsta sumar, ef enginn
óvæntur hnútur hleypur á
snærið. Forgöngumenn umþetta
mál eru Norðfirðingarnir Bjöm
Bjömsson, kaupmaður, Jón
Karlsson kaupmaður mm. og
Reynir Zoéga bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins. Hefur bæj-
ai-stjóm úthlutað þeim lóð
undir fvrirtækið þar innfrá.
Það sem sérstaklega er at-
hyglisvert í sambandi við upp-
byggingu atvinnulífsins hér í
bæ, og á það ekki sízt við um
síldariðnaðinn, er sú staðreynd,
að nær öll fyrirtækin eru í
höndum hcimamanna, og veru-
legur hluti I höndum hálfopin-
berra aðila, þar á meðal bæj-
arfélagsins sjálfs. Mættn marg-
ir nágrannastaðir hér eystra
nokkuð af því læra.
Menningarmál
1 þeim efnum er margt á
döfinni og í undirbúningi um
þessar mundir fyrir forgöngu
bæjaryfirvalda. Myndárlegt
barnaheimili er í smíðum og
verður væntaalega lokið við
fyrri áfanga þess innan árs.
Hafin er smíði íþróttahúss, þótt
í litlu sé, en fullbúin verður sú
bygging hin glæsilegasta sinnar
tegundar á Austurlandi. Er
stutt síðan skýrt var ítarlega
frá þeim framkvæmdum hér í
blaðinu.
Lokið er undirbúningi að
byggingu heimavistar við Gagn-
fræðaskólann, sem jafnframt á
að verða sumargistihús, og er
nú aðeins beðið eftir grænu
ljósi frá ríkisvaldinu til að
framkvæmdir geti hafizt. Er
hér um mikið nauðsynjamál að
ræða, sem varðar fleiri en
Norðfirðinga. Stækkun skóla-
húsnæðis Gagnfræðaskólans er
og orðið knýjandi nauðsyn,
sem leysa verður hið allra
fyrsta, og svipuðu máli gegnir
um Barnaskólann, sem búið
hefur við óbreytt húsnæði um
meir en þrjátíu ára skeið.
Iðnskólann þarf, líka að efla
verulega, m.a. með heimavist-
araðstöðu, því að þörfin fýrir
vel menntaða iðnaðarmenn fer
stöðugt vaxandi hér sem ann-
arsstaðar.
Sem betur fer ber frumvarp
það að fjárhagsáætlun, sem nú
liggur fyrir bæjarstjórn, vitni
um það, að forráðamenn bæjar-
ins skilja nauðsyn þess að nýta
yfirstandandi góðæri til átaka
í mennta- og menningarmálum,
enda væri til lítils unnið, ef
þau yrðu útundan. Er vonandi,
að ríkisvaldið láti ekki sinn
hlut eftir liggja.
Skemmtanalíf
Félagslíf í bænum hefur ver-
ið með líflegra móti, það sem
af er þessum vetri, þrátt fyrir
mikið annríkí hjé" 'flestum.
Mörg félög hafa gengizt fyrir
árshátíðum og fleiri eiga eftir
að fylgja. ' Alþýðubandalagið
hélt velheppnað þorrablót um
næstsíðustu helgi, og stóðst það
á endum, . að sama kvöldið
slotaði hríðinni.
Leikfélag Neskaupstaðar sýndi
leikritið „Svört á brún og brá“
í nóvember undir handleiðslu
þess ágæta leikstjóra, Erlings
E. Halldórssonar. Er hamn nú
væntanlegur hingað aftur ein-
hvern næstu daga til að færa
á svið nokkra einþáttunga eft-
ir Odd Björnsson, en einhverj-
ir þeirra hafa aldrei verið sýnd-
ir á leiksviði áður. Er hér um
mjög lofsvert átak að ræða hjá
Leikfélaginu, en formaður þess
þriðja árið í röð er nú Birgir
Stefánsson, bæjargjaldkeri. Fá
væntanlega fleiri ' að njóta
þessa . leiklistarviðburðar hér
eystra en Norðfirðingar. Þess
má og geta, að Leikfélagið efn-
f Egilsbúð.
Framhald á 9. síðu.
„pao er skemmtileg tilöreytlng að rást víð snjó.og þó er hann furðu fastur Iyrir“. segir Jóhann
Þórisson, ýtustjóri, sem vinnur hér ótrauður að því að ryðja þykku snjólagi af flugvellinum. „Sex
tíma skakstur, sex tíma svefn , , ,. þannig hafa sólarhringarnir liðið hjá mér undangengnar þrjár
vikur.“
v
i