Þjóðviljinn - 09.01.1968, Side 7

Þjóðviljinn - 09.01.1968, Side 7
Þriöjudagur 9. janúar 1968 — ÞJÓÐVILJTNN — SlÐA ’J Guðrún Helgadótfir: Skotlandspistill Hnípin þjóð í vanda Sem barn vissi ég það eitt um Rússa, að þeir væru skelíi- legt fólk, sem héldi engin jól. Hitt vissi ég ekki fyrr en núna, að Skotar gera það eiginlega ekki heldur. Jólaenglar nútím'- ans, kaupmenn, skreyta aðvísu verzlanir sínar löngu fyrir jól, og menn skiptast á gjöfum, a.m.k. krakkar, og lítil 'jólatré eru í gluggum íbúðarhúsa allán desember. Aðfangadagur er hér almennur fylliríisdagur, og verzlanir eru opnar fram eftir öllu. Fjölmargir verkamenn koma til vinnu sinnar á jöla- dagsmorgun sem aðra daga, en þeir, sem efni hafa á, halda hátíð þann dag. Annar í jól- um er enginn hér. Sáralítið er um að vera í barnaskólum um jólin. Áramótaléyfi eru þó frá 22. desember til 9. janúar, enda lýkur þá haustönn. Áramótin eru hinsvegar aðalhátíðin; hana nefna Skotar HOGMANAY, sem orðabækur geta ekki skýrt, <S> Slys í Fnjóskadal Vatnsleysu í Fnjóskadal, 2/1. — Hér hafa orðið tvö slysatilfelli um áramótin. Daginn fyrir gaml- ársdag ók Jón Geir Lúthersson, bóndi í Sólvangi, bíl sinum út af á leiðinni til Akureyrar, valt bfllinn og hlaut Jón viðbeins- brot en dóttir hans sem með honum var slapp ómeidd. Þar sem þetta vildi til voru frosnir holgrafningar í veginn, hættu- legir þeim sem ekki var kunn- ugt um þá. Á nýársdag datt frú Gertrud, kona séra Friðriks A. Friðriks- sonar á Hálsi, og meiddist mik- ið. Var hún sótt á .sjúkrabíl frá Húsavík og flutt í sjúkrahús þar. Séra Friðrik hefur verið þjónandi prestur á Hálsi undan- farin ár og hafa þau hjónin ver- ið mjög vinsæl í sveitinni. hvað merkir. Þá drekka allir Skotar og skemmta sér nótt og dag. Englendingar halda jól með svipaðra sniði og við. Flestir íslenzkir stúdentar fóru heim uffl jólin. Fjölskyldu- fólk varð þó að halda kyrru fyrir af f járhagsástæðum. Reynt var að halda íslenzk jól eftir mætti, og eiga Skipverjar á Gullfossi sterkan þátt í, að það var gerlegt. Það var þeim að þakka, að iimandi hangikjöt, laufabrauð og hvprs kyns góð- gæti að heiman var á borðum okkar um jólin, og það er ekki í fyrsta skipti, sem þeir enu ís- lenzkum stúdentum erlendis hjálplégir. 1 lok hátíðarinnar fæddist meira að segja lítið jóllabarn af íslenzku kyni, son- ur Jónu Bjargar Hjartar, en i reyndar líka manns hennar, Páls ,van Buren hdskólakennara hér. Venjulega er Edinborg eins og dauðs manns gröf eftir kl. 8 á kvöldin, varla ljós í nokkr- um glugga. í hinum nafntog- uðu „dönsku blöðum“ hefurum árabil verið auglýst róandi hægðalyf. Á mynd sést yfir al- dimmt þorp, en ‘ljós er í einum glugga, og út um hann kemur skýringin: „Jeg har glemtmm Spinatin". Edinborg er afarlík þessu þorpi. Maður getur geng- ið eftir hverri húsalengjunni á fætur annarri og hvergi séð merki • um byggð, utan í ein- staka glugga, hvort sem ástæð- an er sú sama og í umvæddn auglýsingu. 