Þjóðviljinn - 18.09.1966, Side 12
*
!
!
3ðja starfsár Tónskóla Sigursveins |
hefst
!
!
1. okt.
■ Þriðja starfsár Tón-
skóla Sigursveins D.
Kristinssonar hefst 1.
október n.k. og verða
þar kenndar sömu
námsgreinar og sl. ár.
Innritun í skólann fer
fram á kvöldin kl. 20
til 21 að Óðinsgötu II
eða í síma 19246.
Síðastliðinn vetur stðrfuðu
við Tónskólann 13 stunda-
kennarar auk skólastjórans.
Alls stunduðu nám 215 nem-
endur, sem skiptust þannig á
námsgreinar: píanó 37 har-
moníum 13, fiðla 6, hnéfiðla
1, trompet 10, básúna 1,
mandolin 2, banjó 3, tónfræði
2, í hópkennslu á melodiku
7 og í hópkennslu á blokk-
flautu 54, trommu 3.
Tónfræði var kennd í tveim
flokkum og áttu allir nem-
Sunnudagur 18. september 1966 — 31. árgangur — 212. tölublað.
Síldveiðin aftur að glæðast:
me5 sam-
tals 3615 lestir
Sigursveinn Ð. Kristinsson með nemendum sínum í Tónskólanum.
endur aðgangsrétt að þeirri
kennslu. Auk þess gaf skól-
inn út fjölrituð vinnubókar-
verkefni í tónfræði. Þessi
verkefni unnu nemendur
heima undir handleiðslu
þeirra kennara, sem kenndu
þeim á hljóðfæri í einkatím-
um. Gaf þetta góða raun,
einkum fyrir eldri nemendur.
Æfður var samleikur ein-
stakra hljóðfæraflokka. Blás-
araflokkur var' æfður reglu-
lega allan veturinn, tvisvar í
viku, og aðrir hópar, svo sem
melodikur, gítarar og mando-
lin um skemmri tíma.
Vikuna 2.-8. maí fóru fram
próf og voru prófdómendur
þeir dr. Hallgrímur Helgason
Páll Kr. Pálsson organleik-
ari og Hallgrímur Jakobsson
söngkennari.
Nemendur í skólanum voru
á aldrinum 5-50 ára.
Á starfsárinu voru haldnir
tvennir tónleikar. Hinir fyrri
sunnudaginn 49. desember, og
hinir síðari á skírdag, þann
7. apríl. Báðir þessir tónleik-'
ar fóru fram í Hagaskólanum
fyrir fullu húsi áheyrenda,
foreldra og annarra aðstand-
enda. Komu þar fram um 80
nemendur í einleik, samleik
og í stærri hópum.
Skólanum var slitið sunnu-
daginn 8. mai og námsvottorð
afhent í Austurbæjarbarna-
skólanum.
H
Kristján Oddsson aðstoðar-
bankastj. Verzlunarbankans
Á fundi bankaráðs Verzlunar-
banka íslands hf., sem haldinn
var í gær var samþykkt að skipa
Kristján Oddsson aðstoðar-
bankastjóra við bankann.
Kristján Oddsson hefir undan-
íarin ár gegnt störfum skrif-
stofustjóra við bankann.
•Kristján er fæddur í Reykja-
vík 1. september 1927 sonur
hjónanna Sigríðar Halldórsdótt-
ur og Odds Björnssonar. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1947
og hóf skömmu síðar verzlunar-
störf. Hann réðist árið 1960 til
starfa við Verzlunarsparisjóð-
inn sem fulltrúi en skrifstofu-
stjóri Verzlunarbankans hefir
hann verið frá því 1962.
Kristján Oddsson er kvæntur
Kristborgu, Benediktsdóttur og
eiga þau hjón 5 böm.
(Frá Verzlunarbankanum)
I fegurinn um Olafs-
Sigurður Dagsson
Landsleikur
ð dag kl. 4
f dag kl. 4 hefst á Laug-
ardalsvelli landsleikur i
knattspyrnu milli íslands
og Frakklands.
