Þjóðviljinn - 11.09.1966, Blaðsíða 10
JQ SfÐA' — ÞJÓÐVItJINN — Sunnudagur II. september 1966
í H Ú S I
MÓÐUR MINNAR
Eftir JUL.IAN GLOAG
ert eins spennandi í garðinum
mínum og litla húsið sem þið
h&fið byggt í ykkar garði.
Húbert varð þurr í hálsinum.
Halbert grunaði þá eitthvað þrátt
fjrrir allt. Hann beið eftir hinni
næstu, óumflýjanlegu snumingu.
En hún kom bkki. Halbert var
ósköp lengi að bórða, eins og
honum þætti samlokan ekki sér-
lega góð, og svo sagði hann:
Segðu mér hvað þér finnst gam-
an að hafa í röð og reglu?
— Hluti, sagði Húbert og tók
við tebolla 'af Díönu sem sat
vinstra megin við hann. Ég á við
— hluti eins og útvarp og þess
háttar- Ég ,-gerði við útvarpið
þegar það bilaði, og mig langaði
til að reyna við úrið hennar
mömmu, þegar það bilaði, en ..
En?
— Tja, ég ....
Halbert dreypti á teinu sínu.
Það hefur auðvitað verið of erf-
itt. Það er aðeins á faferi sér-
fræðinga að gera við úr. ‘Þeir
verða að læra í mörg ár.
Við hinn borðsendamn þurftu
Elsa og Willy að umbera mal-
andann í frú Halbert. Húbert sá,
að Willy hlustaði alls ekki á
hana. Hann borðaði bara. Þetta
hefði verið nokkuð fyrir Gerty.
Sjö mismunandi samloktrtegund-
ir og auk þess brauðkollur.
-Herra Halbert sneri sér að
Jiminee. — Jiminee, sagði hann-
Það var kyndugt nafn — hvernig
• hefurðu fengið það?
Jiminee eldroðnaði-
— Það var þegar hann var
lítíll, sagði Húbert. Hann gat
ekki sagt nafnið sitt almenni-
lega — mamma kallaði hann
Jimmí. Hann sagði bara
Jim-im-imí, og þess vegna fórum
við að kalla hann Jiminee. Jim-
inee stamar, skiljið þér.'
— Það er lakara- Halbert
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðastræti 21. SÍMI 33-968
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
rjarnargötu 10, Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
strauk sér um gláfægt ennið- En
þú mátt ekki hætta alveg að tala
þess vegna, eins og þú veizt.
Hann brosti til Jiminee — og
yfir andlitið á Jiminee liðu
krampaikgnnd bros.
— Nei, nei, flýtti 'Húbert sér
að segja. Hann talar heilmikið
— er það ekki, Jiminee?
Jiminee kinkaði kolli. Hann
opnaði munninn til að segja ^itt-
hvað. Lengi vel var eins og orð-
in vildu alls ekki koma út, en
svo komu þau allt í einu í gusu:
Heima, sagði hann — heima
drekkum við te úr kr-krúsum!
Halbert var alvarlegur á svip.
Það er, margt sem mælir með
því- Sjálfur hef ég oft verið að
velta fyrir mér, hvað við eigum
að gera við undirskálar. Þegar
allt kemur til alls, drekkum við
ekki vín úr glösum með skálum
undir — og reyndar ekki öl
22
heldur. Og satt að segja held ég
að miklu auðveldara sé að sulla
niður víni en tei. Þetta er ann-
ars skrýtið — en það er sjálf-
sagt ein fordildin, *hugsa ég.
Hann horfði hugsandi á teboll-
ann sinn.
— Mér finnst ákaflega hátíð-
legt að drekka úr bolla með
undirskál, sagði Húbert- Svona
til tilbreytingar.
Halbert kinkaði kolli. Hann
var að horfa á konuna sína við
hinn borðsendann. Hann er alltaf
að horfa á hana, hugsaði Húbert,
og þó er hún ekki mikið fyrir
augað.
