Þjóðviljinn - 04.02.1968, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.02.1968, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVELJINN — Sunnudagur- 4. febrúar 1968. Útgefandi: Samemingarfiokkur alþýðu - Sósiaiistaflokkurinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. (áb.), Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Augiýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður- Bergmann Ritstjóm. afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði — Lausasöluverð krónur 7.00 Sjómannsrödd Frá Skákþingi Reykjavíkur Skýr og ein-beitt sjómannsrödd heyrðist á Alþingi nú í vikunni þegar Karl Sigurbergssom flutti framsöguræðu um frumvarp sitt um sérstakan stuðning á þessu ári við hlutarráðna sjómenn; að 50 miljónum króna verði varið til að bæta nokkuð úr misréttinu sem hlutarsjómenn urðu fyrir við ákvörðun fiskverðsins, en þá skammtaði ríkis- stjómin sjómönnum 10% hækkun en útgerðar- mönnum sem svarar 30% fiskverðshækkun. í ræðu Karls fólst eindregin aðvörun til stjórnarvalda landsins að þau komi ekki þannig fram við sjó- mennina á bátunum að þeir hætti sjósókn. Hann minnti á, að þó mikið sé talað u'm tæknibyltingu á síldveiðunum, hefði lítið orðið úr notum af þeirri tækni ef ekki hefði verið fyrir í landinu einvalalið sjómanha, sem á furðuskömmum tíma tileinkaði sér hina nýju veiðitækni og hefur beitt henni með ágætum. Karl. Sigurbergsson tók svo til orða í þingræðunni að landganga íslenzkra síldveiðisjómanna af flotanuim nú um áramótin geti ekki hafa farið framhjá neinum sem fylgjast vilji með útgerðar- málurn. Og hann svaraði spurningunum: Hvað er að gerast á síldveiðibátunum og hver verður af- leiðingin m.a. á þennan hátt: „Ég held ég geti svar- að þessum spurningum fyrir hönd okka'f sjómarina, þannig að megi skiljast, það er að segja ef menn vilja nokkuð skilja. Við göngum í land einfaldlega vegna þess að kjörin eru ekki þess virði að stunda þennan atvinriuveg við erfið skilyrði, fjarri heim- ilum og vinum, og fjarri-öllu sem við köllum í dag menningarsamfélag. Við viljum ekki vera án þessa, nema því aðeins að við berum meira úr býtum. Við eigum kröfu til þess. En hver verður þá afleið- ingin? Hún verður sú, óhjákvæmilega, að hin raun- verulega imdirstaða fyrir mikilli sókn og miklum aflafeng hrynur. Og þar með minnka möguleik- amir til að afla gjaldeyrístekna fyrir þjóðina á þessum vettvangi.' Það fer’ ekki framhjá neinupi sem kemur að landi eftir strangt og erfitt úthald með sína kauptryggingu, lækkaða um fæðiskostn- að, sem þá/ myridi vart vera hærri en svarar níu til tíu þúsund krónum, að jafnvel unglingsstúlkur með einhverja smávegis menntun njóta ekki verri kjara fyrir að sitja á skrifstofu' við að svara í síma eða pikka á ritvél, með styttri vinnutíma en þeir sem sjóinn stunda. Og þar að auki geta í frístund- um sínum notið allra þeirra lystisemda sem sam- félagið hefur að bjóða, og lifað menningarlífi.