Þjóðviljinn - 11.09.1966, Síða 4
4 SIÐA— ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 11. september 1966
Otgefandi: Sameiningarilokkur alþýöu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðnmndsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson.
Sfmi 17-500 (5 línur)- Áskriftaírverð kr. 105.00 á mánuði. Lausu-
söluverð kr. 7.00.
Svikin loforð—svo hótanir
f»að litið sem íhaldsblöðin hafa rætt um væn'tan-
lega samninga við verkalýðshreyfinguna nú í
haust hefur einkennzt af þeirri stefnu forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins að allt megi hækka —
nema kaup verkamanna og annarra launþega, og
svo öðrum þræði hótunum um þvingunarlög, ef
verkalýðshreyfingin vilji ekki fallast á þessa
stefnu. Verkamönnum kemur það ekki á óvart, að
í samningum sínum einnig nú í haust eigi þeir að
mæta tvíhöfða afturhaldi, íhaldsríkisstjóm og
íhaldsklíku Vinnuveitendasambandsins. Ferill
þbssarar ríkisstjómar hófst með beinni árás á lífs-
kjörin og með því ofbeldisverki að banna með lög-
um að verkamenn og aðrir launþegar skyldu fá
nokkrar uppbætur fyrir verðhækkanir samkvæmt
vísitölu. Ríkisstjórnin fylgdi síðan trúlega þeirri
stefnu að allt mætti hækka nema kaupið og þegar
verkalýðshreyfingin snerist seint og um síðir til
varnar og knúði fram nokkra kauphækkun með
afli samtaka sinna framkvæmdi ríkisstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins tilefnislausa og
ábyrgðarlausa gengislækkun, hefndarráðstöfun
gegn verkalýðshreyfingunni; sem beinlmis 'var
gerð til að ræna ávinningi verkamanna af kaup-
hækkuninni, enda þót.t. afleiðingarnar yrðu að sjálf-
sögðu miklu víðtækari og skaðsamlegar. Hæst
reiddi þó þessi ríkisstjóm Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins til höggs haustið 1963, þegar hún
reyndi að hespa gegnum Alþingi þvingunarlög
gegn verkalýðshreyfingunni. Þegar vitað var að
þau lög yrðu að engu höfð, heyktist ríkisstjórnin
á því að láta samþykkja þvingunarlögin þó ekki
væri eftir nema ein umræða málsins í þinginu.
Frá þeim tíma hefur þó virzt að ríkisstjórnin við-
urkenndi að minnsta kosti í orði að verkalýðs-
hreyfing starfar í landinu.
Síðast í gær flytur Morgunblaðið loðnar hótanir
um þvingunarlög gegn verkalýðshreyfingunni,
vilji hún ekki fallast á stefnu ríkisstjórnarinnar að
allt megi hækka nema kaupið. Jafnframt er full-
yrt að stjórnin hafi „marglýst yfir vilja sínum til
þess að hafa góða samvinnu við verkalýðshreyf-
inguna og atvinnurekendur um takmörkun verð-
bólgunnar“. Yfirlýsingar hefur ekki vantað og há-
tíðleg loforð. Én það hefur allt reynzt tóm svika-
loforð, verðlagið hefur verið látið æða áfram án
nokkurs skynsamlegs samhengis við kauphækkan-
ir, ríkisstjórnin hefur í reynd verið verkfæri brask-
ara og bróðabrallsmanna, fyrir þá hefur hún stjórn-
að, Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn meira að
segja hvað eftir annað haft beina foiystu um til-
finnanlegar verðhækkanir á þjónustu við almenn-
ing. Þess vegna duga nú skammt .ný loforð og nýj-
ar yfirlýsingar, og því síður hótanir um þvingun-
arlög gegn verkalýðshreyfingunni. Sá straumur
þyngist nú með hverjum degi sem væntanlega
verður á næstu mánuðum nógu þungur til að skola
burt hinni lítilsigldu, úrræðalausu ríkisstjórn
Bjama Benediktssonar og Alþýðuflokksins, svo
breytt verði um stjórnarstefnu, ekki sízt gagnvart
'Vql-eyfjngu.nni og áhrifum hennar á þjóð-
'álin. — s.
...... . -....... -............ ... 1 - 1
INGÍMAR JÓNSSON SKRIFAR FRÁ B0DAPEST
Varju vann fyrsta
aullið fyrir llngv.
□ Á þriðja degi Evr-
ópumeistaramótsins í
frjálsum íþróttum komst
heimsmet fyrst í hættu,
er Kudinski náði af-
bragðsgóðum tíma í
3000 m hindrunarhl.
og sigraði m.a. Koelants
sem talinn var líklegur
að vinna tvenn gull-
verðlaun á mótinu.
Budapest 3. sept. —
□ Ungverjanum Vilmus
Varju var að vonum fagnað
gífurlega af löndum sínum í
dag, þegar hann hafði unnið
kúluvarpið og þar með fyrstu
gullverðlaunin fyrir Ungverja-
land á þessu Evrópumeistara-
móti og kannski þau einu, ef
Zsivotsky tekst ekki að vinna
sleggjukastið á morgun.
