Þjóðviljinn - 04.02.1968, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 04.02.1968, Qupperneq 3
4- Sumiiudagur 4. fdbirúar 1968 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J ,LANDRÁÐA- MAÐURINN" BENJAMIN Dr. Benjamin Spock er höf- ■undur þeirrar bókar um bama- uppeldi sem vinsælust hefur orðið og mest er mælt með, hún heitir „Baby and Child Care“ og hefur selzt í tuttugu miljónum eintaka. En móður- sýki sú sem grípur um sig í Bandaríkjunum vegna styrj- aldarinnar í Víetnam hefur sín áhrif á velgengni þessarar bókar — eftir að ljós varð af- staða dr- Spocks til striðsins fær hann bréf sem þessi: „Ég sendi yður bók yðar aftur“ skrifar móðir ein frá Syra- cuse, New York. „Þótt pólitísk- ar skoðanir yðar dragi ekki úr verðleikum yðar sem vísinda- manns, þá er ég viss um, að sonur minn muni ná heilbrigð- ari þroska undir handleiðslu bamalæknis, sem ég get bor- ið virðingu fyrir. Sonur minn mun vaxa upp í virðingu fyrir bandaríska fánanum“. uý ( ý'V ».t> 1 viðtali sem nýlega birtist í Le nouvel Observateur- segir dr. Spook að það sé fremur' sjaldgæft að foreldrar sendi honum bók hans aftur. „Venju- lega skrifa menn og segjast hafa rifið bók mína í tætlur, eftir að þeir höfðu lesið í tíma- riti að ég hefði tekið þátt í friðargöngu". Og hann sýndi um leið ávarp til ungra Banda- ríkjamanna, sem hann hefur skrifað undir, þar sem skorað er á þá að neita að gegna her- þjónustu til að mótmæla stríð- inu í Víetnam. Ég held, sagði hann, það sé bezta aðferðin tll að mótmæla stríðinu að berj- ast opinberlega gegn herkvaðn- ingu. Ég veit' að það var svip- uð hreyfing í Frakklandi þegar dró að endalokum Alsírstríðs- ins. . . Þegar blaðamanninn bar að garði var dr- Spock að búa sig undir síðustu fundi sína með læknastúdentum við Western Reserve University og síðustu heimsókn til barna á sjúkrahúsi skólans. Hann var að láta af störfum, selja ein- býli.shús sitt og setjast að í lít- illi íbúð á Manhattan. Þá hefði hann að eigin sögn „meiri tíma til að berjast fyrir friði“. Benjamín Spock er „upp- reisnarmaður“. sem er langt að kominn. Hann er af gamalli hollenzkri ætt, sonur forstjóra við stórt járnbrautarfyrirtæki, menntaður við Yale og C'olum- biaháskóla. Hann gerðist barna- læknir og sálfræðingur og segir ekki af honum fyrr en 1943 en bá hóf hann að skrifa fræga bók sína um barnaupp- eldi. Hún byrjar á þessa leið: ..Þið vitið meira um betta en þið haldið. Látið það ekki skelfa ykkur sem sérfræðingar segja. Það er staðreynd að ástúð og umhyggja sem for- eldrar sýna börnum sínum með eðlilegum hætti er hundrað sinnum meira virði . . .“ Þegar bókin kom út 1946 þóttu þessar skoðanir allrót- tækar. Þá var mest notuð bók dr- Johns B. Watsons um upp- eldi. „Psychological care of infant and child“, sem var full með strangar aðvaranir: „Faðm- ið aldrei að ykkur börnin, aldr- ei! Takið þau aldrei á hné ykkar! Vaggið þeim aldrei í svefn!