Það var seinna, þegar herra
Halbert hafði gert margar mis-
heppnaðar tiH-aunir til að fá
Díönu til að segja eitthvað, að
Húbert tók í sig kjark og spurði
um bílinn.
— Þú hefur kannski áhuga á
bílum? sagði herra Halbert. Ef
ég á að segja eins og er, þá nota
ég hann ekki mikið- Reyni að
aka svolítið út um helgar, en
það er lítið varið í að eiga bíl
í stórborg, sjáðu til-
— Hafið þér ekið 'í bílnum yð-
ar um þessa helgi? spurði Hú-
bert.
— Nei. Halbert neri skallann
hugsandi á svip. Heyrðu mig, þú
hefðir kannski ekkert á móti
því að koma í dálítinn bíltúr
eftir te?
Húbert brosti út að eyrum.
Nei, kærar þiakkir.
— Og þú ekki heldur? sagði
Halbert og sneri sér að Jiminee
sem kinkaði kolli með ákefð-
— Jæja, þá förum við öll-
Halbert reis upp frá borðum.
— Hvert ertu að fara, góði
minn? hrópaðl frú Halbert frá
hinum borðsendanum.
— Mér datt í hug að við gæt-
um öll komið í ökuferð eftir te.
Ég þarf bara að láta koma með
bílinn.
— En er nokkur £ bílageymsl-
unni á sunnudegi?
— George er þar sjálfsagt. Þú
kemur líka, er það ekki vina
mín?
Húbert vonaði að hún segði
nei-
Hún saup á bollanum sínum-
ökuferð á sunnudegi? Það er svo
mikil umferð, Sammi. Ég hafði
hugsað mér, að við spjölluðum
notalega saman eftir te. Langar
ykkur, hún brosti til þeirra,
breitt og tómlega, langar ykkur
til þess, böm?
Húbert gaf Halbert gætur og
tók eftir óánægjusvipnum, sem
brá fyrir sem snöggvast á sléttu,
gljáandi höfði hans. Ég held þau
langi meira í bílferð — bara
smáferð kringum skemmtigarð-
inn.
— Jæja, umlaði frú Halbert-
Ég held ég fari ekki með, góði
minn, ef þér er sama.
— Jæja, jæja. Halbert sneri
sér við og gekk upp að húsinu.
Ég kem aftur eftir andartak,
hrópaði hann til þeirra.
Frú Halbert brosti. Viltu ekki
fá þér eina samloku í viðbót,
Willy?
Willy hristi höfuðið. Ég er al-
veg stútfullur, sagði hann-
Hún fór að hlæja, Mikið er
lavigt síðan ég hef heyrt nokkum
segja þetta. Veiztu það — þetta
sagði ég víst líka þegar ég var
lítil. Mikið ertu indæll lítill
snáði. Hún andvarpaði. Ég man
eftir lítilli velsiðaðri telpu, sem
kom í te til okkar, þegar ég var
lítil. Já,- hún var mjög vel upp
alin- Þegar mamma spurði, hvort
hún vildi fá meira að borða,
sagði hún: Nei, kærar þakkir, ó-
mögulega meira — heima segist
ég vera pakksödd! Bömin brostu
kurteislega-
Elsa sagði: Það segir yngsta
systirin okkar, hún Gerty líka —
pakksödd.
— Gerir hún það? En indælt
— segir hún það? Brosið á frú
Halbert kom og fór eins og ljós
á biluðu .vasaljósi. Alve'g eins og
á Jiminee, hugsaði Húbert. Já,
ef þið eruð öll búin að fá nóg,
langar ykkur sjálfsagt til að
standa upp frá borðum og hlaupa
um garðinn.
Þau stóðu kyrr á dreif um
graseyjarnar og biðu þess að
beyra herra Halbert koma aftur-
Joan var að taka af borðinu —
hún gaut augunum til bamanna-
Frú Halbert talaði.
Allt í einu -.lagðist Willy útaf
á grasflötina og lokaði augun-
um. Willy, hvíslaði Húbert- Rístu
upp und.ir eins- En frú Halbert
var búin að taka eftir því.
— Hamingjan góða, hamingjan
góða, þér er þó ekki illt, Wiliy?
