Þjóðviljinn - 22.10.1967, Page 1
Summdagur 22. október 1967, — 32. árgangur — 238. tölublað.
VerkcriÝðsfélog Norðfirðinga:
Júnísamkofflulagið svikið og
sammngsgrundvellinuffl rift
<•>-
Busar og böðlar
I gærmorgun voru 1. befek-
ingar í Menntaskólanum við
Hamrahlíð teknir inn í nem-
endafélag skólans með mikilli
viðhöfn. Var endurtekin sið-
ur sem tíðkaðist í Latínuskól-
anum fyxir hundrað árum.
Busarnir voru teymdir upp
á Öskjuhlíð og fylgdu 5 „böðl-
ar“ hverjum busabekk. í aust-
anverðri hlíðinni á stað sém
nefnist Beneventum flutti for-
maður nemendaráðs, Stefán
Unnsteinsson, snjalla ræðu og
síðan voru busarnir „jamerað-
ir“ þ.e. látnir hneigja sig og
beygja og votta þannig eldri
nemendum virðingu sína-
Myndin er tekin er nemend-
urnir héldu af stað frá skól-
anum upp á öskjuhlíð og
báru þeir spjöld með glettileg-
um áletrunum.
(Ljósm. Þjóðv. RH)
»«■■*■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Krafan hlýtur að vera:
Opinber rannsókn
Stjórn og trúnaðarjnannaráð
Verkalýðfélags Norðfirðinga sam-
þykkti á fundi sínum 17. þ.m.
svohljióðandi ályktun vegna ráð-
i stafana ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmólum sem kunngerðar voru
.12. þ.m.:
„Fundur í stjórn og trúnaðar-
mannaráði Verkalýðsfélags Norð-
firðinga haldinn 17. okt. 1967,
mótmælir harðlega þeim árásum
ríkisvaldsins á kjör hins al-
menna Iaunþega í' landinu, sem
felast í ráðstöfunum ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum sem
kunngerðar voru þann 12. þ.m.
Með ráðstöfunum þessum svík-
ur ríkisstjómin júnísamkomulag-
ið og riftir grundvelli allra
kjarasamninga þar sem sú stór-
fellda hækkun á nauðsynjavör-
um, sem nú kemur til fram-
kvæmda, á ekki að hafa áhrif
á kaupgjald, svo sem lög og
samningar segja til um. Fund-
urinn leggur á það þunga á-
herzlu að ráðstafanir þessar
koma þyngst niður á þeim sem
þyngsta hafa framfærsluna þar
sem hér er að mestu um að
ræða hækkun á nauðsynjavör-
um.
Einnig' bendir fundurinn á að
atvinnutekjur hafa vemlega
minnkað á þessu ári vegna
minnkandi yfirvinnu.
Jafnframt þessu bendir fund-
urinn á að verzlunin, sá atvinnu-
vegur sem bezt hefur þrifizt á
undanförnum ámm og skilað
stór gróða, er f engu látinn bera
hinar nýju álögur heldur feng-
inn í hendur með þeim aukinn
gróði.
að Bjargi
- Ber ekki saksóknara aS eiga frumkvœSiS?
□ Eftir hinar alvarlegu
ásakanir á rekstur skóla-
heimilis Hjálpræðishersins,
Bjargs, sem fram komu í
Þjóðviljanum í gær og fyrra-
dag, byggðar á frásögn fær-
syskrar stúlku, sem flúði
þaðan og fleiri frásögnum og
ibendingum, hefur nú Barna-
verndarráð íslands látið hef ja
rannsókn á sínum vegum,
að svo komnu þó aðeins á
íslenzk bók-
menntahefð
í sérstöku íslandsblaði
sem danska dagblaðið „In-
formation" gaf út í gær er
m.a. skýrt frá því að á
hverri einustu viku berist
til íslands 4,7 lestir af
dönskum blöðum, eða 18
þúsund eintök af viku-
blöðum auk ýmissa mánað-
arrita. Þetta samsvarar um
miljón eintökum á ári sem
við greiðum rúmar 10 milj-
ónir króna fyrir- — Mest
seldu dönsku blöðih eru
þessi: Anders And 4.700
eintök, Familiejournalen
3.300. Hjemmet 2.800, Alt
for Damerne 2.450, Femina
1.700, Hendes verden
1.200. Á forsíðu íslands-
blaðsins birtist auglýsing
frá Gutenberghus sem gef-
ur út Anders And, Hjem-
met og Alt for Damerne.