“ Karl varaði við þeirri skoðun, að sjómenn muni ekki ganga í land vegna atvinnuleysis þar. íslenzk- ir sjómenn geti keppt á vinnumarkaði hvar sem dugandi manjia er þörf. Og hann skoraði á Alþingi að láta ekki þessa þróun halda áfram. Vottur slíks vilja væri ef þingmenn samþykktu frumvarp hans. Það kynni að stuðla að því, að sjómenn teldu ekki örvænt um breytta afstöðu stjórnarvalda og einnig myndi það auðvelda samninga sjómannafélaga og útgerðarmanna sem enn hafa ekki tekizt. Jjess er fastlega að vænta að ríkisstjóm og alþing- ismenn hafi skilið það alvörumál sem sjómað- urinn Karl Sigurbergsson flutti í þessari fyrstu þingræðu sinni. — s. Skakþing Reykjavíkur 1968 hófst í Skákheimili T. R. 14. janúar s.l. Þáittaka er mjög góð, 76 keppendur sem skipt- ast í 4 flokka. 1 meistaraflokki eru 22 þátttakendur sem skipt er í tvo riðla, en síðan munu 4 efstu úr hvorum riðli tefla til’ úrslita um titilinn skák- meistari Reykjavíkur 1968. Staðan í A-riðli meistaraflokks var þessi eftir 7 umferðir: 1. Gunnar Gunnarsson 5% v. og biðskák. 2. Guðmundur Sigur- jónsson 5Va (af 6). 3. Björgvin Víglundsson 3'A vinning og 2 biðsskákir. 4. Benóný Bene- diktsson 3 (af 6). 5. Jón Páls- son 2% og biðskák (af 6). 6. Andrés Fjeldsted 2 vinninga og 2 biðskákir .7. Stígur Her- lufsen 1% og 3 biðskákir. 8. Jón Þorvaldsson IV2 vinning og 2 biðskákir. 7. Stígur Her- mann Ragnarsson 1 v. og bið- skák (af 6). 10. Bragi Halldórs- son 1 vinning og biðsskák. 11. Sigurður Herhifsen 1 v. (af 6). I B-riðli var staðan þessi: 1. Björn Þorsteinsson, 6V> v. 2. Bragi Kristjánsson, 5 v. 3. Leifur Jósteinsson 4 v. 4. Jón Kristinsson 3Vz v. og biðskák (af 6). 5. Bj,arni Magnússon 3% (af 6). 6. Gyílfi Magnússon 3 vinn. og biðskák (af 6). 7. Jó- hann Þ. Jónsson 2V> v. og bið- skák (af 6 skákum). 8. Frank Herlufsen 21/? vinning (af 6). 9. Júlíus Friðjónsson 1%. 10. Sig- urður Kristjánsson 1 v. (af 6). 11. Haukur Kristjánsson 0 v. og biðskák (af 6). Eins og sjá má á þessu, eru 3 þegar ör- uggir í úrslit, Gunnar og Guð- mundur í A-riðli og Björn i B-riðli, en keppni getur orðið hörð um hin sætin. I I. flokki eru 10 keppend- ur, og voru efstu menn eftir 6 umferðir þessir: 1. Svavar Svavarsson 5%, 2.—3. Stefán Guðmundsson og Haraldur Sveinbjömsson 4 vinninga. 1 II. flokki eru 26 þátttak- endur, sem skipt er í tvoriðla, 12 í öðrum og 14 i hinum. f A-riðli voru efstir eftir 6 um- ferðir: 1. Ragnar Þ. Ragnars- son 6 v. 2. Garðar Guðmunds- son 5% og 3. Hafsteinn Bland- on 5 vinninga (af 7). I B-riðli voru þessir efstir eftir 7 um- ferðir: 1.—2. Kristinn Helga- son og Auðunn Snaebjömsson með 6 vinninga og 3. var Ingi Ingimundarson með 5 vinn. 1 unglingaflokki tefla 18 þátttakendur 9 umferðir eftir Monradkerfi. Efstir vom eftir 6 umferðir: 1.—2. Sigurður Sverrisson og Magnús Guð- Gunnar er efstur í A-riðli mundsson 4% v. 3.-4. ögm. Kristinsson og Kristján Guð- mundsson 4 vinninga. Við skulum nú líta á skák Björns Þorsteinssonar og Leifs Jósteinssonar úr B-riðli meist- araflokks. Hvftt: Björn Þorsteinsson. Svart: Leifur Jósteinsson. ALJEKlNSVÖRN. 