Þjóðviljinn - 11.09.1966, Page 6
0 SlÐA — ÞJÖÐVTWrNN — Sunnwdagar XL september 1366
NESKAUPSTAÐUR
Flugstöðvarhúsið og flugvélin „Norðfirðingur"
Rœff viS Örn Scheving
Starfsemi Flugsýnar á Norð-
fírði er í mjög örum vexti
Samgöngur eru lífæð hvers
byggðarlags. Án þeirra myndi
rikja auðn og tóm og eilíft vol-
aeði. Nú er eins og allir vita
erfitt að leggja vegi á íslandi,
því víða þarf að spekja á bratt-
ann og vinna bug á skriðurðum
og skornum fjallshlíðum. Til
Norðfjarðar er sótt um hæsta
fjallveg í byggð á íslandi,
Oddsskarð. sem er 660 metrar
yfir sjávarmáli'. Það lætur að
líkum, að pláss, sem þannig
pr í sveit sett verður að lifa
við einangrun og útúrborun
mestan hluta vetrarins, treyst-
andí nær eingöngu á stopular
skipaferðir. Þetta hefur verið
hlutskipti Norðfirðinga um
langt árabil, en á síðari helm-
ingi tuttugustu aldar er það
auðvitað algerlega óþolandi í
bæ, sem í æ ríkari mæli er að
taka að sér forystuhlutverk á
Austfjörðum, bæði hvað mann-
fjölda og atvinnulíf snertir.
Nú gerist það á árunum
1961—62, að flugmálastjórnin
lætur leggja 1000 metra langa
flugbraut inni í Norðfjarðar-
botni og Neskaupstaður kemst
á áætlun hjá FÍ, en eftir að
þangað hafði verið flogið
nokkrum sinnum, íéll áætlunar-
flugið niður af einhverjum á-
stæðum. Þá var það sem Bjarni
Þórðarson bæjarstjóri hafði
samband við forráðamenn Flug-
sýnar í Reykjavík og varð að
samkomulagi með þeim, að fé-
lagið keypti 7. farþega Beech-
craft flugvél til að annast dag-
legt áætlunarflug til Neskaup-
staðar, en bæjarsjóðurinn í
Neskaupstað geqgist í ábyrgð
fyrir láni til kaupanna á vél-
inni. Til þess að fá betri upp-
lýsingar um hið merkilega
starf sem Flugsýn hefur unnið
á Neskaupstað í samvinnu við
bæjarfélagið, snúum við okkur
til umboðsmanns félagsins, Arn-
ar Scheving:
— Flugsýn hóf áætlunarflug
hingað í marzmánuði árið 1964
á Beechcraft flugvélinni. Það
kom fljótlega í ljós, að hún
annaði engan vegin þeim verk-
efnum sem hér voru fyrir
hendi. Sérstaklega fóru vöru-
flutningarnir sívaxandi. Þess-
vegna réðist félagið í að kaupa
15 farþega vél af gerðinni De
Haviland Heron og sumarið
1965 voru báðar ílugvélárnar í
áætlunarflugi hingað og einnig
um haustið. Oft varð að fara
margar ferðir á dag og stund-
um aukaferðir með varning
eingöngu. Þá verður sá hörmu-
legi atburður í vetur, að Beech-
craft íkrgvélin ferst hér í Norð-
fjarðarflóanum, þegar hún var
að koma hingað eftir sjúklingi.
Með henni fórust Sverrir Jóns-
son ílugstjóri og aðstoðarflug-
maður hans, Höskuldur Þor-
steinsson, en það var ekki hvað
síst Sverri að þakka, áhuga
hans og dugnaði, að starfsem-
in tókst eins vel og raun varð
á. í stað Beechcraft vélarinnar
var reynt að útvega aðra Heron
vél, en ekki reyndist unnt að
fá vél nægilega vel útbúna
til að sinna svona erfiðri flug-
leið. Sérstaklega stóð á því að
hægt væri að fá vél Vneð ís-
varnartækjum.