'En á nýórsnótt varð skyndilega lífsmark með íbú- urn þessarar ágætu borgar. Menn létu þjóðarfþrótt sína, sparnaðinn, og kuldann lönd og leið, Ijós loguðu glattum hvei-ja gátt, og'menn sungu og döns- uðu innanheitir «f brennivíni. Ókunnar fyllibyttur kysstustog föðmuðust á götunum, menn léku á harmonikkur með ann- arri hendinni og héldu utanum stúlkuna sina með hinni. Nú er aftur dimmt, og utah um amana hímir hnípin þjóð i vanda. Um þann vandánnhefurblöð- um, útvarpi og sjónvarpi oröið tíðrætt og -skraíað um ára- mótin. StjórnmáHamenn eru ekki heilagar kýr hérna, sem enginn þorir eða má stjaka við. Menn, sem gefa kost á sér til þess áð stjórna „Brezka heimsveldinu‘f, eins og i þeir kalla það enn, vita það fyrir- fram, að hver einasta athöfn, hvert einasta skref, er undir stöðugri gagnrýni þessara að- ila. Pólitísk móðursýki virðist ,ekki eins áberandi hér og heima. Ekkert þykir eðlilegi-a ViUrWr Hauslaus eða hvað? Lesendur greta spreytt sig á að finna út hvern- ig þetta er hægt, en myndin er úr bókinni „Hlæjandi myndavél“ sem nokkrir þýzkir ljósmyndarar gáfu út nýlega. George Brown og sjálfsagðara en flokksfélag- ar og þá ekki síður andstæð- ingar deili opinskátt um rekstr- arfyrirkomulag hinna ýmsu fyrirtækja þjóðfélagsins. Það ku vera vestrænt lýðræði. Á því kann hins vegar að vera sú bakihlið, að þeir menn, sem opinskáast deila, geri það, af því að þeir hafi allls enginvöld. T.d. deildu tveir þingmenn Verkamannaflokksins hatram- lega í sjónvarpi nýlega um brezkan iðnað. Voru það hinar fróðlegustu upplýsingar, sem þar komu fram. Þessir menn geta gert þetta vegna þess að þeir róða engu og breyta þar af leiðandi engu. En eftir stendur, að þeir geta haft tölu- yerð áhrif á almenning. Ennþá hef ég engan heyrt mæla bót hroðalegum aðförum , Banda- ríkjamanna í Vietnam í fjöl- miðlunartækjum hér nemaráð- herra ríkisstjórnarinnar, og engum dettur í hug að heiðra kommúnista eina með þeim skoðunum. Ástæðan til þess, að nokkurt gagn má hafa af fjöl- miðlunartækjum eins ' og út- varpi og sjónvarpi hér, er vit- anlega sú, að útvarps- og sjón- varpsráð hgfa aldrei látið standa í sér þann vpðalega kökk, sem kallaður er hlutleysi heima. Fréttaflutningur þessara tækja er að sjálfsögðu hlutlaus, en það, sem utanaðkomandi fólk kann að segja, kemur þeim ekkert við. Það er á þess éigin ábyrgð. Komið hefur fyrir, að spyrj- endur í viðtalsþátturd hafa þótt nærgöngulir, en þá hefur verið um afhjúpun rfkisleynÖarmála að ræða eða eitthvað því um líkt. Sá maður, sem harðast er gengið að um þessar mundir, er hr. Harold Wilson. Það er næstum öruggt, að ríkisstjórn hans félli í kosningum nú. Hún þykir hafa brugðizt illilega á öllum sviðum. Ég veit ekki við hverju fólk bjóst. Það hefur farið fyrir ríkisstjóm Wilsons eins og öllumöðrumrikisstjóm- um sósíaldemókrata: Þær sætta sig við auðvaldsþjóðfélag eða öllu heldur gefa sér þann stöp- ul til þess að standa á ogvinna síðan sem eins konar ræstinga- konur íhaldsins. Þannig hefur það gengið æ ofan í æ, allls