Þjóðviljinn - 11.09.1966, Side 7
Sunnudagur 11. september 1966 — ÞJÖÐVTLJTNN — SÍÐA 'J
ikiSl myndarbrsgur er á öllum rekstri Sjómannastof-
unnar í Neskaupstað
félaginu. Húsið er að vísu gam-
alt, en reynt var að gera það
eins vel úr garði og unnt var
Og ég held að okkur sé óhsett
að segja að það hafi tekizt vel.
Tæki öll, sem þú sérð hér i
eldhúsinu, voru keypt sérstak-
lega til hússins.
Svo viljum við að endingu
leggja enn einu sinni áherzlu
á, að hér er engin sjopps eða
hótel, heldur griðastaður fyrir
sjómenn og aðkomufólk, sem
hefur ekki annað athvarf hér
í bænum.
kaupir fisk til frystingar, í salt óg til
herzlu.
Selium beitusíld, ís, salt og fleira tii
skipa.
Fiskvinnslustöð SÚN
Neskaupstað
Sjómann astofíui.
ÚTSÝSSi H.F.
Reykjavíkurflugvelli, símar: 18823 og 18410.
Kristrún og Ragnhciður við kaffikönnuna.
Rœtt um starfsemina við
Kristrúnu Helgadóttur og
Ragnheiði Sverrisdóttur
□ Bráðum hefur bæjarfélagið í Neskaupstað
rekið sjómannastofu í tvö sumur. Eftir að hafa
haft lítilleg kynni af svonefndri „Sjómanna-
stofu“ á Seyðisfirði, sem er rekin af all-þekktum
athafnamanni úr Reykjavík, vaknaði hjá mér
nokkur löngrun til að sjá hvernig samnefnt fyrir-
tæki væri rekið í Neskaupstað. Við fyrsta innlit
kom í ljós að þar kemur enginn samanburður til
greina.
Húsakynni sjómannastofunn-
ar í Neskaupstað eru björt og
hreinleg og auðséð að um-
gengni er þar til stórrar fyr-
irmyndar. Frammi við anddyr-
ið hanga reglur stofnunarinnar
og er meginandi þeirra sá að
þar skuli ekki haft áfengi um
hönd og einnig er þar tiltekið
hve lengi í einu sömu menn
megi nota knáttborð stofnunar-
innar, en þau tímamörk gilda
því aðeins að fleiri bíði eftir
að komast að. Þannig eru regl-
urnar einnig í anda friðsam-
legrar sambúðar.
Forstöðukonur Sjómannastof-
unnar eru þær Kristrún Helga-
dóttir og Ragnheiður Sverris-
dóttir. Þær leysa greiðlega úr
spurningum um íyrirkomulag
á rekstri stoínunarinnar:
— Sjómannastofan var fyrst
opnuð þann 19. júlí • í fyrra-
sumar og starfaði fram í end-
aðan nóvember. í sumar var
svo opnað þann 15. júní og
verður opið eftir þörfum fram
á haustið. Það kom strax í ljós
að mikil þörf var fyrir stofn-
un þessa þvi að aðsóknin hef-
ur verið prýðileg. Hingað koma
sjómennirnir til að sitja eins
og heima hjá sér við tafl, spil
eða yfir kaffibolla og blöðun-V
um. Bréfsefni ligur hér frammi'
ókeypis og ritföng eru lánuð.
Þá höfum við séð um að koma
pósti frá þeim og jafnvel í til-
vikum látið senda póst til
þeirra hingað, þar sem þeir
hafa getað gengið að honum.
Þá höfum við líka annazt
geymslu á dóti þeirra, ef þeir
hafa þurft að bregða sér frá
í frí, eða í öðrum erindagerð-
um.
Við höfum tekið eftir því að
sjómennirnir líta á Sjómanna-
stofuna sem heimili sitt í vax-
andi mæli. Fyrst í stað var eins
og þeir áttuðu sig ekki fylli-
lega á því, að hingað var þeim
frjálst að koma og sitja meðan
opið er frá klukkan 10 ó
morgnanna til hálf tólf á kvöld-
in og það alveg eins, þó þeir
kaupi engar veitingar. En þetta
hefur fljótt breytzt og í fyrra-
haust barst okkur áþreifanleg-
ur vottur þess hve mikils þeir
meta starfsemina. Skipshöfnin
á vélbátnum Lómi frá Kefla-
vík sendi okkur að gjöf for-
láta Stereo-útvarpstæki ásamt
plötuspilara.
Við seljum allar veitingár á
vægu verði, enda fráleitt að
þessi starfsemi sé rekin með
gróðasjónarmiðum. Veitingarn-
ar eru: Kaffi, te og mjólk á-
samt rjómapönnukökum, heima-
bökuðu brauði með áleggi og
kökum. Ö1 eða gosdrykki selj-
um við ekki, en hinsvegar
tóbak og litilsháttar af sælgæti.
Framkoma sjómanna hér inn-
an veggja er á allan hátt til
sóma og fyrirmyndar. Þeir
reyna ekki að komast hingað
inn með vin, eða ölvaðir. Vita
sem er að það er vita tilgangs-
laust. Reynsla okkar af við-
skiptum við þá er sú, að þeir
séu upp til hópa prúðir og um-
gengnisgóðir menn. Samkomu-
lagið um knattborðið er til
mestu fyrirmyndar, því ekki
hefur nema einu sinrii eða
tvisvar komið fyrir að við höf-
um verið beðnar að stöðva spil,
sem staði’ð haíði of lengi.
Sérstaklega höfum við tekið
eftir hvað sjómennirnir una sér
vel við taflið, þó að auðvitað
sé knattborðið mjög vinsælt og
það er ánægjulegt að sjá hér
sömu andlitin aftur og aftur og
ber vott um að það sem við
erum að reyna að gera hér,
fellur í góðan jarðveg.
i Stofnunin er ekki einkafyr-
\ irtæki, heldur rekin af bæjar-
ÁÆTLUNARFLUG
Reykjavík - Neskaupstaður - Reykjavfk
Frá Reykjavík kl. 10.00. — Frá Neskaupstað kl. 13.00.
Nema sunnudaga:
Frá Reykjavík kl. 15.00. — Frá Neskaupstað kl. 17.30.
Akureyri - Neskaupstaður - Akureyri
Miðvikudaga og föstudaga:
Frá Akureyri kl. 11.30. — Frá Neskaupstað kl. 13.00.
AFGREIÐSLA Á AKUREYRI :
Ferðaskrifstofan S A G A Sími 12950.
AFGREIÐSLA NESKAUPSTAÐ:
Öm Scheving, símar 263 og 114.
Fiskvinnslustöð SÚN