1. c4 2. e5 3. Rc3 Rf6 Rd5 Evrópitráðsiiis Ráðgjafarþing Evrópuráðsins kom saman til funda í Stras- bourg 29. janúar. Einn íslenzkur fulltrúi, Þorvaldur Garðar Kristj- ánsson, sækir þingið að þessu sinni. Svo sem áður hefur verið sagt í fréttum hefur þingið gert ályktun um að víkja beri Grikk- landi úr Evrópuráðinu, ef ekki verður breýting á stjórnarhátt- um þar í landi. Mörg önnur mál eru á dagskrá þingsins, m.a. deilumál Araba og fsraelsmanna. Utanríkisráðherra Jórdaníu, Ab- dul Monem Rifai mun taka þátt i þeim umræðum. (Frá upplýsingadeild Evrópuráðsins). 3. Rb6 / Reykjavíkurmeistnramótið í bridge stendur nú yfír Reykjavíkurmeistaramót í bridge (sveitakeppni) hófst s.l. sunnudag í Domus Medica, Egilsgötu 3. Keppt er í 3 fiokk- um, Meistaraflokki 8 sveitir, I flokkur 8 sveitir, II flokkur 6 sveitir. Úrslit I I. umferð urðu þessi: M. fl. Sveit Símonar Símonarsonar vann sveit Ingibjargar Hall- dórsdóttur 8-0, Benedikts Jó- hannssonar vann sveit Bem- harðs Guðmundssonar 8-0. Hjalta Elíssonar Zóphaníasar Benediktssonar 7-1 og Hilmars Guðmundss. Dagbjartar Grims- sonar 6.-2. I. fl. Sveit Halldórs Magnússonar vann sveit Matthíasar Kjell 8-0 Harðar Blöndal Gunnars Sigur- jónssonar 7-1, Jóns Stefánsson- ar Andrésar Sigurðssonar 6-2, og Magnúsar Eymundssonar vann sveit Páls Jónssonar 5-3 II. fl. Sveit Ara Þórðarsonár vann sveit Gísla Finnssonar 8-0, Ragnars Óskarssonar Ármanns Lárussonar 8-0, og Sigtryggs Sigurðssonar vann sveit Hall- dórs Ármannssonar 6-2. Næsta umferð verður spiluð í Domus Medica í dag, sunnudaginn 4. febrúar og hefst kl. 2.00 e.h. Leifur er einn af þeim skák- mönnum, sem forðast troðnar slóðir eins og heitan eldinn. Sjálfsagt hér 3. — Rxc3. 4. d4 5. Rf3 d6 til 5. f4 kemur sterklega greina. 5. g6 6. Bf4 Bg7 7. Dd2 Bg4 8. Bh6 Bxh6 Eftir 8. — 0—0 9. Bxg7, Kxg7 10. Df4, Bxf3 11. Dxf3, Rc6 12. 0-0-0 hefur hvítur hættulega sóknarmöguleika. 9. Dxh6 Bxf3 10. gxf3 Rc6 11. O—O—O d5 12. Dg7 Hf8 13. e6!? fxe6? Betra er 13. —, Dd6 t.d. 14. exf7t- Hxf7 15. Dg8t, Hf8 16. Dxh7, 0-0-0 og svartur hót- ar 17. —, Hxf3 og 17. —, Df4t ásamt 18. —, Rxd4. Hvítur græðir ekkert á 14. Bh3 vegna 14. 0-0-0 15. exf7t (ann- ars leikur svartur 15. —, f5) 15. —, Kb8 og svartur hótar 16. —, Df4t ásamt 17. —, Hxf7, og 16. Dxh7 gengur ekki vegna 16. —, Hh8 17. Dg7, Df4t' 18. ^ Kbl, Hxh3 og svartur vinnur. 14. Dxh7 Dd6 15. Dxg6t Kd7 16. Dg3 Db4 Leifur hyggur á kóngssókn, en Í6. —, Df4t hefði settBjöm í vanda. Nýjar skákfréttir Laugardaginn 27. janúar tefldi Gunnar Gunnarsson fjöl- tefli við 40 unglinga í Skák- heimili T.R. Gunnar vann 36, gerði 3 jafntefli, en tapaði einnl skák. Kristján Guð- mundsson vann Gunnar, en jafntefli gerðu Sjöfn Kristj- ánsdóttir, ögmundur Kristins- son og Friðgeir Hólm. Stjóm Skáiksambands fs- lands hefur samið við Borgar- bókasafn Reykjavíkur um stofnun sérstakrar skákbóka- og blaðadeildar. Eiríkur Hreinn Finnbogason, yfirbókavörður sýndi þessu máli þegar mik- inn áhuga og var hann mjög hjálplegur. Hafa þeir Friðrik Ólafsson, stórmeistari og Guð- mundur Pálmason tekið aðsér að útbúa bókalista, sem síðar verður pantað eftir. Er ætlun- in að bækur þau og blöð, sem þama verða. muni lánuð út. Úrslit i efsta flokki jólaskák- mótsins í Hastings urðuþessi: 1.—4. Gheorghiu (Rúmeníu), Hort (Tékkóslóvakíu), Suetin og Stein (báðir Sovét.), 6v. 5. Ostojic (Júgósl.), 5 v. 6. Kap- lan (Puerto Rico), 4 v. 7. Whit- yley (Engl.), 31/, v. 8.