Þjóðviljinn - 26.05.1967, Blaðsíða 4
4 SÖ*A —ÞiíÓÐViELJENN — Bö&buxiagur 26. mad 1063.
7
OtgeEanii: Sameiningarflóldcur alþýdu -f Sósialistallokfc-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurðoir Guðmundsson.
j’réttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurðux T. Sigurðsson.
Framkvstj.; Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavðrðust 19.
Simi 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð fcr. 7.00.
Staða Alþýðufíokksins
"yarla er von að Alþýðuflokkurinn vilji við það
kannast að framtak og forysta í húsnæðismál-
um hafi undanfarin ár fyrst og fremst verið í
höndum verkalýðshreyfingarinnar, sem með mætti
samtaka sinna hefur m.a. knúið fram umbætur i
lánamálum íbúðabyggjenda. Skrifað er í Alþýðu-
blaðið 1 gær af mikilli vanþekkingu um þau mál
eða vísvitandi til blekkingar, þegar því er haldið
fram að ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðuflokksins
hafi haft framtak og forystu í húsnæðismálum.
Það er verkalýðshreyfingin sem knúið hefur á
með úrbæ'tur í þeim efnum og þurft að beita afli
tifað herja út úr ríkisstjórninni nokkrar breyting-
ar á húsnæðislánum og framkvæmdir á félags-
legum grundvelli, íbúðabyggingar ætlaðar lág-
launafólki. Ríkisstjómin má þó eiga heiðurinn
af einu frumkvæði í þessum málum. Það var ófrá-
víkjanleg krafa ríkisstjómar íhaldsins og Alþýðu-
flokksins að þær lagfæringar sem fengust fyrir
frumkvæði verkalýðsfélaganna á húsnæðislánum
skyldu bundnar því skilyrði að lán húsnæðismála-
stjómar yrðu, ein allra lána á landinu, vísitölu-
bundin. Þá viðbótarbagga sem íbúðabyggjendur
hljóta af þeim sökum mega þeir réttilega þakka
„frumkvæði og framtaki“ ráðherra íhaldsins og Al-
þýðuflokksins.
|jað er fróðlegt að fram skuli koma afstaða Al-
þýðuflokksins til þeirrar tillögu þriggja þing-
manna Alþýðubandalagsins að menn í verkalýðs-
félögum skuli hafa aðgang að nokkru viðbótar-
láni til íbúðabygginga úr Atvinnuleysistrygginga-
sjóði, sjóði sem verkalýðsfélögin eiga sjálf; reyndar
væru eðlilegar cmiklu méiri lánveitingar úr At-
vinnuleysistryggingasjóði til íbúðabygginga fólks-
ins í verkalýðsfélögunum, og engin mótmæli
hafa fram verið flutt gegn tillögunni, enda þótt
hún fengist ekki afgreidd á Alþingi. Nú bregður
hins vegar svo við að Alþýðublaðið á ekki nógu
hæðileg orð um þessa tillögu, sem er tvímælalaust
baráttumál verkalýðshreyfingarinnar, og ber sjálf-
sagt að skilja það sem túlkun á afstöðu Alþýðu-
flokksins. Hvað sem þeirri afstöðu líður mun
verkalýðshreyfingin bera fram til sigurs kröf-
una um notkun Atvinnuleysistryggingasjóðs beint
í þágu fólksins í verkalýðsfélögunum, og sennilega
stærri kröfur en fluttar voru í 'frumvarpi Alþýðu-
bandalagsþingmanna'nna.
J kosningunum í suimar hefur Alþýðuflokkurinn
þá eina stöðu að vera sama íhaldshækjan og
undanfarin átta ár. Þeir sem kjósa Alþýðuflokkinn
eru að kjósa yfir sig framhald íhaldsstjómarinnar
sem verið hefur. Bjami Ben. hefur lýst yfir að unn-
ið sé leynt og ljóst að undirbúningi á framhald-
andi samvinnu íhalds og Alþýðuflokksins. Þeir
sem vilja að breytf verði um stjórnarstefnu, að
meirihluti myndist á Alþingi sem tekur marx á
kröfum verkalýðshreyfingarinnar í húsnæðis-
málum sem öðrum análum, geta ekki varið atkvæði
sínu betur en kjósa Alþýðubandalagið, kjósa
G-listann. — s.
Frá og með mánudegmum er
„öld kormnganna“ liöin undir
lok. Hún stóð i fjóra tungl-
mánuði rétta, eða því sem næst
og verður ekiki annað ráðið af
samræðum við fólk, en að því
léttí nokkuð fyrir brjósti aJl-
flestu. Shakespeare var að vísu
helviti glúrinn og góður kall,
en nokkuð stremibinn hvunn-
dags.