staðar. Vist hefur Verkamanna- flokkurinn brezki komið á ýmsum góðum hlutum, svo sem National Health Service (brezka sjúkrasamlagið), sem umfram allt heldur lífi í fú- tæklingum hér, en ég er næst- um viss um, að fyrr eða síð- ar hefði íhaldsflokkurinn gert það líka. Honum er eins farið og Ihaldsflokknum heima, að hann gerir sér ljóst, að þjóðfé- lag þrífst ekki án þjóðfélags- legrar lausnar mála, þó að skilningur stanzi við ákveðna línu. tOg lffinu verður að halda í þrælunum með eimhverju móti, annars er lítið upp úr þeim að hafa. Wilson er bundinn í báða skó, þvi að endanlega ræður peningavaldið, og sósíaldemó- krata brestur alltaf kjark til róttækra ákvarðana. Auk þess vita allir, að vestrænt lýðræði byggist á harðsnúinni' klíku bandarísks auðvalds, CIA hef- ur tálsvert við athafnir brezka forsætisráðherrans að afchuga, svo að litlu máli skiptir, þó að hann kynni að hafa einhverjar óljósar sósíalistískar hugmynd- ir. Og það sem ég hef heyrt hr. Harold Wilson segja, gæti sérhver snyrtilegur fhaldsmaður á íslandi hafa sagt. Það á alla- vega ekkert skylt við sósialisma og hefur enda engu breytrt i lífi alþýðu manna á Bretlands- eyjum. Hann hefur því hlotið þau sorgP.egu örlög ailra sósíal- demókrata, að vera viðgeröar, maður íhaldsins, óg það var varla meiningin að annast við- hald þess. Þegar litið er yfir liðið ár, kemur þetta ljóslega fram. Verkamannaflokkurinn hefur vissulega staðið í smáhrein- gerningum. Hann getur þakkað sér afnám laga um dauðarefs- ingu (að vísu í næstu 5 ár til reynslu), hann hefur afnumið lög um, að kynferðisleg sam- skipti manna af sama kyni séu glæpur. Persónulega finnstmér, að hann hefði átt að ganga lengra, beinlínis hvetja menn tiíl þess háttar kynlífs, þvi að börn, sem verða til í Bretlandi utan hjónabands, eru réttinda- láusir einstaklingar, "sem fáa varðar um. Þess vegna finnast smábörn myrt í jórnbrautarlest- um eða 5>firgefin hér og þar. öi”vita mæður hafa ekki minnsta möguleika til þess að standa undir uppeldi þeirra, hvorki efnislega eða andlega. En það er önnur saga. Það er vissulega aukning á persónufrelsi að íá að hafa kynlff sitt í friði, og gott, að eitt morð veldurekki sjálfkrafa öðru. Þá hefur nú- verandi ríkisstjórn eitthvað samræmt lög hinna 1400 bæj- ■ar- og sveitarfélaga, sem hing- að til höfðu hvert sína laga- bók til þess að fletta upp í. Jafnvel Bretum fannst það of flókið. Hráksmánarlegust hefur þó verið utanríkisstefna stjórnar- innar. Hr. George Brown verð- ur svarafátt eins og kollega hans á Islandi, a.m.k. þegar hann er spurður um Vietnam- málið. Vera má að bandarískt auðvald geti stungið upp í tal- anda brezku ríkisstjórnarinnar, svo að hún æmti \ ekki né skræmti. IJn Bretar styðja ekki einungis aðgerðir Bandaríkja- manna í Vietnam, heldur taka beinlínis þátt í þeim. Sem dæmi má nefna, að þeir halda úti herjum í Malaysíu og Singa- pore, og menn hafa undrazt hvers vegna. Nýlega komfram, að þetta er samningur við Bandaríkjamenn, sem er