Þjóðviljinn - 20.02.1966, Síða 12
Hættir FiskmiSstö&in í Orfirisey
brátt rekstrinum?
□ Allar líkur benda til þess, að fyrirtækið Fisk-
miðstöðin í Örfirisey hætti rekstrinum á næstunni.
— Við erum að gefast upp á að reka fyrirtækið
vegna skilningsleysis stjórnarvalda, sagði Sæmund-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri í viðtali við Þjóð-
viljann í gærdag.
Við sáum fyrir fiskskortinn
á síSastliðnu sumri og gengum
þá á fund viðskiptamálaráð-
herra, —. fórum þá fram á ráð-
stafanir til þess að tryggjafram-
búðarlausn á rekstri fyrirtækis-
ins, — fengum þá litlar úrbætur
á okkar málum.
Fiskskortur hefur verið meira
og minna hér í borginni síðan í
haust og vofir yfir borgarbú-
um i framtíðinni, — sérstaklega
Framkvæmdastj. Steingrímur Bjarnason og Sæmundur Úlafsson á tímabilinu frá því í október
^til febrúarloka að óbreyttum að-
stæðum.
Núna göngum við fyrir sama
ráðherra á morgun og viljum
taka upp þráðinn frá því í haust
til þess að vinna að lausn. á
þessum málum.
Höfuðmeinsemdin í þessum
Handtökur / Ungverjalandi
fyrir samsæri gegn rikinu
BUDAPEST 19/2 — Skýrt hefur
verið frá því í Búdapest ’að all-
margir menn hafi verið teknir
höndum, sakaðir um samsærium
að steypa ríkisstjórninni. Hinir
handteknu eru sagðir hafa haft
vitorðsmenn á vesturlöndum.
„Nepszabadsag“ segir að hinir
handteknu séu „svarnir fjand-
menn kommúnismans", „póli-
tískir afbrotamenn“ sem hafi
verið handteknir eftir uppreisn-
ina 1956, en síðan látnir lausir
við sakaruppgjöf.
Nokkrir þeirra hafa verið
dæmdir í_ 4-5 ára fangelsi og
jafnframt til að afplána þann
hluta refsingarinnar frá 1956
sem þeim var gefinn eftir við
sakaruppgjöf 1963.
De Gaulle ræðir við blaðamenn
PARÍS 19/2 —Eins og að venju
í ársbyrjun ræðir de Gaulle við
blaðamenn í París á mánudag
og eins og jafnan áður er þess
fundar beðið með talsverðri eft-
irvæntingu, og nú líka vegna
þess að fundurinn hefur dregizt
nokkuð á langinn. Sá dráttur er
talinn hafa stafað helzt af Ben
Barka-málinu sem gerir forset-
anum erfitt fyrir. Hin hálfopin-
bera fréttastofa, AFP, hefur sagt
að forsetinn muni gera hreint
fyrir sínum dyrum í því máli.
Einnig er talið víst að hann
muni fjalla um Vietnam.
Einn ráðbfirra Wilsons farsnn
LONDON 19/2 — Flotamálaráð-
herra brezku stjórnarinnar,
Christopher Mayhew, sagði af
sér í dag í mótmælaskyni við þá
ákvörðun að kaupa bandarískar
herþotur af gerðinni F-lll í stað
þess að smíða flugvélaskip. Að-
stoðarráðherra hans, Mallalieu,
hefur tekið við embættinu. Talið
er sennilegt að þessi afsögn
muni verða til 'iess að Wilson
hiki við að efna til kosninga í
vor, sem búizt ■ hefur verið við.
málum er enginn rekstursgrund-
völlur fyrir báta til þess að
stunda línuútgerð, — bátaflotinn
er meira og minna lamaður, sjó-
menn fást ekki á bátana og út-
gerðarmenn geta ekki haldið úti
bátunum vegna reksturskostnað-
ar í dýrtíðinni vegna þess að
fiskverðið er skammtað of
naumt.
Við höfum haldið úti tveim
bátum frá því í haust og rekið
þá með botnlausu tapi og greið-
um sjómönnunum fjórtán til
sextán þúsund króna mánaðar-
laun.
Það þýðir ekki að nefna minni
kauptryggingu fyrir hásetana í
samkeppni um vinnuaflið á
markaðnum og aðrir rekstrarlið-
ir eru eftir því við rekstur bát-
anna, — þetta er botnlaust tap.
Þó að bátarnir kæmu með
fullfermi dag eftir dag gerir það
ekki betur en láta enda ná sam-
an, — hvað þá þegar aflabrest-
ur er fyrir hendi eins og alltaf
má gera ráð fyrir við fiskveið-
ar.
