Þjóðviljinn - 26.05.1967, Side 7
.VVVYVVVYVYVVVVVVVVVYYVVVVAVVYVVYVYYYVYYVVYVVVYVVVVYVVVVYVYVYVVYVYVVVVVVVVY^^^^^
Föstudagiur 28. maí 1967 — MÓÐVTLJTNN — st»A J
> , 'f i i..:
~í j» ua>
ÍítHHÍH
i 7 ■;
Siiil
VVVVAAVV/VVV\VVV\VVVV\VV\AAA\\VVVAA\V\\\VVAAAVVVVVAA\\AAAVVAAAVV\\AA\AAV\AVV\\\\VAVVV\VVVVA\A\VVAAAVAAAAA\\\VYAVVVVVVV\VVVVVVVVVAAVVVVVVVV/VVVVAAVVVVVVVVVVV\VVAA/VVVV‘VVVVVVVVV\\AAAAVVAAAVVVAAA/VVV\VVVVVV\AAVAA\VVVVVVVVVAAA/VAA'VVVVVV\AAVVVVV/VVVVAAVV
Hvernig ætlar þú, launþegi, að
lifa af rúmum 2000 kr. á viku?
Mir verkamenn og aðrir launþegar verða að
gera sér það ljóst, að í þessum kosningum er
barizt um lífskjör þeirra á næstu árum.
Fastráðinn Dagsbrúnarmaður hefur nú rúmar
2000 kr. í kaup á viku, fastráðnir hafnarverka-
menn 2215 kr. og aðrir verkamenn nokkru
meira. En það er jafn Ijóst að menn lifa ekki af
þessum launnm. $
Helmingur allra launatekna undanfarin ár
hefur verið fyrir eftirvinnu, næturvinnu og
helgidagavinnu, og nú er þessi eftirvinna að
falla niður, og fer stórversnandi um allt at-
viiinuástand eftir kosningar. i
Og þá ætlast braskaravaldið í landinu til þess
að verkamenn lifi af dagvinnu — 2000 kr. á
viku — einni saman. Og það þegar húsaleigan
ein er oft 7—8000 kr. á mánuði og stnndum
meira.
Eftir kosningar ætlar braskaravaldið, sem tvöfaldað hefur
dýrtíðina síðan 1961, að framikvsema gengislækkun að vanda,
— eins og gert var 1950, strax eftir kosningamar 1949, þegar
Framsókn sagði fjárplógsvaldinu stríð á he/ndur í kosningun-
um og fór svo í stjóm með þvi efitir kosningamar til að fiella
gengið, lækka kaupið og boma á aitvinnuleysi, — eins og fhald-
ið og Alfþýðufilokkurinn gerði 1960, strax efitír kosningarnar
1959.
Minnkandi atvinna, brottfall efitirvinnu, gengislækkun og
vaxandi dýrtíð samffera nokkru beinu atvinnu'leysi þýðir um
leið. að yfirborgun sú, sem víða hefur tíðkazt, hverfur. Allt
jafngildir þetta því að fátæktin haldi aftur innreið sína á
alþýðuheimilin. Og þegar mikdð er um fyrirfiram samnings ■
bundnar greiðslur, — vegna fbúðar, húsgagsna, sjónvarps o»s.frv.,
þá blasir við hætta á fjárhagslegu hruni margra launþega-
heimila.
Baráttan fyrir hækkuðum launum hefur að
því leyti verið erfið á velgengnisárunum, að
hraskarastéttin hefnr látið ríkisstjórn sína
hækka allt vöruverð að sama skapi og laun
hækka og reynir þannig með þjéfalykli verð-
bólgunnar að stela af launþegum jafnóðum ©II-
um kauphækkunum.
Barátta fyrir launahækkunum verSur og
að heyjast, og sízt af minni þrótti, þótt atvinnuleysi
og fátækt steðji að. En hún verður óhjákvæmiiega
harðvítugri þá, því þá verður barizt um brauðið.
um lífið sjálft, en ekki bara kjarabætur. En meðan
braskaravaldið og ríkisstjórn þess ræður, þá beita
þessi afturhaldsöfl ríkisvaldinu vægðarlaust gegn
verkalýðnum — með gengislækkunum, dýrtíð, kaup-
hækkunarbanni, verkfallsbanni, — ef þau þora.
Þess vegna er pað stórfelldasta hagsmunamál altra
launþega að steypa pessu braskarai>aldi og ríkis-
stjórn pess í peim kosningum,, sem fram fara 11. júni.
Ef meirihluti ríkisstjórnarflokkanna fellur, þá hefur
braskarastéttin beðið ósigur, sem gerir henni erfið-
ara fyrir um allar kúgunarráðstafanir gegn launþeg-
um.
Vikukaup fastráúins hafnarverkamanns í Kcykjavík er nú 2.215 krónur. Það er ðllum ljóst að menn lifa ekki af þdm launum.
Fátœktin vofir yfir verkalýðnum á ný, nema braskara-
valdinu sé steypt í þessum kosningum
Kosningarnar eru því stórfelldasta stéttabar-
átta launþegastéttanna, til þess að slá kúgunar-
vopn ríkisvaldsins úr klóm braskaranna.
Alþýðubandalagið er samtök fólksins gegn fé-
sýsluvaldinu.
Með stórsigri G-listans skapa launþegar sér
aðstöðu til að leysa þá efnahagskreppu, sem
braskaravaldið hefur leitt yfir landið, — sam-
kvæmt hagsmunum alþýðu, en hindra afturhald-
ið í að leysa hana með því að velta byrðunum
yfir á alþýðuheimilin.
Baráftan um að tryggja raunverulegar kaup-
hækkanir, — án verðbólgu og dýrtíðar, á kostn
að brasksins og ringulreiðarinnar, gróðans og
eyðslunnar hjá yfirstéttinni, — er háð nú í
kosningunum. Það er af nógu að taka, því þjóð-
artekjurnar samsvara 550 þús. kr. á 4 manna
fjölskyldu, þegar dagkaup Dagsbrúnarverka-
manns samsvarar 104 til 115 þús. kr. á ári.
Baráttan um að knýja fram stórfelldar skipu-
lagðar atvinnuíramkvæmdir, — tafarlausa end-
urnýjun togaraflotans, fullan rekstur frystihúsa,
afkomuöryggi íslenzks iðnaðar og sjávarútvegs
— er háð nú í kosningunum!
Einungis stórsigur G-listans, Alþýðubanda-
lagsins, getur íryggt á ný fulla atvinnu og batn-
andi afkomu, — afstýrt þeirri byrjandi kreppu
og atvinnuleysi, sem ríkisstjórnarafturhaldið er
að leiða yfir þjóðina. Hver sem reynir að sundra
Alþýðubandalaginu og spilla fyrir stórsigri G-
listans, er að reka rýtinginn í bak alþýðusam-
takanna í pólitískri lífsbaráttu launþeganna.
Verkafólk og aðrir launþegar!
Sameinizt í baráttunni fyrir öruggri atvinnu
og hækkuðu dagkaupi, um G-listann, og trygg-
ið stórsigur hans á kjördegi!