□ Varju náði lengsta kasti
sínu þegar í fyrs.tu umferð, og
sigri hans var aldrei ógnað,
því Pólverjinn Komar, sem tal-
inn var helzti andstæðingur
háns, en báðir hafa kastað yf-
ir 19,60 m í sumar, náði sér
ekki á strik og hafnaði að lok-
um í þriðja sæti. Grushin frá
Sovétr. var ekki heldur upp-
lagður og komst meira að
segja ekki í 8 manna úrslitjn,
en hann hefur kastáð 19,46 m
í sumar og mátti því búast við
ýmsu af honum. Landi hans
Karasov var eiginlega sá eini
sem komst nálægt Varju, en í
þriðja kastinu tognaði hann
og var þar með úr leik.
□ Kúluvárpið, varð því ekki
eins spennandi og gert hafði
verið ráð fyrir eftir afrekum
keppenda í sumar. En Varju
er vafalaust þeirra langörugg-
astur og var því vel að sigr-
inum kominn. Varju sigraði á
síðasta Evrópumeistaramóti,
varð fjórði á OL í Tokíó og •
í vetur vann hann beztu kúlu-
varpara Evrópu á Hallarleikj-
unum í V-Þýzkalandi.
□ Belgíumaðurinn Gaston
Roelants hafði sagt fyrir EM
að 3000 m hindrunarhlaupið
myndi vinnast á nýju heims-
meti, og gaf þá um leið í skyn
að hann hyggðist bæta sitt eig-
ið heimsmet. Þessi spádómur
Roelants reyndist ekki fráleit-
ur, því sigurvegarann Kudinskí
frá Sovétr. skorti aðeins 3/10
úr sek. til að setja nýtt heims-
met og hefði Roelants veitt
svolitla mótspyrnu í lokhlaups-
ins þá hefði meti hans verið
hnekkt.
□ Roelants ætlaði að
þvinga fram úrslit, þegar rúm-
ir þrír hringir voru eftir, með
því að taka rykk mikinn, og
tókst honum þá að ná nokkru
forskoti á Kudinski og Kurjan
(Sovétr.), sem fylgdu honum
eftir, en aðrir höfðu dregizt
aftur úr og komu ekki til *
greina í úrslitabaráttunni. Ro-
elants jók svo forskot sitt
jafnt og þétt og hafði lengt
það upp í 20 metra, þegar
bjallan hringdi til merkis um
að síðasti hringurinn væri haf-
inn. En þá var Roelants þrot-
inn kröftum og sovézku hlaup-
ararnir tóku að draga mjög
á hann, þegar 300 m voru eft-
ir. Þegar að síðustu gryfjunni
kom. var Kudinski á hælum
Roelants, og þegar á beinu
brautina kom fór hann framúr
og mætti engri mótspyrnu frá
hendi Roelants. Kurjan sem elt
hafði landa sinn fór svo líka
fram úr Roelants þegar um 40
m voru eftir af hlaupinu.
□ Timi Kudinskis er af-
bragðsgóður en litlu munaði
að heimsmetið félli og hefur
ekkert heimsmet komizt í því-
líka hættu á þessu móti eins
og í þessu hlaupi.
Kúluvarparinn Vilmus Varju.
□ Roelants sem fyrir EM
var álitinn líklegastur til að
Vinna tvenn gullverðlaun á
mótinu, í 10.000 m og í þessu
hlaupi, enda hefur hann að
undanförnu verið meðal beztu
langhlaupara í heimi, fer því
heim af þessu móti með aðeins
éin bronsverðlaun í vasanum.
□ A-Þjóðverjar unnu enn
ein gullverðlaun i dag, en í
spjótk. kvenna sigraði Liittge
með ágætu kasti 58,74 m, sem
er bezti árangur í heimi á
þessu ári. Þessu kasti náði
Liittge í þriðja kasti, ep
nokkrum mín. áður hafði rúm-
enska stúlkan Penes náð for-
ystunni af henni með því að
kasta 56,94 m. í næstu sætum
urðu sovézku stúlkurnar Pop-
o^b., Gorsakóva (heimsmethaf-
inn 62,Í0 m) og Ozolina sem
sigraði á EM 1962.
□ Frábærasta íþróttakona
þessa EM, Irena Kirszenstein
frá Póllandi, sigraði i dag í
langstökkinu og hlaut þar með
önnur gullverðlaunin á mót-
inu en að líkindum ekki þau
síðustu, því 4x100 m boðhlaup-
ið er eftir ög það vinna þær
pólsku.'ef ekkert óvænt kemur
fyrir. í undanrásunum í dag
höfðu þær yfirburði Iíkt og
Frakkarnir hjá körlum. Lang-
stökkskeppnin var afar tvísýn
svo áhorfendur biðu síðasta
stökksins með eftirvæntingu
þótt ekkert annað væri um að
vera á vellinum.