Það er mikil þjóðarógæfa að
gefa línuveiðunum ekki lífsmátt
eða öðrum liðum í bolfiskveið-
um og skapar ekki aðeins skört
á neyzlufiski í borginni helcUir
ÚTSALA á skófatnaði
hefst í fyrramálið
Og margt margt
fleira fyrir ótrú-
lega lágt verð
Karlmannaskór, fjölmargar gerðir
Stærðir nr. 39 — 42.
Kvenskófatnaður, ýmiskonar
íyrír mjög lágt verð.
Barnaskófatnaður úr leðri
» i
fyrir telpur og drengi, vandaðar gerðir.
Verð frá kr. 175,00
Ennfremur kuldaskór úr leðri
fyrir kvenfólk og drengi, stærðir nr. 35
fyrir aðeins kr. 198,00
— 41
SKÓKAUP, Kjörgarði
Laugavegi 59.
Sunnudagur 20. febrúar 1966 — 31. árgangur
42. tölublað.
er þetta efnahagslegt áfall fyrir
þjóðarbúið í hgild.
Tuttugu og tveir fisksalar hér
í borginni settu þetta fyrirtæki
á stofn og hleyptu því af stokk-
unum vorið 1964 og reyndist
þetta stórt spor fram á við til
þess að bæta fisksölumálin hér
í borginni. Það er vonlaust að
reka fyrirtækið í þeim efna-
hagslega ramma, sem viðskipta-
málaráðuneytið setur okkur.
Fyrst og fremst erum við látn-
ir þjóna undir falska vísitölu og
falskan talnaútreikning á papp-
írum sem er ekki í neinu sam-
ræmi við raunverulegt mat líð-
andi stundar.
Við skulum rekja dæmi á
tveim megin fisktegundum til
neyzlu hér í Reykjavík.
Þá er fyrst að taka ýsu, —
slægða með haus. Við megum
kaupa óslægða ýsu upp úr sjó
á kr. 5,00 kílóið.. Þegar ýsan hef-
ur verið slægð, þá hefur hún
72fl/0 af upphaflegri vigt, — það
er kr. 2,84 á kíló í heildsölu að
viðbættum þremur krónum nið-
urgreiddum frá ríkinu eða sam-
tals kr. 5,84 á kíló. Við fáum
þannig 16,9% ágóða fyrir vinnsl-
una. Af þorski, — slægðum með
haus fáum við aðeins 4,4% á-
góða fyrir vinnsluna, — þá er
reiknað með 72% af upphaflegri
vigt, — kr. 2,05 á kíló að við-
bættum kr. 3,17 niðurgreiddum
eða samtals kr. 5,22.
Við greiðum hálfa miljón á
mánuði í vinnulaun til land-
fólks og sjómanna fyrir utan
aðra rekstursliði við fyrirtækið.
Af áðurgreindum ágóða þurf-
um við að borga tapið á útgerð
tveggja báta, — jafnframt flutn-
ingskostnaði á fiski frá Suður-
nesjum.
í mesta fiskskortinum sóttum
við um leyfi til þess a'ð flytja
hingað .til borgarinnar fisk fife
Breiðafjarðarverstöðvum, — við
urðum að hætta við þann flutn-
ing vegna flutningskostnaðar.
Persónulega treysti ég mér
ekki til þess að veita fyrirtæk-
inu forstöðu lengur, sagði Sæ-
mundur Ólafsson og nýr fram-
kvæmdastjóri er að taka við
fyrirtækinu,— hann heitir Stein-
grímur Bjarnason.
Við spurðum Steingrím, —
hvernig honum litist á blikuna.
Það verður stutt í mínum
framkvæmdastjóraferli hjá fyr-
irtækinu að óbreyttum aðstæð-
um. Það fer eftir undirtektum
ráðherra á morgun.
Tveir sækja um
irófessorsembætti
Umsóknarfrestur um prófess-
orsembætti í meina- og sýkla-
fræði rann út 15. þ.m.
Umsækjendur eru:
Bjarki Magnússon, læknir og
dr. Ólafur Bjarnason, settur
prófessor.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>!■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Frá Kenya.
Góð þátttaka í
páskaferðum
Enda þótt páskadagur sé
ekki fyrr en 10. apríl hafa
ferðaskrifstofurnar þegar
auglýst páskaferðir sínar til
útlanda, og er fullskipað í
sumar þeirra. Þjóðviljinn
hafði samband við nokkrar
ferðaskrifstofur og spurðist
fyrir um páskaferðir, og fara
svörin hér á eftir.