“ Bandarískar mæður voru mjög fúsartil aðkynnasér bók sem útskýrði fyrir þeim að ástin væri jafn þýðingar- mikil og aginn, blíðan ekki ó- merkari en hreinlætið. Dr. Spock var ekki sá fyrsti, sem kom aftur fram með þessar einföldu hugmyndir, en hann gat útlistað þær betur en nokk- ur annar, með þeim hætti að mæður gátu notið góðs af heima fyrir, þegar bömin höfðu dottið á rúmstokkinn eða neitað að borða annað en banana. Bókin hefur komið út í 170 útgáfum og verið þýdd á 26 tungumál. m ■nSH; 3Ks. «nt, <r s Benjamín Spock hafði fyrst afskipti af stjómmálum 1956 þegar hann féllst á að vera í forsæti nefndar vísinda- manna og lækna sem studdu Adlai Stevenson til framboðs í forsetakosningunum. Fjómm árum síðar tók hann bátt í kosningabaráttu, og studdi þá Kennedy. Ráðunautar Kennedys töldu líklégt, að mæður yrðu fúsar til að kjósa hann, ef þær sæju hann í fylgd með Spock. Þeir voru látnir hittast til myndatöku. Kennedy sagði: Konan mín er í hópi ákafra aðdáenda yðar. Spock vafðist tunga um tönn en konan hans sagði: Og við höfum miklar mætur á yður- Tveim árum síðar bað Kenn- edy Spock að veita forstöðu læknanefnd til stuðnings við „Medicare" (áætlun um sjúkra- tryggingar, einkum öldruðu fólki til góða). Þessi nefnd var ýmsum takmörkunum háð, því drjúgur fneirihluti banda- rískra lækna var svarinn and- stæðingur bessarar áætluriar. Þá skildi dr. Spock hvað það var að vera í litlum minnihluta: flestir starfsbræður hans sneru við honum bakinu, þegar hann kom í borðsal sjúkrahúss Clevelandsháskóla. Bénjamín Spock hafði jafn- an fengið hundruð bréfa þar sem hann var spurður ráða um barnauppeldi eða honum þakk- að fyrir bókina. En allt í einu tók hann að fá bréf frá starfs- bræðrum sem kölluðu hann „svikara“ og „kommúnista" Þetta var góð æfing fyrir það sem síðar kom, því afstaða hans til Vietnamstríðsins hefur stefnt til hans miklu hvass- yrtari bréfum. I kosningabaráttunni 1964 studdi Spock Jóhnson. ,,Ég skammast mín reyndgr fyrir það nú“, segir hann, „en ég held ennþá að rhaðurinn geti haft mannúðlega afstöðu í innan- landsmálum þótt hann hagi sér Benjamin Spock: Ég skal fá þá til að hugsa sig um. Um dr. Benjamin Spock, sem stefnt hef- ur verið fyrir rétt fyrir að hvetja unga landa sína til að neita að gegna herþjón- ustu. — Vinsælastur uppeldisfræðinga — Ást er meira virði en agi — Uppreisnar- maður sem er langt að kominn — Stuðn- ingsmaður Kennedys — Fjandskapur starfs- bræðra vegna stuðnings Spocks við sjúkra- tryggingar — Gegn sptengjunni — Guð- faðir heillar þjóðar með egg í auga —< Ég er ekki hræddur við að vinna með hverjum sem er — Hættum þessari hræsni í Viet- nam — Afskræmd mynd af konimúnism- anum- eins og bófi í Vietnam“. Eftir Spock ekkert svar við bréfum að Johnson var kosinn bauð sínum og sfcnskeytum. hann Spock til Hvíta hússins og í fyrstu svaraði hann per- sónulega áskorunum Spock um að draga úr hemaðaraðgerð- um í Vietnam. I dag fær ★ ★ ★ En raunveruleg tímamót í pólitísku lífi dr. Spocks urðu er Kennedy tilkynnti að Bandaríkin rriundu byrja aftur tilraunir með kjamavopn. „Það . varð ljóst“, segir hann, „að kapp hlaupinu yrði haldið áfram þar til