Þjóðviljinn - 26.05.1967, Page 5
Föstudagur 26. maí 1967 — ÞJÓÐVTLJINN — SÍÐA g
Jafntefíi, 3:3, milli Skota
og Suð- Vesturlands-úrvals
■ Þriðja og síðasta leik Hearts að þessu sinni
lauk með jafntefli, 3:3, við úrval af Suðvestur-
landi. Þessi úrslit gáfu ekki rétta' mynd af leikn-
um og kunnáttu liðanna, sem við áttust, en það
er eins og svo oft í knattspyrnu að annað liðið
er óheppið en hitt heppið og í þetta sinn var það
íslenzka liðið sem var heppið en það skozka ó-
heppið. Hitt var svo aftur á móti skemmtilegt að
sjá baráttuvilja úrvalsins, og töluverðan kraft,
og sa'tt að segja gerir þessi leikur og fraimmistaða
liðsins menn bjartsýnni með leikinn við Spán
nú á næstunni.
Þegar í upphafi mátti sjá að
í liði þessu var mun meiri
baráttuvilji en í hinum tveim
liðum sem léku fyrr við þessa
skozku gesti, og það köm fram
þegár að tilraunir voru gerðar
til að leika saman, þótt oft
væru þær heldur veikt-ullegar og
lítt hugsaðar. . Gekk á ýmsu
fyrstu mínúturnar, en á 9.
mínútu gerði úrvalið áhlaup
fram miðjan .völlinn og fékk
Ingvar knöttinn síðast, nokkuð
fyrir utan vítateig, og skaut
þaðan á markið. Markmaður-
inn var kominn nokkuð útí
teginn á móti knettinum, en
tekur þá uppá því að kasta sér
á knöttinn sem var rétt hjá
honum og rennur knötturinn
undir hann og heldur rólega
áfram í mannlaust markið.
Þetta mark átti markmaður
Skota að verja."
Þetta örvar úrva-lið, og litlu
síðar er Ingvar enn kominn
hættulega nærri marki Skota
svolítið til hliðar, en skotið
----------------------------------
Sveinameist-
aramótið hóð
1. gúní n. k.
Sveinameistaramót Reykja-
víkur í frjálsíþróttum fer fram
á Melavellinum fimmtudaginn
1. júní. Keppt verður í eftir-
farandi greinum:
60 m H., 300 m hl., 600 in.
hl., hástökki, langstökki, stang-
árstökki, kúluvarpi, kringlu-
kasti, sleggjukasti, 4x100 m
boðHaupi.
Þátttaka er heimil ölllumpilt-
um, fæddum árið 1951 og síðar.
Þátttakendur m-seti til sk-ráning-
ar klukkan 7 keppnisdaginn.
— FlRR.
fer í vamarmann og þaðan
í horn. Á 18. mínútu fær úrval-
ið innvarp og kastar Jóhannes
Atlason langt fram til Elmars
s-em einleikur upp að enda-
mörkum og kemst þar innfyrir
bakvörðinn. Markið er þar að
mestu lokað, og virðist sem
Elmar ætli að gefa fyrir, .en
hvað skeður: Knötturinn fer
bak við markmann og í þetta
hálflokaða mark, vel gert ef
það hefur verið meiningin, 2:0,
óvænt fyrir Suð-Vesturland.
Á þessu tímabili höfðu Skot-
ar gert mörg áhlaup og sum
lagleg, með miklum yfirburð-
um i knatttaekni og leik, en
þeim tókst samt ekki að skapa
sér gullin tækifæri sem ógnuðu
marki Islendinganna.
Á 35. mín skorar Hermann
mjög laglega, en markið er
dæmt af vegna þess að Elmar
var af seinn að gera sig rétt-
stæðan, og hafði þó nægan
tíma til þess, en hann var
rangstæður, þegar Hermann
skoraði.
Fimm mfn- síðar er Hermann
í góðu færi, en vandar sig
ekki nóg og fór skotið í mark-
mann, að vísu fékk Hermann
knöttinn aftur en var þá of
lengi að athafna sig og missti
knöttinn.
Skotar sækja hvað eftir ann-
að, en allt strandar á vörn úr-
valsins, en á 41. min. ætlar
Jóhannes að hreinsa frá mark-
inu en spyman mistekst og
fer til mótherjans Ford sem
notar sér tækifærið og skorar
og þannig endaði fyrri hálf-
leikur, 2:1 fyrir úrvalið.
Gáfu heldur eftir í síðari
hálfleik.
