Þjóðviljinn - 18.09.1966, Síða 10
1Q SÍDA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 18. september 1966.
! HUSI
MÓÐUR MINNAR
Eftlr JULIAN GL0AG
Þú manst eftir rósóttu svunt-
ujini sem ég notaði, þegar ég
var að hreinsa hjá ykkur? Ég
hlýt að hafa gleymt henni í eld-
húsinu — viltu vera svo góður
og hlaupa niður og athuga —
Ungfrú Deke kom út úr hálf-
dimmu anddyrinu, og um leið
þagnaði orðaflaumurinn í frú
Stork. — Ó afsakið. Ég vissi
ekki að það voru gestir.
Ungfrú Deke kinkaði lítillega
kolli og sneri sér að Húbert. —
Viltu gera svo vel að segja við
móður þína, að mér hafi þótt
mjög leitt að hún skyldi ekki
geta tekið á móti mér. Ég vona
sannarlega að henni fari að
batna- Vertu saell — við sjá-
umst þá þegar skólinn byrjar
aftur, er það ekki?
— Jú. Saelar, ungfrú Deke.
— Ungfrú Deke! Þunnar var-
irnar á frú Stork kipruðust í
brosi. — Ó, ég hef heyrt svo
mikið um yður! Þér eruð
kennslukonan, er það ekki? Ég
heiti frú Stork — ég hef verið
húshjálp hjá frú Hook áður en
. . . . Hún stundi allt í einu.
Andartak hikaði ungfrú Deke.
Svo rétti hún fram höndina.
—• Ánægjulegt að hitta yður,
frú Stork.
— Kærar þakkir, sömuleiðis,
ungfrú Dake. Ég hef oft vonað
að ég ætti eftir að hitta yður.
Hamingjan sanna, maður heyrir
talað um yður hér í húsinu all-
ún liðlangan daginn. Hún rót-
aði í veskinu sínu og dró upp
vasaklút.
» Ungfrú Deke sagði ekki neitt.
— Ójú, ójú, sagði frú Stork
og strauk á sér hálsinn. — Allt
frá því Díana var í bekk hjá
yður hef ég heyrt talað um hvað
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMI 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjarnargötu 10. Vonarstrætis-
megin — Sími 14-6-62.
þér værúð ágætar. Nei, hér í
húsinu verður fólkið ekki leitt
á yður — það megið þér bóka.
Ég hef verið hér í níu ár.
— Er það satt? Ungfrú Deke
hóstaði. — Hm — þér hljótið
þá að þekkja börnin mjög vel.
— Ég? Ég var þeim eins og
önnur móðir. Er það ekki, Berti?
Húbert gerði sér upp bros.
— Þarna sjáið þér! Ó, Berti,
vertu ekkert að hugsa um svunt-
una núna. Ég get alltaf sótt hana.
Hún þurrkaði sér um hálsinn. —
Ef þið verðið þá ekki farin nið-
28
ur að sjó. Voruð þér að fara
ungfrú Deke?
— Já, svaraði ungfrú Deke. —
Ég var á leiðinni út, þegar við
heyrðum yður berja að dyrum.
Við héldum kannski að það væri
læknirinn.
— Læknirinn — guð minn góð-
ur — læknirinn! Þér haldið á-
fram upp götuna, er það ekki?
Það er einmitt í heimleiðinni fyr-
ir mig.
Allt í einu brostu konurnkr
tvær hvor til annarrar.
— Já, vertu þá blessaður,
Berti. Frú Stork stakk vasaklútn-
um aftur niður í veskið og
skellti því aftur. — Mundu að
segja mömmu þinni að ég hafi
litið hingað inn.
konurnar tvær gengu saman
niður tröppurnar. Um leið og
Hubert sá þær ganga niður grás-
stíginn, kallaði hann óvænt á
eftir þeim! — Sælar!
Þær námu staðar og sneru við.
Andartak stóðu þær og störðu
á hann og svo fóru þær aftur
að stinga saman nefjum. Þegar
þær héldu áfram heyrði Húbert
fáein orð á stangli: — Fyrirgef-
ið, en hvernig er þetta eiginlega
með frú Hook. Það var frú Stork
sem spurði.
Síðan lokaðist hliðið á eftir
þeim og þær hurfu bakvið lim-
gerðið.
17
ÞeHa var það versta sem hefði
getað komið fyrir. Þar sem hann
stóð og horfði á kollinn á hatti
ungfiú Deke þokast meðfram
limgerðinu, var hann alveg sann-
færður um það.
Nú voru þau raunverulega í
hættu stödd.
Hann lokaði dyrunum og gekk
að stofudyrunum. En hann fór
ekki itm ems og hann hafði æfl-
að sér. Gegnum hálfopnar dyrn-
ar sá hann -EIsu og Díönu. Hann
stóð kyrr og horfði á þær. Elsa
sat þar sem ungfrú Deke hafði
setið eg Díana lá á hnjánum við
hliðina á stókium. Hann heyrði
rödd Díönu.
— Hvað gerir það til, Elsa þótt
ungfrú Deke hafi komið hingað?
Hún strauk eldri systurinni um
höfuðið. — Mamma sér um
Gerty.
Elsa hreyfði engum andmæl-
um. Með andlitið falið í hönd-
um sér lét hún sér blíðleg atlot
systurinnar lynda. Loks lyfti
hún höfðinu og það var eins og
hún horfði beint í gegnum rif-
una, sem Húbert gægðist inn'
um. En hún horfði eins og hún
sæi ekki neitt, eins og hún væri
að hlusta, kannski að hlusta á
eitthvað óljóst og fjarlægt, sem
var þýðingarmeira en nokkuð
annað í heiminum. Kannski var
það rödd mömmu — kannski . . .