Landsliðsnefnd gerði tals-
verðar breytingar á ís-
lenzka lahdsliðinu frá sið-
asta landsleik og hafa orjð-
ið nokkrar umræður um
skipan liðsins. Þó munu
flestir sammála um að
staða markvarðar íslenzka
landsliðsins sé vel skipuð,
þar sem Sigurður Dagsson
úr Val fær nú í fyrsta sinn
að spreyta sig í landsleik.
Ein Mig-17 þofa og
tvær bandarískar
skotnar niður
SAIGON 17/9 — Bandarísk flug-
vél skaut í gær niður norður-
vietnamska Mig 17 þotu en tvær
bandarískar þotur voru á sama
tíma skotnar niður með loft-
varnarbyssum, að því er formæl-
andi Bándaríkjamanna í Saigon
sagði í morgun. Hann sagði að
Mig-17 þotan hefði verið skot-
in niður með flugskeyti sem
skotið var frá bandarísku ílug-
vélinni. Önnur Ijandaríska þotan
sem, skotin var niður féll niður
á hlutlausa svæðið milli Norður-
og Suður-Vietnam eftir að áhöfn
hennar hafði kastað sér út í fall-
hlífum.
Vindur var hægur á síldar-
miðunum fyrri sólarhring en
talsverð kvika. Veiðisvæðið er
það sama og verið hefur, þ.e.
í Reyðarfjarðardýpi. Samtals til-
kyimtu 49 skip um afla, alls
3.615 lestir.
Dalatangi:
Ól. Sigurðsson AK 160 lestir,
Hafþór RE 80, Halldór Jónsson
SH 40, Skarðsvík SH 110, Helgi
Flóventsson ÞH 60, Oddgeir ÞH
100, Barði NK 65, Halkion VE
50, Gullfaxi NK 90, Þorsteinn
RE 80, Náttfari ÞH 75, Þráinn
NK 75, Ásþór RE 30, Höfrungur
III AK 65, Björgvin EA 50, Arn-
firðingur RÉ 90, Hafrún IS 110,
Ögri RE 65, Guörún Guðleifs-
dóttir IS 70, Jörundur' III RE
100, Þórður Jónasson EA 100,
Lómur KE . 70, Arnar RE 60,
Auðunn GK 50, Freyfaxi KE 45,
Gullberg NS 90, Vigri GK 50,
Snæféll EA 100, Sigurfari AK
75, Akraborg EA 80, Gísli Árni
RE 80, Reykjanes GK 70, Sólrún
IS 65, Viðey RÉ 50, Sigurbjörg
OF '50, Hugrún IS 55, Sóley IS
70, Helga RE 50, Keflvíkingur
KE 120, Framnes IS 50, Björg
NK 50, Sigurvon RE 85, Einar
Hálfdáns IS 25, Sæhrímnir KE
60, Búðaklettur GK 140, Sig.
Jónsson, SU 140, Ól. Magnússon
EA 30, Garðar GK 50, Dagfari
ÞH 90.
Sýningu Ágústs
lýkur í dag
í dag verður vegurinn yfir Ólafsfjarðarmúla opnaður
formlega, en hann er orðinn fær bílum fyrir nokkru. Er
hér um afarmikla samgöngubót að ræða fyrir Ólafsfjarðar-
búa og styttist leiðin til Akureyrar t.d. um hvorki meira
né minna en 149 kílómetra við tilkomu þessa nýja vegar.
í sumar hefur verið unnið að
því af kappi að fullgera Múla-
veginn og tilkynnti Vegagerð
ríkisns bæjarstjóra Ólafsfjarðar
fyrir helgina að Vegurinn yrði
formlega tekinn í notkun í dag
en nokkrir dagar eru síðan hann
varð fær bílum.