Það má skjóta því hér inn í,
að þegar Heron flugvélin var
tekin í notkun í apríl 1965,
kom hingað meðal annarra
gesta, Ingólfur Jónsson flug-
málaráðherra. í ræðu sem hann
hélt við það tækifæri, lo^aði
hann að lýsing yrði sett á
flugbrautina í síðasta lagi þá
um haustið. Nú ári síðar, er
lýsingin enn ókomiji og háir
það okkur mjög. T.d. er ekki
hægt að fljúga hingað nema
eina ferð á dag í skammdeginu
vegna þess arna.
Þegar ekki reyndist unnt að
útvega aðra Heron flugvél,
komst Flugsýn inn í tilboð hjá
British United Airways, sem
bauð til sölu tvær DC 3 flug-
vélar. Önnur vélin var keypt
strax og samið um kaup á
hinni síðar, siðan var byrjað
að íljúga Douglasinum í maí
í vor og um það leyti var Her-
on vélin seld. Nokkru síðar
var svo hin DC 3 vélin tekin
í notkun'. Þannig hefur sæta-
fjöldi Norðfjarðarflugs tífald-
azt á þessum tveim árum, sem
það hefur starfað.
Fyrst í stað voru aðstæður
hér á staðnum ákaflega frum-
stæðar. Við urðum að dæla
benzíni á vélarnar með hand-
dælu beint úr tunnunum. Siðar
var komið fyrir 10.000 lítra
benzíngeymi, en við héldum á-
fram að dæla öllu benzini með
handafli, þangað til nú fyrir
skömmu að við fengum sjálf-
virka dælu.
’ Afdrep fyrir afgreiðslu og
farþega var ekkert, fyrr en
bæjarstjórnin lét reisa flug-
stöðvarhús við völlinn. Það var
tekið í notkun í vetur. Bæjar-
sjóður á að fá kostnaðinn við
smiði hússins endurgreiddan
frá Flugmálastjórninni. Nú
stendur til að stækka húsið
til að hægt verði að komá þar
fýrir nauðsynlegum tækjum,
eins og flugradíói, sem nú er
staðsett inni í bænum. Stefnu-
viti er hinsvegar úti á Bakka-
bökkum.
Mjög er aðkallandi fyrir okk-
ur að fáj flugvélarskýli á völl-
inn, en vegna vöntunar á því
er ekki hægt að fljúga hingað
í tvísýnu útliti. þegar hætta
getur verið á að vélin verði
Selium allar olíur til húsa oq
skspa (umboð fvrir BP)
Benzínafgreiðsla opin frá kl. 9 f.h. til
11,30 e.h. á hverjum degi
Olíusamlag
útvegsmanna
Neskaupstað
örn Scheving við afgreiðsluna-
hér innlyksa. Þá er einnig
mjög nauðsynlegt að fá ratsjá,
sem er ómissandi öryggistæki
við allt flug.
Nú þegar ráðgert er að grafa
bátakvi inn í landið samsíða
flugbrautinni, eru stórar líkur
fyrir að efni fáist til að lengja
flugbrautina um eina 300
metra. • • ••» : •;■ • />
Ég get ekki stillí mig um að
benda á, í sambandi við flug-
vélarskýlið, að með því væri
hægt að staðsetja hér sjúkra-
flugvél allt árið, enda er fjórð-
ungssjúkrahúsið einmitt hér.
Lausn ,þess máls yrði því í
rauninni í þágu allra Austfirð-
inga. tt.pc
Síldamnnslan hf.
Neskaupstað
Framleiðendur síldarmjöls og
síldarolíu. Rekum síldarverk-
smiðju, útgerð, fiskvinnslustöð,
síldarsöltun.
Símar: 166 — 167 — 279 — 287.
Útgerð: 163.
Fiskvlnnslustöð: 33 — 182..
Síldarsöltun: 127 — 273.
Síldarwinnslan hí
Neskaupstað