Þjóðviljinn - 26.05.1967, Síða 12
Á sovézku sýningardeildinni í Laugardalshöllinni
Allt frá barnabókum til stór-
virkra landbúnaðarverkfæra
vörusýningunni. — Myndina tók ljósm. Þjóðv. A.K.
□ Níu sovézk verzlunar-
fyrirtæki mynda sýnin^ar-
deild Sovétríkjanna á Alþjóð-
legu vörusýningunni í Laug-
ardalshöll og sýna þar fjöl-
breyttan vaming, allt frá bók-
um og leikföngum til stór-
virkra véla. Þó er hér aðeins
um lítinn hluta útflutnings-
vamings Sovétríkjanna áð
ræða. en þau verzla nú við
um það bil 100 lönd.
í gær (fimmtudag) var
haldinn sérstakur blaða-
mannafundur til að kynna
sovézku sýningardeildina. —
Forstjórí deildfiinnar. Búk-
haréf, hafði orð fyrir sýning-
araðilum, en fulltrúar ein-
stakra fyrirtækja svöruðu
spumingum.
Bifreiðir em mikill hluti
sovézks útflutnings , hingað.
Fyrirtækið Avtoexport sýnir
m.a. nýjustu gerð af Mosk-
vítsj, sem hér er mjög vinsæl
bifreið — og tilkynnt var að
von væri á station-afbrigði af
þessum bíl. Þá eru og sýnd
tvö afbrigði af Volgu, sem er
stærrj bílJ og hefur víða orð-
ið vinsæll meðal leigubíl-
stjóra. Ennfremu^ er sýndur
rússajeppi svonefndur, GAZ-
67, mikið keyptur til sveita
og lítill tiu manna strætis-
vagn.
Fyrirtækið Traktoroexport
sýnir m.a. tvær dráttarvélar,
lyftara, sláttuvél og önnur
landbúnaðarverkfæri. Þetta
fyrirtæki kveðst hafa það til
síns ágætis að láta ekki við
vélasölu eina sitja heldur og
hjálpa innflytjendum (í þessu
tilviki „Bimi og Halldóri“)
til að skipuleggja rétta notk-
un vélanna. tækniþjónustu og
viðgerðir.
Fyrirtækið Stankoimport
var fyrst stofnað til að flytja
ihn málmsmíðavélar margs-
konar. en nú hefur það snúið
sér að umfangsmiklum út-
flutningi. Fulltrúi þess sagði,
að hingað hefðu einkum ver-
ið valdar alhliða vélar, sem
bæði mætti nota í stórum
Úr sovézku deildinni á
verksmiðjum og litlum verk-
stæðum. Þama eru borvélar,
vélheflar, slípimarvélar mjög
nákvæmar og rennibekkir
sem leyst geta mjög flókin
verkefni.
Energomashexport státar
sig einkum af logsuðu- og
gassuðutækjum, bæði sjálf-
virkum ■ og hálfsjálfvirkum
og sögðu fulltrúar þess fyrir-
tækis að margir íslenzkir
menn sérfróðir hefðu sýnt
þeim áhuga og prófað þau.
Þá sýna þeir og rafhreyfla og
rafgeyma — en sjá annars
um hvers konar útbúnað sem
við kemur orkuvinnslu, allt
frá rofum til risastórra túr-
bína.
Ra
legan vaming almenningi til
munaðar — hafa margir sýnt
áhuga á rifflum og ýmsum
íþróttavörum, en þar að auki
býður þetta fyrirtæki upp á
leikföng og borðbúnað og
sitthvað fleira.
Novoexport flytur út þjóð-
lega listmuni og handavinnu,
en mest ber á teppum í þeirri
deild, svipar þeim að mynztri
tií persneskra teppa enda eru
þau ofin í löndum sem nálæg
eru Persíu og byggja á sömu
hefð. Þau tíðindi spurðust á
sýningunni að verzlunin fs-
torg hefði þegar keypt öll
þessi teppi.
ódýrar og smekklegar marg-
ar hverjar. Þá eru margar
tegundir tónlistar þarna á
plötum. . ekki sízt þjóðleg
músík.