Ferðaskrifstofan Lönd og
leiðir hefur auglýst þrjár
páskaferðir utanlands. Farið
verður 18 daga ferð til Mið-
og Austur-Afríku, og verður
flogið héðan 26. marz til Diis-
seldorf og þaðan 28. til Ken-
ya. Fararstjóri í þessari ferð
verður Þjóðverji og hafa
margar pantanir borizt, verð-
ið er frá kr. 24.400.
Einnig skipuleggur ferða-
skrifstofan Lönd og leiðir
ferð til Rhodos, sem er
stærsta eyjan í Gríska eyja-
hafinu, skammt frá Litlu-As-
íu. Flogið verður á skirdag
til Hafnar og næsta morgun
til Rhodos og dvalið þar á 1.
flokks hóteli 3.—8. dag far-
arinnar. Möguleikar eru á
tveggja daga dvöl í Höfn eða
Glasgow í bakaleiðinni. Ferð
þessi kostar kr. 13.900 og er
mikið búið að panta, en há-
markið er 30 manns. Farar-
stjóri verður íslenzkur.
Skíðaferð til Noregs verður
farin á vegum sömu ferða-
skrifstofu 5. apríl. Flogið
verður til Osló og gist þar
eina nótt en síðan farið á
skíði í Hösbjör. Um tvennt
er að velja: tíu daga ferð á
kr. 11.900 og 7 daga ferð, sem ■
kostar kr. 9.800. í verðinu er :
innifalið fullt fæðL Farar- j
stjóri verður Páll Guðmunds- j
son, skólastjóri.
Ferðaskrifstofan Saga ■
skipuleggur ferð til Jersey, ■
eyjdr við Frakklandsstrend- i
ur. Verður flogið til London j
5. apríl og komið aftur þann
15. og kostár ferðin kr. 11.875. j
Margir hafa spurzt fyrir um |
ferðina og er búizt við 25 i
þátttakendum. Fararstjóri i
verður Hilmar Pálsson.
Fimmtán daga ferð til Mal- j
lorca og Kanaríeyja verður j
farin á vegum ferðaskrifstof- |
unnar Sunnu. Þegar hafa j
fengizt 85 manns í þá ferð og i
verða þátttakendur e.t.v. i
fleiri, fara þá með áætlunar- i
flugvél, en flestir fara með
leiguflugvél. Dvalizt verður í
5 daga á Mallorca og viku á
Kanaríeyjum. Fararstjórar
verða þeir Guðni Þórðarson
og Jón Helgason.
Suður-Spánn hefur orðið
fyrir valinu til páskaferðar
ferðaskrifstofunnar Útsýnar.
Farið verður til Malaga, Costa
Del Sol og baðstrandarinnar
Torremolinos. Einnig verða
kynnisferðir til Granada, Gí-
braltar og yfir Njörvasund til
Tangier í Afríku. í bakaleið-
inni verður dvalið 3 daga í
London. Fararstjórar verða
Ingólfur Guðbrandsson og að-
stoðarmaður hans. Fullskipað
er í ferð þessa og verða þátt-
takendur 85 talsins.
Kynntar margar nýjar teg-
undir rit- og reiknivéla
Umboðsmenn hinna þekktu ít-
ölsku Olivetti rit- og reiknivéla,
G. Helgason og Melsted, buðu
fréttamönnum sl. föstudag að
skoða nokkrar nýjar gerðir véla
frá fyrirtækinu, sem komnar eru
á markað hér.
Olivetti er gamalt fyrirtæki á
Ítalíu og hefur framleitt rit-
og reiknivélaii í um 60 ár og
rafknúnar skrifstofuvélar um 15
ára skeið. Alls eru nú framleidd-
ar 10 gerðir af Olivetti ritvélum
og eru allar fáanlegar hérlendis,
en allra nýjustu gerðirnar eru
tvær tegundir ferðaritvéla, O.
Dora sem er ódýrust á 3750 kr
tilvalin skólaritvél, og O. Lettera
De Luxe, sem er sérstaklega
vönduð útgáfa af Lettera 32, auk
tveggja rafmagnsritvéla, lítillar
gerðar, Tekni 3, á 13.860 kr., sem
þó er nógu breið fyrir víxla og
tollskýrslur og Tekni 5, sem er
mjög stór og fullkomin skrif-
stofuvél.
Þá eru einnig komnar fram
nýjar gerðir reiknivéla, hand-
og rafknúnar og bráðlega er
von á rafeindareikni til notkun-
ar í bönkum og stórfyrirtækjum
Framhald á 4. síðu.