-9. Hartson og Keene (báðir Eng- landi), 3 v. 10. Basman (Engl). 2V, vinning. Bragi Kristjánsson. 17. Rb5 18. a3 19. f4 20. Rc3 IIac8 Da5 a6 Ra7 Svartur undirbýr sókn með Rb5 og c5, en hvítur verður á undan. 21. Bh3 22. Hhel 23. Hxc6 24. Hel Hf6 Hcf8 Hxe6 Rb5 Venjulega er leikið 3. d4, en ungverski stórmeistarinn Bilek lék 3. Rc3 í skák sinni við Bent Larsen á millisvæðamót- inu í Túnis. Framhaldið varð: 3. — Rxc3, 4. bxc3, d6 5. f4, Rc6 6. Rf3, dxe5 7. fxe5, Dd5 8. d4, Bg4 9. Be2, e6 10. O—O, Be7 11. Rg5, Bxe2 12. Dxe2, O—O 13. Dh5, Bxg5 14. Dxg5, De4 15. Ba3, Hfd8 16. Hf2, Hd7 17. Hafl, Ra5. Er hér var komið gat Bilek náð vinnings- stöðu með 18. Hf3. Larsen ætl- aði að svara með 18. — Kh3, sem ekki dugar vegna 19. Hg3, Hg8 20. Bf8. Aðrar leiðir virð- ast heldur ekki duga fyrir svartan, t.d. 18. — Dxc2 19. Hg3, Dg6 20. Dh4, Dc2 21. Df6, eða 18. — h6 19. Dh5, Dg6 20. Dh4 með góðum sóknarmögu- leikum fyrir hvítan. Ekki dugar 24. —, Hff6 25. Hxe6, Hxe6 26. Dg8. 25. Hxe6 26. Dg5 27. Rxd5 örvænting! Kd8 He8 Rc4 28. c3 Rxd4 29. Hxe7 Rb3+ 30. Kbl Rcd2+ 31. Kc2 Ekki 31. Ka2, Rcl+ og svart- ur þráskákar. 31. Rd4+ 32. cxd4 Da4+ 33. Kxd2 Dxd4+ 34. Kel og svartúr gaifst upp, því hann geturekkiskák- að meira. Guðmundur Arason, forseti Skáksambands Islands, bað undirritaðan fyrir eftirfarandi athugasemdir, vegna skrifa Jóns Þórs i skákþætti blaðs- ins s.l. sunnudag: 1) Stjóm Skáksambands Is- lands auglýsti landskeppni í bréfsskák f tímaritinu Skák, júníhefti 1967. Voru þeir, sem áhuga höfðu á þátttöku, beðn- ir að tilkynna það í pósthólf Skáksambandsins. Við bessari auglýsingu barst ékkert svar. Auk þess kom þetta fram f ársskýrslu Skáksambandsins, sem flutt var af forseta sam- bandsins á aðalfuncii lí>G7. 2) Stjóm Skáksambands Isl. hefur margoft sýnt það fverki, að vilji er fyrir hendi tiil bátt- töku í skákkeppni. bótt okkar beztu menn (t.d. Friðrik og Ingi) geti ekki verið með, sbr. svæðamót síðasta árs. 3) Erlendis eru starfandi sérstök bréfaskáksambönd, studd af skáksamböndum við- komandi landa. Stjórn Skák- sambands Islands álítur mjög æskilegt, að hérlendir áhuga- menn um bréfskák stofni slíkt samband, sem Skáksamband Is- lands myndi svo styðja eftir megni. Enn „hreinsanir“ í Grikklandi AÞENU 2/2 — Gríska herfor- ingjastjórnin heldur áfram að „hreinsa til“ í mikilvægum greinum fíkiskerfiisins. 1 gær var þannig fjórum sendiherrum vikið úr embættum fyrir fullt og allt og þeim fimmtai um stund- arsakir. íþróttir Framhald aí 6. síðu. vinna einn einasta leik. Með svona áframhaldi fá þeir ekki nema 2—4 stig út úr öllum leikjum sínum og fallið blasir við. Stig Ármanns skoruðu: Birg- ir og Rúnar 10 hvor, Sigurður Ingólfsson 8, Hallgrímur og Jón Sigurðsson 6, Snorri 4 og Kristinn 2. Ólafur Geirsson og Sigmar Karlsson dæmdu leikinn vel. — G. STAÐAN: Staðan ! mcistaraflokki körfuknattleiksmótsins er þá þessi. 4 4 0 8 245:193 3 2 1 4 192:172 4 2 2 4 227:244 2112 79: 92 KR IR KFR ÍKF Þór Armann 4 1 3 2 209:223 3 0 3 0 128:156 ÞÚ LÆRIR MÁLIÐ í MÍMI iNMH£SMTA Löon/etsarðHF WMfífíg Mávahlíð 48. — S.'23970 og 24579. í

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.