Þjóðviljinn - 04.02.1968, Síða 1
1
♦
3ja þing Verkamannasam-
bandsins hófst í gærdag
Kjaramálin eru aðalmál þingsins
□ 3ja þing Verkamannasambands íslands hófst
í Lindarbæ í gær kl. 2 síðdegis og setti formaður
þess, Eðvarð Sigurðsson, þingið. Áttu rúmlega 70
fulltrúar frá 37 sambandsfélögum rétt til þingsetu
en ekki voru allir mættir er þingið hófst.
Fylkingarfélagar eru enn
minntir á að á 'þriðju-
dagskvöldið kl. 9 e.h. held-
ur Einar Olgcirsson áfram
erindaflutningi sínum: Sós-
íalisminn ogíslenzk stjórn-
mál í 50 ár.
Erindið flytur Einar í
Tjarnargötu 20. Fylking-
arféiagar eru hvattir til að
fjölmenna á þessi fróð-
legu erindi Einars. — ÆFR.
Alþýðubandafagið Suðurnesjum
□ Aðalfundur Alþýðubandalagsins á Suðurnesjum verð-
ur haldinn í Aðalveri í Keflavík í dag, sunnudaginn 4.
febrúar, kl. 3.
„ Verndarar" varpa
sprengjam á Saigon
SAIGON 3/3 — í dag var enn barizt ákaft á ýmsum stöð-
um í Saigon og í hinni forn höfuðborg Hue og bardagar
blossuðu upp aftur í Mekong-óshólmunum. Bandaríkja-
menn beita flugvélum og þyrlum gegn skæriiliðum í Sai-
gon — er talið að 300 þúsund manns hafi misst heimili
sín vegna bardaga undanfarinna daga.
hefjast er blaðið fór í prentun
verða nánari fréttir af þinginu
að bíða þriðjudagsblaðs.
Aðalfundur Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur var haldinn
18. janúar sl. Var þar m.a. lýst
stjórnarkjöri en sjálfkjörið var í
stjóm félagsins og var Guðm.
H. Garðarsson endurkjörinn
formaður félagsins. I félaginu
eru nú 4323 félagsmenn og jókst
félagatalan um 373 á árinu eða
um rúm. 11% en frá 1960 hefur
félögum í VR fjölgað um 84%.
Stafar þessi mikla aukning fé-
Kafaldshríð
í Reykjavík
★ * í gær stillti aftur til eftir
hretið í fyrradag en nokkurt
snjóföl var þó á götum borgar-
innar og talsverð hálka sums
staðar.
★ Veturinn hefur verið all-
umhleypingasamur hér suðvest-
anlands og raunar víðar á land-
inu og munu flestir farnir að
vonast eftir því að eitthvað
stilli til.
★ Myndin hér að ofan er
tekin á götu hér í Reykjavík í
gærmorgun. — (Ljósm. Þjóðv.
A.K.).
Iaga bæði af mikilli fjölgun í
stétt verzlunar- og skrifstofu-
fólks svo og af stækkun félags-
svæðisins sem gerð var fyrir
tveim árum.
Á fundi voru gerðar ýmsar
samþykktir m.a. var lýst stuðn-
ingi við þá ákvörðun stjórnarog
trúnaðarmannaráðs að boða
ekki til verkfalls 1. des. s. 1.
Þá voru eftirfarandi ályktanir
og samþykktar á fundinum:
Bandarikjamenn nota flugvél-
ar og þyrlur gegn skæruliðum
í höfuðborginni og segjast ná
góðum árangri — en um leið er
„Aðalfundur Verzlunarmanna-
félags Reykjavíkur, haldinn í
Tjarnarbúð 18. janúar 1968, lýs-
ir furðu sinni á samþykkt Kaup-
mannasamtaka^ ísiands í de^em-
ber s.l. þar sem þeim tilmælum
er beint til kaupmanna um allt
land að segja starfsfólki sínu
upp störfum. Aðalfundurinn tel-
ur stórvítavert það tillitsleysi
sem í samþykktinni felst, en
með henni liefur atvinnuöryggi
fjölmargra launþega í verzlun-
arstétt verið stofnað í hættu.
Leggur fundurinn áherzlu á að
félagsmenn VR eru reiðubúnir
til að taka þátt í sérhverjum
jákvæðum aðgerðum verzlunar-
og viðskiptalífinu til styrktar“.
„Aðalfundur Vcrzlunarmanna-
félags Reykjavíkur haldinn 1
I Tjarnarbúð 18. janúar 1968, mót-
mælir’ þeim aðgerðum ríkis-
valdsins að afnema vísitöluupp-
bætur á laun.
'Jafnframt felur fundurinn
stjórn og trúwaðarmannaráði fé-
lagsins að vinna markvisst að
því að fullar vísitölubætur verði
greiddar á laun verzlunarfólks
framvegis og hafi um það brýna
hagsmunalega samstöðu með
öðrum stéttarfélögum".