Fyrirsögn auglýsingarinn-
ar er þessi: Islendingar nú-
tímans hafa tekið að erfð-
um sterka fróðleiks- og
bókmenntahefð.
máli Marjun Gray, fær-
eysku stúlkunnar
□ Það hlýtur þó að vera
réttlát krafa eftir það sem
fram hefur komið um vist-
heimilið, að opinber rann-
sókn fari fram á öllum
rekstri heimilisins og þeim
uppeldisaðferðum sem þar
er beitt. Virðist það standa
saksóknara næst að hefja
slíka rannsókn.
Saksóknari ríkisins, Valdimar
Stefánsson, sagði þó í viðtali við
Þjóðviljann í gær, að ’ekkert
hefði borizt til hans um þetta
mál og á meðan svo væri, yrði
ekkert gert í því af hálfu sak-
sóknara- Virtist honum málið
vera meira á sviði barnaverndar-
yfirvalda á því stigi sem það nú
væri.
Samkvæmt lögum hefur sak-
sóknari heimild til að hefja op-
inbera rannsókn á málinu, a.m.k.
segir í lögum um meðferð opin-
berra mála, 21. grein:
„Saksóknari skal hafa gætur á
afbrotum sem framin eru.“
Er ekki einsýnt, að sé frásögn
Marjun rétt i aðalatriðum, — og
þar ber henni saman við aðrar
stúlkur sem dvalizt hafa á
Bjargi —, þá er hér um afbrot
að ræða af hendi starfskvenna og
ráðafólks Bjargs?
Vilja ekkert Iáta uppi
Þjóðviljinn hafði í gær sam-
band við bæjarfógetann í Hafn-
arfirði, Einar Ingimundarson, sem
ekkert vildi láta hafa eftir sér
um rannsókn málsins, en þar sem
Bjarg er í Seltjarnarneshreppi
heyrir málið undir hans embætti
sem sýslumanns í Gullbringu- og
Kjósargýslu. Það eina sem Einar
vildi um málið segja var að
hafzt hefði upp á stúlkunni í
fyrrakvöld og hún hefði verið yf-
irheyrð og bæri skýrslu hennar
í aðalatriðum saman við, frásögn
þá sem birtist í Þjóðviljanum.
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði vildi ekkert láta uppi um
rannsóknina og var lögreglumað-
ur sá er blaðið talaði við móðg-
aður yfir því að blaðið hafði ekki
viljað gefa honum upp dvalarstað
stúlkunnar, en að sjálfsögðu var
viðkomandi blaðamaður bundinn
þagnarheiti og gát ekki látið
þetta uppi meðan ekki var tryggt
að stúlkan yrði ekki tekin með
valdi og flutt aftur á Bjarg.
Lauk' viðkomandi lögreglumað-
ur símtalinu með eftirfarandi
orðum:
— Það þýðir ebkert fyrir yður
að reyna að veiða eitthvað upp
úr mér. Þakk fyrir. viðtalið,
sælair!
FLOKKURINN
Fundur í Sósíalista-
félaginu n.k. miðviku-
dagskvöld. — Dagskrá
auglýst síðar.
ÆF
Erindi um heim-
speki marxismans
■ír Á næstunni verða flutt af
☆ segulbandi nokkur erindi Ás-
☆ geirs Blöndals Magnússonar
xír um heimspeki marxismans.
☆ Hið fyrsta verður flutt kl. 4
☆ síðdegis í dag í Tjarnargötu
☆ 20 og nefnist það Uppruni
☆ heimspeki marxismaus.
Rannsókn haldið áfram
Samkvæmt . öðrum áreiðanleg-
um heimildum hefur blaðið það,
að móðursystir Marjun vísaði
rannsóknarlögreglunni á dválar-
stað hennar eftir að hún hafði
verið fullvissuð um að hún yrði
ekki sett á Bjarg. Var Marjun
tekin til yfirheyrslu á föstudags-
kvöld kl. hálftíu og stóð hún til
kl- 3 um nótina.
Viðstaddir yfirheyrsluna voru
Framhald á 6. síðu.
Stjórn og trúnaðarráð Verka-
lýðsfélags Norðfirðinga skorar á
alla launþega að standa saman
sem órofa heild um að hrinda af
sér þessari hatrömmu árás rík-
isvaldsins og starfa markvisst að
því takmarki að dagvinnutekjur
hækki svo að þær standi undir
mannsæmandi lífskjörum."
