Þjóðviljinn - 20.02.1966, Blaðsíða 10
10 SlÐA — ÞJÓÐVXLJINN — Sunimdagur 20. febrúar 1966
STORM JAMESON:
Ó,
BLINDA
HJARTA
næstum orðið illt. En 'hann
sá að tæmar voru ekki alvarlega
meiddar: hver einasta nögl var
svört og blóð vætlaði meðfram
þeim, en enginn hafði rifnað af.
Gott. hugsaði hann.
En það sem honum þótti
verst var hvernig farið hafði
verið með fötin hans. Þeir höfðu
notað hníf og skorið í jakkann
hér og þar, svo að flipamir
héngu nið’ur.
— Góði jakkinn minn, tautaði
hann. Varir hans skulfu.
Hatm sneri sér frá speglinum
og horfði andartak á borðið.
Síðan braut hann enda af brauð-
inu og reyndi að borða það.
Hann gat það ekki og varð að
skyrpa því útúr sér. Það olli
ekki fyrst og fremst erfiðleikum
að nota bólgna og rifna tung-
una, heldur lokuðust kverkarn-
ar á honum í hvert skipti sem
hann reyndi að kyngja. Rétt
eins og kvalarar hans hafði
hann verið að gera ýmsar upp-
götvanir undanfarna mánuði.
Um þá og sjálfan sig. Um sjálf-
an sig hafði hann komizt að
raun um, að sársauki er bæri-
legri en vamarleysið, að minnsta
kosti þegar sársaukin er ekki
verri en rifin kinn og marðar
neglur. Það var vamarleysið í
höndum þeirra sem var að gera
út af við hann.
Um hina hafði hann uppgötv-
að dálítið undarlegt. Að jafnvel
harðlyndasta barnið — ef hægt
er að taka þannig til orða —
á líka eitthvað gott til. Og ef
til vill fyrirleit hann enn meira
þá drengi sem sýndu honum
goðvild, þegar enginn sá til.
Hann settist, ýtti frá sér disk-
inum, hvíldi andlitið í höndum
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steiim oor Dóáó
Laugavegi 18 III hæð flyfta)
SIMI 24-6-16
pnna
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 SÍMT 33-968
ÐÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
r.lARNARSTOFAN
Tjamargötu 10 Vonarstræt-
ismegin — Sími '4-6-62
Há tníw^'nstoia
AnclnrtiffiÍAr
María Guðmundsdóttir.
Laugavegi 13 Sími 14-6-58
Nuddstofan er á sama staS
sér og sökkti sér með áfergju
niður i drauminn sinn.
Nú var hann orðinn svo fast-
mótaður og kunnuglegur, að
hann gat byrjað hvar sem var._
ekki endilega á byrjuninni. Frá
efra hluta þorpsins, þar sem á-
ætlunarbíllinn til Grasse stanz-
aði, hafði hann fundið leið til
að komast til Marseilles, án
41
þess að þurfa að nota aðalgötur
eða fara gegnum neinar stór-
borgir. Þegar til Marseilles kom,
myndi hann finna lítinn flutn-
ingabát, auðvitað þýzkan, þar
sem vantaði hjálparstrák, og
með honum kæmist hann ekki
beint til Þýzkalands, heldur til
Afríku til að villa þá sem voru
að elta hann. Frá Afríku kæm-
ist hann á annað þýzkt skip á
leið til Hamborgar, þarsemeinn-
ig vantaði messastrák eða þjón
eða kolameistara, og með því
kæmist hann svo nálægt heimili
sínu, að það tæki hann aðeins
fáa daga að ganga þangað.
Þarna endaðí draumurinn og
svimandi sælukennd tók við. En
þá þurfti hann ekki annað en
fara til baka, ganga úr skugga
um þjóðvegi og brýr yfir ár,
rifja upp götunöfn í Marseilles
sem lágu niður að höfninni —
en þetta hafði hann kynnt sér
á korti sem monsieur Michal
hafði lánað honum, þegar hann
sagðist vera að skrifa ritgerð —
og þannig leið Mukkutími eða
tveir tímar í unaði og sælu.
Hann var enginn hálfviti.
Innst inni vissi hann að þessi
vandlega hugsaða áætlun var ó-
framkvæmanleg. Hann dreymdi j
um þetta um hábjartan daginn |
og jafnvel á kvöldin áður en
hann sofnaði og þetta var því
eins konar aðferð til að deyfa
sjálfan sig, rétt eins og þegar
maður drekkur of mikið. Þótt
ungur væri, vissi hann þetta.
Það komu meira að segja þeir
dagar að hann hafði hugrekki
til að neita sér um draunjinn.
Þetta kvöld — að tilefnislausu
■— meðan hann gekk eftir hafn-
arbakkanum áleiðis að þýzka
skipinu með fánanum og við
Iandganginn stóð yfirmaðurinn,
sem myndi ekki einusinni
spyrja hve gamall hann var
áður en hann réði hann, — og
þá fór hann að gráta.
Að tilefnislausu.
Hann grét hljóðlaust, tárin
streymdu niður vangana, milli
fingranna sem hann þrýsti að
andlitinu. Ekkert hljóð, ekki
minnsta kjökur, af örvænt-
ingu án upphafs eða endis, ör-
værrtingu sem aðeins bam get-
ur fundið til.