Vneshtorgreklama er enn
einn aðili sýnirigarinnar: það
annast auglýsingastarf fyrir
sovézkar útflutningsvörur er-
lendis og fyrir erlend fyrir-
tæki í Sovétríkjunum, og það
hefur skipulagt þátttöku
Sovétríkjanna í þessari sýn-
ingu, sem vonandi verður til
að efla viðskipti landanna og
vinsamleg samskipti, eins og
Búkaréf sagði að lokum.
Að loknum fimm sýningar-
dögum er talið að um átta
þúsund manns hafi séð al-
þjóðlegu vörusýninguna í
Laugardalshöllinni.
Mezdunarodnaya Kniga sýn-
ir bækur og tímarit, og hafa
sýningargestir einkum blað-
Raznoexport er með ýmis- - að í bókum um listir svo og
bamabókum, sem eru bæði
Sænskur tundur-
spillir í Reykja-
víkurhöfn
Sænska herskipið Halland kom
til Reyþjavíkur í gærmorgun
og verður hér fram á sunnudag.
Er skipið á leið til Montreal,
en öll Norðurlöndin nema ís-
land senda herskip á heims-
sýninguna.
Áhöfn skipsins er 275 manns
og er það 3000 brúttólestir að
stærð. Halland er tundurspill-
ir, vel útbúinn öllum nýjustu
tækjum og ekki skortir vopnin
um borð.
Skipið mun verða til sýnis
almenningi einn eða tvo eftir-
miðdaga áður en það lætur úr
höfn.
Sigurður A. Mugnússon ráð
inn ritstjóri Sumvinnunnur
Um næstu mánaðamót verða
ritstjóraskipti við Samvinnuna.
Páll H. Jónsson núverandi rit-
stjóri lætur þá af störfum en
hann hefar verið ritstjóri blaðs-
ins frá því í ^ársbyrjun 1964.
Jafnframt lætur PáH af starfi
forstöðum. fræðsludeildar SÍS.
Við ritstjórn Samvinnunnar
tekur Sigurður A. Magnússon
rithöfundur og fyrrv. blaðamað-
ur við Morgunblaðið. Hefur Sig-
urður jafnframt verið ráðinn
blaðafulltrúi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga.
Rikisstjórn Islunds hurm-
ur utburðinu í Gríkklundi
I sambandi við umræður, sem
fram fóru í Evrópuráðinu í
Strasbourg nú í vikunni viðvíkj-
andi atburðum þeim, sem nýlega
hafa átt sér stað í Grikklandi,
Umferðaslys
í gœr
Telpa fjögurra til fimm ára
varð fyrir bíl um hádegisbil í
gær á Hagamel rétt við Mela-
búðina. Strætisvagn stóð við
gangstéttina og var að hleypa
inn fólki þegar litla stúlkan
hljóp út á akbrautina framan
við strætisvagninn og lenti á
leigúbíl sem ók fram hjá, og
kastaðist í götuna. Var telp-
an flutt á slysavarðstofuna en
meiðsli hennar reyndust lítil.
Lögreglan brýnir fyrir bílstjór-
um að aka hægt framhjá kyrr-
stæðum strætisvagni, því oft
hlýzt slys af hröðum akstri þég-
ar svo stendur á.
í gær féll lítil telpa út úr
bifreið við Hringbraut 89. Var
hún affcur í bílnum og ætlaði
að klifra fram í, en lenti á
hurð bílsins og datt út. Var
hún flutt á slysavarðstofuna, en
meiðsli hennar reyndust Iítil.
þar sem löglegri lýðræðisstjórn
hefur verið vikið frá með valdi
og mannréttindi borgaranna tak-
mörkuð, gaf fastafulltrúi íslands
hjá Evrópuráðinu svofellda yfir-
lýsingu af hálfu ríkisstjórnar ís-
lands:
,,íslenzka ríkisstjómin harrruar
mjög, að þessir atburðir hafa
gerzt, sérstakflega vegna þess, að
Grikkland hefur verið skoðaö
sem vagga lýðræðis, þar sem
lýðræðislegir stjómarhættjr hafa
verið hafðir í heiðri. Einnig vegna
þess, að náin og góð tengsl hafa
'jafnan verið á milli landa okkar,
og að íslendingar virða og meta
grísku þjóðina.