(
Sésíalismi og
ísl. stjórnmál \
í fimmtíu ár
★ í vetur mim Einar
Olgeirsson gera grein fyrir
sögu stjórnmálabaráttu ís-
lenzkra sósíalista í hálfa
öld. Mun Eimar flytja stutt
erindi, en síðan verður
spjallað um efnið fram og
aftur.
★ Ætlunin er, að þessi
fræðslukvöld verði hálfs-
mánaðarlega á miðviku-
dagskvöldum í Tjarnargötu
20. — Fyrsta fræðslukvöld-
ið verður haldið n.k. mið-
vikudag.
★ Stjóm ÆFR hvetur
félaga til að fjölmenna, en
líkt og önnur fræðslustarf-
semi ÆFR er þetta opið
öllum, ,sem áhuga hafa á
málinu.
Síldarverksmiðjur SV-lands
taka ekki við sdd í bræðslu
Á fundi i Félagi síldar- og
fiskimjölsverksmiðja á Suður- og
Vesturlandi er haldinn var sl.
föstudag var samþykkt með at-
kvæðum afllra félagsmanna eftir-
greind ályktun:
„1 tilefni af úrskurði yfir-
nefndar Verðlagsráðs Sjávarút-
vegsins um verð á bræðslusíld
veiddri suðvestanlands á tíma-
bilinu 1. okt. til 31. des. 1967,
lýsa verksmiðjumar því yfir, að
þær sjá sér eigi fært að kaupa
síld af skipum. til bræðslu er
veidd er á þvi veiðisvæði, á þvi
verðd sem ákveðið hefur verið,
og hefja því eigi móttöku síld-
ar í verksmiðjurnar að óbreyttu
ástandi.
Vísast að öðra leyti til mót-
mæla og röskstuðnings, sem full-
trúar verksmiðjanna í Verðlags-
ráði lögöu fram við verðákvörð-
unina í yfimefndinni."
j Er Gunnar Thóroddsen for-
setnefni Fromsóknarmnnna?
f síðasta blaði Þjóðólfs sem
út kom 7. októbcr sl. er frá
því skýrt að þau tímamót hafi
orðið í útgáfu blaðsins að
Kjördæmissamband Fram-
sóknarfélaganna á Suðurlandi
sé tekið við henni af félagi
áhugamanna er áður stóð að
henni. Verður Þjóðólfur því
hér eftir málgagn Framsókn-
arflokksins á Suðurlandi og
mun túlka sjónarmið fiokks-
ins enn ótvíræðar en áður,
þótt jafnan hafi blaðið fylgt
flokknum að málum.
I þessu fyrsta tööublaði
Þjóðólfs sem yfirlýstu mál-
gagni Framsóknarflokksins á
Suðurlandi birtist frásögn
Matthíasar Ingibergssonar
fyrrverandi ritstjóra blaðsins
og aðaiihvatamanns að stofnun
þess af Kaupmannahafnarför
íslenzkra blaðamanna í sl.
mánuði í boði Flugfélags ís-
lands. Þar segir Matthías m.a.
frá því er blaðamönnum var
boðið heim til amíbassadors
Gunnar Thóroddsen
Islands í Kaupmannahöf n,
Gunnars Thóroddsens, og
rómar mjög viðtökurnar sem
vert er. Ber Matthías mjög
lof á ambassadorshjónin og
segir m.a. svo orðrétt í lok
greinarinnar:
„Var um það rætt manna á
, meðal á eftir, að Islendingar
ættu jxar góða fullltrúa, þar'
sem þau væru sendiherra-
hjónin, og ekiki væri óeðlilegt,
að islensdía þjóðin vildi fela
þeim stærri verkefni."
Það fer vart á milli mála
hvað Matthías Ingibergsson' á
hér við, þ.e. að Islendingar
geri Gunnar Thóroddsen að
næsta forseta landsins, enda
lét hann þau orð falla í ræðu
er hann hélt í hádegisverðar-
boði er Flugfélagið héltblaða-
mönnunum og ambassadors-
hjónunum í þessari sömuferð,
að það væri ósk manna að sjá
þau ambassadorshjónin sem
fyrst aftur heima á íslandi al-
komin þangað — og skittdu
allir viðstaddir gerla hvað
hann átti þar við.
Vegna þessara ummæla,
sem Matthías hefur nú endur-
tekið í málgagni Framsóknar-
flokksins á Suðurlandi, hlýt-
ur að vakna sú spurning,
hvort Matthías tali þarna fyr-
ir hönd flokks síns og hvort
Framsóknarmenn séu nú þeg-
ar búnir í sinn hóp að velja
Sér Gunnar Thóroddsen að
forsetaefni.
I
!
\
í