Fyrstu 30 m-ínútur síðari
hálfleiks voru Skotar yfirleitt
meira í sókn þótt þeim tækist
ekki að skapa sér hin gullnu
tækifæri við markið; þeir skutu
hvað eftir annað, en það sem
ekki fór framhjá varði Guð-
mundur í markinu með mikilli
prýði, auk þess sem .hin sterka,
aftasta vöm hindraði margt
áhlaupið þegar uppað vítateign-
um kom. Var oft sem manni
fyndist að jöfnunarmark Skot-
anna væri á „næstu grösum“,
því að oft skall hurð nærri
hælum. Á 30. mínútu bjargar
Sigurður Albertsson á línu ef-tir
að Guðmundur hafði hlaupið
út, í eina skiptið í leiknum, og
bjargaði naumlega í hom. Á
næstu mínútu jafna Skotar eftir
mjög fallegt og vel skipulagt
áhlaup, þar sem Fraynor skor-
ar með fallegu skoti sem ó-
verjandi var fyrir Guðmund.
Enn sækja Skotar og vilja að
sjálfsög-ðu taka forustuna, og á
35. mínútu skallar annar inn-
herjinn laglega í mark, 3:2. Enn
helzt baráttan, og er stundum
nokkur harka í leiknum, og
sækja Skotar sem fastast, en
úrvalið á allt af inní milli á-
hlaup, án þess þó að vera
ógnandi. Skotar eiga góðan
s-kalla í þverslá, og skot fram-
hjá.
Á 43. mín. dæmir Magnús
Pétursson vítaspymu á Skota,
sem úr áhorfendastúku var
erfitt að átta sig á, hvernig
var til kominn, og skoraði
Högni örugglega, 3:3- Eftir
leikinn gaf Magnús þá skýr-
ingu að Birni Lárussyni hefði
verið. haldið og brugðið um
leið, og fyrir það er aðeins
víti, sagði Magnús. Og þannig
laul: þessari viðureign, sem var
nokkur upplyfting fyrir hina á-
' hugasömu áhorfendur, þrátt
fyrir ailt.
Gestirnir betra liðið.
Því verður ekki neitað að
gestirnir voru mjög áberandi
betra liðið í þessum leik, og
kemur þar -til allt það er lýtur
að leikni knattspymunnar,
hvort sem er að ræða knatt-
meðferð eða staðsetningar þegar
þeir eru ekki með knöttinn.
Hraði þeirra var og mun meiri,
og öryggi í spyrnum. Með
skálla voru þeir mörgum flokk-
um betri, munurinn í sköllum
þeirra og okkar manna er sá
að þeir skalla en íslenzkir
knattspyrnumenn yfirleitt
stanga knöttinn, en á því er
mikill munur.
Þessi úrslit segja því ekki
rétt til um getu liðanna, eins
og fyrr segir, og er nauðsynlegt
fyrir okk-ar menn að hafa það
í huga þegar þeir velta fyrir
sér úrslitunum.
Beztu menn Skotanna voru
Miller, Fraynor, Holt og Fprd,
annars eru þeir nokkuð jafnir,
<*>-
nema hvað markmaðurinn
virtist heldur óöruggur.
Islenzka liðið barðist.
Það má segja íslenzka lið-
inu til hróss að það barðist
allan tímann og fékk þar með
truflað leik gestanna og brot-
ið niður, áður en 'þeim tækist
að skapa sér tækifærin. Kom
þar til sterk a-ftasta vörn með
Guðmund í markinu sem bezta
mann, og svo Árna Njálsson og
Sigurð Albertsson sem bezta
hinna fjögurra öftustu, en
Högni og Jóhannes sluppu, þol-
anlega. Magnús Torfason var
nokkuð misjafn, og virðist ekki
enn kominn í fulla þjálfun, en
hann var annar tengiliðurinn
milli framlínu og varnar. Hinn
var Eyleifur sem einnig var
misjafn, og er enn ekki kom-
inn í þjálfun, og kom það bezt
fram í þeirri hörku sem hann
sýndi í leiknum og það svo að
hann fékk „bókun“. En hann
vann mikið, en sendingar hans
voru ónákrvæmar, og notaðist
því ekki nógu vel sem „tengi-
liður.“
í framlínunni var Ingvar sá
sem ógnaði Skotum mest með
ákafa»sínum og aðgangssemi,
og Hermann gerði ýmislegt
laglega, en hann lék að þessu
sinni . innherja, eða kannski
réttara sagt annan miðherja.
Elmar sýndi mun meiri tilþrif
en í leiknum móti Keflavík, og
var oft friskur, en þessi frísk-
lei-ki mundi notast mun betur,
ef hann réði betur við knött-
inn, en hann missti hann tíð-
úfn, þégar mikið lá við. Björn
Lárusson, útherjinn hægra
megin. var oft hart leikinn af
mótherjunum, og sluppu þeir
heldur vel í þeim samskiptum,
hefði mátt dæma meira á það,
Björn gerði sitthvað laglega.