íslenzka ríkisstjómin lætur í
ljósi þá ósik og von, að lýðræðis-
legir stjómarhættir verði aftur
upp trknir hið fyrsta í Griikk-
Iandi, og mannré .ndaskrá Evr-
ópuráðsins, sem bæði löndin eru
aðilar að ásaimt öðrum meðlimum
Evrópuráðsins, verði haldin í
heiðri.“
(Frá u tanríkisráðuneytinu).
Ölvaðir við akstur
Þrir bílstjórar voru teknir af
Reykjavíkurlögregluoni um átta-
leytið í gærkvöld ölvaðir við
akstur.
Föstudagur 26. maí 1967 — 32. árgangur — 115. tölublað.
Askorun til her-
námsandstæiinga
□ í gær barst Þjóðviljanum eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá Samtökum hemámsandstæðinga: — Miðnefndar-
fundur Samtaka hernámsandstæðinga, haldinn 23. maí
1967, brýnir fyrir samherjum sínum í öllum flokkum að
halda á loft við þær alþingiskosningar, sem nú fara í hönd,
stefnumálum samtakanna um uppsögn hemámssamnings-
ins og hlutleysi íslands gagnvart hemaðarbandalögum.
Einkum hvetur fundurinn alla hemámsandstæðinga til að
vekja sem skýrast athygli landsmanna á því, að þeir al-
þingismenn, sem nú verða kjömir, eiga að taka afstöðu
til Natósamningsins, sem fellur úr gildi að tveimur árum
liðnum.
Bóndinn é Rein
A arshatið Alþyðubandalagsms
á Akrancsi i vetur var félags-
hcimilinu Rcin þar í bæ gcfin
svartlistarmynd af Jóni Hregg-
Viðssyni. Gefendumir voru Hall-
dór Þorsteinsson og Ragnar Lár
og er sá síðarnefndi höfundur
myndarinnar.
Fyrir nokkru vom gerðar 300
eftirprentanir af myndinni og
eru þær áritaðar af höfuntli.
Verða eftirprentanimar nú seld-
ar á kr. 300 hver og rennur all-
ur ágóðinn I kosningasjóð Al-
þýðubandalagsins í Vesturlands-
kjördæmi.
Myndin hér að ofan er af
mynd Ragnars af Jóni Hregg-
viðssyni.
Reykjavíkurganga 1967
— gegn herstöðvum, fasisma
og erlendri ásælni
■ • f ’
■ A morgun, laugardag, boðum við aJla stuðningsmenn :
j REYKJAVlKURGÖNGU 1967 til fundar I
TJARNARBÚÐ (niðri) klukkan 14.30.
Á fundinum verður sagt frá fyrirkomulagi göngunnar og :
; þátttakendur sk'ráðir.
Klukkan 10 f.h. hefst MÓTMÆLASTAÐA við bandaríska
; scndiráðið, Laufásvegi 21. Einn til tveir tugir manna munu
! standa með mótmælaspjöld gegnt sendiráðsbyggingunni. Þess-
j ari aðgerð lýkur klukkan 14.30 um leið og fundurinn í Tjarn-
■ arbúð hefst. Efiir fundinn verður svo ©fnt til mótmælagöngu j
j til bandaríska sendiráðsins og afhent orðsending frá fund-
■ armönnum.
j Við heitum á alla stuöningsmen-n REYKJAVlKURGÖNGU ;
■ 1967 að fjölmenna á fundinn á morgun.
j Skráningarsímar REYKJAVÍKURGÖNGU 1967 eru 1-75-13,
| 2-47-01 og 37-99-3.
■ s
■ 3
FRAMKVÆMDANEFND REYKJAVÍKURGÖNGU 1907. ■
■