kæmi að kjarnorkustríði, af tilviljun eða af ásettu ráði. Ég skildi þá að það yrði hvorki friður né afvopnun nema fólk- ið sjálft krefðist þess. Ogsám- vizka mín sagði, að ég ætti að gera eitthvað". Nokkrum vikum síðar gerðist „eitthvað“ — Spock og kona hans voru i fararbroddi 200 kröfugöngu- manna sem fóru um aðalgötu Clevelands undir vígorðum um bann við kjamavopnum. ,,Það var eins og að ganga um nak- inn“, segir dr. Spock. „Einhver benti mér á lögreglumenn sem væru að skrifa niður nafn mitt sem „niðurrifsmanns" Er það satt? spurði ég. En maður venst öllu....“ Síðar fylgdu greinár i blöð- um um afvopnun og þegar hernaðaraðgerðir rftögnuðust i Vietnam færðist dr. Spock ail- ur í aukana. I ársbyrjun 1965 gengur dr. Spock með 3000 for- eldrum og bömum til bygging- ar S.Þ., nokkrum mánuðum síðar með 20 þús. kröfugöníu- mönnum til Hvíta hússins, með meira en 100 þúsund manns í New York vorið 1966. í maí 1967 er dr. Snock í fararbroddi fyrir kröfugöngumönnum við Hvíta húsið, þeir vilja afhenda Johnson forseta áskorun um að Bandaríkjamenn verði á brott frá Vietnam. Uneb'ngur, ef til vill alinn upp eftir bók hans. kastar eggi í höfuð honum og hrópar: Svikari! Og bar stend- ur bessi maður, nokkurskonar gíiðfaðir heillar þjóðar, f resn- úðanum og eggiarauðan drýp- ur af góðlátlegu andliti hans. * * ★ Og Spock undirritar ávörp og tekur þátt í ýmsurn sam- tökum. Hann tekur sæti í „Nefnd vegna vietnamskra bama s(em særzt hafa í strið- inu“, frámkvæmdanefnd „Þjóð- arnefndar um nýja stefnu“ (samtaka hinna nýju vinstri- manna) og „Upplýsinganefnd þriggja heimsálfa", samtökum lítils hóps vinstri manna, þ.á.m. kommúnista sem hefur bað að markmiði að efla „andheims- valdasinnaða afstöðu meðal bandarísku þjóðarinnar". „Þessir menn ætla að nota þig“, sagði einn af forvígis- mönnum SANE, á fundi þar sem þau samtök neituðu að taka þátt í friðargöngu sem Spock, Martin Luther King og Stokeley Carmichael skipulögðu í New York. (SANE er hæg- fara hreyfing sem berst gegn kjarnavopnum). „Mér finnst ég ekki vera notaður", sagði Spock- „Hvernig á ég að fá^ menn til að skilja að ég geri einmitt það sem ég vil sjálfur gera. Sumirmenn telja mig skrýtinn vísinda- mann og ábyrgðarlausan. Ef ég er nytsamur friðarhreyfingu er það vegna þess að nærvera min gerir það auðveldara að fá vissa lítt pólitíska menn með. Það veit ég vel. En ég er reiðubúinn að vinna með hverjum sem er, þótt hann sé ekki ýkja „ábyrgðarfullur" um leið og hann er reiðubúinn til Benjamin Spock og Martin Luthcr King í Washingtcn — Z00 í Oleveland, 20 þúsund í Washington, 100 þúsund í Ncw York. að reyna að stöðva þetta grimmilega stríð. Ég er orðinn eldri en svo að ég hiki við •að eiga sameiginlegan málstað með manni eins og Stokeley Carmichael. Friðarhreyfingin á að treysta raðir sínar og ekki kappræða endalaust um það hver hafi rétt til að vera með“. Þegar dr. Spock tók að sér að vera einn af foringjum göng- unnar í New York, áleit hann að nærvera sín auðveldaði samstarf hins hægfara og hins róttæka arms