Húbert sneri sér frá þeim.
Hann gekk í skyndi að stig-
anum og gekk af stað upp. Á
stigapallinum dokaði hann við.
Hann vissi nákvæmlega hvað
hann ætlaði sér að gera.
Hann fór inn í verkstæðið sitt.
Willi sat á gólfinu og lék sér að
skopparakringlunni sem Húbert
hafði búið til handa honum fyr-
ir síðasta afmæli. Litli snáðinn
leit ekki einu sinni upp. Hann
er sjálfsagt að tala við svörtu
konuna sína, hugsaði Húbert.
Hann gekk að vinnuborðinu
og leit á verkfærin sín. Hann
hafði ekki notað þau mikið upp
á síðkastið. Aldrei mundu þeir
Iáta hann hafa svona áhöld á
barnaheimálinu. Hann valdi
miðlungsstóran meitil.
Willy sat enn á gólfinu, þegar
hann gekk út og yfir stigapall-
inn að herbergi mömmu. Nú var
herbergið ólæst og lykillinn að
innanverðu. Hann lokaði á eftir
sér og sneri lyklinum í skránni.
Það var auðvelt að þvinga
sveigjulokið upp með meitlinum.
Hann ýtti því varlega upp. Inni-
í skrifborðinu lágu skjölin ná-
kvæmlega eins og hann og Elsa
höfðu skilið við þau um morg-
uninn fyrir löngu. Hann tók
fram bréfabunkann. 89216 L/C
Hook C. R. Það voru réttu bréf-
in. Hann mundi meira að segja
sum orðin enn. Hann losaði band-
ið utan af bréfunum og lagði :
þau á borðplötuna.
Það hlaut að vera það- neðsta
í bunkanum. Það var dagsett í
fyrra og það sem var þýðingar-
meira: Það var heimilisfang í
horninu hægra megin. Bréfið var
stutt.
Elsku Vi.
Eins og alítaf óska ég þér
til hamingju með afmælisdag-
inn. Vona að þér líði vel,
telpa mín.
Hvernig. dafna krakkarnir?
Mér líður ágætlega og nú
er ég svo sannarlega búinn
að fá mér fasta atvinnu. Ég
vil ekki segja þér hvers kon-
ar vinna það erj því að það
gæti sært hinar fínu tilfinn-
ingar forfeðranna og svo
framvegis. En ef þig vantar
aukaskilding, þá þarftu ekki
annað én senda línu til góða,
gamla Charlie H.
AÐSTOÐARFÓLK
Hafið samband við skrifstofu ÆF, Tjarnargötu 20, slml 17511.
Okkur vantar sjálfboðaliða til ýmissa starfa vegna undirbúnings
22. þingsins.
DEILDIR ÆF
Hafið samband við skrifstofu sambandsins strax og tilkynnið um
þátttöku fulltrúa á 22. þing ÆF, sem haldið verður í Lindarbæ
dagana 23.—25. september nk. Skrifstofan er opin frá kl. 11—7
dáglega, sími 17511. Allar nánari upplýsingar um þinghald og
ferðir til þings eru veitfcar þar.
ÆFH
Félagsfundur verður haldinn í Góðtemplaraliúsinu (uppi) mánu-
daginn 19. september kl. 8,30.
FUNDAREFNI:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning fulltrúa á 22. þing ÆF.
3. Maria Kristjánsdóttir skýrir frá undirbúningi 22. þings ÆF
og hclztu málum sem þar verða tekin fyrir.
4. önnur mál. — STJÓRNIN.
S KOTTA
— Mér er alveg sama, þið verðið að koma heim sti'ax-
ER ÞAÐ RÉTT
að fullorðið fólk geti lært tungumál?
Já, það er rétt!
Fullorðið fólk á yfirleitt auðvelt með að læra
Fullorðinn maður er áhugasamur — hann veit
HVERS VEGNA hann er að læra — hann kann
að meta góða kennslu, og honum finnst námið
undantekningarlaust SKEMMTILEGT.
Fullorðinn nemandi er góður nemandi. — Við
vitum það. — Við höfum reynsluna.
Síðasta innritunarvika.
Málaskólinn Mímir
Brautarholt 4, sími 1-000-4 (kl. 1—7 e.hj.
Hafnarstræti 15, sími 2-16-55.
. ..... / ____ - . f
Leðurjakkar
á stúlkur og drengi.
Peysur og peysuskyrtur.
Góðar vörur — Gott verð.
• ^
Verzlunin O. L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þióðleikhúsinu).
Gúmmívinnustofan h.f.
Skipholfi 35 - Símar 31055 og 3C688
4850 — Þórður kveður þær mæðgurnar, hann á margt eftir ó-
gert. Þær vilja aka honum, en hann kýs heldur að fara fótgang-
andi. — Stutt frá höfninni stendur vörubíll. Silky og Fisser sitja
við stýrið og fylgjast vel með öllu. — Þarna kemur sá sem þeh
bíða eftir. Bobby hefur hlerað og vissi að hann átti erindi i
þetta hverfi. Þeir eru heppnir, því Þórður er einn og það ætii
að gera allt auðveldara. Auk þess eru þá engin vitni ef þeir ráð-
ast á hann á fáfarinnl götu. Kannski láta þeir sér nægja að
gefa honum ærlega ráðningu, en þeir gætu líka veitt honuci
nokkrar rispur með hnífnum, eða kannski þeir hendi honum í
sjóinn...
hvert sem þer faríð
^ ferðatrfgging
ALMENNAR
TRYGGINGAR P
PÓSTHÚS8TR4ETI t
STMI 17700