Midað við þann efnivið, sem
lands-liðsnefnd á úr að velja,
má segja að þ-etta'lið hafi ekki
fallið sem verst saman. Hins-
vegar er ekki ótrúlegt að úr-
valið sé það mikið að hægt
væri að setja saman lið sem
hefði alveg eins mikla mögu-
leika og þetta lið, því að sann-
leikurinn er sá, að við eigum
stóran hóp a-f réttum meðal-.
mönnum en örfáa sem hægt ér
ag segja að séu nokkuð veru-
lega þar yfir.
Það er því ekki líklegt að á
þessu liði verði miikil breyting
í leiknum við Spán, þó það
komi að sjálfsögðu til greina
á 3—4 stöðum.
Dómari var Magnús Péturs-
son og slapp sæmilega.
Af hverju sækja áhorfenflur
ekki leikina betur?
Það hefur vakið mikla at-
hygli forustumanna knatt-
spyrnunnar hve illa þessir
leikir hafa verið sóttir. Hér er
þó um að ræða á-gætt og mjög
vel þekkt skozkt lið, sem sýndi
í öllum leikjunum góð tilþrif
og góða knattspyrnu. Frá sjón-
armiði forustum. knattspyrn-
unar er þetta alvarlegt. í þessu
sambandi vakna margar spurn-
ingar: Er það hið kalda vor
sem heldur áhorfendum frá?
(Mánudagskvöldið hefði þó
ekki átt að hræða). Dregur
sjónvarpið svona frá, en alla
þessa daga voru sjónvarps-
kvölld? Er fólkið óánægt með
frammistöðu ókkar manna og
forðast að sjá þá í leik við góð
lið? Eru áhorfendur famir að
spara við sig vegna 'dýrtíðar-
innar og annars í því sam-
bandi?
Er hér um mikið alvörumál
20. MAÍ-4.JÚNÍ ÍÞRÓTTA- OG SÝNINGARHðLLIN
IIVVORUSYNING LAUGARDAL OPIÐ PRÁ KLUKKAN 14-22 ALLA DAGA
í DAG opið klukkan 14 til 22.
Stórt vöruúrval frá fimm löndum.
Vinnuvélar sýndar í gangi.
BÍLASÝNING.
16
Fimm kvikmyndasýningar: Kl. 15
17 — 19 — 20.
TVÆR FATASÝNINGAR: Kl. 18 og 20.30,
með pólskum sýningadömum og herrum.
VEITINGASALUR OPINN.
KATTPSTFiFNAN pólland tékkóslóvakía
1XV 7; . , SOVÉTRÍKIN UNGVERJALAND
iREYKJAVIK1967 þýzka alþýðulýðveldiðI
að ræða, ef til þess þyrfti að
koma, að félögin hættu að taka
hingað heim lið vegna hættu
á að tapa á heimsókninni; það
væri líka skaði skeður hvað
snertir knattspymuna og
framgang henriar. En hvað um
það, hér er mál á ferðinni sem
knattspyrnuforustan verður að
taka til meðferðar, rannsaka
og leita að réttum svörum.
’Frímánn.
(Hvernig væri að auglýsa
leikina í dagblöðunum? Ekki
hlusta allir á úfcvarp fyrir kl.
7.30 á kvöldin. __ Ég man
heldur ekki eftir því fyrr, að
leikir erlendra knattspyrnuliða
hafi ekki verið auglýstir og
hef ég þó fylgzt með knatt-
spyrnu og sótt völlinn að stað-
aldri sl. 35 ár. — Setjari).
I
Alveg
ný
skriftækni
Við hugsuðum sean svo:
Þar sem kúlupennar eru mest
notaðir allra skriffæra í heiminum,
er þá ekki hægt að smíða
kúlupenna, sem er fallegri í lögun
og þægilegri í hendi,
nákvæmlega smíðaður —
með öðrum orðum hið
fullkomna skriffæri. ,
Svo var hugmyndin undir
smásjánni árum saman. —
Síðan kom árangurinn.
6-æða blekkúlan,
sem tryggir jafna blekgjöf
svo lengi sem penninn endist.
Og til viðbótar hin demants-harða
Wolfram-kúla í umgerð úr ryðfríu stáli.
Ekki má þó gleyma blekhylkinu, sem endist
til að skrifa »"
10.000 metra langa línu.
Að þessu loknu var rannsakað
á vísindalegan hátt hvaða
penna-lag væri höndinni hentugast.
Þá var fundið upp Epoea-lagið.
Ennþá hefur ekkert pennalag
tekið því frarn.
REYNIÐ BALLOGRAF-EPOCA
OG ÞÉR HAFIÐ TILEINKAÐ
YÐUR ALVEG NÝJA
SKRIFTÆKNI.
&JMIOGXAJF
epoca
.Sænsk gæðavara, sem ryður sér til rúms
um víða veröld.
Umboð: Þ0RÐUR SVEINSSON & CO. HF
\