hreyfingarinnar- Það þýðir ekki, að hann sé róttækur sjálfur. Hann kveðst . vona að repúblikanar velji for- setaefni, sem er ákveðinn í að binda endi á stríðið. „En ég held“, segir -hann, „að ef repú- blikanar verða nógu heimskir til að sambykkja stríðið, þá þuríi að finna friðarsinna í framboð til forsetakosninga". Sjálfur vildi hann kjósa hinn þeldökka blökkumannaleiðtoga Martin Luther King til fram- boðs. ★ + ★ Skrif dr. Spocks um friðar- mál eru hrein og bein eins og pólitísk viðhorf hans. „Ég er spurður að því, af hverju barnalæknir vinni að friðar- málum. Ég tel bað sé ekki nóg að vernda börn fyrir far- andsóttum Pg taugaáföllum. 1 dag er kjarnorkuhættan mest ógnun við líf á jörðunni. Krist- ur sagði: Elska skaltu náunga binn. Það býðir: drepið ekki framari hatið ekki framar. Það þýðir: hættum beirri hræsni, að láta sem við finnum til með veslings Vietnömum með- an við köstum sorengjum á hús beirra og brýr, brennum akra þeirra og drepum ogslös- um börn þeirra. Þeir hafa ekk- ert bað gert okkur að þeir verðskuldi þessa grimmd. Við eigum að hætta loftárásum, draga úr hernaðaraðgerðum á öllum sviðum og semja við Vietkong“. „Ég tala ekki“. bætir dr. Spock við, „um að bandarískir herir eigi að verða á brott umsvifalaust. Ég hef í huga vopnahlé undir eftirliti. Við verðum að vísu að halda 'á brott, en við getum ekki látið brytja . niður bandamenn okkar. Við getum ekki búizt við bví, að stórt ríki eins og Kína ‘leyfi að smáríki næst því verði híuti af fiandsamlegu hemað- arbandalagi. Hugsið um alian þann gauragang sem varð hjá okkur, begar Kúba varð sósíal- istaland. Með hvaða rétti get- um við án afláts vitnað í Mon- roekenninguna, þegar við neit- um öðrum um sviouð forrétt- indi? Bandaríkin hafa greini- lega sýnt meiri árásarhvggiu en Kína í þessurr, hluta heims“. ★ * ★ Spock er ekki pasifisti. Hann samþykkti hernaðaríhlutun Bandaríkjanna í Kóreu og hef- ur lýst því yfir að Banda- ríkin hafi ástæðu til að beita valdi til að hindra útbreiðslu kommúnisma ef hann gerist jafn árásarsinna og nazisminn. En grein sem hann skrifar um friðarmál var hafnað af tylft tímarita, þar á meðal tímarita, sem hafa boðið hbn- um stórfé fyrir að skrifa hvað sem er um böm. Hann hristir enn höfuðið yfir bréfi sem hann fékk frá Harper's Maga- zine: „Þótt ég beri mikla virð- ingu fyrir hæfileikum yðar sem læknis og sálfræðings", skrifaði aðalritstjórinn honum, „vona ég bér misvirðið ekki þótt ég ef- ist um að þér séuð iafnfær um að fjalla um alþjóðamáT'. „Allar þessar synjanir hafa oonað augu mín“, segirSpock. ..Ég hef komizt að því. að allir ,,eru með friði, en....“. Ég hef sagt við sjálfan mig: ég skal fá þá til að hugsa sig um“. í grein sinni mótmælir dr. Spock þeirri afskræmdu mynd af kommúnisma sem Banda- ríkjámenn hafa gert. sér- Hann segir á þá leið. að þegar böm- um sé kennd nútímasaga eigi menn að segja þeim frá órétt- látum árásum kommúnista eins oe Hví hvernie beir hafi innlimað ná>Jrannaríki ..En við Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.