Lágur smellur — hönd móð-
tir hans á hurðarhúninum í
ytra herberginu, herbergi henn-
ar. Tár hans hættu að renna.
Hann þurrkaði sér í framan í
flýti, tárin og blóðið við munn-
vikin.
Hún gekk hægt inn í eldhúsið
og hélt á þungum fataböggli
eins og hún gerði ævinlega þeg-
ar hún kom úr þessu húsi. Hún
lagði böggulinn frá sér. Hann
shéri andlitinu frá henni, og
hún tók fyrst eftir borðinu.
— En Jean þó. Þú hefur ekk-
ert borðað! Hafðirðu ekki lyst
á þessu?
— Þökk fyrir, ég var ekki
svangur, sagði hann stillilega.
Hún gekk nær honum, sá
kinnina á honum og sagði i
hálfum hljóðum: Ö, og bar
krepptan hnefann upp að munn-
inum.
Án þess að segja fleira hellti
hún dálitlu vatni í skál sem hún
setti á borðið, vatt upp vasaklút
og reyndi að þvo djúpu skrám-
umar.
Drengurinn ýtti hendi hennar
frá sér, alls ekki hranalega, og
sagði:
— Nei, ég skal gera það.
Hann fór með skálina og
klútinn að skápnum með litla
speglinum, sneri að henni baki
meðan hann hreinsaði á sér
andlitið vandlega og með hægð;
hann var að tefja tfmarm þang-
að til hann neyddist til aö snúa
sér við og hún færi að spyrja
hann útúr. Hún talaði fyrir aft-
an Jiann:
— Hver gerði þetta?
— Enginn. Ég sjálfur. Ég
datt.
Hann sneri sér við. Herbergið
var svo lítið og svo stutt á
milli borðs og skáps að hún
hafði ekki tekið eftir berum
fótum hans. Nú sá hún þá. And-
lit hennar missti þann litla lit
sem fyrir var, en hún reyndi að
tala stillilega:
— Þú hefur aldrei minnzt á
þetta við mig.
— Hví skyldi ég gera það?
— Hefur þetta gengið svona
til lengi?
— Hvað áttu við? sagði hann
kuldalega. Það er ekkert að
mér.
Til hliðar á eldavelinni var
járnstampur, hálffullur af volgu
vatni. Hún bar hann með erfið-
ismunum að lága körfustólnum,
sem hún hafði eitt sinn sagt
honum að væri ,,sjúkrastóll‘‘
sem móðir hennar hefði átt,
Sjómannafélag Reykjavíkur
Viðbótarlán
Sjómannafélag Reykjavíkur vill vekja at-
hygli þeirra félaga sinna, sem hófu bygg-
ingarframkvæmdir eftir 31. desember
1964, á því, að þeir geta sótt um viðbót-
arlán til Húsnæðismálastjórnar, að fjár-
hæð kr. 75.000,00, sem samkv. samning-
um hefur verið gefið fyrirheit um til handa
efnalitlum meðlimum verkalýðsfélaga.
Eyðublöð fást í skrifstofu Húsnæðismála-
stjórnar, Laugavegi 24 og í skrifstofu fé-
lagsins. Skal umsóknum skilað til skrif-
stofu Sjómannafélags Reykjavíkur Lindar-
götu 9.
Umsóknarfrestur rennur út 1. marz næst-
komandi.
Sjómannafélag Reykjavíkur
Kaupi bækur
í kvöld og næstu kvöld kl. 8—10 kaupi ég gaml-
ar og nýjar íslenzkar bækur — Bókasöfn koma
til greina. — Einnig kaupi ég allskonar ný og
gömul tímarit, skemmtirit og danskar og norsk-
ar pocketbækur.
BALDVIN SIGVALDASON
Hverfisgötu 59 (kjallara).
þórður
sióari
4667 — Það stendur á svarinu hjá Söru. Hvemig dettur honum
í hug, svona karlbjálfa, að ætla að stöðva hana.........Ef eitthvað
er athugavert við hana, verður hann að gjöra svo vel og koma
með yfirrhanninn. Og einmitt það, sem hún ætlast til, verður
Kallað er á yfirmanninn, og hann kemur. Hún hafði verið fóstra
hans í bernsku og hann getur ekki neitað henni um neitt. Auö
vitað má gamla konan fara út, hún fær alltaf undanþágu. Hún
þakkar honum fyrir með tannlausu brosi og heldur síðan hratt
leiðar sinnar. Þegar líður að kvöldi, fær hún ungum pllti körf-
una og hann lofar að koma henri um borð eins 'fljótt og auðið er.
PLASTMO
Ryðgar ekki
þolir seltu og scf*
þarf aldrei að mál'"
Plasf
þakrennur og
niðurfallspípur
fyrirliggjandi
*
GOÐAR
FILMUR
EVAERT
TRYGGENGAFELAGIÐ HEIMIRf
LINDARGÖTU 9 • REYKJAVÍK • SÍM! 22T22 — 21260
. Illlllll ■ III I
Dátabuxur og terelynebuxur
á drengi. — Leðurjakkar á stúlkur
og drengi.
Verzlun Ö.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).