1 síðustu viku ’gerðist. fát.t
eitt markvert á ‘ sjónvarps-
skerminum annað en leifclþáttur
Matthíasar Johannesens og lát-
bragðsleikur þeirra Marcel Mar-
ceau og Zizi Jeanmarie. Leik-
þáttur Matthíasar var bráð-
skemmtilegur framanaf, en und-
ir lokin hafði maður á tilfinn-
ingunni að leikarar bg höftmd-
ur vaaru orðnir hálfþreyttír á
sjálfoím sér, einkum þó höfund-
urinn. Um látbragðsleikinn he£
ég engin orð.
★
Þáttur Magnúsar Bjamfreðs-
sonar um hægri handar umferð
á miðvikudaginn var hrein
einstefna. Viðmælendur hans
höfðu aillir nokkuð gott að segja
um hægri umferðina, enda
tengdir framkvæmd hennar á
einn eða annan hátt, en þó lá
fréttamanninum ekki minnst á
hjarta sjálfum þar sem hann
hélt etundarlangan fyrirlestur
um ágæti breytingarinnar frá
eigin brjósti og verður það að
teljast vafasamt af manni í<s>
hans stöðu hjá opinberlega
hlutlausu ríkisfyrirtæki.
Svissarar virðast hafa mikið
gaman a£ að snúa kvikmynda-
vélum á alla enda og kanta og
framleiða með því skrítnar
galdrakúnstir. Ég get ómögulega
verið að liggja mönnum á hálsi
fyrir þetta saklausa dudd, en
fæ heldur ekki séð að árangur-
inn eigi nokkurt erindi út fyr-
ir landamæri 'þeirra.
Á föstudagskvöldið efndi
Gunnar G. Sohram til kapp-
ræðna um „ferðamannalandið
Island“. Þar leiddu saman hesta
sína þeir Bjöm Th. Bjömsson
og Geir Zoega. Undirrituðum
þótti þáttur Bjöms og málstað-
ur, en hann er eindregið á móti
því að við leggjum neitt sér-
staklega að okkur til að hæna
hingað ferðamenn, mun betri.
Þó skal það tekið fram að ,ég
á erfitt með að lita á þetta mál
með heiðríkju hlutleysisins.
Það er skemmst að segja að
allir skemmtiþættir með inn-
lendu efni, sem fitjað hefur
verið upp á 1 sjónvarpinu hafa
mistekizt herfilega. Steindór
Hjörleifsson dagskrárstjóri tók
einn slíkan upp á sína arma
á föstudaginn og verður ekki
annað séð en að heldur hafi
sigið þar í áttina til þolanlegs
gamans. Framtíðin verður svo
að skera úr um langlífi þáttar-
ins „A rauðu ljósd“.
★
Ég get ekki stillt mig um
að minnast á einn erlendu iþátt-
anna, „Harðjaxlinn“. Þar er á
ferðimni brezb uppsuða á banda-
rísku formúlunni um kjama-
karlinn sem getur allt nema
orðið fullur og setur af sér
heilmikið af skemmtilegu
kvennafari til þess að drepa
útspekúleraða spíóna einhvers
skuggaveldis, sem sjaldnast er
nefnt á nafn. Þetta er sem sé
hundleiðinlegur þáttur. Mætti
ég þá heldur biðja um ;,Bragða-
refina“ á hverjum mánudegi.
Þar eru á ferðinni karlar sem
eiga sér bæði líf og lit og erú
prýðilega mennskir — og
breyskir.
Eftir mínum reikningi hafði
erlent efni vinninginn yfir það
innttenda í síðusitu viku um klsc.
og 15 mínútur. Þetta hlut-
fall þyrfti að breytast innlenda
efninu í vil og gerir það sjálf-
sagt þegar stofnunin er búin
að slíta bamsskónum og hefur
fengið rýmri fjárráð. — GO.
ið í síðustu viku
Frá upptöku einþáttungs Matthíasar i sjónvarpssal. Höfundur situr í körfustól, en að baki honum
standa leikendur og leikstjóri, frá vinstri: Gísli Alfreðsson, Benedikt Ámason, Lárus Pálsson og
Valur Gíslason-
Kveðja
Jens Kristjáisso
bóndi, Vonarlandi
Við hjónin eigum að sjálf-
sögðu mikið að þakka heimilinu
á Vonarlandi. Því siðar varð
húsmóðirin tengdamóðir mín,
Sigriður var ekki aðeins góð
amma bömum okkar, sem
dvöldu þar í mörg sujnur,
heldur og engu síður kom henn-
ar meðfædda gestrisni og um-
hyggja fnam við okkur hin,
sem fullorðnir vorum. Ög saima
var að segja um Jens, hanri
var okkur æta'ð mjög vinsam-
legur. —
Það var i ágúst að áliðnum
slætti, sem ég sá hann fyrst.