F.r hann veikur — ó, það vona
ég ekki. Kannski var það kakan,
Willy? Hún laut niður að hon-
um.
— Ég er tígrisdýr og ég er
srfandi, sagði Willy.
'— En hvað þetta er skemmti-
'egur snáði. Frú Halbert ljómaði-
— Willy, upp með þig, sagði
Elsa.
— Ég er tígrisdýr og ég er
sofamdi, sagði Willy festulega.
— Ja, hérna, en sú hugmynd!
sagði frú Halbert.
Húbert sagði: Hann þykist
vera í frumskógarleik.
— Ég er tígrisdýr, tígrisdýr,
tígrisdýr. söng Willy-
— Upp með þig Wiily, sagði
Elsa aftur.
— Frumskógarleikur! Frú Hal-
bert flissaði inn í eig. En hér er
enginn frumskógur!
— Jú, víst. Willy bpnaði aug-
un andartak. Þetta er allt saman
frumskógur-
Húbert komst að þeirri niður-
stöðu að frú Halbert væri fífl-
— Willy, ef þú stendur ekki
strax upp, verðurðu að fara í
rúinið strax'og við komum heim.
— Tígrisdýr fara ekki í rúm-
ið. Willy urraði lágt.
— Tígrisdýr fara ekki heldur
í ökuferðir, sagði herra Halbert
bakvið þau. Hann brosti. Komið
þá, börn, bíllinn stendur fyrir
utan-
Willy spratt samstundis á
fæbur.
Þau gengu á eftir herra Hal-
bert gegnum húsið. Húbert
reyndi að halda sig sem næst
honum.
— Börn! sagði Elsa í áminn-
ingartón um teið og Halbert opn-
aði útidymar. Húbert sneri spr
við um leið og Elsa gekk til frú
Halbert. Kærar þakkir fyrir teið
og allt, sagði hún, Þetta var
mjög skemmtilegt fyrir okkur
öll.
Frú Halbert bar aðra höndina
upp að munninum. En þið komið
aftur, er það ekki? Þið verðið
að koma aftur eftir ökuferðina!
— Þökk fyrir, en þá verður
?FALT5S!r*fíÞANE
falt
falt
einQngrunargler
soenslc
9œdayara
EINKAUMBOD
Imars tradiimg
4844 — Fred verður fyrir miklum vonbrigðum þegar hann kem-
ur til Nassau, höfuðborgar Éahama-eyja, daginn eftir: „Ethel II."
liggur þegar við bryggjuna. — Hann er mjög reiður- Að vísu er
keppnin aðeins hálfnuð, en þetta er nú einu sinni keppni milli
vina þar sem ekki var nákvætxlega samið um smáatriði, einmitt
af því að maður var viss um að geta treyst hvor öörum. Stanley
skal nú aldeilis fá að heyra álit hans á þessari óheiðarlegu fram-
komu- — Grunlaus kemur nú „þorparinn‘‘ á móti honum til þess
að segja honum frá öllum ógöngunum sem hanr hefuv lent í.
SKOTTA
— Ef ég væri ekki orðin svona gömul hefði pabbi áreiðanlega
flengt mig fyrir þessar einkunnir.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins óskar
eftir að ráða
Aðstoðarstúlku eða
aðstoðarmann
til starfa á rannsóknastofu. — Stúdentsmenntun
æskileg. — Upplýsingar í stofnuninni næstu daga.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Skúlagötu 4 — Sími 20-240.
Sendisveinar óskast
Nokkrir sendisveinar óskas't nú þegar, hálf-
an eða allan daginn. Þurfa að hafa hjól.
f >
Upplýsingar hjá Ragnari Ágústssyni í
síma 17-500.
Leðurjakkar
á stúlkur og drengi.
Peysur og peysuskyrtur.
Góðar vörur — Gott verð.
r jr
Verzlunin O. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
TRYGSINGAFELAGIÐ HEIMIR"
IINÐAROATA 9 REYKJAVlK SlMI 21360 SlMNEFNI ■ SURETY