Þá samþykkti aðalfundurinn
ályktun, þar sem skorað er á
Alþingi að samþykkja framkom-
ið frumvarþ til laga um breyt-
ingu á lögum nr. 19, 10. maí
1965, um Húsnæðismálastofnun
ríkisins, og tryggja þar með að
lífeyrissjóðsfélagar hafi sama
rétt til lána úr hinu almenna
veðlánakerfi og aðrir hafa.
viðurkennt að margir óbreyttir
borgarar falli í þessum loftárás-
um; f dag reyndi fólk að ná i
eitthvað matarkyns í verzlun-
um eftir nokkra daga inniset-
ur ogtvar því fleira fólk á göt-
unum en áður. Talið er að um
300 þúsund manns hafi mlsst
heimili sín í Suður-Vietnam síð-
ustu daga, og líklega þá fyrst
og fremst í loftárásum Banda-
ríkjamanna á borgarhverfi sem
skæruliðar hafa lagt undir sig.
1 norðurhluta landsins hafa
skæruliðar hertekið herstöð
Bandaríkjamanna og Saigon-
hers í Quang Tri héraði.
Bandaríkjamenn halda áfram
að birta fáránlegar tölur um
mannfalil í liði andstæðinga
sinna, en játa um leið að þeir
eigi i harðri baráttu. Þeir segja
og að áskoranir til meðlima
Þjóðfrelsishreyfingarinnar um að
gefast upp hafi áður fyrr borið
nokkum árangur — en eftir
þessa sóknarlotu skæruliða séu
litlar likur til að svo verði.
.________________________
Bifreiðaeigendur
við Eyjafjörð fá
viðurkenningu
Á aðalfundi blúbbsins örugg-
ur akstur á Akureyri semhald-
inn var sl. þriðjudagskvöld af-
henti Baldvin Þ. Kristjánsson
félagsmálafulltrúi og Sigmund-
ur Björnsson forstöðumaður Vá-
tryggingadeildar Kaupfélags Ey-
firðinga um 100 verðlauna- og
viðurkenningarmerki Samvinnu-
trygginga til bifreiðaeigenda f
Eyjafirði og á Akureyri fyrir
öruggan og slysalausan akstur í
5 og 10 ár, en auk þess fá þeir
síðartöldu iðgjaldsfrítt 11. árið
vegna ábyrgðartrygginga bif-
reiða sinna.
Innbrot
í fyrrinótt var framið innbrot
í Hafnarbúðir. Var farið þar inn
um opinn glugga á veitihgasaln-
um en litlu mun hafa verið
stolið.
VR KREFST FULLRÁR VÍSI-
TÖLUUPPBÓTAR Á KAUPIÐ
Þjóðviljinn átti í gærmorgun
tal við Eðvarð Sigurðsson for-
roann Verkamannasambandsins
og innti hann eftir því hver yrðu
helztu mál þingsins. Sagði Eð-
varð, að aðalmálin sem fyrir
þinginu lægju væru tvö: Sam-
bandsmál og atvinnu- og kjara-
mál.
Hefnt fyrir Víet-
nam í V-Þýzkal.
FRANKFURT 3/2 — Tíma-
sprengja sprakk í mótt í skrif-
stofum bandaríska fyrirtækis-
ins Dow Ohemicals, sem fram-
leiðir meðal annars benzín-
hlaup það sem notað er í Viet-
nam og víðar. Þá voru rúður í
bandarísku ræðismannsskrif-
stofunni og upplýsingaþjónust-
unni einnig brotnar. Hér hafa
eflaust verið að verki andstæð-
ingar Bandaríkjanna í Vietnam-
stríðinu.
Þetta er eins og áður
þriðja þing Verkamannasam-
bandsins og átti það upphaflega
að koma saman í nóvember sl.
en þing sambandsins á að halda
annað hvert ár eða þau ór sem
Alþýðusambandsþing eru ekki
haldin. Vegna aukaþings Alþýðu-
sambaníisins lenda þessi tvö
þing hins vegar á sama tíma
að þessu ginni. Var þingi Verka-
mannasiambandsms frestað í
haust eins og þingi Alþýðusam-
bandsins vegna þess ástands er
þá ríkti í atvinnu- og kjara-
málum.
★
Að sjálfsögðu munu atvinnu-
og kjaramálin verða "eitt aðal-
mál þingsins en atvinnuleysið
sem nú ríkir kemur harðast
niður á verkamönnum af öllum
stéttum. Er Verkamannasam-
bandið langfjölmennasta ^érsam-
bandið innan vébanda Alþýðu-
sambands íslands með yfir 13
þúsund félagsmenn.
Þar sem þimgstörf voru að
Samvinnutrygg-
ingar hafa veitt
1500 verðlaun
★ Á aðalfundi klúbbsins Ör-
uggur akstur í Reykjavík. er
haldinn var í síðustu viku, fengu
alls 366 bifreiðaeigendur afhent
verðlaunamerki og viðurkenn-
ingu frá Samvinnutryggingum
fyrir 5 og 10 ára tjónlausan
akstur. Hafa þó 1470 bifreiða-
eigendur í Reykjavík fengið
verðlaunamerki og viðurkenn-
ingu Samvinnutrygginga fyrir
tjónlausan akstur.
★ 4 stjórn klúbbsins Örugg-
ur akstur í Reykjavík voru
kjörnir Kári Jónasson blaðafull-
trúi formaður, Héðinn Emilsson
fulltrúi og Hörður Valdimarsson
lögregluflokksstjóri.
★ Myndin er frá fundinum.
Sunmidagur 4. febrúar 1968 — 33. árgangur
tölublað.
íí