Síðan eru liðin nærfellt inittugu
og tvö ár. Mér kom hann þá
fyrir sjónir sem mikið prúð-
menni, fremur hlédrægur og
vingjamlegur maður. — Og
þannig fannst mér hamn ávadlt
síðan þau sumur, sem ég kom
og dvaldi á hans ágæta heim-
ili. —
Nú þegar hann er allur, hugsa
ég með hlýjum huga til þess-
ara sunmaj-stunda á Vonarlandi.
Jens Kristjánsson lézt £ .
Sjúkrahúsi Isafjárðar 3. maí s.l.
eftir stutta legu þar. En hann
átti við vanheilsu að strfða síð-
ustu árin.
Jens var jarðsettur að Mei-
graseyri, sem næst í sa'nu
heimalandi, en á þessum slóð-
ura ól hann að mestu aldur
sinn.
Jens var fæddur 30. nóvem-
ber árið 1899 á Skarði á Snæ-
fjallaströnd, sonur Kristjáns
Halldórssonar, bónda þar, og
konu hans Hallfríðar Jensdótt-
ur. Frá ætt hans kann ég ekki
að greina, að öðru leyti. En
ugglaust hefur hann verið kom-
inn af góðu fyrirmyndar bænda-
fólki, eins og flestír aðrir, sem
um er getið, ekki efa ég það.
Jens átti fjögur systkini, tvær
systur hans eru nú látnar, en^
tvö systkini hans eru búsett
norður £ Eyjafjarðarsýslu.
Og heima hjá foréldrum sín-
um er hann fram yfir ferming-
araldur. En fer þá til stuttrar
dvalar að Laugalandi £ Naut-
eyrarhrepþi. Siðan liggur leið
hans að Melgraseyri, næsta
bæ, til Jóns bónda Fjalldal,
þess mæta manns og sveitar-
höfðingja. Og þó er hann orð-
inn- sautján ára,- eða fullorðinn
maður. Hjá Jóni vtnnur svo
Jens — og vinnur honum vel
— allt til þess hann reisti sér
nýbýlið Vonarland. En það er
byggt í landí Melgraseyrar, og
stendur litlu ofar, urrdir fögru
felli, og þaðan er útsýni gott
út yfir hið unduríagra Isafjarð-
ardjúp.
Að Vonarlandi flýzt svo
Jens árið 1935, þar sem hann
bjó æ sa'ðan.
Litlu siðar en Jens kom að
Melgnaseyri fer hann í skólann
að Núpi í Dýrafirði og er þar i
tvo vetur. Þangað mun hann
hafa farið að áeggjan Jóns
Fjalldal, sem skildi manna bezt
hvers virði merintun er. Á þeim
árum þótti það góður undir-
búningur undir lífssitarfið, að
nema í slíkum skóla. Og minnt-
ist Jens með þakklátum huga
kennara sinna þar og skólafé-
laga.
Strax og Jens er fluttur að
Vonarlandi, kemur til hans, sem
ráðskona Sigríður Samúelsdótt-
ir, þá ung ekkja, með yngsta
bam sitt af fimm. En hin böm
hennar voru þá stálpuð og far-
in að vinna fyrir sér að meira
eða minna leyti. Auk þess tóku
þau Jens og Sigriður í fóstur
þrju böm, sem þau reyndust
sem beztu foreldrar. Sigríöur,
sem verið hefur hjá Jens öll
hans búskaparár á Vonarlandi,
hefur annazt heimilið af frá-
bærum dugnaði og skyldurækni,
eins og um hennar eigið væri
að ræða. —
Búskapur Jens á Vonarilandi
var að vísu aldrei stór í snið-
um, enda jörðin ekki viðlend.
En hitt er víst að hann átti
mjög arðsaman bústofn, sem
honum var umhugað um að
fóðra vel, og hann átti afburða
fallegt fé. Og aldrei sá ég Jens
glaðari en að haustnóttum,
þegar hlöðumar voru þéttfullar
af ilmandi heyi, og að auki
reisulegt hey uppsett ogvelvar-
ið.
Það vakti sérstaka athygli
manns, þegar komið var heim
að Vonaríandi, hve umgengnl
öll og snyrtimennska var til
mikillar fyrirmyndar. því það
er gömul saga og ný, að um-
gengni, á annars myndarlegum
sveitebýlum, er víða áfátt, að
ekki sé meira sagt.
Nágranna átti heimilið á
Vonarlandi góða, sem reyndust
oft hjálplegir, og þá bezt þegar
mest á reyndi í veikindum Jens
síðustu ári. Ég veit hann mat
það mikils, þó honum væri ekki
eiginlegt að hafa þar um mörg
orð.
Og að leiðarlokum er efst i
huga þakkiæti mitt og fjöl-
skyldu minnar fyrir liönar
stundir á Vonarlandi.
Gísli Guðmundsson.
ATHUSID
Getum bætt við okkur klæðningum og við-
gerðum á bólstruðum húsgögnum. — Góðir
og vanir fagmenn.
Husgagnav. Þorsteins Sigurðss.
Grettisgötu 13. — Sími 14-0-99.