□ í tveim síðustu umf'erð-
unum breytti svo að ségja
hvert stökk röð hinna fremstu,
og sannaðist hér seni oft áður
að stutt er bilið milli gleði-eg
sorgar í íþróttum. Til dæmis
hugðist holl. stúlkan Bakker
hafa með síðasta stokki sínu
unnið baráttuna um þriðja sæt-
ið við Hoffmann (V-Þýzkal.)
og Viscópoleanu (Rúmeníu) en
Hoffmann átti þá eftir eitt
eitt stökk og Bakker mátti láta
henni eftir gleðina.
□ Athygli vakti léleg
frammistaða ensku stúlkunripr
Mary Rand sem ekki komst í
a§alúrslitin en hún þótti hafa
sigurlíkur í þessari grein og
einnig í fimmtarþrautinni. í
hvorugri komst hún á verð-
launapallinn og fer því þessi
fræga íþróttakona sem fyrir
tveim árum vann frækileg af-
rek í Tokíó, heim frá Buda-
pest án þess að hafa til vegs-
auka unnið.
Stjórn mótsins Ungverjum til sóma
□ Evrópumeistara-
mótinu lauk í kvöld
með' hátíðlegri athöfn
þar sem íþróttafólkið
kom fram allt saman
eins og í upphafi. Þjóð-
dansar voru sýndir og
flugeldum skotið og
margt fleira *var til
haft.
f
□ Á þessu móti voru
mörg met sett, lands-
met, Evrópumeistara-
mótsmet og vallarmet
fyrir utan öll persónu-
legu metin. En hvað af'
rek snertir mun mótið
þó tæplega hafa full-
nægt vou' anna og
fullyrða má að búizt
hafi verið við betri af-
rekum a.m.k. í mörgum
greinum.
□ Ungverjum fórst
mótið vel úr hendi og
má segja að röðin hafi
verið komin að þeim,
en það var einmitt
Ungverji sem fyrstur
stakk upp á því fyrir
um 40 árum, að haldin
yrðu Evrópumeistara-
mót, þar sem beztu
frjálsíþróttamennirnir í
Evrópu kæmu saman.
til keppni.
Budapest 4. september. —
□ Síðasti mótsdagur EM
hafði að sjálfsögðu upp á
nokkra hápunkta að bjóða eins
og úrslit í 5000 m, 800 m og
boðhlaupunum.
□ Fyrir Ungverjana var
sleggjukastið auðvitað grein
dagsins en þar gátu þeir með
réttu gert sér miklar vonir um
sigur þar sem Zsivotský var.
En úrslitin urðu ekki á þá leið.
því Zsivotský, heimsmethafinn
í greininni, náði sér aldrei á
strik og varð að lokum að láta
í minni pokann fyrir Klim
(Sovétr), sem í þessari keppni
sýndi mikið öryggi, og var lé-
legasta kastið hans litlu styttra
en bezta kast Zsivotskýs. Það
var auðsjáanlegt að Zsivotský
var óánægður með sjálfan sig
og átti bágt með að skilja
ófarjr sínar.
□ Örlög hins sigurstrang-
lega Zsivotskýs sem fyrirfram
var talinn í hópi þeirra, sem
örugglega yrðu Evrópumeist-
arar að þessu sinni. létu þann
grun^koma upp að einnig þann-
ig færi fyrir fleirum „örugg-
um“ sigurvegurum á þessum
degi og tala hinna óvæntu úr-
slita þessa móls vrði hærri pn
orðið var. Var 1 nrr-st að ætls
að Jazy myndi bíða lægri hl’.i'
í 5000 m eins og í 1500 m, en
í þeirri grein var hánn talihn
allra líklegastur til sigurs, '■
□ En sigurinn í 5000 tn
varð ekki tekinn af Jazy, sem
sigraði auðveldlega skáeðasta
keppinautinn sinn, V-Þjóðverj-
ann Norpoth, á löngum enda-
spretti. Jazy hélt sig lengi vel
um miðju í hlaupihu og fylgd-
ist vel með Norpoth ög Haase,
en sá síðarnefndi lét fljótlega
í Ijós lítinn áhuga á því að
berjast ,um álgur i þessu
hlaupi. Ungverjirin Mecser
leiddi hlaupið þar til 3 hringir
voru eftir en þá tók landi haris
Kiss við og datt þá Mecser
aftur úr. Norpoth og Jazy
fylgdu Mecser og síðar Kiss
eftir sem skuggar, og auðséð
var að baráttan yrði á milii
þeirra.
□ Rétt áður en síðagti
hringur hófst tók Norpoth for-
ystuna með Jazy á hælum sér
og hófst þá eiginleéa einvíg-
ið á milli þeirra. Hlupu þeir
samhliða næstu 30fi metra eða
har ti] Jazy skellti sér fram
•ti 100 m voru eftir, og
Framhald á 9. síðu.