í gildi, þar til stríðinu í Vietnam Jýk- Harold Wilson ur. Þarna veita Bretar vinum sínum Bandaríkjamönnum að- skiljanlega aðstoð, þjálfa t.d. hermenn í að berja á skæru- liðum og lána þeim hunda, sem sérstaklega hafa lært að þefa skæruliða uppi. Þessar kúnstir lærðu Bretar í upp- reisninni á Malakkaskaga fyrir nokkrum árum. Það er ekki svo óskiljanlegt, að de Gaulle er lítið um Breta gefið sem að- ila að Efnahagsbandalagi Evr- ópu. Bandarikjamenn eru sagð- ir eiga 40% helztu útflutnings- afurða Breta, svo að vafamál getur verið hvar Bandaríki Norðurameriku byrja. Verst er, ef Johnson ,er að verða gjald- þrota, eins og margt bendir til, þá höfum við öll veðjað á vit- lausan hest, sem aldrei má gera í braski. Ef til vill verðurblóð limlestra fátæklinga austur í Vietnam, til þess að opna augu okkar fyrir þvi, hverjir reka heimsvaldapólitík og hverjir ekki. V erkamannaflokksráðherrann, sem getur Jitið glaður yfirfar- inn veg og fundizt árangur verka sinna nokkur, er reynd- ar kona, frú Barbara Castle. Hún daufheyrðist við harma- kveinum kráreigenda og barði í gegn lög um, að menn skyldu vera ódrukknir við akstur öku- tækja. Og frú Castle <?r bráð- hress þessa dagana, þegar hún veifar skýrslum um helmings- fækkun dauðaslysa eftir hina nýju lagasetningu. Menn hafa í-eynt að finna þessu ýmsar or- sakir aðrar, en frú Castle situr föst við sinn keip: „A sober driver is far better than a drunken one“. Eftip uppgjöf Wilsons, geng- isfellinguna, líta menn meðugg til nýs árs. Drottningin sagði, að Bretland væri í vanda, en mundi leysa hann með alkunn- um manndómi. Islendingar eiga Oíka vandasamt ár framundan. Við skulum vona, að ennfræg- ari manndómur leýsi hann. ís- lendingum öllum, samherjum sem andstæðingum, ósldp ég farsællar lausnar, þó einkum þeim, sem ég veit að getastuðl- að að henn.i, islenzkum sósial- istum, ef þeir snúa sér að >vi verkefni strax. 4/1 1988. G. H. Kuldasálmur Reykjavík nefnist reyklaus borg ríklát í allan máta, fer hennar hrós um fjarlæg torg frekt gerum af því státa. Vellur úr jörðu vatnið heitt, víslega er það í húsin leitt, grátna hyað gerir káta; Þegar að blessuð sumarsól sendir geislana heita yfir gjörvalla byggð og ból blómstrar þá hitaveita, stofnunin telst þá til þess fús að tengja við kerfið sérhvert hús, fæstir því firðar neita. I Svo kemur haust með hregg og hríð hyssugar norðan brælur, brátt kólnar sumum borgarlýð bömin reka upp skælur. Hér bjargar, mælir hvert eitt sinn Hitaveitunnar forstjórinn, stór geymir, stærri dælur. Aldrei má ljúka önnum þeim áður en kemur vetur, með því er boðið háska heim hver maður séð þó getur, sem að hefur á verki vit vel á sannindum þekkir lit, eða þau einhvers metur. Hefur nokkur á heimsins storð heyrt um ráðsmennsku slíka? Árlega glymja ómerk orð, einatt hrein skreytni líka. Fólkið þó skjálfi er samt eitt sem eflaust gjörir í sinni heitt: — Innheimtan rosta-ríka. ?— Kulvís. i j

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.