Nú, eftir að Múlavegurinn er
kominn í samband, verður ekki
nema um klukkustundar akstur
frá Ólafsfirði til Akirreyrar en
sú vegalengd er 63 kílómetrar,
hins vegar meðan fara þurfti
um Skagafjörð og Öxnadalsheiði
til þess að komast til Akureyrar
frá Ólafsfirði þá var vegalengd-
in 212 kílómetrar og styttist hún
því um 149 kílómetra. Þá verð-
ur nú ekki nema um 20 min-
útna akstur frá Ólafsfirði til
83. Starfighter-
flugvélin fcrst
BONN, 17/9 — Vesturþýzki flug-
herinn hefur nú misst 63. Star-
fighter-þotuna, að því er varn-
armálaráðuneytið skýrði frá í
dag. Flugvélin hrapaði til jarðar
í Arizona í Bandaríkjunum rétt
eftir að hún hóf sig á loft frá
flugvellinum í Luke. Ekki er vit-
að um orsakir fyrir slysi þessu.
Flugmaður þotunnar kastaði
sér út er vélin hrapaði en
meiddist mjög mikið. Flugmað-
urinn var bandarískur flugkenn-
ari. Alls hafa 35 flugmenn íátið
lífið í Starfighterslysum síðustu
þrjú árin. Sl. þriðjudag hrapaði
önnur vesturþýzk Starfighter-
þota skammt frá flugvollinum í
Luke, en vesturþýzkir flugmenn
dveljast þar við æfingar og
þjálfun.
Bifreiðaþjófur
fullur á ferð
Klukkan sex á laugardags-
morgni var lögreglumaður á
ferð í jeppa innarlega á Suður-
landsbrautinni. Fram úr honum
fór 'þá Saab-bifreið á ofsahraða.
Lögreglumaðurinn elti á meir en
100 km hraða og náði ökufant-
inum niður á Skúlagötu. Hann
reyndist drukkinn og hafði auk
þess stolið bílnum fyrr um nótt-
ina á Miðtúni og farið á honum
austur fyrir fjall og í bæinn aft-
ur. Þjófurinn mun hafa reynt
við fleiri bíla áður en hann náði
í Saab-bílinn.
Aðfaranótt laugardags var
framið innbrot í Radíóbúðina
við Klapparstíg og Hverfisgötu.
Það var kl. 4.10 sem tilkynning
barst lögreglunni um innbrotið,
hún fór á vettvang og fannþjóf-
inn innan stundar gangandi á
Skúlagötunni með plötuspilara
undir hendinpi!
Dalvíkur en áður var þar ófært
á milli. Sýna þessar tölur glöggt
hver samgöngubót er að þessum
nýja vegi fyrir Ólafsfirðinga.
Breytingar boð-
aðar í Júgóslavíu
BELGRAD 17/9 Kommúnista-
flokkurinn í Júgóslavíu hefur til-
kynnt að gerðar verði breýting-
ar á stjórn flokksins er miði að
því að auka lýðræði í lándinu og
aðskilja meir flokkinn og stjórn
ríkisins en nú er. Voru tilkynn-
ingar um þetta gefnar út opin-
berlega í gær.
Málverkasýningu Ágústs Pét-
urssonar í Bogasal Þjóðminja-
safnsins lýkur væntanlega í dag;
þó hefur komið til tals að hún
verði framlengd ; um einn eðá
tvo daga. Sýningin hefur staðið
frá 10. þessa mánaðar og aðsókn
nokkuð misjöfn, nokkrar mynd-
ir selzt. Ágúst sýndi sjálfstætt
áður 1958 en hcfur auk þess tek-
ið þátt í samsýningum heima og
erlendis. — Hér að qfan er
sjálfsmynd listamannsins.
S»ýzkir kvenskór
Ný sending — fallegt úr/al.
SKÓYAL
Austurstræti' 18 (Eymundssonarkjallara)
Karlmannaskór
fró Þýzkalandi
Ný sending
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
I